Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum
94. fundur
25. mars 2026 kl. 15:15 - 16:30
í stóra fundarsal í Ráðhúsi
Nefndarmenn
Ása Erlingsdóttir - aðalmaður
Dagný Pétursdóttir - aðalmaður
Sigurður Friðgeir Friðriksson - aðalmaður
Starfsmenn
Logi Sigurðsson - umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Logi Sigurðsson - Umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1. Skógræktarfélag Borgarfjarðar - Vinna í Einkunnum 2026
2603247
Sveinn Þórólfsson fyrir hönd Skógræktarfélags Borgarfjarðar kemur til fundar til að fara yfir vinnu félagsins í Einkunnum árið 2026. Farið yfir hvernig samvinnu verður háttað, hvaða verkefni liggja fyrir og fjárhagsáætlun.
Nefndin þakkar Sveini fyrir kynningu á fyrirhuguðum verkefnum á árinu.
2. Skipulag og kortagerð í Einkunnum
2508228
Farið yfir stöðu mála í kortagerð. Hönnuður hefur skilað af sér drögum að korti til nefndarinnar.
Nefndin fór yfir drög og kom með ábendingar er varðar það.
Stefnt er á að kort verði tilbúin fyrir sumarið.
Einnig var rætt á hvaða hátt kortið verður sett upp í Einkunnum, til að mynda með staðsetninga skilta.
3. Stígagerð og þemasvæði í Einkunnum
2603248
Undanfarna mánuði hefur nefndin verið að vinna í stígagerð sem liggur mestmegnis vestan og norðvestan megin í jaðri Litlu-Einkunna, einnig hefur hafist vinna við upplifunarsvæði.
Nefndin ræddi um næstu skref í stígagerð um nýjan appelsínugulan stíg í kringum Álatjörn.
4. Samráðsfundur með Náttúruverndarstofnun
2603250
Umsjónanefnd fólkvangsins í Einkunnum sem vinnur m.a. eftir friðlýsingu Einkunna skv. auglýsingu í stj.tíð. B. deild. 480/2006 (19. maí 2006).
Nefndin kallar eftir samráðsfundi með Náttúruverndarstofnun, með það að markmiði að efla samskipti og fræðslu. Nefndin telur mikilvægt að góð samskipti og samvinna séu á milli þessara tveggja aðila. Stefnt er að því að fá fulltrúa stofnunarinnar á næsta fund nefndarinar.
5. Önnur mál Umsjónarnefndar fólkvangsins í Einkunnum
2603252
Rætt um að endurnýjun á aðkomuskilti að Einkunnum.
Nefndin ákveður að endurnýja og bæta við skiltum til þess að auka sýnileika, aðgengi og upplýsingar um svæðið.
Fundi slitið - kl. 16:30