Fundargerð
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar
85. fundur
10. apríl 2026 kl. 13:00 - 15:00
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Starfsmenn
Dagskrá
1. Hvítárbakki 7 - umsókn um aðalskipulagsbreytingu - L179429
Breytingin tekur til fjölgunar á heimiluðum gistirúmum úr. Lóðin er 9.660m² og er þar rekið gistiheimili og var landnotkun svæðisins breytt úr samfélagsþjónusta í verslun og- þjónusta (VÞ213) í endurskoðun aðalskiplags.
Fyrirhuguð er uppbygging og aukning gistiþjónustu á svæðinnu.
Meðfylgjandi er lýsing breytingar á aðalskipulagi og nýs deiliskipulags Hvítárbakka 7 dags. 28.03.2026.
Samþykkt samhljóða.
2. Skúlagata 14 - Umsókn um lóðaleigusamning
Merkjalýsing sem staðfestir afmörkun lóðarinnar Skúlagötu 14 (L135786) samræmist deiliskipulagi á svæðinu. Eitt mannvirki er á lóðinni, Einbýlishús. Lóðin er skráð 420 fm í fasteignaskrá HMS en verður 1070,5 fm eftir breytingu og afmörkun.
Samþykkt samhljóða.
3. Hamar - Umsókn um stofnun lóða
Og afgreiðsla af fundi Sveitarstjórnar Borgarbyggðar nr. 275: „Sveitarstjórn samþykkir að stofnuð verði lóð úr landi Hamars lnr. L135401 í Borgarbyggð með merkjalýsingu og um hana verði í kjölfarið gerður lóðaleigusamningur. Um er að ræða afmörkun lóðar innan núverandi samnings.“
Lögð er fram ósk um stofnun tveggja nýrra lóða Hamar - Golfsvæði 1 og Hamar - Gamli bær úr landi Hamars (L135401) í Borgarbyggð. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.
Hamar - Golfsvæði 1 er lóð undir mannvirki Golfklúbbs Borgarness og verður 3406,7 m2 að stærð. Matshlutar sem flytjast á hana er mhl-03 áhaldageymsla, mhl-04 vélageymsla og mhl-05 geymsla,skýli.
Hamar - Gamli bær er lóð undir Hamarsbæinn og verður 796,3 m2 að stærð. Matshluti mhl-02 golfskáli flyst á ný stofnaða lóð.
Meðfylgjandi er merkjalýsing fyrir lóðirnar dags. 13.03.2026.
Lóðirnar fara í notkunarflokkinn lóð.
Samþykkt samhljóða.
4. Margrétartún L134457 - Umsókn um stofnun lóða
Samþykkt samhljóða.
5. Hátún - umsókn um stofnun lóða - 172733
Lóðin er skráð 8.850 fm og fer í 19.423,4 fm og skilgreind sem íbúðarhúsalóð. Lóðin var uppmæld og uppfærð afstöðumynd sem lögð var inn 2001, lóðin var þá afmörkuð 15.660,5 fm. Verið er að lagfæra skráningu ásamt stækkun sem nemur 3.771,9 fm með uppfærðu lóðarblaði. Stækkun lóðarinnar kemur úr landi Samtúns L134457 og landið minnkar sem því nemur.
Aðkoma að lóðinni er frá Reykdælavegi (517).
Óskað er eftir afstöðu sveitafélags á afmörkun lóðar.
Samþykkt samhljóða
6. Vanaheim - umsókn um breytingu á landnotkun - F2535890
Svæðið er skilgreint sem verslun- og þjónusta (VÞ601) ásamt Hverfisvernd (HV2) í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037.
Samþykkt samhljóða.
7. Fyrirspurn um skipulagsmál - Egilsgata 11
Nefndin felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram og leggja fyrir Byggðarráð.
Samþykkt samhljóða.
8. Fyrirspurn um skipulagsmál-Brúartorg 1
Fyrirhugað er að koma fyrir tveimur afgreiðslueyjum fyrir allt að sex ökutæki samtímis. Allur búnaður fyrir rafmagnshleðslur kemur fullbúinn til uppsetningar. Búnaðurinn er boltaður á forsteyptar einingar. Engar breytingar eru gerðar á núverandi mannvirkjum.
Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.
Meðfylgjandi er uppdráttur af lóð og afstöðummynd hleðslustæða dags. 28.01.2026.
Samþykkt samhljóða.
9. Húsafell 3 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi - Stórarjóður 6 L134495
Breytingin felst í því að byggingarreitur er lengdur um nokkra metra til norð-austurs og suð-austurs auk þess sem hann er einnig settur utan um núverandi fylgihús sem er á lóðinni en húsið stendur nær lóðamörkum en 10m. Aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags haldast óbreyttir.
Kynnt var frá 17.02 - 19.03.2026 fyrir hagsmunaaðilum í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. 1 hagsmunaaðili kom með athugasemdir við breytinguna á kynningartíma.
Breytingin felst í því að byggingarreitur er lengdur um nokkra metra til norð-austurs og suð-austurs auk þess sem hann er einnig settur utan um núverandi fylgihús sem er á lóðinni en húsið stendur nær lóðamörkum en 10m. Aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags haldast óbreyttir.
Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnum athugasemdum og koma þeim á framfæri við málsaðila.
Samþykkt samhljóða.
10. Syðstu-Fossar - umsókn um framkvæmdarleyfi - 133909
umsókn um framkvæmdaleyfi frá Cowi fyrir hönd landeiganda að Syðstu-Fossum í Borgarbyggð að nýju
með uppfærðum gögnum. Grenndarkynnt var fyrir nágrönnum sem mögulega eiga hagsmuna að gæta
og óskað var umsagna í gegnum skipulagsgátt. Kynningartími var frá 13. janúar til 13. febrúar 2026.
Athugasemdir og umsagnir bárust frá 5 aðilum vegna málsins á kynningartíma, Minjastofnun Íslands,
Náttúruverndarstofnun, Skorradalshreppi, Vegagerðinni og Sveppafélaginu ehf. Nefndin telur að svör
og viðbrögð framkvæmdaaðila séu fullnægjandi.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnum athugasemdum.
Samþykkt samhljóða.
11. Umsagnir - skipulagsmál
aðalskipulags Húnabyggðar 2025-2037. Meðfylgjandi er greinargerð vinnslutillögu og sveitarfélagsuppdráttur suður. Önnur gögn eru aðgengileg í skipulagsgátt.
Samþykkt samhljóða.
12. Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 71
12.1
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að breyta stærð lóðanna eins og eftirfarandi:Brókarstígur 24(L177311) úr 2.504 fm í 2.952 fm,Brókarstígur 26(L177313) úr 3.380 fm í 3.965 fm,Brókarstígur 27(L177314) úr 2.971 fm í 3.818 fm,Brókarstígur 28(L177315) úr 3.638 fm í 4.620 fm,Brókarstígur 30(L177312) úr 2.502 fm í 2.559 fm.Skipulagsfulltrúi samþykkir jafnframt fyrir sitt leyti að stofna 480 fm lóð í kringum borholu, Brókarstígur 27a, úr upprunalandinu Urriðarárland (L191286) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Ný stofnaða lóðin fer í notkunarflokkinn viðskipta- og þjónustulóð.
12.2
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að afmarka og breyta stærð lóðar Langárfosss veiðihús (L135939) úr 1.746 fm í 59.708 fm þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.
12.3
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. Samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að grenndarkynnt verði óveruleg breyting á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir eigendum sumarhúsa að Kiðárbotnum 15 og 60.
12.4
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. Samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010. Breytingin á við um svo óveruleg frávik að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og 3. mgr. 44. gr. sömu laga.Skipulagsfulltrúi bendir á að skoða þurfi umrætt deiliskipulag, útmörk og skörun þess við aðliggjandi deiliskipulag flugvallarins.
12.5
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar byggingarfulltrúa að taka til afgreiðslu byggingaráform þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar undirritað samþykki landeigenda aðliggjandi landa fyrir aðkomuvegi að húsinu liggur fyrir.
12.6
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna rannsóknarborunar með vísan til framlagðra gagna. Leiðbeiningar og skilyrði varðandi framkvæmdina sem sótt er um og eru á valdi skipulagsfulltrúa munu koma fram í framkvæmdaleyfi. Sýnt er að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010
12.7
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi vegna veitulagna með vísan til framlagðra gagna. Leiðbeiningar og skilyrði varðandi þær framkvæmdir sem sótt er um og eru á valdi skipulagsfulltrúa munu koma fram í framkvæmdaleyfi.
13. Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 72
13.1
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, frestar málinu. Skipulagsfulltrúi óskar eftir frekari upplýsingum um áform um skógrækt. Samband verður haft við málsaðila.
13.2
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, frestar málinu. Skipulagsfulltrúi óskar eftir frekari upplýsingum um áform um skógrækt. Samband verður haft við málsaðila.
13.3
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna vegagerðar og vegtengingar með vísan til framlagðra gagna. Vegtengingin við Þjóðveg 1 sé þó eingöngu flóttaleið þar sem almenn umferð sé ekki heimil og skal hún því vera lokuð. Samráð skal haft við slökkvilið Borgarbyggðar varðandi uppbyggingu á veginum.Sýnt er að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010
13.4
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar frestar málinu og óskar eftir frekari upplýsingum um framkvæmdina.
13.5
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar byggingarfulltrúa að taka til afgreiðslu byggingaráform þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
14. Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 73
14.1
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010.
14.2
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. Samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að grenndarkynnt verði óveruleg breyting á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir eigendum aðliggjandi lóða.
14.3
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna lagningar háspennustrengja í jörð á lóðinni Brúartorg 6 með vísan til framlagðra gagna. Sýnt er að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda þar sem fyrirliggjandi er samþykki lóðarhafa og Vegagerðarinnar. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010
14.4
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að afmörkuð verði 4000 fm lóð, Jötnagarðsás 38, úr upprunalandinu Munaðarnes (L134915) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Lóðin fer í notkunarflokkinn sumarbústaðalóð. Stærð og afmörkun lóðarinnar er í samræmi við deiliskipulag svæðisins.
15. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 256
15.1
Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
15.2
Um er að ræða endurupptöku á máli dags 15.05.2023Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
15.3
Um er að ræða endurupptöku á eldra máli dags 01.09.2022Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð. Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð. Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt: - Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni. - Leyfisgjöld hafa verið greidd
15.4
Samþykkt
15.5
Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
15.6
Samþykkt
15.7
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
15.8
Erindið er samþykkt. Byggingarfulltrúi hefur móttekið umsókn um tilkynningarskylda framkvæmd sbr. gr. 2.3.6. í byggingarreglugerð 112/2012.
15.9
Samþykkt
15.10
Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
15.11
Erindið er samþykkt. Byggingarfulltrúi hefur móttekið umsókn um tilkynningarskylda framkvæmd sbr. gr. 2.3.5. í byggingarreglugerð 112/2012.
15.12
Um er að ræða undurupptöku á eldra máli sem var samþykkt á afgreiðslufundi byggingafulltrúa dags. 02.05.2023.Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð. Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð. Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt: - Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni. - Leyfisgjöld hafa verið greidd.
16. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 257
16.1
Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
16.2
Samþykkt.Athugasemdir: Niðurrif skal gera í samræmi við reglur heilbrigðiseftirlits Vesturlands
16.3
Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
16.4
Erindið er samþykkt. Byggingarfulltrúi hefur móttekið umsókn um tilkynningarskylda framkvæmd sbr. gr. 2.3.5. í byggingarreglugerð 112/2012.
16.5
Sækja þarf um afnám friðunar til Minjastofnunar Íslands.Erindinu er frestað þar til nánari gögn berast.
16.6
Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
16.7
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
16.8
Erindinu er vísað til umsagnar Skipulagsfulltrúa.
16.9
Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.Uppfæra þarf aðaluppdrætti með réttu landnúmeri og matshluta.