Byggðarráð Borgarbyggðar

740. fundur

9. apríl 2026 kl. 08:15 - 09:45

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - formaður
Guðveig Eyglóardóttir - varaformaður
Thelma Dögg Harðardóttir - áheyrnarfulltrúi
Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir boðaði forföll og Kristján Rafn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi sat fundinn í hans stað

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Lilja Björg Ágústsdóttir - Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir - staðgengill sveitarstjóra


Dagskrá

1. Beiðni frá Golfklúbbi Borgarness um langtímarekstrarstyrk
2603133

Lagt fram samkomulag vegna rekstrarstyrks um rekstur GB á golfvellinum Hamri.

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagðan samning við Golfklúbb Borgarness og að gerður verði viðauki til að mæta kostnaðarauka sem honum fylgir. Málinu vísað til sveitarstjórnar.



Samþykkt samhljóða



2. Fyrirhuguð hækkun VSK á baðlón
2604005

Fjallað um áform ríkisvaldsins að hækka virðisaukaskatt á baðlón en ljóst er að slík hækkun hefur bein áhrif á baðlónastarfssemi, ferðaþjónustu og mögulega aðra atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu.

Fyrir helgina birti ríkisstjórnin áform um að hækka virðisaukaskatt á baðlón. Þessi hækkun snertir a.m.k. Kraumu og Giljaböðin í Húsafelli beint, en ljóst er að neikvæð áhrif gætu hæglega smitast yfir á aðra atvinnustarfsemi í Borgarbyggð. Mikil fjárfesting hefur átt sér stað í ferðaþjónustu í Borgarbyggð síðustu ár sem hefur haft jákvæð áhrif á atvinnulíf í sveitarfélaginu.

Þetta er því mál sem snertir ekki aðeins rekstur fárra fyrirtækja heldur alla virðiskeðju ferðaþjónustunnar. Baðlónin í Borgarbyggð eru mikilvægir seglar í ferðaþjónustu á svæðinu sem draga að ferðamenn og styðja við fjölbreyttari atvinnutækifæri, meiri dreifingu ferðamanna og þjónustu svo að aukin verðmæti verði eftir á svæðunum sjálfum.

Baðlón eru skv. könnun Ferðamálastofu vinsælasta afþreying bæði erlendra og innlendra ferðamanna. Þá hefur íslensk baðmenning nýlega verið viðurkennd á heimsminjaskrá UNESCO og er því nú enn sterkari sem helsta sérstaða landsins hvað varðar markaðssetningu til verðmætari ferðamanna til framtíðar.

Byggðarráð Borgarbyggðar lýsir áhyggjum af því að þessi áform eigi eftir að hafa neikvæð og kólnandi áhrif á ferðaþjónustuna og skorar á stjórnvöld að falla frá þessum áformum um skattahækkun.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


3. Beiðni eigenda Hæls um að jörðin verði tekinn af afréttarskrá.
2602154

Framlagt bréf frá lögmnanni landeigenda Hæls í Flókadals: Athugasemdir og krafa um endurskoðun vegna erindis eigenda Hæls í Flókadal umbreytingu á afréttaskrá.

Farið yfir efni bréfins frá lögmanni eigenda Hæls í Flókadal. Sveitarstjóra falið að svara erindinu í samræmi við umræður á fundi.





Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


4. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170

Framlögð tillaga að umsögn vegna máls nr. 582 - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits), sbr. afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 739.

Samstarf sveitarfélaga um rekstur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands verið farsælt. Um er að ræða mjög mikilvæga þjónustu fyrir íbúa, stofnanir og atvinnulíf þar sem staðbundin þekking getur skipt sköpum. Þetta er starfsemi sem byggir á öflugu starfsfólki með staðgóða þekkingu sem er reiðubúið að bregðast hratt við. Mjög vel ígrunduð rök þurfa að búa að baki því að ráðast í svo stóra kerfibreytingu sem frumvarpið felur í sér. Þau rök hafa ekki komið fram svo sannfærandi sé og mikill vafi leikur á að kerfisbreytingin verði til batnaðar.

Byggðarráð Borgarbyggðar ítrekar því fyrri afstöðu sína til fyrirhugaðra breytinga á lögum um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Í bókun frá 720. fundar byggðarráðs frá 18. september 2025 segir: ?Ef svo fer sem horfir virðist vera lögð aukin áhersla á miðstýringu eftirlitsstofnana sem getur haft í för með sér að staðbundin þekking geti tapast, þjónustulund minnki, viðbragðstími lengist og kostnaður notenda hækki.?

Byggðarráð telur að þessi sjónarmið séu enn í fullu gildi. Sveitarfélagið tekur undir þær áhyggjur sem fram koma í umsögnum Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Augljóst er að fyrirhugaðar breytingar fela í sér verulega tilfærslu á verkefnum og ábyrgð frá sveitarfélögum til ríkisins, sem mun hafa áhrif á gæði þjónustu, framkvæmd eftirlits og samstarf stofnana.

Mikil hætta er á að staðbundin þekking og reynsla, sem byggst hefur upp innan heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga á löngum tíma, glatist eða veikist. Það mun leiða til minni þjónustulundar, lengri viðbragðstíma og aukins kostnaðar fyrir íbúa og atvinnulíf, auk þess sem hún getur dregið úr sveigjanleika og skilvirkni í framkvæmd eftirlits.

Byggðarráð telur að frumvarpið geri of lítið úr mikilvægi þess að eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum sé nálægt vettvangi. Nálægð við íbúa og fyrirtæki er lykilforsenda stöðugs árangursríks eftirlits og stuðlar að trausti, skilvirkum samskiptum og betri niðurstöðum.

Byggðarráð telur að ekki hafi verið sýnt fram á að þær breytingar sem lagðar eru til muni í raun leiða til aukinnar skilvirkni eða einföldunar í framkvæmd. Þvert á móti óttast byggðarráð að breytingin hafi neikvæð áhrif á þjónustustig, kostnað og gæði eftirlits.

Að lokum leggur byggðarráð áherslu á að skýrt liggi fyrir hvernig verkaskiptingu og ábyrgð milli ríkis og sveitarfélaga verður háttað. Þennan þátt þarf að skýra mun betur í frumvarpinu.



Samþykkt samhljóða



5. Styrktarsjóður EBÍ-umsóknarfrestur til febrúarloka 2026
2601254

Framlagt bréf frá Styrktarsjóði EBÍ þar sem samþykkt er að veita styrk að fjárhæð 450.000 í verkefnið Göngustígur og upplýsingaskilti við Hlíðartúnshúsin í Borgarnesi.

Byggðarráð fagnar því að fengist hafi styrkur í verkefnið Göngustígur og upplýsingaskilti við Hlíðartúnshúsin og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samstarfi við umhverfis og landbúnaðarnefnd og starfsmenn sviðsins.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


6. Egilsholt 1 - lóðarfrágangur
2602071

Lögð fram drög að samkomulagi við Kaupfélag Borgfirðinga vegna skerðingar á lóð við Egilsholt 1.

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja samkomulag um lúkningu máls milli Borgarbyggðar og Kaupfélags Borgfirðinga vegna skerðingar á lóð kaupfélagsins við Egilsholt 1. Sveitarstjóra falið að senda samning á fyrirsvarsmenn KB og leggja í framhaldinu fyrir sveitarstjórn til samþykktar. Byggðarráð leggur til að gerður verði viðauki vegna kostnaðar í tengslum við uppgjörið.



Samþykkt samhljóða



7. Útboð á hýsingu, kerfisrekstri og notendaþjónustu tæknilegra innviða
2510364

Lögð fram opnunarskýrsla vegna útboðs á hýsingu, kerfisrekstri og notendaþjónustu tæknilegra innviða.

Byggðarráð leggur til að valið verði tilboð Advania ehf., kt. 590269-7199, í útboði nr. 2510364: ,, Hýsing og rekstur upplýsingatækniumhverfis Borgarbyggðar, auk notendaþjónustu“ og vísar málinu til sveitarstjórnar.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


8. Fyrirhugaðar lokanir í Hvalfjarðargöngum
2604010

Hvalfjarðargöng verða lokuð aðfaranætur mánudags til föstudags frá klukkan 21:30 til 06:00 að morgni frá 7. apríl til 29. maí. Opið verður fyrir umferð aðfaranætur laugardags og sunnudags.

Vegna endurnýjunar á lýsingu í Hvalfjarðargöngum er hafið tímabil þar sem göngin verða lokuð fyrir umferð á virkum dögum frá kl. 21.30 til 6.00 til 29. maí. Á þeim tíma verður umferð vísað um Hvalfjörð. Hvalfjarðargöng eru mikilvæg lífæð fyrir Vesturland og sífellt fleiri treysta á göngin svo sem vegna atvinnu eða skóla.

Endurbætur á lýsingu í göngunum er fagnaðarefni en afleitt að þær leiði til tímabundinnar lokunar. Byggðarráð leggur áherslu á að tryggt verði að bráðaþjónusta geti eftir sem áður átt greiða leið um göngin. Þá hvetur byggðarráð Vegagerðina og verktaka til að sýna sveigjanleika ef brýnir hagsmunir eru í húfi og sýna ákveðið meðalhóf með því að bjóða upp á fylgdarakstur þegar það er mögulegt.

Tímabundin lokun Hvalfjarðarganga sýnir enn og aftur mikilvægi þess fyrir Vesturland að fjölga heilsárssamgönguleiðum milli landshlutans, höfuðborgarsvæðisins og Suðurlands svo sem með uppbyggingu heilsársvegar um Uxahryggi.





Samþykkt samhljóða



9. Útboð á skóla- og tómstundaakstri fyrir skólaárið 2026-2027
2509087

Kynnt drög að útboði á skólaakstri.

Byggðarráð leggur til að skólakstur verði boðinn út til fjögurra ára og sveitarstjóra falið að vinna áfram að útboðsgögnum í samræmi við umræður á fundi og leggja fyrir sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða



10. Aðalfundur Veiðifélags Hítarár 2026
2604022

Fundarboð á aðalfund veiðifélags Hítarár lagt fram.

Fundarboð framlagt.

Fylgiskjöl


11. Sveitarstjórnarkosningar 2026
2601070

Lagt fram minnisblað um staðsetningu og opunartíma kjörstaða í Borgarbyggð og Skorradalshreppi.

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að staðfesta staðsetningar og opnunartíma kjörstaða vegna sveitarstjórnarkosninga 2026. Að fyrirkomulagið verði eftirfarandi:

Kjörstaðir verða óbreyttir frá því sem áður hefur verið í Borgarbyggð eða samkvæmt gildandi samþykktum sveitarfélagsins. Samþykkt hefur verið að Skorradalur verði ein sérstök kjördeild sbr. mál nr. 2602076 sem tekið var fyrir þann 12. febrúar sl. í sveitarstjórn Borgarbyggðar og mál nr. 2602001 sem var tekið fyrir í Hreppsnefnd Skorradals þann 3. febrúar sl.

Borgarneskjördeild mun þjóna íbúum sem búa á svæðinu milli Hítarár og Gljúfurár, ásamt íbúum Hvanneyrar og Andakíls. Kosið verður í Hjálmakletti. Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.

Þinghamarskjördeild verður fyrir íbúa Stafholtstungna, Norðurárdals, Bifrastar og Þverárhlíðar. Kosið verður í Þinghamri. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.

Lindartungukjördeild er ætlað íbúum sem búa á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. Kosið verður í félagsheimilinu Lindartungu. Yfirkjörstjórn leggur til að opnunartími Lindartungukjördeildar verði styttur um tvo klukkutíma en kjörfundur mun hefjast kl. 10:00 og ljúka kl. 18.00.

Kleppjárnsreykjakjördeild verður fyrir íbúa Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals, Reykholtsdals, Hvítársíðu og Hálsasveitar. Kosið verður í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Yfirkjörstjórn leggur til að opnunartími Kleppjárnsreykjakjördeildar verði styttur og í takt við opnunartíma í Þinghamarskjördeild eða frá kl. 10.00 og myndi þá ljúka kl. 20.00.

Skorradalskjördeild verður fyrir íbúa Skorradals. Kosið verður í Laugarbúð. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00.



Málinu vísað til sveitarstjórnar



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


Fundi slitið - kl. 09:45