Fræðslunefnd Borgarbyggðar
253. fundur
31. mars 2026 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Eðvar Ólafur Traustason boðaði forföll og Sigrún Ólafsdóttir - varamaður sat fundinn í hans stað
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - aðalmaður
Guðveig Eyglóardóttir - aðalmaður
Bjarni Þór Traustason - aðalmaður
Guðríður Hlíf Sigfúsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
Hlöðver Ingi Gunnarsson - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Hlöðver Ingi Gunnarsson - sviðsstjóri
Á fundinum voru áheyrnafulltrúar grunnskóla, Birna Hlín fulltrúi kennara og Kristín Magdalena fulltrúi foreldra. Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir var áheyrnarfulltrúi stjórnenda á leikskólaum. Áheyrnarfulltrúar grunnskóla voru undir liðum 1, 4 og 5. á dagskrá.Fulltrúar leikskóla voru undir liðum 1,2 og 3.
Dagskrá
1. Skóladagatöl fyrir leik-, grunn- og listaskóla Borgarbyggðar
2501033
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs leggur fram tillögu að skóladagatölum fyrir leik- og grunnskóla Borgarbyggðar. Einnig eru lagaðar fram drög að reglum um skóladagatöl.
Lagt fram til kynningar tillögu að skóladagatölum og drög að reglum um skóladagatöl. Nú fara skóladagatölin til umsagnar í skólum sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
2. Skýrsla um úthlutun til leikskóla
2603325
Sviðsstjóri leggur fram skýrslu um úthlutun stöðugilda til leikskóla Borgarbyggðar.
Lagt fram til kynningar. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir skýrslu um úthlutun til leikskóla Borgarbyggðar. Þar er einnig farið yfir drög að verklagsreglum um úthlutun til leikskóla og drög að reglum um úhlutun fjármagns vegna stoðþjónustu í leikskólum Borgarbyggðar.
3. Ugluklettur - Stækkun
2212062
Farið yfir ákvörðun Byggðarráðs um að fresta samþykkt tilboðs í stækkun við Ugluklett.
Lagt fram til kynningar.
4. Fjórblómið - mönnun grunnskóla
2601055
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir vinna við gerð stöðugildalíkans fyrir grunnskóla.
5. Ósk um breytingu á upptökusvæði skóla.
2601091
Farið yfir umsögn frá skólaráði Grunnskóla Borgarfjarðar.
Lögð fram umsögn skólaráðs Grunnskóla Borgarfjarðar. Skólaráð skólans tekur vel í að breyta upptökusvæðum.
Fræðslunefnd leggur til að upptökusvæði verði breytt. Sviðsstjóra falið að uppfæra reglur um upptökusvæði og kynna á næsta fundi nefndarinnar.
Samþykkt samhljóða.
6. Aðstaða til myndalistakennslu í Listaskólanum
2603284
Lagt fram til kynningar.
Fræðslunefnd tekur jákvætt í erindið og felur sviðstjóra fjölskyldusviðs að vinna málið áfram.
7. UMSB - samstarfssamningur
2409322
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnir stöðuna á viðræðum við UMSB.
Umræður um stöðuna á samningarviðræðum við UMSB. UMSB hefur komið með tillögu að viðauka við samnninginn.
Fræðslunefnd telur að samtalið við UMSB þurfi að halda áfram og ljóst sé að vinna þurfi áfram með málið til þess að hægt sé að gera langtímasamning.
Fræðslunefnd felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að gera tillögu að árssamningi við UMSB eftir umræður á fundinum.
Samþykkt samhljóða.
8. Reglur um starfsemi frístundarheimila í Borgarbyggð
2602141
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir drög að reglum um frístundaheimila í Borgarbyggð.
Máli frestað.
9. Útboð á skóla- og tómstundaakstri fyrir skólaárið 2026-2027
2509087
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir drög að útboð á skólaakstri.
Sviðsstjóri fer yfir drög að útboði á skólaakstri.
Fræðslunefnd mælir með því að allir bílar sem aka malarvegi sveitarfélagsins séu með fjórhjóladrif.
Málinu er vísað til byggðarráðs.
Samþykkt samhljóð.
Fundi slitið - kl. 18:00