Dagskrá
1. Ársreikningur Borgarbyggðar 2025
2603329
Framlögð drög að ársreikningi 2026. Til fundarins koma undir þessum dagskrárlið Halldóra Ágústa Pálsdóttir frá KPMG, Sigurður Kristjánsson fjármálastjóri og Kristín Lilja Lárusdóttir yfirbókari.
Samstæða Borgarbyggðar var rekin með 31 m.kr. halla á árinu 2025 og rekstur A-hluta var gerður upp með 92 m.kr. halla. Rekstrarhagnaður samstæðu fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 334 m.kr. en 67 m.kr. af rekstri A-hluta.
Rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er 233 m.kr. undir áætlun sveitarfélagsins og skýrist frávik aðallega af 90 m.kr. meiri hækkun lífeyrisskuldbindingar en áætlað var ásamt því sem um 120 m.kr. kostnaður við fjárhagsaðstoð við langtímaflóttafólk hefur ekki fengist endugreiddur.
Rekstrartekjur A-hluta Borgarbyggðar voru tæplega 6,7 ma.kr. á árinu 2025 og jukust um 1,4% á milli ára. Útsvarstekjur jukust um 9,1% og voru 3,3 ma.kr. og skatttekjur samtals jukust um 6,8%.
Veltufé frá rekstri samstæðu Borgarbyggðar var 542 m.kr. sem samsvarar 7,0% framlegð en 372 m.kr. af starfsemi A-hluta sem samsvarar 5,6% framlegð. Hreinar fjárfestingar í A-hluta Borgarbyggðar námu 2,7 ma.kr. Þar standa tvær fjárfestingar upp úr, bygging nýs fjölnota íþróttahúss - knatthúss í Borgarnesi og endurbygging Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Þá var fjárfest í gatnagerð, endurbótum á íþróttahúsinu í Borgarnesi og niðurrif hafið í Brákarey svo eitthvað sé nefnt. Á árinu 2025 nam hrein ný lántaka A-hluta Borgarbyggðar 2,3 ma.kr. og voru heildarskuldir- og skuldbindingar samtals 6,5 ma.kr. í árslok. Heildareignir voru bókfærðar á 13,2 ma.kr. í lok árs 2025 og eigið fé samtals um 6,7 ma.kr. sem samsvarar um 51% eiginfjárhlutfalli. Skuldaviðmið samstæðu var í lok árs 71,4% og 70,1% fyrir A-hluta.
Á fyrri hluta þessa árs verður lokið við framkvæmdir við fjölnota íþróttahús - knatthús, og gatnagerð við Vallarás og Kveldúlfshöfða í Borgarnesi. Nýr markaðsvefur fyrir lóðir í sveitarfélaginu er kominn í loftið og ný hverfi tilbúin til uppbyggingar.
Skuldsetning sveitarfélagsins hefur aukist samhliða uppbyggingu. Rekstur ársins 2025 var þyngri en áætlun gerði ráð fyrir og skuldir því ívið hærri undir lok árs 2025 en áætlað hafði verið. Á þessum tímapunkti metur byggðarráð það sem svo að hætt sé við að tekjur á árinu 2026 verði lægri en áætlun gerði ráð fyrir og er þar helst horft til framlaga frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og endurgreiðslna vegna fjárhagsaðstoðar. Því er tilefni til að rýna reksturinn, fjárfestingar og lántökur ársins með það fyrir augum.
Samþykkt samhljóða og vísað til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Fylgiskjöl
2. Ugluklettur - Stækkun
2212062
Á fundi byggðarráðs nr. 738 dags. 26. mars var ákveðið að fresta ákvörðun um töku tilboðs fram að fundi byggðarráðs nr. 739 í ljósi þess að nú stendur yfir rýni á áætlun um tekjur ársins 2026, og áhætta er metin til lækkunar, og öll tilboð eru umfram kostnaðaráætlun. Hlöðver Ingi Gunnarsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Krístín Gísladóttir skólastjóri á Uglukletti komu til fundarins og sátu framan af umræðu um þennan dagskrárlið.
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að hafna öllum framkomnum boðum í verkið „Leikskólinn Ugluklettur - stækkun“ sem bárust á útboðstíma í samræmi við kafla 0.4.6 í útboðsgögnum og 2. mgr. 83. laga 120/2016, um opinber innkaup. Ljóst er að öll boð voru yfir kostnaðaráætlun eða frá 11% - 50%. Í ljósi upplýsinga frá Jöfnunasjóði sveitarfélaga sem komu fram nú á lokastigum útboðsferilsins gætu áætlaðar tekjur frá Jöfnunarsjóði orðið allt að 280 milljónum króna lægri en miðað er við í fjárhagsáætlun. Myndi það hafa veruleg áhrif á rekstur sveitarfélagsins en það í bland við hærri tilboð miðað við kostnaðaráætlun gerir það að verkum að tilefni er til að endurskoða rekstrar- og fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
3. Egilsgata 11 - lóðamál
2004149
Í framhaldi af afgreiðslu 735. fundar byggðarráðs er farið yfir stöðu málsins og kynnt tillaga að samkomulagi.
Farið yfir stöðu málsins og sveitarstjóra falið að vinna að samkomulagi í samræmi við umræðu á fundi.
Samþykkt samhljóða.
4. Háskólinn á Bifröst Fulltrúaráð og stjórn endurnýjun 2026
2603309
Tilnefningar á fulltrúum Borgarbyggðar í fulltrúaráð og stjórn Háskólans á Bifröst.
Byggðarráð Borgarbyggðar leggur til við sveitarstjórn að tilnefna Guðveigu Lind Eyglóardóttur sem aðalmann í stjórn Háskólans á Bifröst og Bjarneyju L. Bjarnadóttur sem varamann hennar. Þá leggur byggðarráð til að Brynja Þorsteinsdóttir verði fulltrúi Borgarbyggðar í fulltrúaráði og Sigrún Ólafsdóttir verði varamaður.
Samþykkt samhljóða og vísað til afgreiðslu í sveitarstjórn.
5. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 582. mál - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits)
Framlagt og sveitarstjóra falið að senda umsögn í samræmi við fyrri bókanir og umsagnar sem unnar hafa verið fyrir hönd sveitarfélagsins og umræðu á fundi.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
6. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170
Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar 568. mál - Stofnun atvinnuveganna
Framlagt.
Fylgiskjöl
7. Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
2602005
Framlögð fundargerð 996. fundar stjórnar Sambandsins frá 20. mars 2026.
Framlagt.
Fylgiskjöl
8. Útboð á hýsingu, kerfisrekstri og notendaþjónustu tæknilegra innviða
2510364
Framlögð opnunarskýrsla vegna útboðs á hýsingu og rekstri upplýsingatækniumhverfis Borgarbyggðar, auk notendaþjónustu.
Framlagt.
9. Aðalfundur Veiðifélags Langár
2603345
Lagt fram fundarboð á aðalfund Veiðifélags Langár.
Framlagt.