Fundargerð
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
257. fundur
27. mars 2026 kl. 09:45 - 10:45
á skrifstofu byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
Starfsmenn
Dagskrá
1. Fjóluklettur 15 L215398 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir íbúðarhúsi úr timbri á einni hæð. Byggt er úr timbri á steyptar undirstöður. Stærð: 228,2 m2, mhl-01.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: GM teiknistofa sf
2. högnastaðal.tækjahús - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif)
Húsið er í eigu Mílu hf.
Bygging og sökklar verða fjarlægðir í heilu lagi. Fyllt verður í grunn, lóð sléttuð. Ekkert efni fellur til förgunar
Fylgigögn: Veðbókarvottorð
Athugasemdir: Niðurrif skal gera í samræmi við reglur heilbrigðiseftirlits Vesturlands
3. Varmalækjarland - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir starfsmannahúsi. Um er að ræða aukahús á lóðinni Varmalækjarland 192673.
Húsið er byggt úr timbri á steyptar undirstöður.
Stærð 43m3. Mhl-02.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður:Arnar Ingi Ingólfsson
Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
4. Hraunteigur 18 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir byggingu geymslu við núverandi sumarhús. Stærð stækkunar 8,3m2. Eftir stækkun verður sumarhúsið 93,5m2. Byggt úr timbri á steyptar undirstöður.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Sigurður Unnar Sigurðsson
5. Ferjubakki - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif)
Um er að ræða Ferjubakki 1 (Trana). Húsið er byggt árið 1890.
Skráð stærð 192.5m2, mhl-03.
Erindinu er frestað þar til nánari gögn berast.
6. Hrafnaflöt 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir raðhúsi á lóðinni Hrafnaflöt 1, 3 og 5.
Heildarstærð er 378.7m2, mhl-01. Nýtingarhlutfall lóðar er 0.29. Húsið er byggt úr forsteyptum einingum með léttu timburþaki.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður:Andri Gunnar Lyngberg Andrésson
Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
7. Hvítárbrekkur 5 - Umsókn um byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi til að byggja við núverandi frístundahús (mhl-01). Einnig er sótt um að byggja baðhús(mhl-02). Gert er ráð fyrir, að viðbygging verði á steyptum sökkli með steyptri botnplötu, en núverandi hús er hefðbundið timburhús á steyptum sökkulsúlum. Stærð á sumarhúsi eftir stækkun verður 127,7m2. Stærð baðhúsins er 17.5m2. Baðhúsið er byggt er úr timbri á steyptar undirstöður
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Jón Logi Sigurbjörnsson
Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
8. Brúartorg 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir að koma fyrir rafmagnshleðslubúnaði á lóð fyrir öktæki.Engar breytingar eru á stærðum mannvirkja á lóð.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Guðmundur Oddur Víðisson
9. Stafholtsveggir 2 L194129 - Umsókn um byggingarleyfi_íbúðarhús
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir íbúðarhúsi á 1. hæð. Húsið er timburhús og stendur á þremur staðsteyptum sökkuldregurum. Stærð 56,4m2.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Vigfús Halldórsson.
Uppfæra þarf aðaluppdrætti með réttu landnúmeri og matshluta.