Byggðarráð Borgarbyggðar

738. fundur

26. mars 2026 kl. 08:15 - 12:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - formaður
Guðveig Eyglóardóttir - varaformaður
Thelma Dögg Harðardóttir - áheyrnarfulltrúi
Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Lilja Björg Ágústsdóttir - Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri


Dagskrá

1. Fjárhagsáætlun 2026
2505064

Umræða um fjárhagsáætlun 2026 með áherslu á helstu liði tekjuáætlunar.

Nú stendur yfir rýni á fjárhagsáætlun 2026 sérstaklega m.t.t. tekjuáætlunar. Þar er horft til áætlunar um framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga en þar er áhætta metin til lækkunar tekna. Þá er ljóst að ekki hafa fengist endurgreiðslur vegna fjárhagsaðstoðar sem lækka aðrar tekjur sveitarfélagsins. Í ljósi þessa felur byggðarráð sveitarstjóra að taka rekstrar- og fjárfestingaráætlun ársins til endurskoðunar.



Samþykkt samhljóða.





2. Ugluklettur - Stækkun
2212062

Framlögð tilkynning um val á tilboði vegna Leikskóla Ugluklett - viðbygging.

Í ljósi þess að nú stendur yfir rýni á áætlun um tekjur ársins 2026, og áhætta er metin til lækkunar, og öll tilboð eru umfram kostnaðaráætlun þá frestar byggðarráð ákvörðun um töku tilboðs fram að næsta fundi sem fram fer 1. apríl.



Samþykkt samhljóða.



Sæmundur Óskarsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.



3. Ugluklettur - Stækkun
2212062

Niðurstaða verðfyrirspurnar í verkeftirlit með stækkun Uglukletts. Óskað eftir samþykki byggðarráðs með að ganga til samninga við lægstbjóðanda.

Í ljósi þess að nú stendur yfir rýni á áætlun um tekjur ársins 2026, og áhætta er metin til lækkunar, og öll tilboð eru umfram kostnaðaráætlun þá frestar byggðarráð ákvörðun um töku tilboðs fram að næsta fundi sem fram fer 1. apríl.



Samþykkt samhljóða.



4. Stefnumótun fyrir Hjálmaklett
2603281

Rædd stefnumótun fyrir mennta- og menningarhúsið Hjálmaklett.

Byggðaráð felur sveitarstjóra að vinna drög að stefnu fyrir mennta- og menningarhúsið Hjálmaklett og leggja fyrir byggðarráð.



Samþykkt samhljóða.



5. Eigendanefnd Orkuveitunnar
2512102

Kynning fyrir byggðarráði á starfi eigendanefndar Orkuveitu Reykjavíkur. Til fundarins koma í gegnum fjarfundarbúnað Sævar Freyr Þráinsson forstjóri og Eiríkur Hjálmarsson sjálfbærnistjóri Orkuveitunnar og fara yfir kynningu á stöðu vinnu eigendanefndar.

Byggðarráð þakkar Sævari og Eiríki fyrir góða kynningu á vinnu eigendanefndar.



6. Beiðni frá Golfklúbbi Borgarness um langtímarekstrarstyrk
2603133

Farið yfir samningsgerð við Golfklúbb Borgarness sbr. afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 737.

Staða vinnu kynnt og sveitarstjóra falið að vinna áfram í samræmi við umræðu á fundi.



Samþykkt samhljóða.



7. Leigusamningur um land fyrir golfvöll að Hamri
2511138

Framlögð merkjalýsing fyrir tvær lóðir sem stofnaðar yrðu úr Hamarslandi L135401 sbr. afgreiðslu af fundum sveitarstjórnar nr. 275 og 263.

Merkjalýsingar framlagðar.



8. Sala samkomuhússins við Þverárrétt
2204038

Framlagt upplegg að fyrirkomulagi samkomulags um sölu á Samkomuhúsinu við Þverárrétt til Kvenfélags Þverárhlíðar.

Farið yfir vinnu við samningsgerð við Kvenfélagið. Byggðarráð samþykkir að halda samningsgerð áfram á þeim nótum sem kynntar voru.



Samþykkt samhljóða.



9. Egilsholt 1 - lóðarfrágangur
2602071

Farið yfir stöðu máls.

Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við Kaupfélag Borgfirðinga í samræmi við tillögur sem hafa gengið á milli aðila og leggja samningsdrög fyrir byggðarráð.



Samþykkt samhljóða.



Guðveig Lind Eyglóardóttir fór af fundi að afloknum þessum dagskrárlið.



10. Fjárhagsáætlun Skorradalshrepps 2026
2511065

Framlagður viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun Skorradalshrepps fyrir árið 2026.

Viðauki framlagður. Byggðarráð felur sveitarstjóra að óska eftir samtali við Skorradalshrepp um fyrirkomulag framkvæmda vegna ljósleiðara í Skorradalshreppi.



Samþykkt samhljóða.



11. Skipan í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1
2602149

Framlagt minnisblað sem unnið var að beiðni Skorradalshrepps vegna ákvörðunar félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um skipun raflínunefndar.

Minnisblað framlagt. Byggðarráð hefur tekið undir sjónarmið Skorradalshrepps og telur að staða vinnu við Holtavörðuheiðarlínu 1 kalli ekki á skipan raflínunefndar sbr. afgreiðslu 727. fundar byggðarráðs. Línustæði Holtavörðuheiðarlínu hefur ekki endanlega verið ákveðið né staðfest og ekki lokið við samninga við landeigendur, auk þess hefur ekki verið til staðar ágreiningur milli sveitarfélaga, sem fyrirhuguð lína kemur til með að fara í gegnum eða milli sveitarfélaga og Landsnets.



12. Aðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur 2026
2603269

Aðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur 2026 fer fram föstudaginn 17. apríl. Fundargögn framlögð.

Framlagt og felur byggðarráð sveitarstjóra að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.



13. Aðalfundarboð Reiðhallarinnar Vindási 2026.
2603241

Framlagt boð á aðalfund Reiðhallarinnar Vindási sem fram fer 9. apríl 2026.

Fundarboð framlagt og felur byggðarráð Davíð Sigurðssyni að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.

Fylgiskjöl


14. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 499. mál - varnir gegn sjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón)

Fylgiskjöl


15. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 505. mál - Sveitarstjórnarlög

Fylgiskjöl


16. Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
2602005

Framlögð fundargerð 994. fundar stjórnar Sambandsins frá 3. mars 2026.

Framlagt.

Fylgiskjöl


17. Ugluklettur - Stækkun
2212062

3. síðustu hönnunarfundargerðir

Fundargerðir framlagðar.



18. Úrskurðir örnefnanefndar vegna bæjarnafna í Borgarbyggð
2603187

Framlagðir úrskurðir örnefnanefndar um bæjarheitið Heima (L238596) og um bæjarheitin Vanaheim (L237771) og Jötunheim (L237773).

Framlagt.

Fylgiskjöl


19. Göngustígar - Verðfyrirspurn
2503353

Frágangur á göngustígum frá Hrafnakletti að Fjólukletti 2 sem og lagfæringar eftir breytingar.

Tölur úr verðfyrirspurn frá verktökum í malbikaðar stéttar annarsvegar og steyptra stétta hinsvegar.

Verkið kynnt og tölur úr verðfyrirspurn lagðar fram. Sveitarstjóra falið að rýna gögn og skoða heimildir í fjárhagsáætlun 2026.



Samþykkt samhljóða.



Ottó Ólafsson verkefnastjóri framkvæmda á skipulags- og umhverfissviði sat fundinn undir þessum dagskrárlið.



20. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170

Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar 530.mál - Lax- og silungsveiði o.fl.(bætt lagaumgjörð).

Fylgiskjöl


21. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170

Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar 529.mál - Lagareldi.

Fylgiskjöl


22. Stjórnsýsluskoðun Borgarbyggðar 2025
2603312

Kynnt skýrsla um stjórnsýsluskoðun Borgarbyggðar 2025.

Framlagt.

Fylgiskjöl


Fundi slitið - kl. 12:00