Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa
72. fundur
25. mars 2026 kl. 10:00 - 00:00
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Drífa Gústafsdóttir - skipulagsfulltrúi
Ásgerður H Hafsteinsdóttir - verkefnisstjóri
Kara Lau Eyjólfsdóttir - verkefnisstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði: Ásgerður Hafsteinsdóttir - Verkefnastjóri
Dagskrá
1. Sveinatunga - umsókn um framkvæmdarleyfi - L134822
2602296
Lögð er fram umsókn Farkosts ehf. dags. 27.02.2026 um framkvæmdaleyfi vegna skógræktar í landi Sveinatungu í Borgarbyggð (L134822). Fyrirhuguð er fjölnytja- og landgræsluskógrækt alls 90 ha og nær frá 140 - 280 m.y.s í austanverðum Sveinatungumúla. Land og skógur hefur tekið út landið og samþykkt að gera skógræktarsamning á tilgreindum hekturum. Í gildandi aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem landbúnaðarland og að hluta óbyggt svæði. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, frestar málinu. Skipulagsfulltrúi óskar eftir frekari upplýsingum um áform um skógrækt. Samband verður haft við málsaðila.
2. Brenna - umsókn um framkvæmdaleyfi - 134329
2603171
Lögð er fram umsókn Stigagils ehf. dags. 18.03.2026 um framkvæmdaleyfi vegna skógræktar á lögbýlinu Brennu í Lundarreykjadal (L134329). Fyrirhuguð er fjölytja- og landgræðsluskógrækt á um 185 ha svæði sem nær frá 100-300 m.y.s. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland í flokki II og IV í aðalskipulagi og að hluta sem frístundabyggð.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, frestar málinu. Skipulagsfulltrúi óskar eftir frekari upplýsingum um áform um skógrækt. Samband verður haft við málsaðila.
3. Galtarholt 1 Stekkjarás - umsókn um framkvæmdaleyfi -
2603144
Lögð er fram umsókn Félags sumarhúsaeigenda í Galtarholti 1, dags. 17.03.2026 um framkvæmdaleyfi vegna lagningar hringvegar í frístundabyggðinni Galtarholti 1, Stekkjarás (L191458) og tengingar við Þjóðveg 1 (flóttaleið). Um er að ræða frágang og fullgerð vegtengingar sem liggur framhjá lóðunum Lækjarvegi 11 og Mýrarvegi 12 innan frístundabyggðarinnar. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulag frá júlí 1989. Vegagerðin hefur samþykkt tenginu vegarins við Þjóðveg 1 en bendir þó á að einungis sé um flóttaleið að ræða og almenn umferð sé ekki heimil. Svæðið er skilgreint sem frístundabyggð í gildandi aðalskipulagi.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna vegagerðar og vegtengingar með vísan til framlagðra gagna. Vegtengingin við Þjóðveg 1 sé þó eingöngu flóttaleið þar sem almenn umferð sé ekki heimil og skal hún því vera lokuð. Samráð skal haft við slökkvilið Borgarbyggðar varðandi uppbyggingu á veginum.
Sýnt er að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010
Fylgiskjöl
4. Brúartorg 6 - umsókn um framkvæmdarleyfi - L135571
2603111
Lögð er fram umsókn Orkunnar dags. 12.03.2026 um framkvæmdaleyfi fyrir háspennustrengjum frá RARIK sem grafa þarf í jörð. Strengirnir munu liggja í spennistöð á lóðinni Brúartorg 6a (L240609). Lóðin er skilgreind sem iðnaðar- og athafnalóð. Deiliskipulag er á svæðinu. Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem miðsvæði.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar frestar málinu og óskar eftir frekari upplýsingum um framkvæmdina.
5. Grenihlíð 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2512070
Á 70. afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 16. febrúar 2026 var samþykkt að grenndarkynna fyrirhugað byggingarleyfi á 194,5 m² bílgeymslu að Grenihlíð 3 á Varmalandi (L134952). Grenndarkynnt var fyrir nágrönnum sem hagsmuna eiga að gæta og óskað eftir umsögnum í gegnum skipulagsgátt. Kynningartíminn var frá 17. febrúar til og með 19. mars 2026. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar byggingarfulltrúa að taka til afgreiðslu byggingaráform þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
Fundi slitið - kl. 00:00