Dagskrá
1. Samræmd móttaka flóttafólks
2303023
Farið yfir stöðu máls í kjölfar fundar sveitarstjórnar Borgarbyggðar með ráðherra félags- og húsnæðismála.
Að fundi loknum voru aðilar sammála um eftirfarandi samantekt um það sem fram kom. "Félags- og húsnæðismálaráðherra átti fund þann 18. mars 2026 með fulltrúum frá Borgarbyggð um stöðu flóttafólks sem búsett er á Bifröst. Meðal annars kom fram að kostnaður sveitarfélagsins vegna fjárhagsaðstoðar við hópinn hafi verið íþyngjandi fyrir sveitarfélagið og að Bifröst sé ekki ákjósanlegur staður til langtímabúsetu fólks og að taka þyrfti ákvörðun um framtíð staðarins með tilliti til þess. Ákveðið var að halda samtalinu áfram með áherslu á sameiginlegar tillögur ríkis og sveitarfélags um aðgerðir vegna framangreindra atriða."
Hlöðver Ingi Gunnarsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
2. Samræmdar greiðslur til stuðningsfjölskyldna
2601287
Verkefnahópi er samanstendur af fagaðilum hjá hverju sveitarfélagi á Vesturlandi var falið það verkefni að skoða gjaldskrár fyrir greiðslur stuðningsfjölskyldna, forsendur þeirra og samræma gjaldskrár á Vesturlandi. Skoðað var hvernig greiðslum til stuðningsfjölskyldna var háttað hjá nokkrum misfjölmennum sveitarfélögum á landinu og var lagt fyrir á 168. fundi Velferðarnefndar. Meðfylgjandi eru framlögð gögn frá verkefnahópnum sem voru lögð fyrir fundinn.
Bókun velferðarnefnd var eftirfarandi: "Velferðarnefnd þakkar verkefnahópnum fyrir sitt framlag í því að móta grunn að sameiginlegri gjaldskrá hér á Vesturlandi. Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti að gjaldskrá þessi verði uppfærð í samræmi við það sem fram kemur. Málið lagt til frekari umræðu inn í Byggðarráð. Samþykkt samhljóða."
Byggðarráð tekur undir afgreiðslu velferðarnefndar og leggur til við sveitarstjórn að gjaldskráin verði uppfærð til samræmis við tillögu.
Samþykkt samhljóða.
3. Mælaborð um rekstur Borgarbyggðar
2401059
Farið yfir mælaborð um rekstur og fjárfestingar Borgarbyggðar m.t.t. ársins 2025 og janúar 2026. Til fundarins koma Eiríkur Ólafsson, Kristín Lilja Lárusdóttir og Sigurður Kristjánsson og sitja undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir rekstur og framkvæmdir ársins 2025 og fyrir janúar 2026. Verið er að ljúka vinnu við ársreikning 2025 og áætlað er að hann verði kynntur á fyrsta fundi byggðarráðs í apríl.
4. Gatnagerð við Fitjar - erindi frá Björgunarsveitinni Brák
2411095
Framlagt erindi frá Björgunarsveitinni Brák um að settir verði fjármunir inn í fjárhags- og framkvæmdaáætlun ársins 2026 til að ljúka við frágang götunnar Fitja í Borgarnesi með slitlagi, götulýsingu, ræsum og öðru sem þarf.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið. Byggðarráð vill ekki auka við framkvæmdaáætlun Borgarbyggðar á árinu 2026 og vísar því erindinu til vinnu við fjárhagsáætlun 2027.
Samþykkt samhljóða.
5. Egilsholt 1 - lóðarfrágangur
2602071
Farið yfir þróun málsins frá síðasta fundi byggðarráðs.
Byggðarráð harmar þann drátt sem hefur orðið á því að ljúka samkomulagi við KB. Forsögu þessa máls má rekja aftur til ársins 2018 þegar Borgarbyggð gerði samning við KB um kaup á landi í tengslum við skipulag á íbúðarbyggð á svæðinu. Byggðarráð leggur áherslu á að rétt gögn liggi fyrir til grundvallar samningsgerð við KB. Í tengslum við svar sem barst frá KB 4. mars s.l. á tillögu að samkomulagi við Borgarbyggð til lúkningar á málinu verður unnið að því núna að afla gagna og vinna málið út frá nýjum mælingum á þeirri skerðingu sem hefur orðið á lóð KB. Byggðarráð leggur áherslu á mikilvægi þess að leiða málið til lykta eins fljótt og hægt er m.t.t. hagsmuna beggja aðila.
Samþykkt samhljóða.
Fundarhlé var gert undir þessum dagskrárlið sem stóð frá kl. 9.30 til 9.50.
6. Aðkomuvegur að fjölnota íþróttahúsi
2603024
Yfirferð á fyrirhugaðri gatnagerð við aðkomuveg að fjölnota húsi við Þorsteinsgötu. Til fundarins koma Hlynur Ólafsson og Ottó Ólafsson verkefnastjórar framkvæmda hjá Borgarbyggð.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að láta fara fram verðfyrirspurn á gatnagerð við aðkomuveg að fjölnota íþróttahúsi í Borgarnesi.
Samþykkt samhljóða.
7. Ugluklettur - Stækkun
2212062
Framlögð opnunarskýrsla útboðs vegna stækkunar á leikskólanum Uglukletti.
Framlagt en sjö tilboð bárust í verkið og stendur nú yfir rýni á tilboðunum.
Fylgiskjöl
ATH útboðsgögn frá bjóðendum eru enn í rýni,
8. Vallarás - hönnun og framkvæmdir
2311091
Framlagt var minnisblað vegna gatnaframkvæmda við Vallarás m.t.t. framkvæmdar við fleygun.
Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja að nýju fyrir byggðarráð.
Samþykkt samhljóða.
9. Fjölnota íþróttahús - Knatthús
2303105
Framlögð verkfundargerð nr. 30 dags. 3. mars 2026.
Fundargerð framlögð.
Hlynur Ólafsson og Ottó Ólafsson fóru af fundi.
10. Melabraut 2b - Umsókn um lóð
2602286
Framlögð umsókn um lóðina Melabraut 2b á Hvanneyri. Sótt er um með fyrirvara um breytingu á deiliskipulagi á svæðinu er varðar þakhalla mannvirkja.
Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að lóðinni Melabraut 2b á Hvanneyri verði úthlutað til HIG húsasmíði ehf. með fyrirvara um breytingu deiliskipulagi er varðar þakhalla mannvirkja.
Samþykkt samhljóða.
11. Viðhaldsáætlun eignasjóðs 2026
2603149
Farið yfir viðhaldsverkefni eignasjóðs Borgarbyggðar 2026 og stöðu þeirrar vinnu. Til fundarins kemur undir þessum dagskrárlið Guðni Rafn Ásgeirsson umsjónarmaður eigna.
Byggðarráð þakkar umsjónarmanni eigna fyrir góða yfirferð.
Sæmundur Óskarsson og Guðni Rafn Ásgeirsson fóru af fundi.
12. Sala samkomuhússins við Þverárrétt
2204038
Framlagt erindi frá Kvenfélagi Þverárhlíðar um að samkomuhúsið við Þverárrétt komist á ný eigu félagsins.
Byggðarráð tekur vel í erindið og felur sveitarstjóra að leggja samning við kvenfélagið fyrir sveitarstjórn en félagið hefur um langt árabil séð um rekstur hússins.
Samþykkt samhljóða.
Lilja Björg Ágústsdóttir fór af fundi.
Fylgiskjöl
13. Beiðni frá Golfklúbbi Borgarness um langtímarekstrarstyrk
2603133
Framlagt erindi frá Golfklúbbi Borgarness með beiðni um langtímarekstrarstyrk sveitarfélagsins við golfklúbbinn.
Byggðarráð tekur vel í erindi Golklúbbs Borgarness og felur sveitarstjóra að vinna samning við golfklúbbinn, leggja mat á fjárhagsleg áhrif og leggja fyrir byggðarráð að nýju.
Samþykkt samhljóða.
14. Fjarskiptasamband í Borgarbyggð
2501076
Vegna nýrra upplýsinga eru lagðar fram að nýju tillögur frá innviðafélögum um grundvöll þess að koma upp fjarskiptabúnaði sem styrkir fjarskiptasamband við Grjótárvatn, í Hítardal, á Mýrum og fyrrum Kolbeinsstaðahreppi sbr. afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 735.
Byggðarráð leggur til að gengið verði til samninga við Mílu á grundvelli tillagna félagsins að teknu tilliti til breytingartillagna sem ræddar voru á fundi og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.
15. Samningur um umhirðu og slátt á opnum svæðum á Hvanneyri
2603108
Lögð fram drög að samningi um hirðingu útisvæða frá Landbúnaðarháskóla Íslands.
Drög að samningi kynnt og byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundi.
Samþykkt samhljóða.
16. Frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga
2603106
Lagt fram til frumvarp innviðaráðherra til nýrra sveitarstjórnarlaga á Alþingi sem nú er til meðferðar hjá umhverfis- og samgöngunefnd.
Framlagt.
Fylgiskjöl
17. Mál í samráðsgátt - Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks
2603130
Í Samráðsgátt er kynning á áformum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um lagasetningu um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks.
Byggðarráð tekur undir að tilefni er til að skoða með hvaða hætti gera megi regluverk vegna uppbyggingar orkuinnviða skilvirkara. Uppbygging orkuinnviða er velferðar- og öryggismál fyrir landsmenn alla. Aukin skilvirkni má hins vegar ekki vera á kostnað landeigenda eða sveitarfélaga. Byggðarráð og sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur ítrekað bent á að sjónarmið um sanngjarnan hlut landeigenda og nærsamfélaga og uppbyggingu orkuinnviða geta auðveldlega farið saman. Framleiðsla og flutningur á raforku skapar mikil verðmæti fyrir íslenskt samfélag. Það er óviðunandi að sú verðmætasköpun sé á kostnað landeigenda eða samfélaga fjarri þeim stað er orkan er nýtt. Það er sanngirnismál að greitt sé eðlilegt verð fyrir það land sem tekið er undir orkumannvirki. Það verð hlýtur að taka mið af þeim skorðum sem mannvirkin setur á nýtingu landsins og þeim miklu verðmætum sem þeim er ætlað að skapa.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
18. Aðalfundur Símenntunar á Vesturlandi 2026.
2603124
Framlagt fundarboð á aðalfund Símenntunar Vesturlands 2026 sem fram fer miðvikudaginn 25. mars.
Fundarboð framlagt.
Fylgiskjöl
19. Faxaflóahafnir fundagerðir 2026.
2602034
Framlögð fundagerð 265. fundar stjórnar Faxaflóahafna sem fram fór 27.febrúar 2026.
Fundargerð framlögð.
20. Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands 2026
2603041
Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands fer fram 25. mars.
Fundarboð framlagt. Byggðarráð tilnefnir Finnboga Leifsson og Kristján Ágúst Magnússon sem fulltrúa sveitarfélagsins í stjórn.
Samþykkt samhljóða.
21. Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
2602005
Framlögð fundargerð 995. fundar stjórnar Sambandsins frá 10. mars 2026.
Fundargerð framlögð.
22. Dagsetningar funda byggðarráðs og sveitarstjórnar í apríl
2603173
Umræða um dagsetningu funda byggðarráðs og sveitarstjórnar í apríl vegna almennra frídaga sem raðast innan mánaðarins.
Byggðarráð leggur til að fundur leggur til að fundur byggðarráðs í dymbilviku verði miðvikudaginn 1. apríl og sveitarstjórnarfundur í apríl fari fram fimmtudaginn 16. apríl.
Samþykkt samhljóða.
23. Menntaskóli Borgarfjarðar - ársreikningur 2025
2603158
Framlagður ársreikningur Menntaskóla Borgarfjarðar 2025.
Framlagt.