Sveitarstjórn Borgarbyggðar

275. fundur

12. mars 2026 kl. 16:00 - 17:27

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Guðveig Eyglóardóttir - Forseti
Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Eva Margrét Jónudóttir - 1. varaforseti
Eðvar Ólafur Traustason - aðalmaður
Thelma Dögg Harðardóttir boðaði forföll og Brynja Þorsteinsdóttir - varamaður sat fundinn í hans stað
Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Sigrún Ólafsdóttir - aðalmaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir boðaði forföll og Kristján Rafn Sigurðsson - varamaður sat fundinn í hans stað

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Lilja Björg Ágústsdóttir - Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir - sviðsstjóri fjámála- og stjórnsýslu


Dagskrá

1. Skýrsla sveitarstjóra
2102062

Sveitarstjóri flytur skýrslu sveitarstjóra

Sveitarstjóri flytur skýrslu sveitarstjóra



2. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
2601124

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 736:"Framlagður Viðauki II við fjárhags- og framkvæmdaáætlun Borgarbyggðar 2026.



Framlögð drög og sveitarstjóra falið að fullvinna og leggja fyrir sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða."

Viðauki II 2026 snýr eingöngu að framkvæmdaáætlun Borgarbyggðar. Um að ræða lækkun á framkvæmdaliðnum Fjölnota íþróttahús - knatthús um samtals 20 m.kr. og að hann verði 690 m.kr. og ítarlegri sundurliðun innan hans. Þá er stofnaður framkvæmdaliðurinn Aðkomuvegur fjölnota íþróttahúss og áætlaðar 20 m.kr. undir þann lið.

Þá er lögð til sams konar ítarlegri sundurliðun innan framkvæmdaliðarins Grunnskóli Borgarfjarðar - Kleppjárnsreykjadeild - framkvæmdir á skólahúsnæði. Heildarfjárhæð þess framkvæmdarliðar er óbreytt í 100 m.kr.

Markmið með nánari sundurliðun innan framkvæmdaliða er að styrkja áætlanagerð og eftirfylgni en viðaukinn hefur hvorki áhrif á rekstrarniðurstöðu né sjóðstreymi Borgarbyggðar 2026.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


3. Útboð á hýsingu, kerfisrekstri og notendaþjónustu tæknilegra innviða
2510364

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 735: "Framlögð drög að gögnum vegna útboðs á hýsingu og rekstri upplýsingatækniumhverfis Borgarbyggðar, auk notendaþjónustu. Til fundarins kemur Þórunn Unnur Birgisdóttir verkefnastjóri á fjármála- og stjórnsýslusviði.



Framlögð drög að útboðsgögnum og felur byggðarráð sveitarstjóra að fullvinna framlögð drög og láta fara fram útboð á grundvelli þeirra.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir framlögð útboðsgögn og að fara skuli fram útboð á grundvelli þeirra.



Samþykkt samhljóða



4. Stjórnsýslukæra Sólar til framtíðar nr2
2602046

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 735: "Framlögð stjórnsýslukæra Sólar til frmtíðar sem send hefur verið Innviðaráðuneytinu þar sem kærð er ákvörðun sveitarstjórnar Borgarbyggðar frá 15. janúar 2026 um að hafna beiðni kærenda um að fram fari söfnun undirskrifta vegna samþykktar sveitarfélagsins á aðalskipulagi Borgarbyggðar.



Framlögð stjórnsýslukæra og bréf innviðaráðuneytisins til sveitarfélagsins dags. 5. febrúar þar sem tilkynnt er um kæruna. Sveitarstjóra falið að taka saman greinargerð í samræmi við beiðni ráðuneytisins.



Samþykkt samhljóða."

Kristján Rafn Sigurðsson vék af fundi undir þessum dagskrárlið."



Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 736:"Framlögð greinargerð Borgarbyggðar, sbr. afgreiðslu 735. fundar byggðarráðs, vegna stjórnsýslukæru og bréfs innviðaráðuneytisins til sveitarfélagsins dags. 5. febrúar þar sem kærð er ákvörðun sveitarstjórnar Borgarbyggðar frá 15. janúar 2026 um að hafna beiðni kærenda um að fram fari söfnun undirskrifta vegna samþykktar sveitarfélagsins á aðalskipulagi Borgarbyggðar.



Greinargerð framlögð."



Stjórnsýslukæra frá samtökunum Sól til framtíðar og umsögn Borgarbyggðar lögð fram.



Samþykkt samhljóða



Fylgiskjöl


5. Starfsemi Slökkviliðs Borgarbyggðar
2602109

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 735:"Farið yfir starfsemi Slökkviliðs Borgarbyggðar. Kynnt yfirlit yfir verkefni slökkviliðsins 2025, umsögn slökkviliðsstjóra um úttektarskýrslu HMS lögð fram og farið yfir horfur árið 2026. Til fundarins kemur Heiðar Örn Jónsson slökkviliðsstjóri situr undir þessum dagskrárlið..



Byggðarráð þakkar slökkviliðsstjóra fyrir góða yfirferð á starfsemi Slökkviliðs Borgarbyggðar árið 2025. Samtals voru útköll slökkviliðsins 42 á árinu. Haldnar voru 32 æfingar þar sem tekið var fyrir allt sem varðar brunavarnir, slökkvistarf og björgun fólks úr bílflökum og brennandi húsum. Þá sinnti slökkviliðið fjölda skoðana og veitti leyfi og umsagnir, samtals komu 227 slökkvitæki til skoðunar og eldvarnareftirliti var sinnt. Markmið slökkviliðsins er að leggja ríkari áherslu á eldvarnareftirlit á árinu 2026.



Tveir nýir slökkvibílar bættust í flota slökkviliðsins á árinu og mikil endurnýjun varð á smærri búnaði. Þá var gengið frá langtímaleigusamningi á húsnæði fyrir 280 fm slökkvistöð á Hvanneyri sem er bylting í húsnæði og aðbúnaði. Samtals bættust 17 nýir slökkviliðsmenn í hópinn í lok árs og er hópurinn nú í nýliðaþjálfun og við nám í slökkviliðsfræðum. Unnið er að endurbótum á húsnæði slökkviliðsins í Reykholti.



Á fundi byggðarráðs nr. 732 var lögð fram úttekt HMS á Slökkviliði Borgarbyggðar. Í niðurstöðu úttektarinnar kemur fram að tvö af 31 úttektaratriðum eru metin óásættanleg af HMS. Þau snúa að brunavarnaáætlun og eldvarnareftirliti. Í umsögn slökkviliðsstjóra er greind raunstaða þeirra atriða sem HMS metur óásættanleg, farið yfir forsendur úttektarinnar, lögð fram úrbótaáætlun og dreginn fram sá árangur sem náðst hefur í starfsemi slökkviliðsins. Í umsögn slökkviliðsstjóra kemur fram að gert er ráð fyrir að brunavarnaáætlun fari á fullt skrið á vormánuðum. Þá er bent á að niðurstaða HMS er varðar eldvarnaeftirlit byggir fyrst og fremst á skorti á skráningu, yfirsýn og formlegri skoðunaráætlun í gagnagrunninum Brunaverði sem er rafrænt kerfi opið HMS. Eldvarnaeftirliti hefur hins vegar verið sinnt að töluverðu leyti en ekki skráð og unnið í gegnum Brunavörð heldur í öðru kerfi. Úttekt HMS gefur því ekki fulla mynd af stöðu eftirlitsins. Skráning í Brunavörð hefur verið sett í réttan farveg. Ljóst er hins vegar að áfram þarf að vinna að því að efla eldvarnareftirlit í Borgarbyggð. Slökkvilið Borgarbyggðar er eitt hið öflugasta á landinu og skýrsla HMS undirstrikar þá staðreynd. Byggðarráð styður úrbótaáætlun slökkviliðsstjóra en hefur væntingar til þess styrkja megi eldvarnareftirlit á þessu og næsta ári án þess að auka þurfi verulega fjárveitingar í málaflokkinn.



Samþykkt samhljóða."

Niðurstöður úttektar HMS á slökkviliði Borgarbyggðar lögð fram.





Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


6. Umsókn um deiliskipulag - Sveinukot
2512076

Afgreiðsla 84. fundar skipulags- og byggingarnefndar:

"Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Sveinukot. Lagður er fram uppdráttur dags. 25.02.2026. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagða tillögu að deiliskipulagi til auglýsingar. Lagður er fram uppdráttur dags. 25.02.2026. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga 123/2010.





Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


7. Hraunsás - umsókn um deiliskipulag - 204514
2411033

Afgreiðsla 84. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


8. Bjargsland II - Breyting á deiliskipulagi
2603048

Afgreiðsla 84. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna óverulegra breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga 123/2010 fyrir eigendum fasteigna við Fjóluklett í Borgarnesi.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga 123/2010 fyrir eigendum fasteigna við Fjóluklett.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


9. Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga 2026
2601241

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 735:"Farið yfir áform um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga 2026.



Lagðir fram tveir lánasamningar vegna lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að, annars vegar samtals útgreiðslufjárhæð kr. 650.000.000,- og hins vegar samtals að útgreiðslufjárhæð kr. 250.000.000,-.



Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkir að vísa til staðfestingar hjá sveitarstjórn að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð allt að kr. 250.000.000,- og höfuðstólsfjárhæð allt að kr. 291.578.679,- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem byggðarráð hefur kynnt sér.



Einnig samþykkir byggðarráð Borgarbyggðar að vísa til staðfestingar í sveitarstjórn að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 650.000.000,- með lokagjalddaga þann 4. desember 2033 í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem byggðarráð hefur kynnt sér.



Til tryggingar lánunum, þ.m.t. höfuðstól, uppgreiðslugjaldi, vöxtum, dráttarvöxtum og öðrum kostnaði samþykkir sveitarstjórnin að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.



Lánin eru tekið til að fjármagna byggingu fjölnota íþróttahúss - knatthús í Borgarnesi. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.



Jafnframt er Stefáni Brodda Guðjónssyni, sveitarstjóra, kt. 230771-4649 veitt fullt og ótakmarkað umboð að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Borgarbyggðar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.



Lánasjóður hefur ennfremur samþykkt beiðni Borgarbyggðar um stækkun á lánaramma að fjárhæð 1.950 m.kr. vegna ársins 2026. Byggðarráð samþykkir að hefja lántöku í samræmi við þann ramma til að fjármagna yfirstandandi framkvæmdaverkefni og verkefni ársins.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð allt að kr. 250.000.000,- og höfuðstólsfjárhæð allt að kr. 291.578.679,- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórn hefur kynnt sér.

Einnig samþykkir sveitarstjórn Borgarbyggðar að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 650.000.000,- með lokagjalddaga þann 4. desember 2033 í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórn hefur kynnt sér.

Til tryggingar lánunum, þ.m.t. höfuðstól, uppgreiðslugjaldi, vöxtum, dráttarvöxtum og öðrum kostnaði samþykkir sveitarstjórnin að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.

Lánin eru tekið til að fjármagna byggingu fjölnota íþróttahúss - knatthús í Borgarnesi. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.

Jafnframt er Stefáni Brodda Guðjónssyni, sveitarstjóra, kt. 230771-4649 veitt fullt og ótakmarkað umboð að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Borgarbyggðar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.

Lánasjóður hefur ennfremur samþykkt beiðni Borgarbyggðar um stækkun á lánaramma að fjárhæð 1.950 m.kr. vegna ársins 2026. Sveitarstjórn samþykkir að hefja lántöku í samræmi við þann ramma til að fjármagna yfirstandandi framkvæmdaverkefni og verkefni ársins.



Samþykkt samhljóða



Til máls tóku: KRS, SBG og KRS



10. Skipan í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1
2602149

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 735: "Lagt fram erindi félags- og húsnæðismálaráðuneytisins dags. 12. febrúar 2026 þar sem óskað er eftir tilnefningu fulltrúa Borgarbyggðar í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1, sbr. ákvörðun félags- og húsnæðismálaráðherra 14. nóvember sl. að verða við beiðni Landsnets um skipun nefndarinnar.



Byggðarráð samþykkir að tilnefna Davíð Sigurðsson sem fulltrúa Borgarbyggðar í raflínunefnd Holtavörðuheiðarlínu 1 og sveitarstjóra falið að senda tilkynningu til ráðuneytisins þar að lútandi.



Samþykkt samhljóða."



Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs Borgarbyggðar nr. 736:"Framlagt svar frá skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála í innviðaráðuneytinu vegna skipunar fulltrúa Borgarbyggðar í raflínunefnd. Þar kemur fram að sbr. 28 gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 skal tilnefna bæði karl og konu þegar tilnefnt er í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga. Ráðherra skipar í nefndina og velur úr tilnefningum svo kynjaskipting sé sem jöfnust. Sveitarfélaginu beri að tilnefna bæði karl og konu í nefndina eða skýra hvaða hlutlægu ástæður leiða til þess að það er ekki mögulegt.



Byggðarráð hefur áður tilnefnt Davíð Sigurðsson í nefndina og samþykkir að tilnefna einnig Ragnhildi Evu Jónsdóttur.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn Borgarbyggðar tilnefnir Davíð Sigurðsson og Ragnhildi Evu Jónsdóttur sem fulltrúa Borgarbyggðar í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1.



Samþykkt samhljóða



Til máls tók: DS

Fylgiskjöl


11. Brattagata - Gatnaframkvæmdir
2510327

Afgreiðsla frá fundi nr. 736:"Í sumar stendur til að ráðast í endurbyggingu á Bröttugötu í Borgarnesi. Í kjölfar fundar byggðarráðs nr. 730 hefur verið skoðað að koma fyrir snjóbræðslu í Bröttugötu samhliða endurbyggingu. Kostnaðaráætlun snjóbræðslukerfis í Bröttugötu kynnt og minnisblað starfsmanns lagt fram.



Áætlun leiðir í ljós að gera má ráð fyrir að kostnaður við snjóbræðsluna yrði um 25-30 m.kr. og að rekstrarkostnaður á ári yrði 850 - 2.000 þús.kr. Áætlaður framkvæmda- og rekstrarkostnaður er því miður verulega hærri en byggðarráð hafði væntingar um. Byggðarráð fellur því frá þeirri hugmynd að innifela snjóbræðslukerfi í útboði á endurbyggingu Bröttugötu.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir þá ákvörðun byggðarráðs að falla skuli frá þeirri hugmynd að innifela snjóbræðslukerfi í útboði á endurbyggingu Bröttugötu.



Samþykkt samhljóða



12. Beiðni eigenda Hæls um að jörðin verði tekinn af afréttarskrá.
2602154

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 736:"Eigendur jarðarinnar Hæls í Flókadal hafa sent inn erindi þess efnis að biðja um að jörðin verði tekin af afréttarskrá.



Kemur þessi beiðni með vísan í 6.gr. laga um afréttamálefni, fjallskil o.fl. 1986/6 en þar segir: "[Stjórn fjallskilaumdæmis semur skrá yfir alla afrétti er héraðsbúar nota.] 1) Skal þar lýst merkjum þeirra og tekið fram, hvaða jarðir eiga upprekstur á hvern afrétt svo og hverjir séu afréttareigendur, ef um afrétt í einkaeign er að ræða. Skrá þessi gildir sem heimild fyrir upprekstrarrétti hverrar jarðar í [fjallskilaumdæminu], 1) og verður henni ekki breytt, nema eftir tillögum sveitarstjórnar og með samþykki jarðeiganda eða umráðamanns jarðar. Breytingar á afréttum eða réttindum yfir þeim skulu þegar færðar í afréttaskrá. Afréttaskrá skal geymd í skjalasafni sýslunnar."



Fjallskilanefnd Borgarbyggðar vísar í álits Umboðsmanns Alþingis í máli nr. 9305/2017 dags. 30. nóv. 2018, en þar segir:



„Í úrskurði Sýslumannsins á Vesturlandi dags. 16. mars 2017 var á því byggt að ákvæði síðari málsliðar 42.gr. laga nr. 6/1986 yrði ekki skilið á annan veg en þann að það, hvort á jörð væri einhver búrekstur eða ekki, skipti ekki máli varðandi álagningu samkvæmt því. Engu skipti hvort jörð væri nýtt til búreksturs eða ekki eða hvort jörðin nýtti afréttinn að einhverju leyti eða engu. Ég tel ekki tilefni til athugasemda við þessa niðurstöðu enda er hún í samræmi við það álit mitt frá 12. september 2000 í máli nr. 2638/1999 að heimildin til álagningar fjallskilagjalds tæki til þeirra sem ættu upprekstrarrétt á afrétt eða annað sameiginlegt sumarbeitiland sem fjallskilin tækju til. Þá skipti ekki máli hvort þessi réttur er nýttur eða ekki. Í tilvikum þeirra jarðareiganda sem ekki væru með bústofn og gætu því ekki nýtt þennan rétt sinn væri um að ræða geymdan rétt, ef svo mætti að orði komast. Rétturinn yrði virkur þegar stofnað væri til búfjárhalds á jörðinni."



Fjallskilanefnd Borgarbyggðar leggur til við sveitarstjórn að hafna fyrrgreindu erindi um að jörðinn Hæll í Flókadal verði tekin af afréttarskrá og leggur þá ákvörðun fyrir sveitarstjórn til staðfestingar.



Byggðar samþykkir fyrir sitt leyti afgreiðslu og rökstuðning Fjallskilanefndar Borgarbyggðar og leggur til við sveitarstjórn að hafna því erindi að jörðin Hæll í Flókadal verði tekin af afréttarskrá.



Samþykkt samhljóða.

Forseti leggur til að málinu verði frestað til næsta fundar sveitarstjórnar í ljósi þess að málsbeiðendur hafa hug á að leggja fram frekari gögn og rök í málinu.



Samþykkt samhljóða





13. Brákarey-Skipulagsmál
2412005

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 736:"Framlögð tillaga að samkomulagi um frestun gatnagerðargjalda við lóðarhafa í Brákarey sem tryggt hafa sér lóð við Vallarás. Markmiðið er að auðvelda flutning á atvinnustarfsemi úr Brákarey til annars svæðis innan sveitarfélagsins í kjölfar endurskipulags svæðis, í samræmi við stefnu sveitarfélagsins um að styðja við slíka tilfærslu.



Tillagan felur í sér að nokkuð staðlað sambærilegt samkomulag bjóðist þeim lóðarhöfum sem um ræðir. Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að samkomulagi og felur sveitarstjóra að bjóða lóðarhöfum í Brákarey.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagða tillögu að samkomulagi um frestun gatnagerðargjalda.



Samþykkt samhljóða



14. Rammasamningar Borgarbyggðar
2401006

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 736:"Umræða um rammasamninga Ríkiskaupa sem eru að renna út og aðild og ávinning sveitarfélagsins.



Lagður fram listi yfir þá rammasamninga sem Borgarbyggð er aðili að. Farið yfir þá tvo rammasamninga sem sem eru að framlengjast og rædd staða opinna rammasamninga. Samþykkt að halda áfram þátttöku í rammasamningum um Samgöngur og Túlka- og þýðingarþjónustu.



Samþykkt samhljóða og vísað til sveitarstjórnar."

Sveitarstjórn samþykkir að halda áfram þátttöku í rammasamningum um Samgöngur og Túlka- og þýðingarþjónustu.





Samþykkt samhljóða



15. Leigusamningur um land fyrir golfvöll að Hamri
2511138

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 736:"Lögð er fram ósk leigutaka Golfklúbbs Borgarness um stofnun nýrrar lóðar [ónefnd lóð] úr landi Hamars lnr. L135401 í Borgarbyggð. 



Um er að ræða lóð innan golfvallarins sem er stofnuð fyrir handhafa afnota af vellinum til uppbyggingar á sértækum mannvirkjum sem styðja við starfsemi innan svæðisins íþ204. 



Mannvirki eru á lóðinni sem eru eign Golklúbbs Borgarness. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Lóðin er 78,6 ha. að stærð og skilgreind sem íþróttasvæði í endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar fyrir árin 2026-2037.  



Samningur er í gildi um lóðina sbr. samning ,,Leigusamningum um land fyrir golfvöll að Hamri í Borgarnesi“ undirritaður þann 15. júní 2003.



Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að lóðin verði stofnuð með merkjalýsingu og um hana verður gerður lóðaleigusamningur sem segir til um réttindi og heimildir lóðarhafa Golfklúbbs Borgarness. Einungis er verið að afmarka lóð innan núverandi samnings.



Byggðaráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir að stofnuð verði lóð úr landi Hamars lnr. L135401 í Borgarbyggð með merkjalýsingu og um hana verði í kjölfarið gerður lóðaleigusamningur. Um er að ræða afmörkun lóðar innan núverandi samnings.



Samþykkt samhljóða



16. Samræmd móttaka flóttafólks
2303023

Afgreiðsla frá fundi byggðarráð nr. 736:"Í framhaldi af svari Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga dags. 10.2.2026 við erindi Borgarbyggðar dags. 23.12.2025 um sérstakt framlag vegna fjölda flóttamanna á Bifröst er lögð fram uppfærð umsókn til sjóðsins.



Framlagt og sveitarstjóra falið að fullvinna og senda til Jöfnunarsjóðs."

Sveitastjórn staðfestir umsókn í Jöfnunarsjóð vegna vegna fjölda flóttamanna í sveitarfélaginu.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


17. Aðalfundur SSV 2026
2603003

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 736: "Framlagt boð á aðalfund Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem fram fer 25. mars 2026.



Framlagt og fulltrúar Borgarbyggðar á aðalfundinum eru Bjarney L. Bjarnadóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Eðvarð Ó. Traustason, Eva M. Jónudóttir og Brynja Þorsteinsdóttir."

Sveitarstjórn staðfestir að fulltrúar Borgarbyggðar verði Bjarney L. Bjarnadóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Eðvarð Ó. Traustason, Eva M. Jónudóttir og Brynja Þorsteinsdóttir.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


18. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2026
2602118

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 736:"Framlagt boð á aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga sem fram fer 20. mars 2026.



Framlagt og byggðarráð felur Sigurði Kristjánssyni fjármálastjóra að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir að Sigurður Kristjánsson fjármálastjóri Borgarbyggðar mæti á aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga 2026 fyrir hönd sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða



Til máls tók: KRS

Fylgiskjöl


19. Gjaldskrár 2026
2510200

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 736:"Til að bregðast við sérstökum aðstæðum í gatnagerð á einstökum svæðum er lagt til að inn í samþykktir Borgarbyggðar um gatnagerðargjöld verði bætt við nýrri grein sem verði 6. gr samþykktanna.



"Hækkun gatnagerðargjalda.



Sveitarstjórn er heimilt, þar sem sérstakar aðstæður krefjast, að hækka gatnagerðargjöld á afmörkuðum stað eða svæði í allt að 15% pr. fermetra af byggingarkostnaði í vísitöluhúsi eins og hann er á hverjum tíma. Sérstakar aðstæður geta m.a. verið hár gatnagerðarkostnaður á viðkomandi stað/svæði og að gatnagerðargjöld standi ekki undir gatnagerðarkostnaði á viðkomandi stað/svæði.



Ákveði sveitarstjórn að nýta sér þessa heimild, skal hún gera um það sérstaka samþykkt þar sem fram kemur hversu lengi heimild til hækkunar frá 4. gr. þessarar gjaldskrár gildir, hvert sé tilefni hækkunarinnar og aðrar þær málefnalegu ástæður sem búa að baki ákvörðuninni."



Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingum á gjaldskrá gatnagerðargjalda og felur sveitarstjóra að fullvinna og leggja fyrir sveitarstjórn til fullnaðarafgreiðslu.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingu á gjaldskrá gatnagerðargjalda og felur sveitarstjóra að fullvinna og birta uppfærða gjaldskrá.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


20. Forvarnir í Borgarbyggð - sveitarstjórnarfundur unga fólksins 2026
2603088

Á sveitarstjórnarfundi unga fólksins dags. 10. mars 2026 lagði forseti sveitarstjórnar fram tillögu um að fela ungmennaráði að útbúa minnisblað með tillögum að áherslum og forgangsröðun verkefna er lúta að forvarnarfræðslu fyrir börn og ungmenni í sveitarfélaginu til næstu 4 ára. Tillagan var samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn tekur undir og samþykkir að fela ungmennaráði að útbúa minnisblað með tillögum að áherslum og forgangsröðun verkefna er lúta að forvarnarfræðslu fyrir börn og ungmenni í sveitarfélaginu til næstu 4 ára.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


21. Skólastarf í Borgarbyggð - sveitarstjórnarfundur unga fólksins 2026
2603090

Á sveitarstjórnarfundi unga fólksins dags. 10. mars 2026 var lögð fram tillaga um að sveitarstjórn feli fræðslunefnd að kanna tækifæri til að efla jafningjafræðslu meðal ungmenna í Borgarbyggð með það að markmiði að styrkja ungmenni, bæta andlega líðan og vinna gegn einelti. Tillagan var samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn tekur undir og samþykkir að fela fræðslunefnd að kanna tækifæri til að efla jafningjafræðslu meðal ungmenna í Borgarbyggð með það að markmiði að styrkja ungmenni, bæta andlega líðan og vinna gegn einelti.



Samþykkt samhhljóða

Fylgiskjöl


22. Ungmennastefna fyrir Borgarbyggð - sveitarstjórnarfundur unga fólksins 2026
2603092

Á sveitarstjórnarfundi unga fólksins 10. mars 2026 var lögð fram og samþykkt samhljóða eftirfarandi tillaga: "Ungmennaráð leggur til að mótuð verði Ungmennastefna fyrir Borgarbyggð fyrir árin 2026-31".

Sveitarstjórn Borgarbyggðar tekur undir og samþykkir tillöguna og vísar til fræðslunefndar að útfæra í góðri samvinnu við ungmennaráð Borgarbyggðar.



Samþykkt samhljóða



Til máls tók: SG

Fylgiskjöl


23. Reglur um fjárhagsaðstoð 2026
2603040

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 735:Þann 05.03.26 voru drög að uppfærðum reglum framlögð fyrir Byggðarráð. Bókun fundarins var eftirfarandi: Byggðarráð samþykkir þau fyrir sitt leyti og vísar til umræðu í velferðarnefnd. Samþykkt samhljóða."



Afgreiðsla fundar velferðarnefndar Borgarbyggðar nr. 169:"Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við fyrirhugaðar breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð. Samþykkt samhljóða"

Sveitarstjórn staðfestir uppfærðar reglur um fjárhagsaðstoð.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


24. Byggðarráð Borgarbyggðar - 735
2602014F

Fundargerð framlögð





Til máls tók EMJ um lið 12

Til máls tók KRS um lið 12

Til máls tók SBG um lið 12

24.1
2510364
Útboð á hýsingu, kerfisrekstri og notendaþjónustu tæknilegra innviða
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Framlögð drög að útboðsgögnum og felur byggðarráð sveitarstjóra að fullvinna framlögð drög og láta fara fram útboð á grundvelli þeirra.Samþykkt samhljóða.

24.2
2602116
Áform um breytingar á eftirliti með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Á vettvangi sveitarstjórnar, byggðarráðs og umhverfis- og landbúnaðarnefndar Borgarbyggðar hefur fyrirhuguð lagasetning verið til umræðu. Frumvarpið felur í sér að reglubundið eftirlit, sem nú er á vegum heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga, verði fært til Matvælastofnunar og Umhverfis- og orkustofnunar. Mikil hætta er að sú breyting grafi undan staðbundinni þekkingu og reynslu sem byggst hefur upp innan sveitarfélaga. Hætt er við að þjónusta verði fjarlæg samhliða því sem hún verður miðlæg og að afgreiðsla mála verði tímafrekari. Þá verður ekki hjá því litið að um mjög mikilvæg sérfæðistörf er að ræða fyrir landshlutann. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi sendu umsögn í samráðsgátt um málið og tekur byggðarráð heils hugar undir þá umsögn. Samþykkt samhljóða.

24.3
2602090
LED-væðing í Borgarbyggð 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Farið yfir þá endurnýjun sem átt hefur sér stað í lýsingu í Borgarbyggð síðustu misseri. Kynnt áætlun um endurnýjun ársins.Sveitarstjóra falið að vinna frétt um yfirstandi átak í LED-væðingu og birta á heimasíðu sveitarfélagsins íbúum til upplýsingar. Samþykkt samhljóða.

24.4
2602156
Samtal við Veitur vegna hitaveitu, framkvæmda ofl.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Byggðarráð þakkar fulltrúum Veitna fyrir gott samtal og upplýsandi kynningu.

24.5
2601241
Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Lagðir fram tveir lánasamningar vegna lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að, annars vegar samtals útgreiðslufjárhæð kr. 650.000.000,- og hins vegar samtals að útgreiðslufjárhæð kr. 250.000.000,-.Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkir að vísa til staðfestingar hjá sveitarstjórn að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð allt að kr. 250.000.000,- og höfuðstólsfjárhæð allt að kr. 291.578.679,- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem byggðarráð hefur kynnt sér.Einnig samþykkir byggðarráð Borgarbyggðar að vísa til staðfestingar í sveitarstjórn að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 650.000.000,- með lokagjalddaga þann 4. desember 2033 í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem byggðarráð hefur kynnt sér.Til tryggingar lánunum, þ.m.t. höfuðstól, uppgreiðslugjaldi, vöxtum, dráttarvöxtum og öðrum kostnaði samþykkir sveitarstjórnin að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.Lánin eru tekið til að fjármagna byggingu fjölnota íþróttahúss - knatthús í Borgarnesi. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.Jafnframt er Stefáni Brodda Guðjónssyni, sveitarstjóra, kt. 230771-4649 veitt fullt og ótakmarkað umboð að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Borgarbyggðar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.Lánasjóður hefur ennfremur samþykkt beiðni Borgarbyggðar um stækkun á lánaramma að fjárhæð 1.950 m.kr. vegna ársins 2026. Byggðarráð samþykkir að hefja lántöku í samræmi við þann ramma til að fjármagna yfirstandandi framkvæmdaverkefni og verkefni ársins.Samþykkt samhljóða.

24.6
2511042
Eigendafundur Orkuveitu Reykjavíkur 14. nóv 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Framlagt.

24.7
2602023
Erindi frá Brákarbraut 19 vegna Brákareyjar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Framlagt.

24.8
2602142
Aðalfundur Veiðifélags Álftár á Mýrum 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Fundarboð framlagt. Í samræmi við samþykktir Borgarbyggðar þá kemur í hlut formanna fjallskilanefnda að mæta á aðalfundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.

24.9
2602149
Skipan í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Byggðarráð samþykkir að tilnefna Davíð Sigurðsson sem fulltrúa Borgarbyggðar í raflínunefnd Holtavörðuheiðarlínu 1 og sveitarstjóra falið að senda tilkynningu til ráðuneytisins þar að lútandi.Samþykkt samhljóða.

24.10
2602145
Fundarboð umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis þri 3. mars.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Fundarboð framlagt.

24.11
2303023
Samræmd móttaka flóttafólks
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Minnisblað framlagt. Þar kemur fram að áfram fækkar smám saman í hópi flóttafólks á fjárhagaðstoð sveitarfélagsins. Samtals eru þau nú um 75 talsins. Samtals námu greiðslur sveitarfélagsins vegna fjárhagsaðstoðar til flóttafólks sem verið hefur lengur en tvö ár á Íslandi um 117 m.kr. á árinu 2025. Sá kostnaður mun koma fram í rekstrarniðurstöðu ársins. Félags- og húsnæðisráðherra hefur orðið við beiðni Borgarbyggðar um fund vegna málsins og verður sá fundur 5. mars næst komandi.

24.12
2602046
Stjórnsýslukæra Sólar til framtíðar nr2
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Framlögð stjórnsýslukæra og bréf innviðaráðuneytisins til sveitarfélagsins dags. 5. febrúar þar sem tilkynnt er um kæruna. Sveitarstjóra falið að taka saman greinargerð í samræmi við beiðni ráðuneytisins.Samþykkt samhljóða.Kristján Rafn Sigurðsson vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

24.13
2501076
Fjarskiptasamband í Borgarbyggð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Borgarbyggð er umhugað um að ráðist verði í umbætur á fjarskiptasambandi á við Grjótárvatn, í Hítardal og ekki væri lakara ef þær umbætur styrktu samband á Mýrum og í fyrrum Kolbeinsstaðahreppi. Neyðarlínan hefur að beiðni Borgarbyggðar unnið minnisblað sem hefur það að markmiði að útlista bestu útfærslu að bættu fjarskiptasambandi við Grjótárvatn og í Hítardal ásamt grófu kostnaðarmati. Í samræmi í samræmi við afgreiðslu 730. fundar byggðarráðs hefur verið send ósk um tillögur til innviðafélaga um grundvöll þess að fjarskiptabúnaður sem vísað er til í minnisblaðinu verði settur upp við fyrsta tækifæri. Gert er ráð fyrir að tillögur berist eigi síðar en 3. mars og þær verði lagðar fyrir byggðarráð.Samþykkt samhljóða.

24.14
2602109
Starfsemi Slökkviliðs Borgarbyggðar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Byggðarráð þakkar slökkviliðsstjóra fyrir góða yfirferð á starfsemi Slökkviliðs Borgarbyggðar árið 2025. Samtals voru útköll slökkviliðsins 42 á árinu. Haldnar voru 32 æfingar þar sem tekið var fyrir allt sem varðar brunavarnir, slökkvistarf og björgun fólks úr bílflökum og brennandi húsum. Þá sinnti slökkviliðið fjölda skoðana og veitti leyfi og umsagnir, samtals komu 227 slökkvitæki til skoðunar og eldvarnareftirliti var sinnt. Markmið slökkviliðsins er að leggja ríkari áherslu á eldvarnareftirlit á árinu 2026. Tveir nýir slökkvibílar bættust í flota slökkviliðsins á árinu og mikil endurnýjun varð á smærri búnaði. Þá var gengið frá langtímaleigusamningi á húsnæði fyrir 280 fm slökkvistöð á Hvanneyri sem er bylting í húsnæði og aðbúnaði. Samtals bættust 17 nýir slökkviliðsmenn í hópinn í lok árs og er hópurinn nú í nýliðaþjálfun og við nám í slökkviliðsfræðum. Unnið er að endurbótum á húsnæði slökkviliðsins í Reykholti. Á fundi byggðarráðs nr. 732 var lögð fram úttekt HMS á Slökkviliði Borgarbyggðar. Í niðurstöðu úttektarinnar kemur fram að tvö af 31 úttektaratriðum eru metin óásættanleg af HMS. Þau snúa að brunavarnaáætlun og eldvarnareftirliti. Í umsögn slökkviliðsstjóra er greind raunstaða þeirra atriða sem HMS metur óásættanleg, farið yfir forsendur úttektarinnar, lögð fram úrbótaáætlun og dreginn fram sá árangur sem náðst hefur í starfsemi slökkviliðsins. Í umsögn slökkviliðsstjóra kemur fram að gert er ráð fyrir að brunavarnaáætlun fari á fullt skrið á vormánuðum. Þá er bent á að niðurstaða HMS er varðar eldvarnaeftirlit byggir fyrst og fremst á skorti á skráningu, yfirsýn og formlegri skoðunaráætlun í gagnagrunninum Brunaverði sem er rafrænt kerfi opið HMS. Eldvarnaeftirliti hefur hins vegar verið sinnt að töluverðu leyti en ekki skráð og unnið í gegnum Brunavörð heldur í öðru kerfi. Úttekt HMS gefur því ekki fulla mynd af stöðu eftirlitsins. Skráning í Brunavörð hefur verið sett í réttan farveg. Ljóst er hins vegar að áfram þarf að vinna að því að efla eldvarnareftirlit í Borgarbyggð. Slökkvilið Borgarbyggðar er eitt hið öflugasta á landinu og skýrsla HMS undirstrikar þá staðreynd. Byggðarráð styður úrbótaáætlun slökkviliðsstjóra en hefur væntingar til þess styrkja megi eldvarnareftirlit á þessu og næsta ári án þess að auka þurfi verulega fjárveitingar í málaflokkinn.Samþykkt samhljóða.

24.15
2004149
Egilsgata 11 - lóðamál
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Byggðarráð styður það upplegg sem fram kemur í minnisblaðinu og felur sveitarstjóra kanna hvort ljúka megi málinu á þeim nótum.Samþykkt samhljóða.

24.16
2303105
Fjölnota íþróttahús - Knatthús
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Uppfærð greiðsluáætlun ásamt áætlun um viðbótarverk framlögð. Vinna við fjölnota íþróttahús - knatthús gengur vel og hraðar heldur en áætlun gerði ráð fyrir. Uppfærð áætlun gerir ráð fyrir að húsið verði afhent 1. júní næst komandi eða þremur mánuðum fyrr en áætlað hafði verið í upphafi verks. Samningsverð með verðbótum stendur nú í um 1.777 m.kr. Byggingarnefnd hússins hafði samþykkt fyrir sitt leyti viðbótarverk að fjárhæð um 92 m.kr. Vegna þess að verkið hefur unnist hratt féll stærri hluti kostnaðar inn á árið 2025 heldur en gert var ráð fyrir og mun það hafa áhrif á framkvæmdaáætlun ársins 2026. Sveitarstjóra falið að leggja mat á áhrifin í viðauka við fjárfestingaráætlun.Samþykkt samhljóða.

24.17
2212062
Ugluklettur - Stækkun
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Lögð fram minnisblöð starfsmanna um framkvæmdasvæði vegna nýframkvæmdar við stækkun Uglukletts og verkaskiptingu vegna 1. og 2. áfanga og bréf. Einnig lagt fram bréf leikskólastjóra Uglukletts um mikilvægi þess að framkvæmdir verði ekki aðskildar. Nú stendur yfir útboð á 1. áfanga en í 2. áfanga verður hluti eldri byggingar endurskipulagður. Byggðarráð felur sveitarstjóra að halda áfram greiningu og gagnaöflun vegna áfanga 2 með það að markmiði að sá áfangi vinnist í framhaldinu.Samþykkt samhljóða.Sæmundur Óskarsson og Hlynur Ólafsson fóru af fundi.

24.18
1810002
Félagslegt leiguhúsnæði
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Málið kynnt og samtal tekið um fjárhagslegar forsendur. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræðu á fundi og nýsamþykkta stefnu um félagslegt leiguhúsnæði.Samþykkt samhljóða.

24.19
2501129
Uppbygging í Borgarbyggð - kynningar- og markaðsmál
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Nýr markaðs- og lóðavefur Borgarbyggðar kynntur fyrir byggðarráði. Til fundarins kemur Þórður Magnússon framkvæmdastjóri Onno í gegnum fjarfundarbúnað. Byggðarráð felur sveitarstjóra að setja vefinn í loftið en undirliggjandi lóðir munu verða lagðar undir vefinn til úthlutunar jafnóðum og þær verða tilbúnar.Samþykkt samhljóða.

24.20
2601254
Styrktarsjóður EBÍ-umsóknarfrestur til febrúarloka 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 735

Byggðarráð tekur vel í hugmyndina og felur sveitarstjóra að fullvinna og senda fyrir hönd sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.



25. Byggðarráð Borgarbyggðar - 736
2602026F

Fundargerð framlögð

25.1
2509209
Staða framkvæmda í Borgarbyggð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Yfirferð um helstu framkvæmdaverk sveitarfélagsins.

25.2
2412005
Brákarey-Skipulagsmál
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Tillagan felur í sér að nokkuð staðlað sambærilegt samkomulag bjóðist þeim lóðarhöfum sem um ræðir. Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að samkomulagi og felur sveitarstjóra að bjóða lóðarhöfum í Brákarey.Samþykkt samhljóða.

25.3
2401006
Rammasamningar Borgarbyggðar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Lagður fram listi yfir þá rammasamninga sem Borgarbyggð er aðili að. Farið yfir þá tvo rammasamninga sem sem eru að framlengjast og rædd staða opinna rammasamninga. Samþykkt að halda áfram þátttöku í rammasamningum um Samgöngur og Túlka- og þýðingarþjónustu.Samþykkt samhljóða og vísað til sveitarstjórnar.

25.4
2602046
Stjórnsýslukæra Sólar til framtíðar nr2
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Greinargerð framlögð.

25.5
2509247
Niðurstöður íbúakosninga um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps og skipun stjórnar til undirbúnings stofnunar sameinaðs sveitarfélags
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Svarbréf Jöfnunarsjóðs veldur vonbrigðum og telur byggðarráð það vart samræmast fyrri afgreiðslum sjóðsins varðandi sama mál eða sambærileg mál. Upplýst var á fundinum að unnið væri að nýju erindi til sjóðsins í von um að afstaðan verði endurskoðuð.

25.6
2510096
Starfsemi og fjármögnun Þróunarfélagsins Grundartanga árið 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Lagt fram til kynningar. Mikil tækifæri eru til uppbyggingar á Grundartanga og bundnar vonir við að á svæðinu skapist fjölmörg ný og fjölbreytt störf sem styrkja munu vinnumarkað og fjölga íbúum í nærliggjandi sveitarfélögum.

25.7
2603002
Sveitarstjórnarfundur unga fólksins 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Sveitarstjórnarfundur unga fólksins er mjög mikilvægur vettvangur formlegs samtals ungs fólks í Borgarbyggð og sveitarstjórnar. Fyrri fundir hafa skapað mikla umræðu um málefni ungmenna í sveitarfélaginu og ýtt úr vör umbótaverkefnum. Byggðarráð hlakkar til samtalsins.

25.8
2511138
Leigusamningur um land fyrir golfvöll að Hamri
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að lóðin verði stofnuð með merkjalýsingu og um hana verður gerður lóðaleigusamningur sem segir til um réttindi og heimildir lóðarhafa Golfklúbbs Borgarness. Einungis er verið að afmarka lóð innan núverandi samnings. Byggðaráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram. Samþykkt samhljóða.

25.9
2602273
Vallarás 16D - Umsókn um lóð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Byggðarráð samþykkir að úthluta lóðinni Vallarási 16D til Hafnarfjalls ehf. kt. 410623-0720 en á móti skilar sami aðili lóðunum við Vallarás og 16 og 16A.Samþykkt samhljóða.

25.10
2602117
Línustæði, eignarréttur og endurgjald
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Byggðarráð þakkar fyrir góða skýrslu. Málefnið varðar hagsmuni fjölmargra íbúa sveitarfélagsins. Það er sjónarmið Borgarbyggðar að nauðsynlegt er að gæta ríkulega að hagsmunum landeigenda og annarra sem verða fyrir áhrifum af orkumannvirkjum, bæði í framleiðslu og dreifingu, við uppbyggingu þeirra. Það er mikilvæg forsenda uppbyggingar. Skýrslan er mjög mikilvægt innlegg í þá umræðu enda nauðsynlegt að læra af reynslu nágrannalanda.

25.11
2602149
Skipan í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Byggðarráð hefur áður tilnefnt Davíð Sigurðsson í nefndina og samþykkir að tilnefna einnig Ragnhildi Evu Jónsdóttur.Samþykkt samhljóða.

25.12
2511072
Vatnsrennibraut við sundlaug í Borgarnesi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Byggðarráð samþykkir tillögu verkefnisstjóra um litaval og dagsbirtuhringi ásamt áætluðum kostnaði við nýjar festingar. Kostnaður er áætlaður innan þess ramma sem þegar hefur verið samþykktur.Samþykkt samhljóða.

25.13
2603034
Göngubrú á Borgarfjarðarbrú
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Byggðarráð fagnar því að tæknilega standi til boða lausnir sem gera kleift að setja létta göngubrú á Borgarfjarðarbrú eða aðrar brýr. Byggðarráð hvetur Vegagerðina til að skoða slíkar lausnir með opnum hug. Það væri til mikilla hagsbóta fyrir íbúa í Borgarbyggð að hafa örugga göngu- og hjólaleið á Borgarfjarðarbrú svo sem m.t.t. fjölbreyttari samgangna milli tveggja stærstu byggðakjarna í Borgarbyggð og útivistarmöguleika.

25.14
2303023
Samræmd móttaka flóttafólks
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Framlagt og sveitarstjóra falið að fullvinna og senda til Jöfnunarsjóðs.Samþykkt samhljóða.

25.15
2603003
Aðalfundur SSV 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Framlagt og fulltrúar Borgarbyggðar á aðalfundinum eru Bjarney L. Bjarnadóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Eðvarð Ó. Traustason, Eva M. Jónudóttir og Brynja Þorsteinsdóttir.

25.16
2602118
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Framlagt og byggðarráð felur Sigurði Kristjánssyni fjármálastjóra að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.

25.17
2602005
Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Framlagt.

25.18
2501076
Fjarskiptasamband í Borgarbyggð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Byggðarráð leggur til að gengið verði til samninga við Mílu á grundvelli tillagna félagsins að teknu tilliti til breytingartillagna sem ræddar voru á fundi og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.Samþykkt samhljóða.

25.19
2603040
Reglur um fjárhagsaðstoð 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Drög að uppfærðum reglum framlögð. Byggðarráð samþykkir þau fyrir sitt leyti og vísar til umræðu í velferðarnefnd. Samþykkt samhljóða.

25.20
2510200
Gjaldskrár 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingum á gjaldskrá gatnagerðargjalda og felur sveitarstjóra að fullvinna og leggja fyrir sveitarstjórn til fullnaðarafgreiðslu.Samþykkt samhljóða.

25.21
2603041
Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Framlagt.

25.22
2602286
Melabraut 2b - Umsókn um lóð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Byggðarráð fellst ekki á þá fyrirvara sem gerðir eru í umsókn umsækjanda. Byggðarráð er hins vegar reiðubúið að úthluta lóðinni til hans falli hann frá þeim.Samþykkt samhljóða.

25.23
2510327
Brattagata - Gatnaframkvæmdir
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Áætlun leiðir í ljós að gera má ráð fyrir að kostnaður við snjóbræðsluna yrði um 25-30 m.kr. og að rekstrarkostnaður á ári yrði 850 - 2.000 þús.kr. Áætlaður framkvæmda- og rekstrarkostnaður er því miður verulega hærri en byggðarráð hafði væntingar um. Byggðarráð fellur því frá þeirri hugmynd að innifela snjóbræðslukerfi í útboði á endurbyggingu Bröttugötu.Samþykkt samhljóða.

25.24
2301075
Aðalskipulag - Endurskoðun - Vinnslutími
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Byggðarráð fagnar þeim stóra áfanga að Aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 hefur tekið gildi.

25.25
2104092
Grunnskóli Borgarfjarðar- Kleppjárnsreykjadeild - framkvæmdir á skólahúsnæði
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Jafnt og þétt er eru nemendur og starfsfólk GBF á Kleppjárnsreykjum að máta sig við nýja skólabyggingu GBF á Kleppjárnsreykjum. Verið er að ljúka stöku frágangi, framundan er flutningur á eldhúsi og mötuneyti og unnið er að hönnun á lóð skólans. Byggðarráð leggur til að rammi vegna búnaðarkaupa verði framlengdur inn á yfirstandandi ár að fjárhæð 16 m.kr. Á móti verði rammi vegna lóðar lækkaður um sömu fjárhæð. Fjárfesting ársins í verkinu verði sundurliðuð í samræmi við tillögu. Ekki er gert ráð fyrir að heildarfjárfesting vegna GBF á Kleppjárnsreykjum á yfirstandandi ári muni breytast. Sveitarstjóra falið að gera viðauka til samræmis og leggja fyrir sveitarstjórn.

25.26
2303105
Fjölnota íþróttahús - Knatthús
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Farið yfir þróun kostnaðar og horfur næstu mánuði en áætlað er að afhenda húsið 1. júní næstkomandi. Ekki er tímabært að gera breytingar heildarupphæð í fjárfestingaráætlun vegna framkvæmdarinnar. Hins vegar leggur byggðarráð til að stofnaður verði sérstakur liður í fjárfestingaráætlun sem heitir Aðkomuvegur og honum verði skapaður sérstakur rammi og felur sveitarstjóra að leggja fram tillögu að fjárhæð þess ramma. Fjárfestingarrammi vegna Fjölnota íþróttahúss - Knatthúss verði lækkaður til samræmis. Þá samþykkir byggðarráð tillögu sveitarstjóra að ítarlegri kostnaðarskiptingu.Framundan er útboð á aðkomuvegi og innkaup á búnaði í húsið. Sveitarstjóra falið að vinna áfram og færa inn í viðauka við fjárfestingaráætlun.Hlynur Ólafsson fór af fundi.

25.27
2402272
Beiðni Slökkviliðs Borgarbyggðar um allt húsnæðið Litla Hvammi Reykholti
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Kynnt kostnaðarmat við fulla endurnýjun á slökkvistöð Slökkviliðs Borgarbyggðar í Litla-Hvammi í Reykholti og nýtist það við áfangaskiptingu verksins. Vinna við endurnýjun er hafin og nýlega var skipt um þak á húsinu. Byggðarráð leggur til að áfram verði í skrefum unnið að viðhaldi og endurnýjun i samræmi við viðhaldsáætlun eignasjóðs. Stærri skrefum til endurnýjunar verði vísað til fjárhagsáætlunar 2027.Samþykkt samhljóða.

25.28
2601124
Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Framlögð drög og sveitarstjóra falið að fullvinna og leggja fyrir sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.

25.29
2602071
Egilsholt 1 - lóðarfrágangur
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Lagðar fram tillögur aðila að lúkningu málsins. Byggðarráð er ekki tilbúið að ljúka málinu á þeim nótum sem KB leggur til. Sveitarstjóra falið að svara í samræmi við umræður á fundi. Samþykkt samhljóða.

25.30
2602154
Beiðni eigenda Hæls um að jörðin verði tekinn af afréttarskrá.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 736

Byggðar samþykkir fyrir sitt leyti afgreiðslu og rökstuðning Fjallskilanefndar Borgarbyggðar og leggur til við sveitarstjórn að hafna því erindi að jörðin Hæll í Flókadal verði tekin af afréttarskrá.Samþykkt samhljóða.



26. Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 84
2602027F

Fundargerð framlögð

26.1
2512076
Umsókn um deiliskipulag - Sveinukot
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 84

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Sveinukot. Lagður er fram uppdráttur dags. 25.02.2026. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða.

26.2
2602060
Efra-Nes - umsókn um deiliskipulag - L134858
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 84

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir framlagða vinnslutillögu að deiliskipulagi til auglýsingar. Lagður er fram uppdráttur dags. 03.03.2026. Málsmeðferð verður samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010.Nefndin tekur undir ábendingu Vegagerðarinnar varðandi aukningu umferðar um Kaðalstaðaveg og óskar eftir að áhrif umferðar á Kaðalstaði verði skoðuð sérstaklega. Samþykkt samhljóða.

26.3
2411033
Hraunsás III - umsókn um deiliskipulag - 204514
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 84

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.Samþykkt samhljóða.

26.4
2603029
Brekkukot - umsókn um deiliskipulag - L134386
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 84

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir lýsingu til auglýsingar fyrir Brekkukot skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010.Skipulags- og byggingarnefnd vill árétta að samkvæmt aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 er fyrirhugað deiliskipulag innan íbúðasvæðis (ÍB14) og jafnframt eru innan sama svæðis íbúðarhúsin að Felli og Hlíðarkletti. Heimreiðar að þeim húsum eru jafnframt skilgreindar í gildandi aðalskipulagi og taka þarf tillit til þess við skipulagningu svæðisins.Samþykkt samhljóða.

26.5
2603048
Bjargsland II - Breyting á deiliskipulagi
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 84

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna óverulegra breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga 123/2010 fyrir eigendum fasteigna við Fjóluklett í Borgarnesi.Samþykkt samhljóða.

26.6
2602280
Ósk um umsögn - br.ask Hvalfjsv- efnistökusvæði.
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 84

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, gerir ekki athugasemd við framlagða lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að skila umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.

26.7
2602291
Ósk um umsögn - br.ask Hvalfjarðarsveit - verslun og þjónusta.
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 84

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, gerir ekki athugasemd við framlagða lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 og fyrir áætlað deiliskipulag svæðisins. Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að skila umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.



27. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 71
2602028F

Fundargerð framlögð





Til máls tók: EMJ um lið 4

Til máls tók: SÓ um lið 4

27.1
2602275
Hreinsunarátök 2026
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 71

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til að gámar fyrir gróðurúrgang og timbur verða aðgengilegir daganna 22.-28. apríl nk. á eftirfarandi stöðum:BifröstVarmalandHvanneyri - BÚT-húsKleppjárnsreykir - gryfjan við Litla-BergMinnt er á ákvæði byggingarreglugerðar:Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götur, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamani svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.

27.2
2602274
Umsóknir í styrkvegasjóð 2026
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 71

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til drög að umsókn til sjóðsins. Nefndin harmar að upphæðir sem fengist hafa úr sjóðnum lækki með hverju árinu.

27.3
2602276
Snjómokstur í Borgarnesi.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 71

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að vinna útboðsgögnin í samræmi við umræður á fundinum og leggja síðan drög fyrir nefndina.

27.4
2510198
Hönnun á opnum svæðum og leikvöllum í Borgarnesi
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 71

Lagt fram til kynningar.



28. Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 169
2603010F

Fundargerð framlögð

28.1
2603040
Reglur um fjárhagsaðstoð 2026
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 169

Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við fyrirhugaðar breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð. Samþykkt samhljóða.

28.2
2603073
Samráðshópur stjórnenda í velferðarþjónustu
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 169

Velferðarnefnd telur mikilvægt að fundargerðir samráðshóps stjórnenda í velferðarþjónustu séu lagðar reglulega fyrir fund nefndarinnar. Velferðarnefnd lýsir ánægju með að hópurinn hafi unnið þétt saman frá stofnun hans og aukið samtal og samstarf á milli sveitarfélaga á Vesturlandi.

28.3
2005194
Stefna í málefnum fatlaðra
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 169

Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að unnið verði sameiginlega að stefnu í málefnum fatlaðs fólks á Vesturlandi. Nefndin felur félagsmálastjóra umboð til áframhaldandi samtals við önnur sveitarfélög á svæðinu.

28.4
1810002
Félagslegt leiguhúsnæði
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 169

Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti þær tillögur sem koma fram í minnisblaði félagsmálastjóra. Nefndin undirstrikar jafnframt mikilvægi þess að sveitarfélagið eigi í áframhaldandi samtali við óhagnaðardrifin leigufélög. Að lokum telur nefndin mikilvægt að komið verði til móts við leigjendur og þeirra hagsmuna verði gætt eins og kostur er. Samþykkt samhljóða.



29. Fjallskilanefnd Borgarbyggðar - 36
2602021F

Fundargerð framlögð

29.1
2602154
Beiðni eigenda Hæls um að jörðin verði tekinn af afréttarskrá.
Fjallskilanefnd Borgarbyggðar - 36

Fjallskilanefnd Borgarbyggðar vísar í álits Umboðsmanns Alþingis í máli nr. 9305/2017 dags. 30. nóv. 2018, en þar segir:„Í úrskurði Sýslumannsins á Vesturlandi dags. 16. mars 2017 var á því byggt að ákvæði síðari málsliðar 42.gr. laga nr. 6/1986 yrði ekki skilið á annan veg en þann að það, hvort á jörð væri einhver búrekstur eða ekki, skipti ekki máli varðandi álagningu samkvæmt því. Engu skipti hvort jörð væri nýtt til búreksturs eða ekki eða hvort jörðin nýtti afréttinn að einhverju leyti eða engu. Ég tel ekki tilefni til athugasemda við þessa niðurstöðu enda er hún í samræmi við það álit mitt frá 12. september 2000 í máli nr. 2638/1999 að heimildin til álagningar fjallskilagjalds tæki til þeirra sem ættu upprekstrarrétt á afrétt eða annað sameiginlegt sumarbeitiland sem fjallskilin tækju til. Þá skipti ekki máli hvort þessi réttur er nýttur eða ekki. Í tilvikum þeirra jarðareiganda sem ekki væru með bústofn og gætu því ekki nýtt þennan rétt sinn væri um að ræða geymdan rétt, ef svo mætti að orði komast. Rétturinn yrði virkur þegar stofnað væri til búfjárhalds á jörðinni."Fjallskilanefnd Borgarbyggðar leggur til við sveitarstjórn að hafna fyrrgreindu erindi um að jörðinn Hæll í Flókadal verði tekin af afréttarskrá og leggur þá ákvörðun fyrir sveitarstjórn til staðfestingar.

29.2
2602155
Opinn fundur fjallskilanefndar Þverárréttar 11.febrúar 2026
Fjallskilanefnd Borgarbyggðar - 36

Fjallskilanefnd Borgarbyggðar felur umhverfisfulltrúa að láta fara fram skoðanakönnunm á vilja þeirra sem upprekstarrétt eiga til sameiningar á aftréttum Þverárréttar og Rauðsgilsréttar.



30. Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 251
2602019F

Fundargerð framlögð



Til máls tók SÓ um lið 2

Til máls tók DS um lið 2

Til máls tók SG um lið 5

Til máls tók GLE um lið 5

30.1
2501033
Skóladagatöl fyrir leik-, grunn- og listaskóla Borgarbyggðar
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 251

Umræða um fyrirkomulag skóladagatal. Fræðslunefnd leggur til að fimm skipulagsdagar séu samrýmdir á milli leik-, grunn- og listaskóla. Unnið sé að skóladagatölum fyrir næstu 4-5 ár og einnig að eitt vetrarfrí verði í lok október fyrir grunnskóla.Samþykkt samhljóða.

30.2
2509087
Útboð á skóla- og tómstundaakstri fyrir skólaárið 2026-2027
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 251

Lagt fram til kynningar.

30.3
2601091
Ósk um breytingu á upptökusvæði skóla.
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 251

Fræðslunefnd tekur vel í erindið en vísar því til umsagnar í skólaráði Grunnskóla Borgarfjarðar.Samþykkt samhljóða.

30.4
2601255
Ósk um tómstundaakstur
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 251

Lagt til að erindið verið ekki samþykkt að sinni með vísað í að ekki sé gert ráð fyrir viðbótar akstri í fjárhagsáætlun en málinu vísað inní vinnu hóps um aukna þáttöku barna í Íþróttum sem KPMG vinnur með Borgarbyggð.Samþykkt samhljóða.

30.5
2409322
UMSB - samstarfssamningur
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 251

Umræður um stöðuna á viðræðum við UMSB.Unnið hefur verið að því frá síðasta hausti að ná samningi við UMSB á grunni íþróttastefnu Borgarbyggðar sem samþykkt var í sveitarstjórn. Fræðslunefnd hefur áhyggjur af því að ekki hafi tekist að klára þann samning sem nefndinni var kynntur í haust. Fræðslunefnd leggur áherslur á að þau markmið sem koma fram í stefnunni og samningsdrögum verði framfylgt með samningnum við UMSB. Ef ekki verður komin fram tillaga frá samninganefnd UMSB sem Borgarbyggð getur tekið afstöðu til fyrir næstu mánaðamót leggur fræðslunefnd til að leitað verði annarra leiða með íþróttafélögunum til að framfylgja markmiðum íþróttastefnu Borgarbyggðar þannig að það fjármagn sem gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun nýtist íþróttahreyfingunniSamþykkt samhljóða.

30.6
2602148
Umsókn um auka skipulagsdag
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 251

Fræðslunefnd samþykkir að Ugluklettur fái viðbóta skipulagsdag. Mikilvægt er að skólinn upplýsi foreldra um niðurstöðuna og breyti skóladagatali í samræmi við það. Samþykkt samhljóða.



Fundi slitið - kl. 17:27