Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa

71. fundur

12. mars 2026 kl. 11:00 - 12:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Drífa Gústafsdóttir - skipulagsfulltrúi
Pétur Már Sigurðsson - starfsmaður
Ásgerður H Hafsteinsdóttir - verkefnisstjóri
Kara Lau Eyjólfsdóttir - verkefnisstjóri

Starfsmenn

Fundargerð ritaði: Ásgerður Hafsteinsdóttir - Verkefnastjóri


Dagskrá

1. Brókarstígur 24, 26, 27, 27a, 28 og 30 - Umsókn um stofnun lóða
2602114

Lögð er fram ósk landeiganda Brókarstígs 24 (L177311), 26 (L177313), 27 (L177314), 28 (L177315) og 30 (L177312) í Borgarbyggð um að breyta stærð lóða eftirfarandi

Brókarstígur 24 úr 2.504 fm í 2.952 fm,

Brókarstígur 26 úr 3.380 fm í 3.965 fm (tveir skikar),

Brókarstígur 27 úr 2.971 fm í 3.818 fm,

Brókarstígur 28 úr 3.638 fm í 4.620 fm,

Brókarstígur 30 úr 2.502 fm í 2.559 fm.

Í sömu merkjalýsingu er óskað eftir stofnun lóða utan um borholu úr landi Urriðarárlands (L191286) og fær lóðin heitið Brókarstígur 27a og verður 480 fm. Upprunalandið Urriðaárland minnkar um 3399 fm en stærð þess er óskráð.

Deiliskipulag er á svæðinu og er merkjalýsing þessi gerð eftir því.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að breyta stærð lóðanna eins og eftirfarandi:

Brókarstígur 24(L177311) úr 2.504 fm í 2.952 fm,

Brókarstígur 26(L177313) úr 3.380 fm í 3.965 fm,

Brókarstígur 27(L177314) úr 2.971 fm í 3.818 fm,

Brókarstígur 28(L177315) úr 3.638 fm í 4.620 fm,

Brókarstígur 30(L177312) úr 2.502 fm í 2.559 fm.

Skipulagsfulltrúi samþykkir jafnframt fyrir sitt leyti að stofna 480 fm lóð í kringum borholu, Brókarstígur 27a, úr upprunalandinu Urriðarárland (L191286) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Ný stofnaða lóðin fer í notkunarflokkinn viðskipta- og þjónustulóð.

Fylgiskjöl


2. Langárfoss Veiðihús - Umsókn um stofnun lóða
2602133

Lögð er fram ósk lóðarhafa Langárfoss veiðihús (L135939) í Borgarbyggð um að breyta stærð lóðar úr 1.746 fm í 59.708 fm. Landeign þessi hefur ekki afmörkun. Langárfoss (L135938) minnkar sem því nemur eða 57.692 fm en stærð þess er óskráð. Ekki er deiliskipulag á svæðinu. Aðkoma er af Snæfellsnesvegi, um gamla Stangarholtsveg og aðkomuveg sem er í landi Langárfoss.

Undirritað samþykki aðliggjandi landeiganda liggur fyrir.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að afmarka og breyta stærð lóðar Langárfosss veiðihús (L135939) úr 1.746 fm í 59.708 fm þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Fylgiskjöl


3. Umsókn um deiliskipulag - Kiðárbotnar 62
2602094

Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Stuttárbotna í Húsafelli fyrir lóðina Kiðárbotnar 62. Breytingin tekur til stækkunar á lóð þar sem hún stækkar úr 1.250 m2 í 1.405 m2 þar sem hún lengist til norðurs um allt að 10 m og austurs um 2m. Til vesturs styttist lóðin um allt að 10 m. Auk þess er byggingarreitur stækkaður um 10 m til norðurs og 2 m til austurs. Breytingin er ekki í ósamræmi við þá byggð sem fyrir er t.d. hvað varðar notkun, nýtingarhlutfall, útlit og form svæðis. Aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags haldast óbreyttir. Heimild landeiganda fyrir stækkun lóðar liggur fyrir. Hönnuður er á lista Skipulagsstofnunar um samþykkta ráðgjafa.

Uppdráttur dags. 20.01.2026

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. Samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að grenndarkynnt verði óveruleg breyting á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir eigendum sumarhúsa að Kiðárbotnum 15 og 60.

Fylgiskjöl


4. Húsafell Árnes - umsókn um deiliskipulag - L215413
2602086

Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir íbúðarhúsalóðar og hesthúss í landi Húsafells III. Breytingin felst í því að húsagerð er breytt á lóðinni fyrir hesthús og verður húsið skilgreint sem vélaskemma í stað hesthúss. Húsið var byggt sem hesthús en notkun þess hefur verið í vélaskemmu og á því breyting deiliskipulagsins einungis við um breytingu á skilgreiningu húss í samræmi við núverandi notkun þess. Breytingin er ekki í ósamræmi við þá byggð sem fyrir er t.d. hvað varðar notkun, nýtingarhlutfall, útlit og form svæðis. Ekki er talið að breytingin varði hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Hönnuður er á lista Skipulagsstofnunar um samþykkta ráðgjafa.

Uppdráttur dags. 22.01.2026.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. Samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010.

Breytingin á við um svo óveruleg frávik að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og 3. mgr. 44. gr. sömu laga.

Skipulagsfulltrúi bendir á að skoða þurfi umrætt deiliskipulag, útmörk og skörun þess við aðliggjandi deiliskipulag flugvallarins.

Fylgiskjöl


5. Háhóll-Hafdísalundur 200282 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2511269

Á 82. fundi skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar þann 9. janúar 2026 var samþykkt að grenndarkynna fyrirhugað byggingarleyfi á 121 m2 einbýlishúsi ásamt 60,1 m2 bílageymslu á lóðinni Háhóll/Hafdísarlundur (L200282). Grenndarkynnt var fyrir nágrönnum sem hagsmuna eiga að gæta og óskað eftir umsögnum í gegnum skipulagsgátt. Kynningartíminn var frá 14, janúar til og með 13. febrúar 2026. Engar athugasemdir bárust en Vegagerðin setti fram leiðbeiningar varðandi ný vegamót og heimreið að húsinu.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar byggingarfulltrúa að taka til afgreiðslu byggingaráform þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar undirritað samþykki landeigenda aðliggjandi landa fyrir aðkomuvegi að húsinu liggur fyrir.

Fylgiskjöl


6. Hvassafell II - umsókn um framkvæmdarleyfi - 176986
2603015

Lögð er fram umsókn Veitna 27.02.2026 um framkvæmdaleyfi vegna borunar fyrir möguleg neysluvatnsöflunar í landi Hvassafells II (L176986). Gert er ráð fyrir að bora um 14" svera rannsóknarborholu/borholur og boruð þannig að fóðring er boruð niður með lofthamri og síðan götuð eftir á til að ná inn vatni úr jarðlögunum. Ekki er vitað hversu þykkt berghlaupið er sem bora en ekki er gert ráð fyrir meira en 7m. Gert er ráð fyrir að bora vorið 2026 og verkið taki 2 daga. Nánari tímasetning mun liggja fyrir síðar. Vegslóði frá fyrri tíð liggur inn með tjörninni og verður hann nýttur sem aðkomuleið fyrir bortæki. Gert er ráð fyrir því að eitthvað þurfi að færa til stórgrýti og bera í til þess að koma tækjunum uppá hæðina innan við tjörnina. Í aðalskipulagi er landið skilgreint sem landbúnaðarland. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna rannsóknarborunar með vísan til framlagðra gagna. Leiðbeiningar og skilyrði varðandi framkvæmdina sem sótt er um og eru á valdi skipulagsfulltrúa munu koma fram í framkvæmdaleyfi. Sýnt er að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010

Fylgiskjöl


7. Þorsteinsgata 1 - umsókn um framkvæmdarleyfi -
2603042

Lögð er fram umsókn Sigur-garða ehf dags. 03.03.2026 um framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar og nýlagningar lagna við Þorsteinsgötu 1 og íþróttasvæðið í Borgarnesi. Lagnirnar verða lagðar í skurði sem grafið er fyrir, sandað undir og yfir, skurðirnir fylltir og gengið frá. Grafið verður fyrir og settir upp brunahanar, lokar og spindlar. Framkvæmdatími er áætlaður 4-6 vikur. Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem íþróttasvæði. Deiliskipulag er á svæðinu.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi vegna veitulagna með vísan til framlagðra gagna. Leiðbeiningar og skilyrði varðandi þær framkvæmdir sem sótt er um og eru á valdi skipulagsfulltrúa munu koma fram í framkvæmdaleyfi.



Fundi slitið - kl. 12:00