Velferðarnefnd Borgarbyggðar
169. fundur
10. mars 2026 kl. 14:00 - 15:10
í stóra fundarsal í Ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðveig Eyglóardóttir - formaður
Kristín Erla Guðmundsdóttir - aðalmaður
Kristján Ágúst Magnússon - aðalmaður
Eva Margrét Jónudóttir - aðalmaður
Sólveig Hallsteinsdóttir - varamaður
Starfsmenn
Erla Björg Kristjánsdóttir - félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði: Erla Björg Kristjánsdóttir - félagsmálastjóri
Dagskrá
1. Trúnaðarbók 2026
2601286
Lagðar fram afgreiðslur starfsmanna frá síðasta fundi og afgreiddar umsóknir um fjárhagsstyrk.
Óheimilt er að birta afgreiðslu nefndarinnar og starfsmanna opinberlega og því eru afgreiðslur skráðar með formlegum hætti í trúnaðarbók. Það er skýr reglurammi sem nefndin og starfsmenn félagsþjónustu starfa eftir. Reglurnar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins
2. Reglur um fjárhagsaðstoð 2026
2603040
Þann 05.03.26 voru drög að uppfærðum reglum framlögð fyrir Byggðarráð. Bókun fundarins var eftirfarandi: Byggðarráð samþykkir þau fyrir sitt leyti og vísar til umræðu í velferðarnefnd. Samþykkt samhljóða.
Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við fyrirhugaðar breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð. Samþykkt samhljóða.
Klara Ó. Kristinsdóttir, verkefnastjóri í félagsþjónustu sat undir þessum lið.
3. Samráðshópur stjórnenda í velferðarþjónustu
2603073
Fundargerðir samráðshóps stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi 2024-2025 lagðar fram til kynningar.
Velferðarnefnd telur mikilvægt að fundargerðir samráðshóps stjórnenda í velferðarþjónustu séu lagðar reglulega fyrir fund nefndarinnar. Velferðarnefnd lýsir ánægju með að hópurinn hafi unnið þétt saman frá stofnun hans og aukið samtal og samstarf á milli sveitarfélaga á Vesturlandi.
4. Stefna í málefnum fatlaðra
2005194
Sameiginleg stefna í málefnum fatlaðs fólks á Vesturlandi.
Það liggur fyrir að öll sveitarfélög eru að vinna að stefnu í málefnum fatlaðs fólks eða hafa hug á því að hefja slíka vinnu. Stjórnendur í velferðarþjónustu á Vesturlandi leggja til að skoðað verði hvort grundvöllur sé til sameiginlegrar stefnu í málefnum fatlaðs fólks á Vesturlandi sem hvert sveitarfélag eða svæði myndi taka áfram og staðfæra. Óskað er eftir afstöðu Velferðarnefndar.
Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að unnið verði sameiginlega að stefnu í málefnum fatlaðs fólks á Vesturlandi. Nefndin felur félagsmálastjóra umboð til áframhaldandi samtals við önnur sveitarfélög á svæðinu.
5. Félagslegt leiguhúsnæði
1810002
Á fundi Byggðarráðs þann 20.02.25 sl. var farið yfir samtal við Brák um samstarfs vegna eignarhalds- og rekstrar á félagslegu leiguhúsnæði í samstarfi við Borgarbyggð. Bókun fundarins var eftirfarandi:
Málið kynnt og samtal tekið um fjárhagslegar forsendur. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræðu á fundi og nýsamþykkta stefnu um félagslegt leiguhúsnæði. Samþykkt samhljóða. Meðfylgjandi er drög að minnisblaði auk stefnu um félagslegar leiguíbúðir og yfirlit yfir félagslegt leiguhúsnæði.
Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti þær tillögur sem koma fram í minnisblaði félagsmálastjóra. Nefndin undirstrikar jafnframt mikilvægi þess að sveitarfélagið eigi í áframhaldandi samtali við óhagnaðardrifin leigufélög. Að lokum telur nefndin mikilvægt að komið verði til móts við leigjendur og þeirra hagsmuna verði gætt eins og kostur er. Samþykkt samhljóða.
Fundi slitið - kl. 15:10