Dagskrá
1. Umsókn um deiliskipulag - Sveinukot
2512076
Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Sveinukot (L134457). Tillagan tekur til 4,8 ha lóðina Sveinukot í Borgarbyggð þar sem fyrirhugað er að byggja upp gistiþjónustu með 20 litlum gistihúsum auk sameiginlegrar baðaðstöðu, alls 740 m². Deiliskipulag þetta samræmist aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037. Lýsing deiliskipulags var kynnt frá 14.01.26-01.02.25 og óskað eftir umsögnum lögbundinna umsagnaraðila. Meðfylgjandi eru þær umsagnir og ábendingar sem bárust á kynningartíma.
Lagður er fram uppdráttur ásamt greinargerð dags. 25.02.2026
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Sveinukot. Lagður er fram uppdráttur dags. 25.02.2026. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
2. Efra-Nes - umsókn um deiliskipulag - L134858
2602060
Lögð er fram vinnslutillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Efra-Nes í borgarbyggð (L134858). Vinnslutillaga þessi tekur til 85.998 m2 landspildu úr landi Efra-Ness í Borgarbyggð. Landeigandi hyggst þróa ferðaþjónustu á svæðinu með áformum um 50 hvelfd gistitjöld og tvö stærri þjónustutjöld. Tillagan samræmist aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037. Aðkoma að svæðinu er um Kaðalstaðaveg (tengivegur af þjóðvegi 50)
Lýsing deiliskipulags var kynnt frá 16.02.2026-02.03.2026 og óskað eftir umsögnum lögbundinna umsagnaraðila. Meðfylgjandi eru þær umsagnir og ábendingar sem bárust á kynningartíma.
Uppdráttur dags. 03.03.2026 og uppfærð greinargerð þar sem brugðist hefur verið við þeim umsögnum er bárust á kynningatíma lýsingar.
Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir framlagða vinnslutillögu að deiliskipulagi til auglýsingar. Lagður er fram uppdráttur dags. 03.03.2026. Málsmeðferð verður samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010.
Nefndin tekur undir ábendingu Vegagerðarinnar varðandi aukningu umferðar um Kaðalstaðaveg og óskar eftir að áhrif umferðar á Kaðalstaði verði skoðuð sérstaklega.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
3. Hraunsás III - umsókn um deiliskipulag - 204514
2411033
Nýtt deiliskipulag Hraunsáss III (L204514) hefur verið auglýst samkvæmt 41.gr. skiplagslaga 123/2010. Kynningartími var frá 18.12.25-05.02.26 og óskað eftir umsögnum lögbundinna umsagnaraðila. Athugasemdir bárust frá 7 aðilum. Deiliskipulag þetta samræmist aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037.
Lagður er fram uppdráttur og greinargerð dags. 20.02.2026 þar sem brugðist hefur verið við þeim umsögnum og athugasemdum sem bárust á kynningartíma. Einnig eru lögð fram svör við athugasemdum og ábendingum sem bárust á kynningartíma. Spennistöð var staðsett á uppdrætti í samráði við RARIK.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
4. Brekkukot - umsókn um deiliskipulag - L134386
2603029
Lögð er fram lýsing að deiliskipulagi fyrir Brekkukot í Borgarbyggð (L134386). Deiliskipulagssvæðið er 20 ha að stærð og deilir landamerkjum með lóð Fells og jörðum Hurðarbaks, Deildartungu og Grófar. Fyrirhugað er að útbúa 6 lóðir fyrir íbúðarhús til viðbótar við eitt íbúðarhús sem fyrir er nú þegar á Brekkuhvammi (L178781). Aðkoma yrði um núverandi veg að Brekkuhvammi frá Borgarfjarðarbraut. Gert er ráð fyrir að tvær vegleiðir sem nýttar hafa verið sem aðkoma að lóðum Fells og Hlíðarkletts verði felldar niður og varanleg aðkoma að þeim lóðum verði leyst utan skipulagssvæðisins. Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037. Hönnuður er á lista Skipulagsstofnunar um samþykkta ráðgjafa.
Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir lýsingu til auglýsingar fyrir Brekkukot skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010.
Skipulags- og byggingarnefnd vill árétta að samkvæmt aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 er fyrirhugað deiliskipulag innan íbúðasvæðis (ÍB14) og jafnframt eru innan sama svæðis íbúðarhúsin að Felli og Hlíðarkletti. Heimreiðar að þeim húsum eru jafnframt skilgreindar í gildandi aðalskipulagi og taka þarf tillit til þess við skipulagningu svæðisins.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
5. Bjargsland II - Breyting á deiliskipulagi
2603048
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Bjargsland II - svæði I í Borgarnesi. Breytingin felur í sér að gatan Fjóluklettur er framlengd og tengd við götuna Fjóluklettur eins og hún er sýnd í aðliggjandi deiliskipulagi Fjóluklettur við Kveldúlfshöfða, göngustígar eru tengdir saman og fjögur gesta bílastæði sett þar sem áður var snúninsás. Gangbraut er bætt við hjá Fjólukletti 2 og gangstétt framlengd. Deiliskipulagsmörkum er breytt til að þau falli að deiliskipulagsmörkum aðliggjandi deiliskipulags. Aðrir skilmálar deiliskipulagsins haldast óbreyttir. Hönnuður er á lista Skipulagsstofnunar um samþykkta ráðgjafa.
Uppdráttur dags. 04.03.2026
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna óverulegra breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga 123/2010 fyrir eigendum fasteigna við Fjóluklett í Borgarnesi.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
6. Ósk um umsögn - br.ask Hvalfjsv- efnistökusvæði.
2602280
Lögð er fram umsagnarbeiðni úr skipulagsgátt dags. 27.02.2026 þar sem óskað er eftir umsögn Borgarbyggðar um lýsingu á breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir stöðu efnistöku og efnislosunarsvæði í sveitarfélagin. Meðfylgjandi er skipulagslýsing breytingar aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar dags. 11.02.2026.
Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, gerir ekki athugasemd við framlagða lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að skila umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
7. Ósk um umsögn - br.ask Hvalfjarðarsveit - verslun og þjónusta.
2602291
Lögð er fram umsagnarbeiðni úr skipulagsgátt dags. 27.02.2026 þar sem óskað er eftir umsögn Borgarbyggðar um lýsingu á breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 og nýs deiliskipulags.
Breyting á aðalskipulagi fellst í skilgreiningu á svæði fyrir verslun og þjónustu samhliða vinnu við deiliskipulag fyrir fellsenda í Hvalfjarðarsveit. Þar er stefnt á uppbyggingu á fornbílasafni auk annarrar þjónustu, s.s veitinga og afþreyingar.
Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, gerir ekki athugasemd við framlagða lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 og fyrir áætlað deiliskipulag svæðisins. Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að skila umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl