Dagskrá
1. Staða framkvæmda í Borgarbyggð
2509209
Farið yfir stöðu framkvæmda á vegum Borgarbyggðar. Til fundarins kemur Hlynur Ólafsson verkefnastjóri framkvæmda hjá Borgarbyggð.
Yfirferð um helstu framkvæmdaverk sveitarfélagsins.
2. Vatnsrennibraut við sundlaug í Borgarnesi
2511072
Lagt er fyrir byggðarráð litaval vatnsrennibrautar og farið yfir viðbótarkostnað vegna festingar plastrennibrauta við burðarvirki og dagsbirtuhringi.
Byggðarráð samþykkir tillögu verkefnisstjóra um litaval og dagsbirtuhringi ásamt áætluðum kostnaði við nýjar festingar. Kostnaður er áætlaður innan þess ramma sem þegar hefur verið samþykktur.
Samþykkt samhljóða.
3. Brattagata - Gatnaframkvæmdir
2510327
Í sumar stendur til að ráðast í endurbyggingu á Bröttugötu í Borgarnesi. Í kjölfar fundar byggðarráðs nr. 730 hefur verið skoðað að koma fyrir snjóbræðslu í Bröttugötu samhliða endurbyggingu. Kostnaðaráætlun snjóbræðslukerfis í Bröttugötu kynnt og minnisblað starfsmanns lagt fram.
Áætlun leiðir í ljós að gera má ráð fyrir að kostnaður við snjóbræðsluna yrði um 25-30 m.kr. og að rekstrarkostnaður á ári yrði 850 - 2.000 þús.kr. Áætlaður framkvæmda- og rekstrarkostnaður er því miður verulega hærri en byggðarráð hafði væntingar um. Byggðarráð fellur því frá þeirri hugmynd að innifela snjóbræðslukerfi í útboði á endurbyggingu Bröttugötu.
Samþykkt samhljóða.
4. Grunnskóli Borgarfjarðar- Kleppjárnsreykjadeild - framkvæmdir á skólahúsnæði
2104092
Yfirferð um stöðu framkvæmdar, búnaðarkaup og fyrirhugaðar framkvæmdir á lóð. Framlögð drög að áhrifum á framkvæmdaáætlun 2026. Framlagt minnisblað vegna óska frá skólastjórnendum um að skipt verði um hurðapumpur á skólastofum og vinnuherbergi.
Jafnt og þétt er eru nemendur og starfsfólk GBF á Kleppjárnsreykjum að máta sig við nýja skólabyggingu GBF á Kleppjárnsreykjum. Verið er að ljúka stöku frágangi, framundan er flutningur á eldhúsi og mötuneyti og unnið er að hönnun á lóð skólans. Byggðarráð leggur til að rammi vegna búnaðarkaupa verði framlengdur inn á yfirstandandi ár að fjárhæð 16 m.kr. Á móti verði rammi vegna lóðar lækkaður um sömu fjárhæð. Fjárfesting ársins í verkinu verði sundurliðuð í samræmi við tillögu. Ekki er gert ráð fyrir að heildarfjárfesting vegna GBF á Kleppjárnsreykjum á yfirstandandi ári muni breytast. Sveitarstjóra falið að gera viðauka til samræmis og leggja fyrir sveitarstjórn.
5. Fjölnota íþróttahús - Knatthús
2303105
Yfirferð um stöðu framkvæmdar, eftirstöðvar og áhrif á framkvæmdaáætlun 2026 sbr. afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 735.
Farið yfir þróun kostnaðar og horfur næstu mánuði en áætlað er að afhenda húsið 1. júní næstkomandi. Ekki er tímabært að gera breytingar heildarupphæð í fjárfestingaráætlun vegna framkvæmdarinnar. Hins vegar leggur byggðarráð til að stofnaður verði sérstakur liður í fjárfestingaráætlun sem heitir Aðkomuvegur og honum verði skapaður sérstakur rammi og felur sveitarstjóra að leggja fram tillögu að fjárhæð þess ramma. Fjárfestingarrammi vegna Fjölnota íþróttahúss - Knatthúss verði lækkaður til samræmis. Þá samþykkir byggðarráð tillögu sveitarstjóra að ítarlegri kostnaðarskiptingu.
Framundan er útboð á aðkomuvegi og innkaup á búnaði í húsið. Sveitarstjóra falið að vinna áfram og færa inn í viðauka við fjárfestingaráætlun.
Hlynur Ólafsson fór af fundi.
6. Beiðni Slökkviliðs Borgarbyggðar um allt húsnæðið Litla Hvammi Reykholti
2402272
Framlögð kostnaðaráætlun vegna endurbóta á slökkvistöð Slökkviliðs Borgarbyggðar í Reykholti.
Kynnt kostnaðarmat við fulla endurnýjun á slökkvistöð Slökkviliðs Borgarbyggðar í Litla-Hvammi í Reykholti og nýtist það við áfangaskiptingu verksins. Vinna við endurnýjun er hafin og nýlega var skipt um þak á húsinu. Byggðarráð leggur til að áfram verði í skrefum unnið að viðhaldi og endurnýjun i samræmi við viðhaldsáætlun eignasjóðs. Stærri skrefum til endurnýjunar verði vísað til fjárhagsáætlunar 2027.
Samþykkt samhljóða.
7. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
2601124
Framlagður Viðauki II við fjárhags- og framkvæmdaáætlun Borgarbyggðar 2026.
Framlögð drög og sveitarstjóra falið að fullvinna og leggja fyrir sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
8. Egilsholt 1 - lóðarfrágangur
2602071
Farið yfir stöðu samtals við KB vegna lóðamála.
Lagðar fram tillögur aðila að lúkningu málsins. Byggðarráð er ekki tilbúið að ljúka málinu á þeim nótum sem KB leggur til. Sveitarstjóra falið að svara í samræmi við umræður á fundi.
Samþykkt samhljóða.
9. Beiðni eigenda Hæls um að jörðin verði tekinn af afréttarskrá.
2602154
Eigendur jarðarinnar Hæls í Flókadal hafa sent inn erindi þess efnis að biðja um að jörðin verði tekin af afréttarskrá.
Kemur þessi beiðni með vísan í 6.gr. laga um afréttamálefni, fjallskil o.fl. 1986/6 en þar segir: "[Stjórn fjallskilaumdæmis semur skrá yfir alla afrétti er héraðsbúar nota.] 1) Skal þar lýst merkjum þeirra og tekið fram, hvaða jarðir eiga upprekstur á hvern afrétt svo og hverjir séu afréttareigendur, ef um afrétt í einkaeign er að ræða. Skrá þessi gildir sem heimild fyrir upprekstrarrétti hverrar jarðar í [fjallskilaumdæminu], 1) og verður henni ekki breytt, nema eftir tillögum sveitarstjórnar og með samþykki jarðeiganda eða umráðamanns jarðar. Breytingar á afréttum eða réttindum yfir þeim skulu þegar færðar í afréttaskrá. Afréttaskrá skal geymd í skjalasafni sýslunnar."
Fjallskilanefnd Borgarbyggðar vísar í álits Umboðsmanns Alþingis í máli nr. 9305/2017 dags. 30. nóv. 2018, en þar segir:
„Í úrskurði Sýslumannsins á Vesturlandi dags. 16. mars 2017 var á því byggt að ákvæði síðari málsliðar 42.gr. laga nr. 6/1986 yrði ekki skilið á annan veg en þann að það, hvort á jörð væri einhver búrekstur eða ekki, skipti ekki máli varðandi álagningu samkvæmt því. Engu skipti hvort jörð væri nýtt til búreksturs eða ekki eða hvort jörðin nýtti afréttinn að einhverju leyti eða engu. Ég tel ekki tilefni til athugasemda við þessa niðurstöðu enda er hún í samræmi við það álit mitt frá 12. september 2000 í máli nr. 2638/1999 að heimildin til álagningar fjallskilagjalds tæki til þeirra sem ættu upprekstrarrétt á afrétt eða annað sameiginlegt sumarbeitiland sem fjallskilin tækju til. Þá skipti ekki máli hvort þessi réttur er nýttur eða ekki. Í tilvikum þeirra jarðareiganda sem ekki væru með bústofn og gætu því ekki nýtt þennan rétt sinn væri um að ræða geymdan rétt, ef svo mætti að orði komast. Rétturinn yrði virkur þegar stofnað væri til búfjárhalds á jörðinni."
Fjallskilanefnd Borgarbyggðar leggur til við sveitarstjórn að hafna fyrrgreindu erindi um að jörðinn Hæll í Flókadal verði tekin af afréttarskrá og leggur þá ákvörðun fyrir sveitarstjórn til staðfestingar.
Byggðar samþykkir fyrir sitt leyti afgreiðslu og rökstuðning Fjallskilanefndar Borgarbyggðar og leggur til við sveitarstjórn að hafna því erindi að jörðin Hæll í Flókadal verði tekin af afréttarskrá.
Samþykkt samhljóða.
10. Brákarey-Skipulagsmál
2412005
Framlögð tillaga að samkomulagi um frestun gatnagerðargjalda við lóðarhafa í Brákarey sem tryggt hafa sér lóð við Vallarás. Markmiðið er að auðvelda flutning á atvinnustarfsemi úr Brákarey til annars svæðis innan sveitarfélagsins í kjölfar endurskipulags svæðis, í samræmi við stefnu sveitarfélagsins um að styðja við slíka tilfærslu.
Tillagan felur í sér að nokkuð staðlað sambærilegt samkomulag bjóðist þeim lóðarhöfum sem um ræðir. Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að samkomulagi og felur sveitarstjóra að bjóða lóðarhöfum í Brákarey.
Samþykkt samhljóða.
11. Rammasamningar Borgarbyggðar
2401006
Umræða um rammasamninga Ríkiskaupa sem eru að renna út og aðild og ávinning sveitarfélagsins.
Lagður fram listi yfir þá rammasamninga sem Borgarbyggð er aðili að. Farið yfir þá tvo rammasamninga sem sem eru að framlengjast og rædd staða opinna rammasamninga. Samþykkt að halda áfram þátttöku í rammasamningum um Samgöngur og Túlka- og þýðingarþjónustu.
Samþykkt samhljóða og vísað til sveitarstjórnar.
12. Stjórnsýslukæra Sólar til framtíðar nr2
2602046
Framlögð greinargerð Borgarbyggðar, sbr. afgreiðslu 735. fundar byggðarráðs, vegna stjórnsýslukæru og bréfs innviðaráðuneytisins til sveitarfélagsins dags. 5. febrúar þar sem kærð er ákvörðun sveitarstjórnar Borgarbyggðar frá 15. janúar 2026 um að hafna beiðni kærenda um að fram fari söfnun undirskrifta vegna samþykktar sveitarfélagsins á aðalskipulagi Borgarbyggðar.
Greinargerð framlögð.
Fylgiskjöl
13. Niðurstöður íbúakosninga um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps og skipun stjórnar til undirbúnings stofnunar sameinaðs sveitarfélags
2509247
Framlagt svarbréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna erindis Samstarfsnefndar um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps þar sem óskað var eftir auknu framlagi vegna aukins kostnaðar vegna sameiningarkosninga.
Svarbréf Jöfnunarsjóðs veldur vonbrigðum og telur byggðarráð það vart samræmast fyrri afgreiðslum sjóðsins varðandi sama mál eða sambærileg mál. Upplýst var á fundinum að unnið væri að nýju erindi til sjóðsins í von um að afstaðan verði endurskoðuð.
Fylgiskjöl
14. Starfsemi og fjármögnun Þróunarfélagsins Grundartanga árið 2026
2510096
Lögð fram til kynningar gögn varðandi áform og stöðu uppbyggingarverkefna sem unnið er að á vettvangi Þróunarfélags Grundartanga.
Lagt fram til kynningar. Mikil tækifæri eru til uppbyggingar á Grundartanga og bundnar vonir við að á svæðinu skapist fjölmörg ný og fjölbreytt störf sem styrkja munu vinnumarkað og fjölga íbúum í nærliggjandi sveitarfélögum.
15. Sveitarstjórnarfundur unga fólksins 2026
2603002
Boðað hefur verið til sveitarstjórnarfundar unga fólksins 10. mars 2026.
Sveitarstjórnarfundur unga fólksins er mjög mikilvægur vettvangur formlegs samtals ungs fólks í Borgarbyggð og sveitarstjórnar. Fyrri fundir hafa skapað mikla umræðu um málefni ungmenna í sveitarfélaginu og ýtt úr vör umbótaverkefnum. Byggðarráð hlakkar til samtalsins.
16. Leigusamningur um land fyrir golfvöll að Hamri
2511138
Lögð er fram ósk leigutaka Golfklúbbs Borgarness um stofnun nýrrar lóðar [ónefnd lóð] úr landi Hamars lnr. L135401 í Borgarbyggð. 
Um er að ræða lóð innan golfvallarins sem er stofnuð fyrir handhafa afnota af vellinum til uppbyggingar á sértækum mannvirkjum sem styðja við starfsemi innan svæðisins íþ204. 
Mannvirki eru á lóðinni sem eru eign Golklúbbs Borgarness. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Lóðin er 78,6 ha. að stærð og skilgreind sem íþróttasvæði í endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar fyrir árin 2026-2037.  
Samningur er í gildi um lóðina sbr. samning ,,Leigusamningum um land fyrir golfvöll að Hamri í Borgarnesi“ undirritaður þann 15. júní 2003.
Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að lóðin verði stofnuð með merkjalýsingu og um hana verður gerður lóðaleigusamningur sem segir til um réttindi og heimildir lóðarhafa Golfklúbbs Borgarness. Einungis er verið að afmarka lóð innan núverandi samnings.
Byggðaráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
17. Vallarás 16D - Umsókn um lóð
2602273
Framlögð umsókn um lóðina Vallarás 16D í Borgarnesi.
Byggðarráð samþykkir að úthluta lóðinni Vallarási 16D til Hafnarfjalls ehf. kt. 410623-0720 en á móti skilar sami aðili lóðunum við Vallarás og 16 og 16A.
Samþykkt samhljóða.
18. Línustæði, eignarréttur og endurgjald
2602117
Framlögð til kynningar skýrsla unnin af Torfa Jóhannessyni hjá Nordic Insights fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
Byggðarráð þakkar fyrir góða skýrslu. Málefnið varðar hagsmuni fjölmargra íbúa sveitarfélagsins. Það er sjónarmið Borgarbyggðar að nauðsynlegt er að gæta ríkulega að hagsmunum landeigenda og annarra sem verða fyrir áhrifum af orkumannvirkjum, bæði í framleiðslu og dreifingu, við uppbyggingu þeirra. Það er mikilvæg forsenda uppbyggingar. Skýrslan er mjög mikilvægt innlegg í þá umræðu enda nauðsynlegt að læra af reynslu nágrannalanda.
Fylgiskjöl
19. Skipan í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1
2602149
Framlagt svar frá skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála í innviðaráðuneytinu vegna skipunar fulltrúa Borgarbyggðar í raflínunefnd. Þar kemur fram að sbr. 28 gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 skal tilnefna bæði karl og konu þegar tilnefnt er í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga. Ráðherra skipar í nefndina og velur úr tilnefningum svo kynjaskipting sé sem jöfnust. Sveitarfélaginu beri að tilnefna bæði karl og konu í nefndina eða skýra hvaða hlutlægu ástæður leiða til þess að það er ekki mögulegt.
Byggðarráð hefur áður tilnefnt Davíð Sigurðsson í nefndina og samþykkir að tilnefna einnig Ragnhildi Evu Jónsdóttur.
Samþykkt samhljóða.
20. Göngubrú á Borgarfjarðarbrú
2603034
Umræða um mögulega útfærslu á gönguleið yfir Borgarfjörð með göngubrú á Borgarfjarðarbrúnni.
Byggðarráð fagnar því að tæknilega standi til boða lausnir sem gera kleift að setja létta göngubrú á Borgarfjarðarbrú eða aðrar brýr. Byggðarráð hvetur Vegagerðina til að skoða slíkar lausnir með opnum hug. Það væri til mikilla hagsbóta fyrir íbúa í Borgarbyggð að hafa örugga göngu- og hjólaleið á Borgarfjarðarbrú svo sem m.t.t. fjölbreyttari samgangna milli tveggja stærstu byggðakjarna í Borgarbyggð og útivistarmöguleika.
Fylgiskjöl
21. Samræmd móttaka flóttafólks
2303023
Í framhaldi af svari Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga dags. 10.2.2026 við erindi Borgarbyggðar dags. 23.12.2025 um sérstakt framlag vegna fjölda flóttamanna á Bifröst er lögð fram uppfærð umsókn til sjóðsins.
Framlagt og sveitarstjóra falið að fullvinna og senda til Jöfnunarsjóðs.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
22. Aðalfundur SSV 2026
2603003
Framlagt boð á aðalfund Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem fram fer 25. mars 2026.
Framlagt og fulltrúar Borgarbyggðar á aðalfundinum eru Bjarney L. Bjarnadóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Eðvarð Ó. Traustason, Eva M. Jónudóttir og Brynja Þorsteinsdóttir.
Fylgiskjöl
23. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2026
2602118
Framlagt boð á aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga sem fram fer 20. mars 2026.
Framlagt og byggðarráð felur Sigurði Kristjánssyni fjármálastjóra að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
24. Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
2602005
Framlögð fundargerð fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 993.
Framlagt.
Fylgiskjöl
25. Fjarskiptasamband í Borgarbyggð
2501076
Framlagðar tillögur frá innviðafélögum um grundvöll þess að koma upp fjarskiptabúnaði sem styrkir fjarskiptasamband við Grjótárvatn, í Hítardal, á Mýrum og fyrrum Kolbeinsstaðahreppi sbr. afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 735.
Byggðarráð leggur til að gengið verði til samninga við Mílu á grundvelli tillagna félagsins að teknu tilliti til breytingartillagna sem ræddar voru á fundi og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
26. Reglur um fjárhagsaðstoð 2026
2603040
Í samræmi við afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 734 eru lagðar fram uppfærðar reglur um fjárhagsaðstoð fyrir Borgarbyggð.
Drög að uppfærðum reglum framlögð. Byggðarráð samþykkir þau fyrir sitt leyti og vísar til umræðu í velferðarnefnd.
Samþykkt samhljóða.
27. Gjaldskrár 2026
2510200
Til að bregðast við sérstökum aðstæðum í gatnagerð á einstökum svæðum er lagt til að inn í samþykktir Borgarbyggðar um gatnagerðargjöld verði bætt við nýrri grein sem verði 6. gr samþykktanna.
"Hækkun gatnagerðargjalda.
Sveitarstjórn er heimilt, þar sem sérstakar aðstæður krefjast, að hækka gatnagerðargjöld á afmörkuðum stað eða svæði í allt að 15% pr. fermetra af byggingarkostnaði í vísitöluhúsi eins og hann er á hverjum tíma. Sérstakar aðstæður geta m.a. verið hár gatnagerðarkostnaður á viðkomandi stað/svæði og að gatnagerðargjöld standi ekki undir gatnagerðarkostnaði á viðkomandi stað/svæði.
Ákveði sveitarstjórn að nýta sér þessa heimild, skal hún gera um það sérstaka samþykkt þar sem fram kemur hversu lengi heimild til hækkunar frá 4. gr. þessarar gjaldskrár gildir, hvert sé tilefni hækkunarinnar og aðrar þær málefnalegu ástæður sem búa að baki ákvörðuninni."
Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingum á gjaldskrá gatnagerðargjalda og felur sveitarstjóra að fullvinna og leggja fyrir sveitarstjórn til fullnaðarafgreiðslu.
Samþykkt samhljóða.
28. Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands 2026
2603041
Framlagt fundarboð á aðalfund Sorpurðunar Vesturlands 25. mars næst komandi, ársreikningur og umhverfisskýrsla.
Framlagt.
Fylgiskjöl
29. Melabraut 2b - Umsókn um lóð
2602286
Framlögð umsókn um lóðina Melabraut 2b á Hvanneyri. Málsaðili sækur um með sömu fyrirvörum en einnig að ekki verði innheimt gatnagerðargjöld fyrr en búið er að malbika götuna "því hún er með öllu ófær í dag."
Byggðarráð fellst ekki á þá fyrirvara sem gerðir eru í umsókn umsækjanda. Byggðarráð er hins vegar reiðubúið að úthluta lóðinni til hans falli hann frá þeim.
Samþykkt samhljóða.
30. Aðalskipulag - Endurskoðun - Vinnslutími
2301075
Skipulagsstofnun hefur lokið yfirferð á endurskoðun Aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037 og veitt skipulaginu staðfestingu.
Byggðarráð fagnar þeim stóra áfanga að Aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 hefur tekið gildi.