Umhverfis- og landbúnaðarnefnd
71. fundur
3. mars 2026 kl. 08:30 - 10:00
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Sigrún Ólafsdóttir - formaður
Þórður Brynjarsson - varaformaður
Þorsteinn Eyþórsson - aðalmaður
Kristján Ágúst Magnússon - aðalmaður
Thelma Dögg Harðardóttir - aðalmaður
Kristján Rafn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Logi Sigurðsson - umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Logi Sigurðsson - Umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1. Hreinsunarátök 2026
2602275
Hreinsunarátak í þéttbýli vorið 2026.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til að gámar fyrir gróðurúrgang og timbur verða aðgengilegir daganna 22.-28. apríl nk. á eftirfarandi stöðum:
Bifröst
Varmaland
Hvanneyri - BÚT-hús
Kleppjárnsreykir - gryfjan við Litla-Berg
Minnt er á ákvæði byggingarreglugerðar:
Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götur, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamani svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.
2. Umsóknir í styrkvegasjóð 2026
2602274
Rætt um tillögur að vegum sem á að sækja um í styrkvegasjóð til Vegagerðarinnar vegna 2026.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til drög að umsókn til sjóðsins. Nefndin harmar að upphæðir sem fengist hafa úr sjóðnum lækki með hverju árinu.
3. Snjómokstur í Borgarnesi.
2602276
Núverandi samningur um snjómokstur í Borgarnesi við verktaka rennur út 1. maí.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að vinna útboðsgögnin í samræmi við umræður á fundinum og leggja síðan drög fyrir nefndina.
4. Hönnun á opnum svæðum og leikvöllum í Borgarnesi
2510198
Lagt fram til kynningar hönnun á leiksvæði við Kveldúlfsgötu og Þórðargötu.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:00