Fundargerð
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
256. fundur
3. mars 2026 kl. 13:00 - 14:00
á skrifstofu byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
Starfsmenn
Dagskrá
1. Kirkjuból - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir tveimur gestahúsum á einni hæð. Mhl-22 og mhl-23. Stærð 33.5m2. Byggt er úr timbri á steyptar undirstöður.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Ívar Hauksson
Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
2. Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Hlíðabyggð 14
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir til að reisa 36 m² frístundahús, mhl-01.
Byggt er úr timbri (Bjálkahús) á steyptar undirstöður.
Vatnsveita er á svæðinu og verður sett upp samþykkt hreinsistöð fyrir fráveitu.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Guðni Sigurbjörn Sigurðsson.
Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
3. Fannholt - Umsókn um stöðuleyfi
Erindi: Sótt er um stöðuleyfi fyrir 40 ft gámi. Gámurinn er staðsettur á lóðinni Fannholt (L-235601) samkv. innsendri afstöðumynd.
Fyrirhuguð notkun: Geymsla á verkfærum.
4. Heyholt 40 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir bílskúr á lóðinni Heyholt 40. Mhl-02. Stærð:48m2. Byggt er úr timbri á steyptar undirstöður.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Kristinn Ragnarsson.
Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
5. Kolflöt 7 - Umsókn um stöðuleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir tjaldhýsi sem verður staðsett á lóðinni Kolflöt 7. Stærð 15m2.
6. Fjóluklettur - umsókn um stöðuleyfi
Erindi: Sótt er um stöðuleyfi fyrir vinnuskúr sem verður staðsettur við Fjóluklett meðan á gatnaframkvæmdum stendur.
Fyrirhuguð notkun: Kaffistofa fyrir starfsmenn vegna gatnagerðar í Bjargslandi (Fjóluklettur, Birkiklettur).
7. Vallarás 14a - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir byggingu einnar hæðar geymsluhúss með þremur geymslubilum. Húsið er byggt úr límtré og klætt að utan með steinullarsamlokueiningum á steyptar undirstöður. Mhl-01. Stærð 336m2.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Ómar Pétursson
Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
8. Brúartorg 6a - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir spennistöð sem verður staðsett í norð-vestur hluta lóðarinnar Brúartorg 6. Spennistöðin stendur á afmarkaðri lóð og áætluð notkun fyrir rafhleðslustöðvar og þvottastöð.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Sigurbjartur Loftsson
9. Þorgautsstaðir 134669 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi fjós (mhl-05) ,alls 430.5m2.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Guðmundur Hjaltason.
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð. Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð. Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
10. Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Álftá 135989 - Flokkur 1,
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir íbúðarhúsi með innbyggðum bílskúr,alls 172m2
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður:Friðrik Ólafsson
Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
11. Hlíðabyggð 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir aðstöðuhúsi 37.6m2
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður:Þórður Karl Gunnarsson
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð. Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð. Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Leyfisgjöld hafa verið greidd
12. Umsókn um stöðuleyfi
Erindi: Sótt er um stöðuleyfi fyrir Sumarhús í smíðum
Húsið verður staðsett á lóðinni Akraland Móholt L193578
Fylgigögn: Samþykki landeigenda og afstöðumynd