Fundargerð
Fjallskilanefnd Borgarbyggðar
36. fundur
24. febrúar 2026 kl. 13:00 - 14:00
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Starfsmenn
Dagskrá
1. Beiðni eigenda Hæls um að jörðin verði tekinn af afréttarskrá.
Kemur þessi beiðni með vísan í 6.gr. laga um afréttamálefni, fjallskil o.fl. 1986/6 en þar segir: "[Stjórn fjallskilaumdæmis semur skrá yfir alla afrétti er héraðsbúar nota.] 1) Skal þar lýst merkjum þeirra og tekið fram, hvaða jarðir eiga upprekstur á hvern afrétt svo og hverjir séu afréttareigendur, ef um afrétt í einkaeign er að ræða. Skrá þessi gildir sem heimild fyrir upprekstrarrétti hverrar jarðar í [fjallskilaumdæminu], 1) og verður henni ekki breytt, nema eftir tillögum sveitarstjórnar og með samþykki jarðeiganda eða umráðamanns jarðar. Breytingar á afréttum eða réttindum yfir þeim skulu þegar færðar í afréttaskrá. Afréttaskrá skal geymd í skjalasafni sýslunnar."
„Í úrskurði Sýslumannsins á Vesturlandi dags. 16. mars 2017 var á því byggt að ákvæði síðari málsliðar 42.gr. laga nr. 6/1986 yrði ekki skilið á annan veg en þann að það, hvort á jörð væri einhver búrekstur eða ekki, skipti ekki máli varðandi álagningu samkvæmt því. Engu skipti hvort jörð væri nýtt til búreksturs eða ekki eða hvort jörðin nýtti afréttinn að einhverju leyti eða engu. Ég tel ekki tilefni til athugasemda við þessa niðurstöðu enda er hún í samræmi við það álit mitt frá 12. september 2000 í máli nr. 2638/1999 að heimildin til álagningar fjallskilagjalds tæki til þeirra sem ættu upprekstrarrétt á afrétt eða annað sameiginlegt sumarbeitiland sem fjallskilin tækju til. Þá skipti ekki máli hvort þessi réttur er nýttur eða ekki. Í tilvikum þeirra jarðareiganda sem ekki væru með bústofn og gætu því ekki nýtt þennan rétt sinn væri um að ræða geymdan rétt, ef svo mætti að orði komast. Rétturinn yrði virkur þegar stofnað væri til búfjárhalds á jörðinni."
Fjallskilanefnd Borgarbyggðar leggur til við sveitarstjórn að hafna fyrrgreindu erindi um að jörðinn Hæll í Flókadal verði tekin af afréttarskrá og leggur þá ákvörðun fyrir sveitarstjórn til staðfestingar.