Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum
93. fundur
11. febrúar 2026 kl. 15:15 - 16:00
í stóra fundarsal í Ráðhúsi
Nefndarmenn
Ása Erlingsdóttir - aðalmaður
Dagný Pétursdóttir - aðalmaður
Sigurður Friðgeir Friðriksson - aðalmaður
Starfsmenn
Logi Sigurðsson - umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Logi Sigurðsson - Umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1. Vegurinn upp að Einkunnum
2508229
Vegurinn var heflaður síðastliðið haust en vegna mikill rigninga hafa myndast holur og rásir á veginum aftur.
Nefndin leggur til að fenginn verði verktaki til þess að hefla veginn upp að Einkunnum í vor. Er þetta liður í því að tryggja umferðaröryggi.
2. Umferðarmál og bílastæði
2509204
Rætt um að fjölga þurfi bílastæðum í Einkunnum.
Nefndin leggur til að framkvæmdir verði hafnar í vor við fjölgun bílastæða, fá malarefni á auð gróðurlaus og auð svæði við veginn. Byrja á að fjölga bílastæðum við Álatjörn en þannig er hægt að dreifa bílastæðum um svæðið og þannig opna fyrir aðgengi.
3. Stiklur á gönguleiðir
2602057
Rætt um að setja stiklur á gönguleiðir þar sem jarðvegur er blautur.
Nefndin fer í að að útbúa stiklur fyrir vorið og leggja þær síðan yfir blaut svæði á gönguleiðum.
Fundi slitið - kl. 16:00