Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa

70. fundur

16. febrúar 2026 kl. 11:00 - 11:30

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Drífa Gústafsdóttir - skipulagsfulltrúi
Ásgerður H Hafsteinsdóttir - verkefnisstjóri
Pétur Már Sigurðsson - starfsmaður

Starfsmenn

Fundargerð ritaði: Ásgerður Hafsteinsdóttir - Verkefnastjóri


Dagskrá

1. Efra-Nes - umsókn um deiliskipulag - L134858
2602060

Lögð er fram lýsing að deiliskipulagi fyrir Efra-Nes í Borgarbyggð (L134858). Deiliskipulagssvæðið er um 8,6 ha landspilda innan jarðarinnar Efra-Nes sem er um 190,3 ha. Fyrirhugað er að reisa allt að 60 hvelfd gistitjöld ásamt tveimur stærri þjónustutjöldum. Hvert gistitjald verður að hámarki 40 m² og að hámarki 4,5 m frá gólfi. Hvert tjald verður reist á steyptri plötu. Annað þjónustutjaldið verður 300 m² að stærð og 10 m hátt og hitt þjónustutjaldið verður um 700 m² og 15 m hátt. Aðkoma að svæðinu er af Kaðalstaðavegi (tengivegur að þjóðvegi 50) um núverandi aðkomuveg að bæjarhlaði Efra-Ness. Landeigandi hyggst þróa ferðaþjónustu á svæðinu með það að markmiði að auka flóru gistivalmöguleika fyrir ferðamenn í Borgarbyggð. Í endurskoðuðu aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 er svæðið skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði með heimild fyrir allt að 124 gistirúmum. Hönnuður er á lista Skipulagsstofnunar um samþykkta ráðgjafa.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir lýsingu til auglýsingar fyrir Efra-Nes skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010.

Skipulagsfulltrúi óskar eftir að í deiliskipulagi verði sett fram áfangaskipting uppbyggingarinnar.

Fylgiskjöl


2. Borg - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir jarðgrunnskönnun-
2602081

Lögð er fram umsókn frá Cowi Ísland ehf. 10.02.2026 um framkvæmdaleyfi vegna jarðgrunnskönnunar, í landi Borgar á Mýrum, sunnan Snæfellsnesvegar (54). Framkvæmdin felst í að grafnar verða fjórar holur með beltagröfu til þess að fá gott snið af jarðlögum 0,5-4 m niður. Að skrásetningu jarðlaga lokinni verður efninu skilað aftur í holurnar og gengið frá öllu raski. Framkvæmdin er grunnrannsókn fyrir tilraunaborunum eftir heitu vatni á vegum Veitna. Landið er skilgreint opið svæði (OP406) í endurskoðuðu aðalskipulagi Borgarbyggðar.

Heimild landeiganda liggur fyrir.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, telur að ofangreind framkvæmd falli ekki undir framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 miðað við framlögð gögn.

Skipulagsfulltrúi vill þó ítreka að framkvæmdaraðili skuli gæta ýtrustu varúðar með tilliti til staðsetningar framkvæmdarinnar þ.e. nálægðar við Snæfellsnesveg og Borgarvog. Öllu raski skuli haldið í lágmarki og frágangur vera með þeim hætti að ummerki verði lágmörkuð.

Fylgiskjöl


3. Grenihlíð 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2512070

Lögð er inn umsókn um byggingarleyfi fyrir 194,5 m² bílgeymslu á einni hæð með risi (L134952). Húsið er úr timbri. Á neðri hæð er bílgeymsla, geymsla og klósett og í risi er kaffistofa. Húsið er 7 m á hæð. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfið fyrir hagsmunaaðilum í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynnt verði í gegnum skipulagsgátt fyrir eigendum Grenihlíðar 1 og 5.

Fylgiskjöl


Fundi slitið - kl. 11:30