Sveitarstjórn Borgarbyggðar

274. fundur

12. febrúar 2026 kl. 16:00 - 17:14

Í Hjálmakletti


Nefndarmenn

Guðveig Eyglóardóttir - Forseti
Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Eva Margrét Jónudóttir - 1. varaforseti
Eðvar Ólafur Traustason boðaði forföll og Þórður Brynjarsson - varamaður sat fundinn í hans stað
Thelma Dögg Harðardóttir - aðalmaður
Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Sigrún Ólafsdóttir - aðalmaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir - aðalmaður

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Lilja Björg Ágústsdóttir - Sviðsstjóri
Hlöðver Ingi Gunnarsson - sviðsstjóri fræðslusviðs
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu


Dagskrá

1. Skýrsla sveitarstjóra
2102062

Sveitarstjóri flytur skýrslu sveitarstjóra

Sveitarstjóri flytur skýrslu sveitarstjóra



2. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
2601124

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar nr. 732 var samþykkt tillaga um hækkun á rekstraráætlun um 300.000 kr. vegna raflýsingar til Einkunna. Einnig var samþykkt hækkun á framkvæmdaáætlun um 1.200.000 kr. uppsetningar á biðskýli á Hvanneyri.

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar nr. 734 var samþykkt tillaga að viðauka við fjárfestingaráætlun um hækkun fyrir samtals 96 m.kr. vegna GBF á Kleppjárnsreykjum (40 m.kr.), rennibraut við sundlaugina í Borgarnesi (50 m.kr.) og framkvæmdar við Kveldúlfshöfða/Fjóluklett (6 m.kr.) Vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.

Samtals er því um að ræða hækkun á fjárfestingarramma um 97,2 m.kr. og á rekstrarkostnaði um 300 þúsund kr.

Sveitarstjórn samþykkir að til móts við hækkun á fjárfestingarramma verði rammi vegna uppbyggingar í Brákarey lækkaður úr 150 m.kr. í 50 m.kr. eða um samtals 100 m.kr. Nú er hafin vinna í samstarfi við ráðgjafa frá PwC sem vonandi leiðir til samningsgerðar við bæði fjárfesta og lóðarhafa í Brákarey. Í þeirri vinnu er unnið út frá því að ekki falli beinn kostnaður á sveitarfélagið nema tryggt sé endurgjald til sveitarfélagsins. Það er því ástæða til að lækka ramma vegna hreinnar fjárfestingar sveitarfélagsins í Brákarey sem þessu nemur. Hrein áhrif á fjárfestingarramma 2026 eru því samtals til lækkunar um 2,8 m.kr. en áhrif á rekstur til hækkunar um 300 þúsund krónur.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


3. Gjaldskrár 2026
2510200

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 732:"Framlögð tillaga að gjaldskrá fyrir félagsheimili í Borgarbyggð.



Byggðarráð samþykkir að vísa gjaldskrá fyrir félagsheimili í Borgarbyggð til sveitarstjórnar. Gjaldskráin felur í hækkun sem samsvarar 3,2% á milli ára.



Samþykkt samhljóða.





Afgreiðsla frá fundi byggðarráð nr. 734:"Framlögð tillaga að breytingu á gjaldskrá skipulagsfulltrúa en um er að ræða breytingu er snýr að lóðamálum, stofnun eða breytingu á lóðum.



Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingu á gjaldskrá skipulagsfulltrúa. Annars vegar er um að ræða lækkun á umsýslugjaldi og hins vegar hækkun á þinglýsingargjaldi sem kemur til af hækkun gjaldskrár sýslumanns.

Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn."

Sveitartjórn staðfestir gjaldskrá fyrir félagsheimili í Borgarbyggð 2026 með áorðnum breytingum. Um er að ræða hækkun um 3.2% á milli ára.



Samþykkt samhljóða



Sveitarstjórn samþykkir gjaldskrá skipulagsfulltrúa 2026 með áorðnum breytingum. Um er að ræða lækkun á umsýslugjaldi og hækkun á þinglýsingargjaldi.



Samþykkt samhljóða



Fylgiskjöl


4. Erindi til Innviðaráðuneytisins - staðfesting sameiningar
2602078

Lagt fram erindi til Innviðaráðuneytisins vegna sameiningar Borgarbyggðar og Skorrdalshrepps þar sem listuð eru upp helstu verkefni stjórnar til undirbúnings sameiningar sveitarfélaganna.

Sveitarstjórn samþykkir bréf undirbúningsstjórnarinnar og þau verkefni sem þar er listað upp.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


5. Sameiginleg yfirkjörstjórn Borgarbyggðar og Skorradalshrepps fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026
2602076

Lagt fram til kynningar í samræmi við tillögu stjórnar um undirbúning sameiningar Borgarbyggðar og Skorradalshrepps að sveitarstjórnir sveitarfélaganna skipi sameiginlega kjörstjórn vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara 16. maí nk. Stjórnin leggur til að sameiginleg yfirkjörstjórn verði skipuð tveimur fulltrúum frá Borgarbyggð og tveimur til vara og einum fulltrúa frá Skorradalshreppi og einum til vara. Þá er lagt til að skipun undirkjörstjórna og skipting í kjördeildir verði óbreytt í Borgarbyggð en að Skorradalshreppur verði sérstök kjördeild. Kjörstjórn Skorradalshrepps verði undirkjörstjórn í Skorradalskjördeild.

Sveitarstjórn samþykkir tillögu stjórnar til undirbúnings sameiningar Skorradalshrepps og Borgarbyggðar.



Samþykkt samhljóða



6. Kosningar í ráð og nefndir 2022-2026
2205140

Í samræmi við tillögu stjórnar um undirbúning sameiningar Skorradalshrepps og Borgarbyggðar er lagt til að skipuð verði sameiginleg yfirkjörstjórn beggja sveitarfélaga og að kjörstjórn Skorradalshrepps verði

falið hlutverk undirkjörstjórnar í Skorradalskjördeild.

Sveitarstjórn staðfestir tillögu stjórnar um undirbúning sameiningar og skipar Sveinbjörn Eyólfsson og Sóleyju B. Sigurþórsdóttur í sameiginlega yfirkjörstjórn vegna sveitarstjórnarkosninga og varamenn þeirra verði Ólafur Pálsson og Ingibjörg Jónasdóttir.



Samþykkt samhljóða



7. Frumvarp til laga um lagareldi
2601242

Afgreiðsla byggðarráðs frá fundi nr. 733:"Rædd drög að frumvarpi til laga um lagareldi sem verið hafa í samráðsgátt og lögð fram umsögn sveitarfélagsins.



Framlögð eftirfarand umsögn Borgarbyggðar:



Um Borgarbyggð renna margar af bestu laxveiðiám landsins. Veiðihlunnindi er undirstaða verðmætis fjölmargra jarða og nýting þeirra veitir fjölda fólks atvinnu í sveitarfélaginu. Jarðeigendur hafa varið óhemju tíma og fjármunum til uppbyggingar og markaðssetningar veiðihlunninda. Þá hafa upprekstrarfélög og sveitarfélagið sjálft talsverðar tekjur af veiðirétti. Ímynd svæðisins og sjálfsmynd íbúa er nátengd lax- og silungsveiði.



Íbúar víða í Borgarbyggð hafa miklar áhyggjur af uppbyggingu sjókvíeldis við Ísland. Ef illa fer og villtir stofnar bera skaða af fæli það í sér fjárhagslegt áfall fyrir sveitarfélagið og íbúa þess. Tjónið á lífríkinu væri óbætanlegt. Mjög sterk hreyfing er innan sveitarfélagsins sem telur að stöðva eigi með öllu laxeldi í sjó við Ísland.



Markmið frumvarpsins er að uppbygging laxeldis verði sjálfbær og ábyrg og tryggi vernd villtra nytjastofna. Borgarbyggð óttast hins vegar að frumvarpið tryggi ekki nægjanlega að þessum markmiðum verði fylgt eftir í framkvæmd. Borgarbyggð telur brýnt að löggjöf um lagareldi tryggi að fyllstu varúðar sé gætt og henni fylgt eftir með eftirliti, tryggingum og viðurlögum. Þannig er mikilvægt að frumvarpið tryggi að veiðiréttarhöfum og sveitarfélögum yrði bætt að fullu tjón ef áfall í laxeldi leiðir af sér tjón á lífríki laxveiðiáa, að svo miklu leyti sem það er hægt.



Að mati Borgarbyggðar er ástæða að styrkja frumvarpið hvað varðar vernd lífríkis í ám og tryggja að hagsmunir veiðiréttarhafa séu metnir til jafns við aðra hagsmuni.



Borgarbyggð lýsir yfir áhuga á að koma að frekari vinnu við lagasetninguna.



Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða umsögn.

Drög: Sveitarstjórn tekur undir bókun byggðarráðs um drög að frumvarpi til laga um lagareldi.



Samþykkt með 8 atkvæðum (SÓ, GLE, DS, ÞB, BLB, TDH, SG og REJ)

Sat hjá 1: (EMJ)

Fylgiskjöl


8. Kæra til Úrskurðanefndar um upplýsingamál
2601152

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 733: "Framlögð tilkynning frá Úrskurðarnefnd um upplýsingamál um kæru sem borist hefur frá IKAN ehf. vegna synjunar um aðgang að gögnum.



Framlagt og sveitarstjóra falið að svara.



Samþykkt samhljóða."



Afgreiðsla fundar byggðaráðs frá fundi nr. 734:"Framlagt svar Borgarbyggðar til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna kæru sem nefndinni barst frá IKAN ehf. vegna synjunar um aðgang að gögnum.



Framlagt og samþykkt samhljóða."

Lagt fram og sveitarstjóra falið að svara fyrir hönd Borgarbyggðar





Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


9. Stjórnsýslukæra íbúasamtakanna Sólar til framtíðar
2601074

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 733:"Framlögð stjórnsýslukæra sem Innviðaráðuneytinu hefur borist frá samtökunum Sól til framtíðar þar sem kærð er ákvörðun sveitarstjórnar Borgarbyggðar frá 11. desember 2025 um að hafna beiðni kærenda um að fram fari söfnun undirskrifta vegna samþykktar sveitarfélagsins á aðalskipulagi Borgarbyggðar.



Kæra og drög að greinargerð sveitarfélagsins lögð fram. Byggðarráð samþykkir framlagða greinargerð og felur sveitarstjóra að senda til Innviðaráðuneytisins.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir framlagða greinargerð sveitarfélagsins í málinu.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


10. Fundargerðir stjórnar um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
2512169

Lagðar fram fundargerðir frá stjórn um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps frá fundum 1 - 2.

Lagt fram til kynningar



Samþykkt samhljóða



11. Félagslegt leiguhúsnæði
1810002

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 734:"Í samræmi við bókun fundar byggðarráðs nr. 729 eru lögð fram drög að stefnu Borgarbyggðar um félagslegt leiguhúsnæði. Kynntar hugmyndir að næstu skrefum þróunar á félagslegu leiguhúsnæði Borgarbyggðar.



Drög að stefnu Borgarbyggðar um félagslegt leiguhúsnæði styðja það markmið að sveitarfélagið geti boðið leiguhúsnæði fyrir skjólstæðinga sína í samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög. Hún stuðlar að því að tryggja leigutökum húsnæði sem fellur betur að þörfum þeirra. Markmið með stefnunni er:



Að bjóða upp á viðeigandi félagslegt leiguhúsnæði fyrir íbúa sem uppfylla skilyrði laga og reglna sveitarfélagsins.



Að stuðla að félagslegri blöndun, koma í veg fyrir samþjöppun félagslegs húsnæðis og vinna gegn félagslegri einangrun íbúa.



Að nýta fjármuni sveitarfélagsins á hagkvæman hátt.



Að stuðla að því að framboð félagslegs húsnæðis samræmist þörfum íbúa.



Að tryggja fyrirsjáanleika í kostnaði fyrir bæði sveitarfélagið og leigjendur.



Að draga úr langtímaábyrgð sveitarfélagsins á viðhaldi og rekstri húsnæðis, án þess að skerða þjónustu eða aðgengi.



Drög að framkvæmdaramma 2026-2029 gerir ráð fyrir húsnæðisframlagi af hálfu sveitarfélagsins í verkefni að þessum toga.



Stefnan er í samræmi við umræður og samþykktir velferðarnefnd.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir stefnu Borgarbyggðar um félagslegt leiguhúsnæði 2026.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


12. Grunnskóli Borgarfjarðar- Kleppjárnsreykjadeild - framkvæmdir á skólahúsnæði
2104092

Afgreiðsla byggðarráðs Borgabyggðar:"Í samræmi við afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 733 er lögð fram frekari samantekt kostnaðar og drög uppgjöri á verkinu í heild.



Framlögð samantekt Eflu á kostnaði og drög að fullnaðaruppgjöri á verkinu. Það sýnir að útlit er fyrir að heildarkostnaður vegna samningsverks við endurbyggingu hluta af húsnæði Grunnskóla Borgarfjarðar, Kleppjárnsreykjum verði 1.279 m.kr. en það samsvarar um 20% hærri fjárhæð en upphaflegt tilboð að teknu tilliti til verðbóta. Hluti fellur inn á árið 2026 og leggur byggðarráð til við sveitarstjórn að hækka fjárfestingarramma vegna nýbyggingar GBF á Kleppjárnsreykjum um 40 m.kr. og hefur verið gert ráð fyrir þeirri hækkun í viðauka I við fjárhagsáætlun 2026.







Samþykkt samhljóða.







Sigurður Guðmundsson byggðarráðsfulltrúi lagði fram eftirfarandi bókun:



"Nú liggur fyrir að umtalsverður auka kostnaður hefur fallið á byggingu grunnskólans á Kleppjárnsreykjum. Það eru mikil vonbrigði að þetta sé niðurstaðan, verst er þó að upplýsingar um raunstöðu verksins hafa ekki borist byggðaráði yfir verktímanum, sem engan veginn er ásættanlegt fyrir kjörnafulltrúa. Þessi skortur á upplýsingargjöf er alfarið á ábyrgð meirihluta framsóknarmanna í sveitarstjórn Borgarbyggðar. Í ljósi þessari stöðu vakna upp spurningar, meðal annars hvort farið hafi verið fram úr fjárheimildum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins spurðust fyrir um fjárheimildir og stöðu verksins á liðnu hausti og var farið yfir þau mál við gerð viðauka við fjárhagsáætlun í september þar sem fjárþörf vegna byggingar grunnskólans á Kleppjarnsreykjum var skoðuð sérstaklega á milli funda í Byggðaráði. Eftir þá skoðun var ekkert sem benti til annars en að verkið yrði innan áætlana. Niðurstaðan núna sýnir að upplýsingagjöf, til kjörna fulltrúa, um stöðu framkvæmda a vegum sveitarfélagsins er ekki ásættanleg. Við yfirferð á verkfundargerðum nr. 45-48 er ekki fjallað um nein aukaverk þó sér kafli sé í verkfundargerðum þess efnis. Þetta er mjög sérstakt og þarfnast útskýringa.



Í ljósi þessa þá óska ég óska eftir upplýsingum um greiðslustöðu verkefnisins miða við fjárheimildir þ.e. hvort verkefnið hafi á verktímanum verið innan fjárheimilda síðasta árs og að það yfirlit sé með tímalínu sem sýni raun stöðu verksins á hverjum tíma miðað við fjárheimildir. Jafnframt óska ég eftir sundurliðuðu yfirliti yfir aukaverk, þar sem fram koma upplýsingar um umsamda upphæð, endanlega upphæð, ástæðu fyrir aukaverkinu, hvernig og hvenær verkin hafi verið samþykkt. Óskað er eftir að þessi gögn verði lögð fyrir sveitarstjórn á næsta sveitarstjórnarfundi."

Sveitarstjórn staðfestir að hækka skuli fjárfestingarramma vegna nýbyggingar GBF á Kleppjárnsreykjum um 40 m.kr. og hefur verið gert ráð fyrir þeirri hækkun í viðauka I við fjárhagsáætlun 2026.



Samþykkt samhljóða



Sigurður Guðmundsson leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd fulltrúa sjálfstæðiflokks D.-lista: Í uppgjöri vegna byggingu Grunnskólans á Kleppjárnsreykjum kemur í ljós að aukaverk hækkar byggingakostnað um 15% ofan á verksamninginn, eða um 160 milljónir. Það eru ávallt vonbrigði þegar áætlanir ganga ekki eftir. Við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ætlum ekki að fara í einhvern pólitískan hráskinnaleik en viljum hinsvegar læra af reynslunni til að hægt sé að gera betur. Við grófa yfirferð á aukaverkum þá kemur í ljós að um 40% af aukaverkum má rekja til hönnunar eða vöntunar á hönnun, 20% til þess að breytt var um byggingaraðferð þ.e. að frávikstilboði var tekið og 40% ófyrirséð vegna tenginga við gömul hús og fráveitu og fleira. Þarna kemur berlega í ljós hversu mikilvægt er að rýna hönnun og passa uppá að hönnun mannvirkja sé vönduð og lokið áður en til útboðs kemur, jafnframt sýnir þetta að það er vandasamt og þarf að skoðast mjög vel ef það koma frávikstilboð og nauðsynlegt að leggja gott mat á hvort það tilboð sé hagstætt útfrá hönnunarforsendum. Annað atriði sem við erum óánægð með er hvað upplýsingagjöf um kostnað og þróun hans á verktímanum bárust kjörnum fulltrúum seint og illa. Það er óviðunandi því upplýsingar um það koma yfir allan verktíman ef utanumhald er með góðum hætti.





Davíð Sigurðsson leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd meirhluta framsóknarflokks B. lista: Það eru vonbrigði að kostnaður vegna aukaverka við nýbyggingu GBF á Kleppjárnsreykjum skildi verða jafn mikill og raun ber vitni. Eftir nánari skoðun er það ljóst að hjá þessum kostnaði var ekki komist. Ekki hafði verið gert með fullnægjandi hætti ráð fyrir ýmsum hlutum framkvæmdarinnar við hönnun og gerð útboðsgagna. Þegar um ræðir verk af þessari stærðargráðu þar sem verið er að skeyta saman eldri og nýrri byggingu er alltaf drjúgur kostnaður ófyrirséður. Fyrst og fremst eru það vonbrigði að upplýsingar um þennan kostnað skuli ekki berast fyrr en nú, þegar verki er svo gott sem lokið. Ég fyrir hönd framsóknar skorast ekki undan ábyrgð og tek á móti þeirri gagnrýni sem sett hefur verið fram af hálfu fulltrúa sjálfstæðisflokksins, og tek henni alvarlega. Það hefur nú þegar verið farið yfir alla verkferla innanhúss hjá sveitarfélaginu gagnvart verkeftirliti og skerpt á þeim til að tryggja að þetta endurtaki sig ekki. Eftir stendur að risinn er nýr og glæsilegur skóli sem börn og starfsfólk er byrjað að nýta og allir íbúar geta verið stoltir af.





Til máls tóku: SG og DS



13. Krafa vegna verklauna
2512018

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 734:"Lögð fram greinargerð Borgarbyggðar í málinu.



Framlagt og samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir greinargerð Borgarbyggðar í málinu.







Samþykkt samhljóða



14. Vatnsrennibraut við sundlaug í Borgarnesi
2511072

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 734:"Lögð fram opnunarskýrsla verðfyrirspurnar í endurnýjun vatnsrennibrautar í sundlauginni í Borgarnesi. Til fundarins kemur Hlynur Ólafsson verkefnastjóri á skipulags- og umhverfissviði.



Lögð fram með fyrirvara um reikni- og/eða innsláttarvillur. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fyrir sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða."

Samþykkt er að taka tilboði Á. Óskarsson sem var lægstbjóðandi í útboði verksins sbr. opununarskýrslu dags.03.02.2026. Sveitarstjóra falið að skrifa undir samning þegar nauðsynleg samningsgögn, verktrygging og verkáætlun, liggja fyrir.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


15. Bjargsland og Kveldúlfshöfði - Gatnagerð og kostnaður
2203079

Afgreiðsla fundar byggðarráðs frá fundi nr.734:" Yfirferð á gatnaframkvæmd við Fjóluklett. Framlagðar aukaverkabeiðnir vegna vegslóða til uppbyggingar á mön og einnig lagfæringar á vegslóða samhliða gatnagerð til uppbyggingar á 2.áfanga framkvæmdarinnar. Samtals kostnaður við aukaverkabeiðnir um 5,2 m.kr.



Byggðarráð samþykkir framlagðar aukaverkabeiðnir. Stór hluti kostnaðar við þessi aukaverk mun nýtast við gerð göngustígar sem áformaður er í deiliskipulagi svæðisins.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagðar aukaverkbeiðnir að fjárhæð 5,2 m. kr. vegna gatnaframkvæmdar við Fjóluklett. Gert hefur verið ráð fyrir kostnaðarauka í viðauka I.



Samþykkt samhljóða



16. Umsókn um breytingu á deiliskipulagi
2509327

Afgreiðsla 83. fundar skipulags- og byggingarnefndar:

"Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða deiliskipulagsbreytingu skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010.

Samþykkt samhljóða"

Sveitarstjórn samþykkir framlagða deiliskipulagsbreytingu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


17. Br. dsk Flatahverfi - Hrafnaflöt
2602030

Afgreiðsla 83. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010. Breytingin á við um svo óveruleg frávik að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og 3. mgr. 44. gr. sömu laga.

Samþykkt samhljóða"

Sveitarstjórn samþykkir framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010. Breytingin á við um svo óveruleg frávik að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og 3. mgr. 44. gr. sömu laga.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


18. Húsafell 3 - ums?kn um deiliskipulag - L134495
2601020

Afgreiðsla 83. fundar skipulags- og byggingarnefndar:

"Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna óverulegra breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga 123/2010 fyrir eigendum Stórarjóðurs 5, 8 og 9.

Samþykkt samhljóða"

Sveitarstjórn samþykkir að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga 123/2010 fyrir eigendum Stórarjóðurs 5,8 og 9.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


19. Umsókn um deiliskipulag
2601077

Afgreiðsla 83. fundar skipulags- og byggingarnefndar:

"Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna óverulegra breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga 123/2010 fyrir eigendum Ásenda 2, 3, 4, 8, 9 og 10.

Samþykkt samhljóða"

Sveitarstjórn samþykkir að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga 123/2010 fyrir eigendum Ásenda 2, 3, 4, 8, 9 og 10.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


20. Samtal um stöðu og stefnu Háskólans á Bifröst
2307084

Háskólinn á Bifröst er hluti af öflugu háskólasamfélagi í Borgarbyggð. Hann á rætur á Bifröst og saga hans er liðlega hundráð ára gömul. Starfsemi og umsvif skólans skipta sveitarfélagið og allt samfélagið í Borgarbyggð miklu máli.

Háskólinn á Bifröst hefur verið burðarás í að mennta fólk til sérfræði- og stjórnunarstarfa í íslensku atvinnulífi. Skólinn hefur verið brautryðjandi í fjarnámi og lagt mikið af mörkum til að styrkja byggðafestu og byggðaþróun á landinu öllu. Starfsemi skólans hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum, nemendum fjölgað hratt og fjarnám tekið við af staðnámi. Sveitarstjórn Borgarbyggðar styður heils hugar uppbyggingu og þróun Háskólans á Bifröst og fagnar þeim góða árangri sem náðst hefur. Háskólinn á Bifröst starfrækir nú stærstu viðskiptadeild landsins og stundar öflugar rannsóknir á sviði fjármála, byggðamála, sveitarstjórnamála, mannauðsfræða, öryggismála og fjölda annarra greina. Það hefur verið þungbært að verða vitni að þeim deilum geysað hafa innan skólans. Fráfarandi rektor á þakkir skyldar fyrir metnaðarfulla uppbyggingu á háskólans og gott samstarf við sveitarfélagið á miklum umrótatímum. Það er von sveitarstjórnar Borgarbyggðar nú hafi skapast ró um starfsemi skólans.

Rætur skólans liggja djúpt í Borgarfirði. Skólinn rekur starfsstöð á Hvanneyri og staðlotur fara fram í Borgarbyggð. Það undirstrikar sterk tengsl að sveitarfélagið hefur tilnefnt fulltrúa í háskólastjórn og fulltrúaráð skólans. Sveitarstjórn Borgarbyggðar hvetur stjórnvöld háskólamála eindregið til að efla menntun, kennslu, rannsóknir og nýsköpun á háskólastigi í Borgarbyggð. Mikil tækifæri felast í áframhaldandi uppbyggingu háskólasamfélags á Hvanneyri t.d. með samstarfi háskóla og fleiri stofnana.

Loks er það eindregin von sveitarstjórnar Borgarbyggðar að þorpið á Bifröst, sem að mestu er í eigu Háskólans á Bifröst, fái sem fyrst nýtt hlutverk. Sveitarstjórn ítrekar að sveitarfélagið hefur mikinn vilja til að eiga samstarf við stjórnendur skólans um þróun þorpsins til framtíðar. Núverandi nýting húsnæðis í þorpinu er hvorki félagslega né fjárhagslega sjálfbær. Sýn sveitarfélagsins er á Bifröst festi rætur, á nýjan leik,starfsemi sem tryggir uppbyggingu búsetu og atvinnulífs og endurbætur húsnæðis, sveitarfélaginu og samfélaginu í Borgarbyggð til heilla.



Samþykkt samhljóða



21. Húsnæðisáætlun 2026
2510053

Húsnæðisáætlun Borgarbyggðar 2026 lögð fram til síðari umræðu.

Sveitarstjórn staðfestir húsnæðisáætlun Borgarbyggðar og felur sveitarstjóra að birta hana.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


22. Samgönguáætlun 2026-2040
2512053

Lögð fram samgönguáætlun 2026-2040.

Sveitarstjórn samþykkir framlagða umsögn um samgönguáætlun.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


23. Byggðarráð Borgarbyggðar - 732
2601018F

Fundargerð framlögð

23.1
2601124
Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 732

Tillagan felur í sér hækkun á rekstrarkostnaði vegna raflýsingar i átt til Einkunna að fjárhæð kr. 300.000 kr. Þá felur tillagan í sér hækkun á framkvæmda- og fjárfestingaráætlun um 1.200.000 vegna uppsetningar á biðskýli á Hvanneyri. Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.

23.2
2510203
Endurheimt Hítarár - erindi til Borgarbyggðar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 732

Minnisblaðið fjallar um réttarstöðu landeigenda í framhaldi af breytingum á farvegi Hítarár sem orsakaðist af skriðu sem féll úr Fagraskógarfjalli 2018. Borgarbyggð er eigandi lands við Hítará, sem varð fyrir áhrifum skriðunnar, og á þeim grunni varð Borgarbyggð við beiðni tveggja annarra landeigenda um þátttöku í gerð minnisblaðsins. Því hefur einnig verið komið til stjórnar Veiðifélags Hítarár.Byggðarráð telur mikilvægt að landeigendur við Hítará komi saman til að ræða þau sjónarmið sem uppi eru og lúta að framtíð lífríkis Hítarár.Samþykkt samhljóða.

23.3
2601123
Samstarfssamningar um hátíðir 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 732

Framlagðar þrjár umsóknir um samstarfssamning vegna hátíða 2026. Allar þrjár uppfylla reglur um samstarfssamninga vegna hátíða og felur byggðarráð sveitarstjóra að gera samning við umsækjendur vegna eftirfarandi hátíða og leggja fyrir byggðarráð: Reykholtshátíð, Brákarhátíð og Hvanneyrardagar.Samþykkt samhljóða.

23.4
2405162
Samskipti við Veitur vegna vatnsveitu á Varmalandi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 732

Í samræmi við afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 731 er hafin vinna við að leggja mat á endurnýjunarþörf dreifikerfis Vatnsveitu Varmalands og möguleika á frekari vatnsöflun, ásamt því sem rekstrarforsendur verða skoðaðar. Minnisblað Veitna er hluti af þeirri vinnu. Þá hefur verið fundað með Veitum, Heilbrigðiseftirliti og Slökkviliði en markmið aðila er að tryggja gæði og öryggi vatns á Varmalandsveitu. Hjá Veitum hefur komið fram að búið er að undirrita samning um leyfi til rannsókna við Hvassafell í Norðurárdal og stendur til að hefjast handa við tilraunaboranir í vor. Þá verður komið fyrir tilraunabúnaði við síur á vatni úr Grábrókarhrauni og byrjað að endurnýja lagnir.Byggðarráð fagnar að Veitur hafi tekið mikilvæg skref til að tryggja framboð og gæði á fersku vatni í vaxandi sveitarfélagi. Byggðarráð leggur áfram til að hafa í forgangi að skoða ný tækifæri til vatnsöflunar nærri veitukerfi Vatnsveitu Varmalands.Samþykkt samhljóða.

23.5
2004149
Egilsgata 11 - lóðamál
Byggðarráð Borgarbyggðar - 732

Sveitarstjóra falið að vinna áfram í samræmi við umræðu á fundi.Samþykkt samhljóða.

23.6
2510200
Gjaldskrár 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 732

Byggðarráð samþykkir að vísa gjaldskrá fyrir félagsheimili í Borgarbyggð til sveitarstjórnar. Gjaldskráin felur í hækkun sem samsvarar 3,2% á milli ára.Samþykkt samhljóða.

23.7
2601114
Úttekt HMS á Slökkviliði Borgarbyggðar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 732

Framlagt og sveitarstjóra falið að rýna efni úttektarinnar, vinna að úrbótum þar sem tilefni er til og koma athugsemdum á framfæri í samræmi við umræðu á fundi.Samþykkt samhljóða.Heiðar Örn Jónsson sat fundinn framan af þessum dagskrárlið en fór af fundi nokkru áður en umræðu var lokið.

23.8
2504239
Fundargerðir Faxaflóahafna sf - 2025.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 732

Fundargerð framlögð.

23.9
2509104
Þjónustukönnun sveitarfélaga 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 732

Lagt fram.



24. Byggðarráð Borgarbyggðar - 733
2601025F

Fundargerð framlögð

24.1
2601124
Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 733

Sveitarstjóra falið að vinna áfram að viðauka I í samræmi við umræðu á fundi og leggja fyrir byggðarráð. Sigurður Kristjánsson fjármálastjóri kemur til fundarins.Samþykkt samhljóða.

24.2
2601170
Umsagnarmál frá Alþingi 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 733

Framlagt.

24.3
2305024
Umræða um fjármagnsskipan Faxaflóahafna
Byggðarráð Borgarbyggðar - 733

Byggðarráð telur afar mikilvægt að leiða til lykta vinnu við endurskoðun á fjármagnsskipan Faxaflóahafna. Sem fyrr leggur byggðarráð áherslu á að niðurstaða þeirrar vinnu leiði til þess að íbúar Borgarbyggðar njóti þess að sveitarfélagið á talsverðan eignarhlut í þessu stóra og öfluga félagi og Borgarbyggð er innan starfssvæðis þess.Samþykkt samhljóða.

24.4
2601242
Frumvarp til laga um lagareldi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 733

Framlögð eftirfarand umsögn Borgarbyggðar: Um Borgarbyggð renna margar af bestu laxveiðiám landsins. Veiðihlunnindi er undirstaða verðmætis fjölmargra jarða og nýting þeirra veitir fjölda fólks atvinnu í sveitarfélaginu. Jarðeigendur hafa varið óhemju tíma og fjármunum til uppbyggingar og markaðssetningar veiðihlunninda. Þá hafa upprekstrarfélög og sveitarfélagið sjálft talsverðar tekjur af veiðirétti. Ímynd svæðisins og sjálfsmynd íbúa er nátengd lax- og silungsveiði.Íbúar víða í Borgarbyggð hafa miklar áhyggjur af uppbyggingu sjókvíeldis við Ísland. Ef illa fer og villtir stofnar bera skaða af fæli það í sér fjárhagslegt áfall fyrir sveitarfélagið og íbúa þess. Tjónið á lífríkinu væri óbætanlegt. Mjög sterk hreyfing er innan sveitarfélagsins sem telur að stöðva eigi með öllu laxeldi í sjó við Ísland.Markmið frumvarpsins er að uppbygging laxeldis verði sjálfbær og ábyrg og tryggi vernd villtra nytjastofna. Borgarbyggð óttast hins vegar að frumvarpið tryggi ekki nægjanlega að þessum markmiðum verði fylgt eftir í framkvæmd. Borgarbyggð telur brýnt að löggjöf um lagareldi tryggi að fyllstu varúðar sé gætt og henni fylgt eftir með eftirliti, tryggingum og viðurlögum. Þannig er mikilvægt að frumvarpið tryggi að veiðiréttarhöfum og sveitarfélögum yrði bætt að fullu tjón ef áfall í laxeldi leiðir af sér tjón á lífríki laxveiðiáa, að svo miklu leyti sem það er hægt.Að mati Borgarbyggðar er ástæða að styrkja frumvarpið hvað varðar vernd lífríkis í ám og tryggja að hagsmunir veiðiréttarhafa séu metnir til jafns við aðra hagsmuni.Borgarbyggð lýsir yfir áhuga á að koma að frekari vinnu við lagasetninguna.Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða umsögn.

24.5
2104092
Grunnskóli Borgarfjarðar- Kleppjárnsreykjadeild - framkvæmdir á skólahúsnæði
Byggðarráð Borgarbyggðar - 733

Framkvæmdum við yfirstandandi áfanga við endurbyggingu Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum er nær lokið og búið að taka nýbyggingu í notkun. Verið er magntaka verkið endanlega og ganga frá útistandandi kostnaðarliðum. Að viðbættum verðbótum var fjárhæð tilboðs í verkið tæplega 1.070 m.kr. en ljóst er að kostnaður við verkið verður eitthvað hærri en verðbætt tilboð. Hluti kostnaðar tengist fráveitumálum á Kleppjárnsreykjum sem voru ótengdir verkinu og gerður hafði verið viðauki fyrir. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fram tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun á næsta fundi byggðarráðs.Samþykkt samhljóða.

24.6
2311091
Vallarás - hönnun og framkvæmdir
Byggðarráð Borgarbyggðar - 733

Farið yfir vinnu við framkvæmdir við Vallarás og framlagt minnisblað um aukaverk. Byggðarráð samþykkir að um nauðsynlegar framkvæmdir er að ræða við ræsi og hjáleið. Ekki er tilefni til að gera viðauka vegna ársins 2025 en sveitarstjóra falið að leggja mat á hvort gera þurfi viðauka vegna verksins í heild og leggja fyrir byggðarráð.Samþykkt samhljóða.

24.7
2601241
Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 733

Farið yfir áform um lántöku á árinu 2026. Fjárfestingaráætlun ársins 2026 gerir ráð fyrir 1.950 m.kr. lántöku en búið er að óska eftir lánsheimild hjá Lánasjóði sveitarfélaga í til samræmis við það.Sigurður Kristjánsson fer af fundi.

24.8
2601152
Kæra til Úrskurðanefndar um upplýsingamál
Byggðarráð Borgarbyggðar - 733

Framlagt og sveitarstjóra falið að svara.Samþykkt samhljóða.

24.9
2601074
Stjórnsýslukæra íbúasamtakanna Sólar til framtíðar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 733

Kæra og drög að greinargerð sveitarfélagsins lögð fram. Byggðarráð samþykkir framlagða greinargerð og felur sveitarstjóra að senda til Innviðaráðuneytisins.Samþykkt samhljóða.

24.10
2512169
Fundargerðir stjórnar um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
Byggðarráð Borgarbyggðar - 733

Fundargerðir framlagðar.



25. Byggðarráð Borgarbyggðar - 734
2602001F

Fundargerð framlögð

25.1
2601124
Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 734

Lögð fram tillaga að viðauka I við fjárfestingaráætlun 2026. Samtals felur hann í sér hækkun að fjárhæð 96 m.kr. vegna GBF á Kleppjárnsreykjum (40 m.kr.), rennibraut við sundlaugina í Borgarnesi (50 m.kr.) og framkvæmdar við Kveldúlfshöfða/Fjóluklett (6 m.kr.) Vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.

25.2
2601170
Umsagnarmál frá Alþingi 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 734

Framlagt.

25.3
2601170
Umsagnarmál frá Alþingi 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 734

Framlagt.

25.4
2601170
Umsagnarmál frá Alþingi 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 734

Framlagt.

25.5
2602005
Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 734

Framlagt.

25.6
2511072
Vatnsrennibraut við sundlaug í Borgarnesi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 734

Lögð fram með fyrirvara um reikni- og/eða innsláttarvillur. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fyrir sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.

25.7
2203079
Bjargsland og Kveldúlfshöfði - Gatnagerð og kostnaður
Byggðarráð Borgarbyggðar - 734

Byggðarráð samþykkir framlagðar aukaverkabeiðnir. Stór hluti kostnaðar við þessi aukaverk mun nýtast við gerð göngustígar sem áformaður er í deiliskipulagi svæðisins.Samþykkt samhljóða.

25.8
1401005
Reglur um fjárhagsaðstoð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 734

Byggðarráð samþykkir að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Borgarbyggðar verði lækkuð í kr. 200.000 í einu skrefi og taki gildi m.v. útgreiðslu fjárhagsaðstoðar fyrir maí 2026. Ekki er lagt til að breyting verði á kvörðum sem notaðir eru til útreiknings.Sveitarstjóra falið að uppfæra reglur Borgarbyggðar um fjárhagsaðstoð til samræmis og leggja fyrir sveitarstjórn. Afgreiðsla þessi er í samræmi við afgreiðslu fundar velferðarnefndar nr. 168.Samþykkt samhljóða.

25.9
2510200
Gjaldskrár 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 734

Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingu á gjaldskrá skipulagsfulltrúa. Annars vegar er um að ræða lækkun á umsýslugjaldi og hins vegar hækkun á þinglýsingargjaldi sem kemur til af hækkun gjaldskrár sýslumanns. Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.

25.10
1810002
Félagslegt leiguhúsnæði
Byggðarráð Borgarbyggðar - 734

Drög að stefnu Borgarbyggðar um félagslegt leiguhúsnæði styðja það markmið að sveitarfélagið geti boðið leiguhúsnæði fyrir skjólstæðinga sína í samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög. Hún stuðlar að því að tryggja leigutökum húsnæði sem fellur betur að þörfum þeirra. Markmið með stefnunni er:Að bjóða upp á viðeigandi félagslegt leiguhúsnæði fyrir íbúa sem uppfylla skilyrði laga og reglna sveitarfélagsins.Að stuðla að félagslegri blöndun, koma í veg fyrir samþjöppun félagslegs húsnæðis og vinna gegn félagslegri einangrun íbúa.Að nýta fjármuni sveitarfélagsins á hagkvæman hátt.Að stuðla að því að framboð félagslegs húsnæðis samræmist þörfum íbúa.Að tryggja fyrirsjáanleika í kostnaði fyrir bæði sveitarfélagið og leigjendur.Að draga úr langtímaábyrgð sveitarfélagsins á viðhaldi og rekstri húsnæðis, án þess að skerða þjónustu eða aðgengi.Drög að framkvæmdaramma 2026-2029 gerir ráð fyrir húsnæðisframlagi af hálfu sveitarfélagsins í verkefni að þessum toga.Stefnan er í samræmi við umræður og samþykktir velferðarnefnd.Samþykkt samhljóða.

25.11
2601152
Kæra til Úrskurðanefndar um upplýsingamál
Byggðarráð Borgarbyggðar - 734

Framlagt og samþykkt samhljóða.

25.12
2601254
Styrktarsjóður EBÍ-umsóknarfrestur til febrúarloka 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 734

Framlagt og leggur byggðarráð áherslu á að sótt verði um í sjóðinn t.d. vegna umhverfis- og upplýsingamála.Samþykkt samhljóða.

25.13
2104092
Grunnskóli Borgarfjarðar- Kleppjárnsreykjadeild - framkvæmdir á skólahúsnæði
Byggðarráð Borgarbyggðar - 734

Framlögð samantekt Eflu á kostnaði og drög að fullnaðaruppgjöri á verkinu. Það sýnir að útlit er fyrir að heildarkostnaður vegna samningsverks við endurbyggingu hluta af húsnæði Grunnskóla Borgarfjarðar, Kleppjárnsreykjum verði 1.279 m.kr. en það samsvarar um 20% hærri fjárhæð en upphaflegt tilboð að teknu tilliti til verðbóta. Hluti fellur inn á árið 2026 og leggur byggðarráð til við sveitarstjórn að hækka fjárfestingarramma vegna nýbyggingar GBF á Kleppjárnsreykjum um 40 m.kr. og hefur verið gert ráð fyrir þeirri hækkun í viðauka I við fjárhagsáætlun 2026.Samþykkt samhljóða.Sigurður Guðmundsson byggðarráðsfulltrúi lagði fram eftirfarandi bókun: "Nú liggur fyrir að umtalsverður auka kostnaður hefur fallið á byggingu grunnskólans á Kleppjárnsreykjum. Það eru mikil vonbrigði að þetta sé niðurstaðan, verst er þó að upplýsingar um raunstöðu verksins hafa ekki borist byggðaráði yfir verktímanum, sem engan veginn er ásættanlegt fyrir kjörnafulltrúa. Þessi skortur á upplýsingargjöf er alfarið á ábyrgð meirihluta framsóknarmanna í sveitarstjórn Borgarbyggðar. Í ljósi þessari stöðu vakna upp spurningar, meðal annars hvort farið hafi verið fram úr fjárheimildum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins spurðust fyrir um fjárheimildir og stöðu verksins á liðnu hausti og var farið yfir þau mál við gerð viðauka við fjárhagsáætlun í september þar sem fjárþörf vegna byggingar grunnskólans á Kleppjarnsreykjum var skoðuð sérstaklega á milli funda í Byggðaráði. Eftir þá skoðun var ekkert sem benti til annars en að verkið yrði innan áætlana. Niðurstaðan núna sýnir að upplýsingagjöf, til kjörna fulltrúa, um stöðu framkvæmda a vegum sveitarfélagsins er ekki ásættanleg. Við yfirferð á verkfundargerðum nr. 45-48 er ekki fjallað um nein aukaverk þó sér kafli sé í verkfundargerðum þess efnis. Þetta er mjög sérstakt og þarfnast útskýringa.Í ljósi þessa þá óska ég óska eftir upplýsingum um greiðslustöðu verkefnisins miða við fjárheimildir þ.e. hvort verkefnið hafi á verktímanum verið innan fjárheimilda síðasta árs og að það yfirlit sé með tímalínu sem sýni raun stöðu verksins á hverjum tíma miðað við fjárheimildir. Jafnframt óska ég eftir sundurliðuðu yfirliti yfir aukaverk, þar sem fram koma upplýsingar um umsamda upphæð, endanlega upphæð, ástæðu fyrir aukaverkinu, hvernig og hvenær verkin hafi verið samþykkt. Óskað er eftir að þessi gögn verði lögð fyrir sveitarstjórn á næsta sveitarstjórnarfundi."

25.14
2602023
Erindi frá Brákarbraut 19 vegna Brákareyjar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 734

Framlagt og sveitarstjóra falið að svara bréfinu.Samþykkt samhljóða.

25.15
2512018
Krafa vegna verklauna
Byggðarráð Borgarbyggðar - 734

Framlagt og samþykkt samhljóða.Lilja Björg Ágústsdóttir fór af fundi.



26. Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 83
2601031F

Fundagerð framlögð

26.1
2509327
Umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 83

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða deiliskipulagsbreytingu skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010.Samþykkt samhljóða

26.2
2602030
Br. dsk Flatahverfi - Hrafnaflöt
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 83

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010. Breytingin á við um svo óveruleg frávik að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og 3. mgr. 44. gr. sömu laga.Samþykkt samhljóða

26.3
2601020
Húsafell 3 - ums?kn um deiliskipulag - L134495
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 83

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna óverulegra breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga 123/2010 fyrir eigendum Stórarjóðurs 5, 8 og 9.Samþykkt samhljóða

26.4
2601077
Umsókn um deiliskipulag
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 83

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna óverulegra breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga 123/2010 fyrir eigendum Ásenda 2, 3, 4, 8, 9 og 10.Samþykkt samhljóða

26.5
2601075
selás 11 - umsókn um deiliskipulag - L177900
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 83

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar að gerð verði breyting á deiliskipulagi Seláss í samræmi við framlögð gögn.Samþykkt samhljóða

26.6
2601181
Fyrirspurn um skipulagsmál
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 83

Skipulags- og byggingarnefnd sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að sett verði niður 49m² gestahús á lóð Veiðifélags Flókadalsár að undangengnu samþykki landeiganda. Nefndin fer fram á að gert verði deiliskipulag fyrir lóðina ef frekari uppbygging er áformuð.Samþykkt samhljóða

26.7
2601289
Snæfellsnesvegur (54) - umsókn um framkvæmdaleyfi
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 83

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir framkvæmdaleyfi fyrir endurbyggingu vegar á 6 km kafla milli Hraunsmúla og Brúarhrauns með vísan til framlagðra gagna þegar undirritað samþykki landeigenda liggur fyrir. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.Samþykkt samhljóða

26.8
2601017F
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 69
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 83

26.9
2602005F
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 255
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 83



27. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 85
2602004F

Fundargerð framlögð





Til máls tóku SG um lið 2

SÓ um lið 2

27.1
2512186
Bjarnhólar - framtíðarskipulag
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 85

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að hefja vinnu við greiningu á þörfum við nýja sorpmóttökustöð á Bjarnhólum. Í framhaldinu væri farið í endurskoðun á deiliskipulagi svæðisins í samvinnu við skipulagsfulltrúa.

27.2
2602013
Rúlluplast 2026
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 85

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd ræðir lausnir málsins og umhverfisfulltrúa falið að vinna málið áfram.

27.3
2602028
Kynningarmál - sorpþjónusta
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 85

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að vinna að kynningarefni fyrir málaflokkinn.



28. Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 249
2601005F

Fundargerð framlögð

28.1
2601055
Fjórblómið - mönnun grunnskóla
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 249

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnir samstarfsverkefni fjögura sveitarfélaga sem hafa verið að skoða að þróa með sér samrýnt mönnunarlíkan fyrir grunnskóla. Það er mikill hagur af því að geta unnið líkan fyrir grunnskóla í samstarfi við sveitarfélög sem eru með álíka skólastærðir og skólagerðir. Samstarfið stendur yfir frá janúar 2026 til byrjun apríl 2026 og ef það gengur vel eru væntingar um að samstarfið haldi áfram næstu árin.

28.2
2509087
Útboð á skóla- og tómstundaakstri fyrir skólaárið 2026-2027
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 249

Farið yfir tillögur að breytingum á reglum um skóla- og tómstundaakstur. Undirbúningsvinna fyrir útboð á skólaakstri gengur vel og sviðsstjóri fjölskyldusviðs heldur áfram að upplýsa nefndina um stöðu mála.

28.3
2510108
Samþætting frístundar og íþróttastarfs
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 249

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerir að tillögu eftirfarandi aðila í stýrihóp verkefnisins:Grunnskólinn í Borgarnesi ? Kolbrún Gunnarsdóttir Grunnskóli Borgarfjarðar ? Sólrún Halla Bjarnadóttir Skallagrímur ? Birgitta Rán Ásgeirsdóttir Reykdælir ? Kristrún Snorradóttir Frístund ? Hugrún Hulda Guðjónsdóttir Borgarbyggð ? Sonja Lind Eyglóardóttir Samþykkt samhljóða.

28.4
2511136
Húsnæði frístundar á Hvanneyri.
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 249

Sviðsstjóra falið að vinna hugmyndina áfram og fullmóta hugmyndina samkvæmt umræðum í nefndinni. Málinu vísað til Byggðarráðs til afgreiðslu.Samþykkt samhljóða.

28.5
2601047
Brúum umönnunarbilið skýrsla og tillögur aðgerðahóps
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 249

Skýrla lögð fram til kynningar.

28.6
2601050
Reglur um greiðslur vegna dvalar barna hjá dagforeldrum
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 249

Borgarbyggð hefur ekki haft starfandi dagforeldra í næstum 10 ár. Skýrist það að því að sveitarfélagið hefur geta boðið foreldrum upp á leikskólavist við 12.mánaðar aldur. Því leggur fræðslunefnd til að þessar verklagsreglur verði feldar úr gildi.Samþykkt samhljóða.

28.7
2601041
Opnun á nýju húsnæði Grunnskóla Borgjarfjarðar Kleppjárnsreykjadeild
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 249

Helga Jensína Svavarsdóttir skólastjóri Grunnskóla Borgarfjarðar kynnir fræðslunefnd fyrir nýju húsnæði skólans á Kleppjárnsrekjum. Fræðslunefnd óskar Grunnskóla Borgrfjarðar til hamingju með glæsilegt húsnæði sem skólinn er kominn með á Kleppjárnsreykjum. Fræðslunefnd vill sérstaklega þakka nemendum, starfsfólki og stjórnendum skólans fyrir lausnamiðað hugarfar og dugnað á meðan framkvæmdum hefur staðið. Það er mikil ánægjuefni að skólinn sé kominn með nýtt húsnæði sem á eftir að vera stolt sveitarfélagins.



29. Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 250
2601027F

Fundargerð framlögð

29.1
2601091
Ósk um breytingu á upptökusvæði skóla.
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 250

Erindið móttekið.Sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að vinna málið áfram og upplýsa nefndina á næsta fundi. Samþykkt samhljóða.

29.2
2601062
Leiðsögn hjá MMS við innleiðingu á stuðningsefni um skipulag náms, kennslu og námsmats vorið 2026
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 250

Máli frestað til næsta fundar.

29.3
2409322
UMSB - samstarfssamningur
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 250

Stefán Broddi sveitarstjóri kemur til fundarins og fer yfir stöðuna varðandi samningaviðræður UMSB og Borgarbyggðar um samstarfsamning.

29.4
2601255
Ósk um tómstundaakstur
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 250

Erindið er lagt fram.Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.



30. Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 168
2601034F

Fundargerð framlögð

30.1
2601287
Samræmdar greiðslur til stuðningsfjölskyldna
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 168

Velferðarnefnd þakkar verkefnahópnum fyrir sitt framlag í því að móta grunn að sameiginlegri gjaldskrá hér á Vesturlandi. Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti að gjaldskrá þessi verði uppfærð í samræmi við það sem fram kemur. Málið lagt til frekari umræðu inn í Byggðarráð.Samþykkt samhljóða.

30.2
1401005
Reglur um fjárhagsaðstoð
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 168

Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Borgarbyggðar verði lækkuð í kr. 200.000 í einu skrefi og taki gildi m.v. útgreiðslu fjárhagsaðstoðar fyrir maí 2026. Ekki er lagt til að breyting verði á kvörðum sem notaðir eru til útreiknings. Sveitarstjóra er falið að uppfæra reglur Borgarbyggðar um fjárhagsaðstoð til samræmis og leggja fyrir sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.

30.3
2501058
Skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 168

Velferðarnefnd lýsir yfir ánægju með þann framgang sem orðið hefur í verkefninu um uppbyggingu skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Vesturlandi og fagnar því öfluga samstarfi sem hefur skapast á milli sveitarfélaga á svæðinu og Þroskahjálpar á Vesturlandi. Verkefnið er talið mikilvægt skref í að efla og jafna aðgengi barna og fjölskyldna að nauðsynlegri þjónustu, óháð búsetu. Velferðarnefnd leggur ríka áherslu á áframhaldandi samvinnu sveitarfélaga á Vesturlandi, faglegan undirbúning og vandaða útfærslu þjónustunnar, með hagsmuni barna og fjölskyldna þeirra að leiðarljósi. Velferðarnefnd bindur vonir við að skammtímavöl fyrir fötluð börn geti opnað sem fyrst á Vesturlandi. Samþykkt samhljóða.

30.4
1810002
Félagslegt leiguhúsnæði
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 168

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs leggur fram drög að Stefnu Borgarbyggðar um félagslegt leiguhúsnæði. Stefna er í samræmi við þær umræður sem velferðarnefnd hefur lagt til. Máli vísað til samþykktar í sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.



Fundi slitið - kl. 17:14