Fundargerð
Velferðarnefnd Borgarbyggðar
168. fundur
3. febrúar 2026 kl. 14:00 - 15:30
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Starfsmenn
Dagskrá
1. Trúnaðarbók 2026
2. Samræmdar greiðslur til stuðningsfjölskyldna
Samþykkt samhljóða.
3. Reglur um fjárhagsaðstoð
Samþykkt samhljóða.
4. Skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni
Þann 20.11.2024 var rætt á fyrsta fundi stjórnenda þörf á skammtímadvöl á Vesturlandi og var bókað að stjórnendur hvers sveitarfélags myndu kortleggja þörfina fyrir sitt svæði.
Þann 11.12.2024 var bókað á fundi stjórnenda að hvert sveitarfélag myndi óska eftir heimild frá sínu fagráði til áframhaldandi samtals þess efnis að sveitarfélög á Vesturlandi færi saman í uppbyggingu á skammtímadvöl á Vesturlandi.
Þann 08.01.25 var bókað á fundi stjórnenda að stjórnendur væru að ræða við sín fagráð og fengið mikinn meðbyr. Lagt upp með að allir stjórendur séu komnir með heimild/bókun til áframhaldandi vinnslu verkefnisins fyrir næsta fund.
Þann 14.01.25 var lagt fyrir Velferðarnefnd og greint frá því að samráðshópur stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi hafi rætt möguleika á sameiginlegri uppbyggingu á skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni. Með bókun nefndarinnar var félagsmálastjóra falið að vinna málið áfram með hópi stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi.
Þann 12.02.25 var bókað að fyrir næsta samráðsfund hafi stjórnendur hafa farið í greiningu á þörfinni í sínu sveitarfélagi og mun umræða um skammtímavistun halda áfram á næsta fundi.
Þann 10.03.25 var umræðu á fundi stjórnenda frestað þar sem ekki var búið að kortleggja þörfina í öllum sveitarfélögum.
Þarfagreining í Borgarbyggð leiddi í ljós að 32 börn eru í þörf fyrir skammtímadvöl, af þeim væru 14 með SIS-mat og 12 væru á grundvelli farsældar og/eða barnaverndarsjónarmiða.
Þann 19.06.25 fóru stjórnendur í heimsókn í skammtímadvölina Móaflöt sem er í Garðabæ. Pála Marie Einarsdóttir tók á móti hópnum og veitti mikilvæga innsýn inn í rekstur og fyrirkomulag Móaflatar. Um er að ræða sameiginlega skammtímadvöl sem er rekin af Garðabæ, Kópavogi og Hafnafirði. Dvölin er ætluð börnum og ungmennum til 18 ára aldurs. Stjórnendur bókuðu að haft yrði samband við formann Þroskahjálpar á Vesturlandi þar sem óskað væri eftir sameiginlegum fundi.
Þann 08.10.25 kom formaður Þroskahjálpar inn á fund stjórnenda og lýsti yfir áhuga á samstarfi við sveitarfélögin á Vesturlandi. Það væri einnig vilji fyrir því að laga húsnæðið að Holti með það í huga að þar yrði skammtímadvöl fyrir börn og ungmenni á Vestur-landi. Bókað var að stjórendur myndu kynna fyrir sínum fagráðum og að útbúin verði viljayfirlýsing ásamt áframhaldandi samtali við Þroskhjálp.
Þann 11.11.25 var viljayfirlýsing sveitarfélaga við Þroskahjálp lögð fyrir Velferðarnefnd þar sem kom fram að með sameiginlegri viljayfirlýsingu væru aðilar að lýsa yfir sameiginlegum vilja sínum til að vinna saman að framgangi slíks verkefnis með það að markmiði að tryggja börnum og fjölskyldum þeirra örugga og faglega þjónustu á svæðinu. Velferðarnefnd lýsti yfir mikilli ánægju með mögulegri aðkomu Þroskahjálpar á Vesturlandi að uppbyggingu skammtímadvalar á Vesturlandi. Nefndin lagði áherslu á að brýnt væri að koma á skammtímadvöl á svæðinu og skrifað yrði undir viljayfirlýsingu milli Þroskahjálpar á Vesturlandi og sveitarfélaga á Vesturlandi. Væntingar væru jafnframt um að samhliða skammtímadvöl væri hægt að nýta húsnæðið í úrræði á grundvelli barnaverndarlaga.
Þann 03.12.25 skrifaði Borgarbyggð undir sameiginlega viljayfirlýsingu þess efnis. Lagt væri til að verkefnahópur myndi skilaði niðurstöðum sínum þann 13.02.25.
Þann 18.12.25 var viljayfirlýsingin lögð fyrir Byggðarráð sem tók heils hugar undir með velferðarnefnd um þátttöku Borgarbyggðar í samstarfi sveitarfélaga á Vesturlandi og Þroskahjálpar um uppbyggingu skammtímadvalar og var samþykkt samhljóða.
Í kjölfar undirritunar hafa stjórnendur á Vesturlandi fundað nánast vikulega með það að markmiði að útfæra verkefnið nánar í samræmi við efni viljayfirlýsingarinnar. Vinnan hefur einkum snúið að mótun þjónustunnar og skilgreiningu helstu forsendna fyrir uppbyggingu skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Vesturlandi.
Í þessari vinnu hefur verið lögð áhersla á að móta heildstæða skammtímadvöl sem uppfyllir gildandi lög og reglugerðir um málefni fatlaðs fólks, tryggir jafnt aðgengi barna og fjölskyldna óháð búsetu og byggir á faglegum gæðaviðmiðum. Þá er vinna hafin við að móta sameiginlega nálgun að framtíðar-fyrirkomulagi reksturs, þar á meðal fjármögnun þjónustunnar á grundvelli fjölda þjónustuþega.
Þann 27.01.26 mættu formaður og stjórnarmaður Þroskahjálpar inn á fund stjórnenda. Farið var yfir stöðu mála, farið var yfir teikningar af húsinu og lagðar til þær breytingar sem stjórnendur telja að þurfi m.a. að ráðast í. Næstu skref í verkefninu eru að fara í vettvangsferðir í Holt með fulltrúum Þroskahjálpar, SSV og skipulagssviða sveitarféalga. Skoða á m.a. aðstæður með tillit til aðgengismála.
Velferðarnefnd leggur ríka áherslu á áframhaldandi samvinnu sveitarfélaga á Vesturlandi, faglegan undirbúning og vandaða útfærslu þjónustunnar, með hagsmuni barna og fjölskyldna þeirra að leiðarljósi.
Velferðarnefnd bindur vonir við að skammtímavöl fyrir fötluð börn geti opnað sem fyrst á Vesturlandi.
Samþykkt samhljóða.
5. Félagslegt leiguhúsnæði
Máli vísað til samþykktar í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.