Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar

83. fundur

6. febrúar 2026 kl. 08:30 - 09:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - formaður
Orri Jónsson - aðalmaður
Friðrik Aspelund - aðalmaður
Eva Margrét Jónudóttir boðaði forföll og Guðveig Eyglóardóttir - varamaður sat fundinn í hans stað
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Kristján Rafn Sigurðsson boðaði forföll og Sólveig Hallsteinsdóttir - varamaður sat fundinn í hans stað

Starfsmenn

Drífa Gústafsdóttir - skipulagsfulltrúi
Ásgerður H Hafsteinsdóttir - verkefnisstjóri
Fundargerð ritaði: Ásgerður H. Hafsteinsdóttir - Verkefnastjóri


Dagskrá

1. Umsókn um breytingu á deiliskipulagi
2509327

Breyting á deiliskipulagi verslunar- og þjónustulóðar við Kaldadalsveg hefur verið auglýst samkvæmt 41.gr. skiplagslaga 123/2010. Kynningartími var frá 26.11.2025-12.01.2026 og óskað eftir umsögnum lögbundinna umsagnaraðila. Engar athugasemdir bárust.

Lagður er fram uppdráttur og greinargerð dags. 20.10.2025.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða deiliskipulagsbreytingu skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010.

Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


2. Br. dsk Flatahverfi - Hrafnaflöt
2602030

Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Flatahverfis á Hvanneyri. Breytingin varðar lóðir við Hrafnaflöt og húsgerð nr 2. Eftir breytingu verður heimilt að byggja þriggja íbúða raðhús við Hrafnaflöt 2,4 og 6 í stað fjögurra. Raðhús við Hrafnaflöt 1, 3 og 5 verða áfram með þremur íbúðum en byggingarreitur hliðrast. Lóðir við Hrafnaflöt verða tvær í stað sjö en í stað einstakra lóða verða skilgreindir sérafnotareitir. Þeir eru ekki sýndir á skipulagsuppdrætti. Auk þess eru gerðar breytingar á skipulags- og byggingarskilmálum varðandi aðgengi, fjölda íbúða, bílageymslu og sérafnotareiti.

Hönnuður er á lista Skipulagsstofnunar um samþykkta ráðgjafa.

Uppdráttur dags. 03.02.2026.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010. Breytingin á við um svo óveruleg frávik að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og 3. mgr. 44. gr. sömu laga.

Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


3. Húsafell 3 - ums?kn um deiliskipulag - L134495
2601020

Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Stuttárbotna í Húsafelli fyrir lóðina Stórarjóður 6 (L134604). Byggingarreitur er lengdur um nokkra metra til norð-austurs og suð-austurs auk þess sem hann er einnig settur utan um núverandi fylgihús sem er á lóðinni en húsið stendur nær lóðamörkum en 10m.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna óverulegra breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga 123/2010 fyrir eigendum Stórarjóðurs 5, 8 og 9.

Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


4. Umsókn um deiliskipulag
2601077

Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Stuttárbotna í Húsafelli frá 2025. Breytingin tekur til lóðarinnar Ásendi 1 þar sem lóðin er stækkuð úr 1.250m² í 2.607m². Lóðin stækkar því um 1.357m². Breytingin er ekki í ósamræmi við þá byggð sem fyrir er t.d. hvað varðar notkun, nýtingarhlutfall, útlit og form svæðis. Hönnuður er á lista Skipulagsstofnunar um samþykkta ráðgjafa. Uppdráttur dags. 09.01.2026.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna óverulegra breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga 123/2010 fyrir eigendum Ásenda 2, 3, 4, 8, 9 og 10.

Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


5. selás 11 - umsókn um deiliskipulag - L177900
2601075

Lögð er fram fyrirspurn um heimild til breytingar á deiliskipulagi Seláss í landi Ánabrekku fyrir lóðina Selás 11.

Samkvæmt núgildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja allt að 165m² sem skiptist á milli þriggja húsagerða. Frístundahús allt að 120m², gistihús allt að 30m² og geymsluhús allt að 15m².

Áformað er að byggja 137,9m² frístundahús og 12,9m² sauna á lóðinni og verður því hámarks byggingarmagn frístundahúss hækkað.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar að gerð verði breyting á deiliskipulagi Seláss í samræmi við framlögð gögn.

Samþykkt samhljóða



6. Fyrirspurn um skipulagsmál
2601181

Lögð er fram fyrirspurn um leyfi til að setja niður 49m² gestahús á lóð Veiðifélags Flókadalsár (L192673). Lóðin er 3.000m² og á lóðinni er fyrir 99,6m² veiðihús. Í endurskoðuðu aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 er svæðið skilgreint með landnotkun verslun- og þjónusta þar sem frekari uppbygging er heimil með 12 gistirúmum.

Skipulags- og byggingarnefnd sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að sett verði niður 49m² gestahús á lóð Veiðifélags Flókadalsár að undangengnu samþykki landeiganda. Nefndin fer fram á að gert verði deiliskipulag fyrir lóðina ef frekari uppbygging er áformuð.

Samþykkt samhljóða



7. Snæfellsnesvegur (54) - umsókn um framkvæmdaleyfi
2601289

Lögð er fram umsókn Vegagerðarinnar dags. 30.01.2026 um framkvæmdaleyfi vegna endurbyggingar Snæfellsnesvegar milli Brúarhrauns og Hraunsmúla í Borgarbyggð. Fyrirhuguð framkvæmd er á um 6 km kafla og liggur um lönd Brúarhrauns, Ásbrúnar, Flesjustaða, Heiðarbýlis, Syðstu-Garða og Snorrastaða 2. Framkvæmdin felur í sér breikkun og styrkingu vegarins, nýlögn ræsa ásamt nýlögn bundins slitlags. Áætluð verklok eru 15. september 2026.

Umsókn framkvæmdaleyfis tekur ekki til efnistöku til verksins.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir framkvæmdaleyfi fyrir endurbyggingu vegar á 6 km kafla milli Hraunsmúla og Brúarhrauns með vísan til framlagðra gagna þegar undirritað samþykki landeigenda liggur fyrir. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.

Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


8. Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 69
2601017F

8.1
2511070
Jörfi 2 - Umsókn um stofnun lóða
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 69

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að stofnuð verði 2.805,4 fm lóð, Jörfi 2, úr upprunalandinu Jörfi (L136066) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Lóðin fer í notkunarflokkinn íbúðarhúsalóð.

8.2
2511125
Vanaheim - umsókn um breytingu á landnotkun - F2535890
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 69

Skipulagsfulltrúi frestar málinu og óskar eftir upplýsingum um stöðu mannvirkja á svæðinu.

8.3
2507080
Grjóteyrartunga - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 69

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar byggingarfulltrúa að taka til afgreiðslu byggingaráform þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



9. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 255
2602005F

9.1
2601252
Sturlureykir 4 - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif)
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 255

Samþykkt

9.2
2601251
Sturlureykir 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 255

Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu. Erindið þarf að grenndarkynnaByggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.

9.3
2512222
Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Hvítárbakki 7 179429
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 255

Gera þarf nýtt deiliskipulag fyrir svæðið áður en frekari leyfi verða veitt.Erindinu er frestað.

9.4
2512070
Grenihlíð 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 255

Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu. Erindið þarf að grenndarkynnaByggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.

9.5
2309296
Brennubyggð 27 - L197352 - Umsókn um byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 255

Um er að ræða endurupptöku á sama máli sem var tekið fyrir á 218. afgreiðslufundi byggingafulltrúa dags 9.10.2023.Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum

9.6
2406040
Ölvaldsstaðir 1 135193 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 255

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum



Fundi slitið - kl. 09:00