Dagskrá
1. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
2601124
Framlögð tillaga að viðauka I við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026.
Lögð fram tillaga að viðauka I við fjárfestingaráætlun 2026. Samtals felur hann í sér hækkun að fjárhæð 96 m.kr. vegna GBF á Kleppjárnsreykjum (40 m.kr.), rennibraut við sundlaugina í Borgarnesi (50 m.kr.) og framkvæmdar við Kveldúlfshöfða/Fjóluklett (6 m.kr.) Vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
2. Reglur um fjárhagsaðstoð
1401005
Í samræmi við afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 731, þar sem lagt var til að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar verði kr. 200.000, er lagt fram minnisblað með tillögu að útfærslu og breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð.
Byggðarráð samþykkir að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Borgarbyggðar verði lækkuð í kr. 200.000 í einu skrefi og taki gildi m.v. útgreiðslu fjárhagsaðstoðar fyrir maí 2026. Ekki er lagt til að breyting verði á kvörðum sem notaðir eru til útreiknings.
Sveitarstjóra falið að uppfæra reglur Borgarbyggðar um fjárhagsaðstoð til samræmis og leggja fyrir sveitarstjórn. Afgreiðsla þessi er í samræmi við afgreiðslu fundar velferðarnefndar nr. 168.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
3. Gjaldskrár 2026
2510200
Framlögð tillaga að breytingu á gjaldskrá skipulagsfulltrúa en um er að ræða breytingu er snýr að lóðamálum, stofnun eða breytingu á lóðum.
Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingu á gjaldskrá skipulagsfulltrúa. Annars vegar er um að ræða lækkun á umsýslugjaldi og hins vegar hækkun á þinglýsingargjaldi sem kemur til af hækkun gjaldskrár sýslumanns.
Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.
Fylgiskjöl
4. Félagslegt leiguhúsnæði
1810002
Í samræmi við bókun fundar byggðarráðs nr. 729 eru lögð fram drög að stefnu Borgarbyggðar um félagslegt leiguhúsnæði. Kynntar hugmyndir að næstu skrefum þróunar á félagslegu leiguhúsnæði Borgarbyggðar.
Drög að stefnu Borgarbyggðar um félagslegt leiguhúsnæði styðja það markmið að sveitarfélagið geti boðið leiguhúsnæði fyrir skjólstæðinga sína í samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög. Hún stuðlar að því að tryggja leigutökum húsnæði sem fellur betur að þörfum þeirra. Markmið með stefnunni er:
Að bjóða upp á viðeigandi félagslegt leiguhúsnæði fyrir íbúa sem uppfylla skilyrði laga og reglna sveitarfélagsins.
Að stuðla að félagslegri blöndun, koma í veg fyrir samþjöppun félagslegs húsnæðis og vinna gegn félagslegri einangrun íbúa.
Að nýta fjármuni sveitarfélagsins á hagkvæman hátt.
Að stuðla að því að framboð félagslegs húsnæðis samræmist þörfum íbúa.
Að tryggja fyrirsjáanleika í kostnaði fyrir bæði sveitarfélagið og leigjendur.
Að draga úr langtímaábyrgð sveitarfélagsins á viðhaldi og rekstri húsnæðis, án þess að skerða þjónustu eða aðgengi.
Drög að framkvæmdaramma 2026-2029 gerir ráð fyrir húsnæðisframlagi af hálfu sveitarfélagsins í verkefni að þessum toga.
Stefnan er í samræmi við umræður og samþykktir velferðarnefnd.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
5. Kæra til Úrskurðanefndar um upplýsingamál
2601152
Framlagt svar Borgarbyggðar til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna kæru sem nefndinni barst frá IKAN ehf. vegna synjunar um aðgang að gögnum.
Framlagt og samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
6. Styrktarsjóður EBÍ-umsóknarfrestur til febrúarloka 2026
2601254
Framlagt bréf vegna umsókna í Styrktarsjóð EBÍ.
Framlagt og leggur byggðarráð áherslu á að sótt verði um í sjóðinn t.d. vegna umhverfis- og upplýsingamála.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
7. Grunnskóli Borgarfjarðar- Kleppjárnsreykjadeild - framkvæmdir á skólahúsnæði
2104092
Í samræmi við afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 733 er lögð fram frekari samantekt kostnaðar og drög uppgjöri á verkinu í heild.
Framlögð samantekt Eflu á kostnaði og drög að fullnaðaruppgjöri á verkinu. Það sýnir að útlit er fyrir að heildarkostnaður vegna samningsverks við endurbyggingu hluta af húsnæði Grunnskóla Borgarfjarðar, Kleppjárnsreykjum verði 1.279 m.kr. en það samsvarar um 20% hærri fjárhæð en upphaflegt tilboð að teknu tilliti til verðbóta. Hluti fellur inn á árið 2026 og leggur byggðarráð til við sveitarstjórn að hækka fjárfestingarramma vegna nýbyggingar GBF á Kleppjárnsreykjum um 40 m.kr. og hefur verið gert ráð fyrir þeirri hækkun í viðauka I við fjárhagsáætlun 2026.
Samþykkt samhljóða.
Sigurður Guðmundsson byggðarráðsfulltrúi lagði fram eftirfarandi bókun:
"Nú liggur fyrir að umtalsverður auka kostnaður hefur fallið á byggingu grunnskólans á Kleppjárnsreykjum. Það eru mikil vonbrigði að þetta sé niðurstaðan, verst er þó að upplýsingar um raunstöðu verksins hafa ekki borist byggðaráði yfir verktímanum, sem engan veginn er ásættanlegt fyrir kjörnafulltrúa. Þessi skortur á upplýsingargjöf er alfarið á ábyrgð meirihluta framsóknarmanna í sveitarstjórn Borgarbyggðar. Í ljósi þessari stöðu vakna upp spurningar, meðal annars hvort farið hafi verið fram úr fjárheimildum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins spurðust fyrir um fjárheimildir og stöðu verksins á liðnu hausti og var farið yfir þau mál við gerð viðauka við fjárhagsáætlun í september þar sem fjárþörf vegna byggingar grunnskólans á Kleppjarnsreykjum var skoðuð sérstaklega á milli funda í Byggðaráði. Eftir þá skoðun var ekkert sem benti til annars en að verkið yrði innan áætlana. Niðurstaðan núna sýnir að upplýsingagjöf, til kjörna fulltrúa, um stöðu framkvæmda a vegum sveitarfélagsins er ekki ásættanleg. Við yfirferð á verkfundargerðum nr. 45-48 er ekki fjallað um nein aukaverk þó sér kafli sé í verkfundargerðum þess efnis. Þetta er mjög sérstakt og þarfnast útskýringa.
Í ljósi þessa þá óska ég óska eftir upplýsingum um greiðslustöðu verkefnisins miða við fjárheimildir þ.e. hvort verkefnið hafi á verktímanum verið innan fjárheimilda síðasta árs og að það yfirlit sé með tímalínu sem sýni raun stöðu verksins á hverjum tíma miðað við fjárheimildir. Jafnframt óska ég eftir sundurliðuðu yfirliti yfir aukaverk, þar sem fram koma upplýsingar um umsamda upphæð, endanlega upphæð, ástæðu fyrir aukaverkinu, hvernig og hvenær verkin hafi verið samþykkt. Óskað er eftir að þessi gögn verði lögð fyrir sveitarstjórn á næsta sveitarstjórnarfundi."
8. Erindi frá Brákarbraut 19 vegna Brákareyjar
2602023
Framlagt bréf frá lögmanni Brákarbrautar 19 um málefni er varða fyrirhugaðar framkvæmdir í Brákarey.
Framlagt og sveitarstjóra falið að svara bréfinu.
Samþykkt samhljóða.
9. Krafa vegna verklauna
2512018
Lögð fram greinargerð Borgarbyggðar í málinu.
Framlagt og samþykkt samhljóða.
Lilja Björg Ágústsdóttir fór af fundi.
10. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 311. mál - Réttindavernd fatlaðs fólks
Framlagt.
Fylgiskjöl
11. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 312. mál - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)
Framlagt.
Fylgiskjöl
12. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 305. mál - Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn
Framlagt.
Fylgiskjöl
13. Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
2602005
Framlögð fundargerð 992. fundar stjórnar Sambandsins frá 23. janúar 2026.
Framlagt.
Fylgiskjöl
14. Vatnsrennibraut við sundlaug í Borgarnesi
2511072
Lögð fram opnunarskýrsla verðfyrirspurnar í endurnýjun vatnsrennibrautar í sundlauginni í Borgarnesi. Til fundarins kemur Hlynur Ólafsson verkefnastjóri á skipulags- og umhverfissviði.
Lögð fram með fyrirvara um reikni- og/eða innsláttarvillur. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fyrir sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
15. Bjargsland og Kveldúlfshöfði - Gatnagerð og kostnaður
2203079
Yfirferð á gatnaframkvæmd við Fjóluklett. Framlagðar aukaverkabeiðnir vegna vegslóða til uppbyggingar á mön og einnig lagfæringar á vegslóða samhliða gatnagerð til uppbyggingar á 2.áfanga framkvæmdarinnar. Samtals kostnaður við aukaverkabeiðnir um 5,2 m.kr.
Byggðarráð samþykkir framlagðar aukaverkabeiðnir. Stór hluti kostnaðar við þessi aukaverk mun nýtast við gerð göngustígar sem áformaður er í deiliskipulagi svæðisins.
Samþykkt samhljóða.