Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

255. fundur

3. febrúar 2026 kl. 13:15 - 14:00

á skrifstofu byggingarfulltrúa


Nefndarmenn

Sæmundur Óskarsson - byggingarfulltrúi
Kara Lau Eyjólfsdóttir - verkefnisstjóri

Starfsmenn

Fundargerð ritaði: Sæmundur Óskarsson - Byggingarfulltrúi


Dagskrá

1. Sturlureykir 4 - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif)
2601252

Umsækjandi: Jóhannes Kristleifsson

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir niðurrifi á gróðurhúsi í landi Sturlureykja 4. Mhl-03.

Fylgigögn: Veðbókarvottoð og áætlun um meðhöndlun byggingar og niðurrifsúrgangs.

Samþykkt



2. Sturlureykir 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2601251

Umsækjandi:Jóhannes Kristleifsson

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir að byggja þjónustuhús með starfsmannaaðstöðu og tveimur íbúðum (MHL 03).Stærð: 341m2. Um er að ræða timburhús á steyptum undirstöðum.

Einnig er reyndarteikning af eldri geymslu (MHL 06) sem var stækkuð og er nú þjónustuhús.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Nýhönnun ehf

Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu. Erindið þarf að grenndarkynna



Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.

Byggingaráform eru samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:

- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.

- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.

- Leyfisgjöld hafa verið greidd.



3. Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Hvítárbakki 7 179429
2512222

Umsækjandi: Formáli fasteignir ehf.

Erindi: Sótt er um byggingarleyfi fyrir gistiálmu á lóðinni Hvítárbakki 7. Byggingin var flutt í einingum á lóðina.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Kristján S Kristjánsson

Gera þarf nýtt deiliskipulag fyrir svæðið áður en frekari leyfi verða veitt.

Erindinu er frestað.



4. Grenihlíð 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2512070

Umsækjandi: Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir bílgeymslu. Stæðr 150m2, mhl-03.Um er að ræða timburhús á steyptum undirstöðum.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Nýhönnun ehf

Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu. Erindið þarf að grenndarkynna



Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.

Byggingaráform eru samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:

- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.

- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.

- Leyfisgjöld hafa verið greidd.



5. Brennubyggð 27 - L197352 - Umsókn um byggingarleyfi
2309296

Umsækjandi:LBE tannréttingar ehf.

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir stækkun á frístundahúsi. Stækkun alls 67m2

Fylgigögn:Aðaluppdrættir

Hönnuður: Nýhönnun ehf.

Um er að ræða endurupptöku á sama máli sem var tekið fyrir á 218. afgreiðslufundi byggingafulltrúa dags 9.10.2023.



Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum



6. Ölvaldsstaðir 1 135193 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2406040

Umsækjandi: Þórdís F Þorsteinsdóttir

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir bílgeymslu/vélageymslu.Stærð 347,2m2. mhl-10. Húsið er staðsteypt með léttu timburþaki

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Nýhönnun ehf

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.

Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum



Fundi slitið - kl. 14:00