Sveitarstjórn Borgarbyggðar

273. fundur

15. janúar 2026 kl. 16:00 - 17:53

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Guðveig Eyglóardóttir - Forseti
Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Eva Margrét Jónudóttir - 1. varaforseti
Eðvar Ólafur Traustason - aðalmaður
Thelma Dögg Harðardóttir - aðalmaður
Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Sigrún Ólafsdóttir - aðalmaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir - aðalmaður

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Lilja Björg Ágústsdóttir - Sviðsstjóri
Hlöðver Ingi Gunnarsson - sviðsstjóri fræðslusviðs
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu


Dagskrá

1. Skýrsla sveitarstjóra
2102062

Sveitarstjóri flytur skýrslu sveitarstjóra

Sveitarstjóri flytur skýrslu sveitarstjóra



2. Stjórnsýslukæra_sameiningakosningar_2025- Mál IRN25090129
2510014

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 730: "Framlagður úrskurður innviðaráðuneytisins dags. 12. desember 2025 um stjórnsýslukæru um lögmæti og framkvæmd íbúakosninga um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps, mál nr. IRN25090129.



Úrskurður framlagður en í úrskurðarorðum er hafnað kröfu kæranda, Péturs Davíðssonar, um að íbúakosningar um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar, sem fram fóru dagana 5.-20. september 2025, verði felldar úr gildi."

Úrskurður framlagður

Fylgiskjöl


3. Stjórnsýslukæra_sameiningakosningar_2025- Mál nr. IRN25090119
2510013

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 730:"Framlagður úrskurður innviðaráðuneytisins dags. 12. desember 2025 um stjórnsýslukæru um lögmæti og framkvæmd íbúakosninga um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps, mál nr. IRN25090119.



Úrskurður framlagður en í úrskurðarorðum er hafnað kröfu kærenda, Péturs Davíðssonar og Óla Rúnars Ástþórssonar, um



að íbúakosningar um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar, sem fram fóru dagana 5.-20. september sl., verði felldar úr gildi."

Úrskurður framlagður

Fylgiskjöl


4. Ugluklettur - Stækkun
2212062

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 730: Lagt fram minnisblað um viðbótar hönnunarkostnað vegna Leikskólans við Ugluklett en Ferill verkfræðistofa hefur sent tilboð í viðbótarhönnun á séruppdráttum fyrir eldri húsnæðishluta.



Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði Ferils í gerð séruppdrátta við eldri hluta Uglukletts samhliða vinnu við nýbyggingu. Í því felst verulegt hagræði í vinnu við nýbyggingu og endurbætur leikskólans.



Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs Borgarbyggðar nr. 731: Framlögð kostnaðaráætlun og drög að útboðsgögnum frá Nýhönnun og Ferli verkfræðistofu vegna nýbyggingar leikskólans Uglukletts. Til fundarins kemur Hlynur Ólafsson verkefnastjóri framkvæmda á skipulags- og umhverfissviði.



Byggðarráð felur sveitarstjóra að fullvinna útboðsgögnin og leggur til við sveitarstjórn að láta fara fram útboð á viðbyggingu leikskólans við Ugluklett á grundvelli þeirra.



Samþykkt samhljóða."







Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir ákvörðun byggðarráðs að ganga að tilboði Ferlis dags. 27. júní 2025 í gerð séruppdrátta við eldri hluta Uglukletts samhliða vinnu við nýbyggingu. Einnig staðfestir sveitarstjórn að fara skuli fram útboð á viðbyggingu leikskólans við Ugluklett grundvelli gagna frá Nýhönnun og Ferli verkfræðistofu.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


5. Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga 2025
2503350

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 731: "Í samræmi við afgreiðslu 730. fundar byggðarráðs frá 18. desember s.l. er framlagður lánasamningur við Lánasjóð sveitarfélaga um lántöku Borgarbyggðar hjá sjóðnum að fjárhæð 600 m.kr. til átta ára til fjármögnunar á endurbyggingu húsnæðis Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum.



Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkir hér með framlagðan lánasamning vegna lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð samtals kr. 600.000.000,- með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnar. Í samræmi við afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 730 leggur byggðarráð til við sveitarstjórn að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standi tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.



Er lánið tekið til að fjármagna endurbyggingu grunnskóla sveitarfélagsins á Kleppjárnsreykjum.



Í samræmi við afgreiðslu 730 fundar byggðarráð þá hefur Stefáni Brodda Guðjónssyni, sveitarstjóra, kt. 230771-4649, verið veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Borgarbyggðar að undirrita lánssamninga við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun lána. Afgreiðsla þessi verði lögð fram til staðfestingar á fundi sveitarstjórnar.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkir hér með á fundi sínum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 600.000.000,- með lokagjalddaga þann 11. desember 2033 í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér.

Til tryggingar láninu - þ.m.t. höfuðstól, vöxtum, dráttarvöxtum og öðrum kostnaði - samþykkir sveitarstjórnin að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.

Lánið er tekið til að fjármagna endurbyggingu grunnskóla sveitarfélagsins á Kleppjárnsreykjum. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.

Jafnframt er Stefáni Brodda Guðjónssyni, sveitarstjóra, kt. 230771-4649 veitt fullt og ótakmarkað umboð að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Borgarbyggõar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.



Samþykkt samhljóða



Til máls tók: SBG

Fylgiskjöl


6. Eigendanefnd Orkuveitunnar
2512102

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 730:" Lögð fram endurskoðuð drög að erindisbréfi eigendanefndar Orkuveitu Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir að Reykjavíkurborg tilnefni fjóar aðila í nefndina en Akraneskaupstaður og Borgarbyggð tvo hvort sveitarfélag.



Byggðarráð tilnefnir Sigurð Guðmundsson og Davíð Sigurðsson sem fulltrúa Borgarbyggðar í eigendanefnd Orkuveitunnar.







Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn tilnefnir Sigurð Guðmundsson og Davíð Sigurðsson sveitarstjórnarfulltrúa sem fulltrúa Borgarbyggðar í eigendanefnd Orkuveitunnar.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


7. Viðauki við fjárhagsáætlun Skorradalshrepps 2025
2512109

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr 730: "Viðauki 3 við fjárhagsáætlun Skorradalshrepps 2025 lagður fram.



Byggðarráð staðfestir fyrir sitt leyti framlagðan viðauka.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun 2025 hjá Skorradalshreppi.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


8. Fjárhagsáætlun Skorradalshrepps 2026
2511065

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 730:"Fjárhagsáætlun Skorradalshrepps 2026 ásamt fjárheimildum áranna 2027-2029 lögð fram.



Byggðarráð staðfestir fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun Skorradalshrepps 2026 ásamt fjárheimildum áranna 2027-2029.







Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun Skorradalshrepps 2026 ásamt fjárheimildum áranna 2027-2029.





Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


9. Tekjumörk vegna afsláttar af fasteignaskatti
2601016

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 731: "Lögð fram tillaga að tekjumörkum vegna afsláttar af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega á árinu 2026



Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar sem eiga lögheimili í Borgarbyggð eiga rétt á afslætti af fasteignaskatti skv. reglum og ákvörðun sveitarstjórnar hvert ár, sbr. heimild í 5. gr. laga 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Hjá hjónum og sambýlisfólki ræður aldur þess er fyrr verður 67 ára. Afsláttur nær einungis til íbúðarhúsnæðis sem viðkomandi býr sjálfur í.



Afsláttur ræðst af tekjum undanfarandi árs. Afslátturinn er reiknaður til bráðabirgða við álagningu út frá öllum skattskyldum tekjum einstaklings eða hjóna/sambúðarfólks, þ.m.t. eigna- og fjármagnstekjum samkvæmt síðasta skattframtali, en þegar staðfest skattframtal liggur fyrir vegna tekna síðasta árs er afsláttur endurskoðaður og leiðréttur.



Tekjumörk eru ákveðin af byggðarráði Borgarbyggðar í desember á hverju ári og eru nú:



Fyrir einstaklinga, (tekjur á árinu 2025):



með tekjur allt að kr. 5.242.000 er veittur 100% afsláttur



með tekjur á bilinu kr. 5.242.001 - 6.069.000 er veittur 75% afsláttur



með tekjur á bilinu kr. 6.069.001 - 6.887.000 er veittur 50% afsláttur



Fyrir hjón (tekjur á árinu 2025):



með tekjur allt að kr. 8.668.000 er veittur 100% afsláttur



með tekjur á bilinu kr. 8.668.001 - 9.692.000 er veittur 75% afsláttur



með tekjur á bilinu kr. 9.692.001 - 10.830.000 er veittur 50% afsláttur



Byggðarráð samþykkir að fyrirkomulag afsláttar á fasteignskatt elli- og örorkulífeyrisþega í Borgarbyggð verði með óbreyttum hætti en hækkun verði 3,5% frá fyrra ári.





Samþykkt samhljóða."

Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar sem eiga lögheimili í Borgarbyggð eiga rétt á afslætti af fasteignaskatti skv. reglum og ákvörðun sveitarstjórnar hvert ár, sbr. heimild í 5. gr. laga 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Hjá hjónum og sambýlisfólki ræður aldur þess er fyrr verður 67 ára. Afsláttur nær einungis til íbúðarhúsnæðis sem viðkomandi býr sjálfur í.



Afsláttur ræðst af tekjum undanfarandi árs. Afslátturinn er reiknaður til bráðabirgða við álagningu út frá öllum skattskyldum tekjum einstaklings eða hjóna/sambúðarfólks, þ.m.t. eigna- og fjármagnstekjum samkvæmt síðasta skattframtali, en þegar staðfest skattframtal liggur fyrir vegna tekna síðasta árs er afsláttur endurskoðaður og leiðréttur.



Tekjumörk eru ákveðin af byggðarráði Borgarbyggðar í desember á hverju ári og eru nú:



Fyrir einstaklinga, (tekjur á árinu 2025):



með tekjur allt að kr. 5.242.000 er veittur 100% afsláttur



með tekjur á bilinu kr. 5.242.001 - 6.069.000 er veittur 75% afsláttur



með tekjur á bilinu kr. 6.069.001 - 6.887.000 er veittur 50% afsláttur



Fyrir hjón (tekjur á árinu 2025):



með tekjur allt að kr. 8.668.000 er veittur 100% afsláttur



með tekjur á bilinu kr. 8.668.001 - 9.692.000 er veittur 75% afsláttur



með tekjur á bilinu kr. 9.692.001 - 10.830.000 er veittur 50% afsláttur



Sveitarstjórn staðfestir ákvörðun byggðarráðs um að fyrirkomulag afsláttar á fasteignskatt elli- og örorkulífeyrisþega í Borgarbyggð verði með óbreyttum hætti en hækkun verði 3,5% frá fyrra ári.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


10. Beiðni um undirskriftasöfnun v. aðalskipulags
2511022

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 731:"Framlögð önnur tilkynning frá samtökunum Sól til framtíðar til sveitarstjórnar Borgarbyggðar um fyrirhugaða undirskriftasöfnun meðal íbúa Borgarbyggðar þar sem óskað verður almennrar atkvæðagreiðslu um þá ákvörðun sveitarstjórnar að samþykkja endurskoðað aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 11. desember 2025.



Byggðarráð telur erindið vera efnislega samhljóða erindi sem sveitarstjórn hafnaði á fundi 11. desember 2025. Samtökunum Sól til framtíðar var í því svari leiðbeint um málskotsleið til innviðaráðuneytisins. Byggðarráð telur ekki vera til staðar skilyrði til endurupptöku fyrri ákvörðunar sveitarstjórnar. Þótt erindið sé sett fram með nokkuð öðrum hætti en fyrra erindi samtakanna er hvorki um það að ræða að fyrri ákvörðun hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik né hafi atvik breyst frá því að ákvörðun var tekin.



Byggðarráð vill af þessu tilefni árétta að aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 var unnið í víðtæku samráði við íbúa sveitarfélagsins, aðra haghafa og stofnanir. Í ferlinu bárust fjölmargar umsagnir og ábendingar og var öllum umsögnum svarað í samræmi við þá málsmeðferð sem kveðið er á um í skipulagslögum. Jafnframt áréttar byggðarráð að við meðferð fyrra erindis Sólar til framtíðar hafi verið kappkostað að gæta leiðbeiningarskyldu af hálfu sveitarfélagsins. Byggðarráð vísar á bug aðdróttunum í erindinu um að sveitarfélagið hafi veitt rangar leiðbeiningar eða haft tilburði til að afvegaleiða umræðu um málið.



Byggðarráð ítrekar það sem fram hefur komið í fyrri samskiptum aðila máls að íbúar geta farið fram á breytingar á samþykktu aðalskipulagi í samræmi við Skipulagslög nr. 123/2010. Á líftíma aðalskipulags eru iðulega teknar til afgreiðslu slíkar beiðnir.



Með framangreindum rökum leggur byggðarráð til að sveitarstjórn hafni erindi Sólar til framtíðar um um að safna undirskriftum í því skyni að fá aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 fellt úr gildi.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu byggðarráðs og hafnar erindi Sólar til framtíðar um að safna undirskriftum í því skyni að fá aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 fellt úr gildi. Sveitarstjórn tekur undir með byggðarráði að erindið sé í grundvallaratriðum efnislega samhljóða erindi sem sveitarstjórn hafnaði á fundi 11. desember 2025. Samtökunum Sól til framtíðar var í því svari leiðbeint um málskotsleið til innviðaráðuneytisins. Sveitarstjórn telur ekki vera til staðar skilyrði til endurupptöku fyrri ákvörðunar sveitarstjórnar. Þótt erindið sé sett fram með nokkuð öðrum hætti en fyrra erindi samtakanna er hvorki um það að ræða að fyrri ákvörðun hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik né hafi atvik breyst frá því að ákvörðun var tekin.



Sveitarstjórn vill af þessu tilefni einnig árétta að aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 var unnið í víðtæku samráði við íbúa sveitarfélagsins, aðra haghafa og stofnanir. Í ferlinu bárust fjölmargar umsagnir og ábendingar og var öllum umsögnum svarað í samræmi við þá málsmeðferð sem kveðið er á um í skipulagslögum. Sveitarstjórn telur að við meðferð fyrra erindis Sólar til framtíðar hafi verið kappkostað að gæta leiðbeiningarskyldu af hálfu sveitarfélagsins m.a með fundi byggðarráðs með fulltrúum Sólar til framtíðar. Að sama skapi vísar sveitarstjórn á bug aðdróttunum í erindinu um að sveitarfélagið hafi veitt rangar leiðbeiningar eða haft tilburði til að afvegaleiða umræðu um málið.



Sveitarstjórn ítrekar einnig það sem fram hefur komið í fyrri samskiptum aðila máls að íbúar geta farið fram á breytingar á samþykktu aðalskipulagi í samræmi við Skipulagslög nr. 123/2010. Á líftíma aðalskipulags eru iðulega teknar til afgreiðslu slíkar beiðnir. Eru fulltrúar Sólar til framtíðar hvattir til að nýta sér þá heimild og mun sveitarstjórn að sjálfsögðu taka slíkt erindi til efnismeðferðar samkvæmt viðeigandi ferlum.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


11. Húsnæðisáætlun 2026
2510053

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 731:"Framlögð drög að húsnæðisáætlun Borgarbyggðar 2026.



Framlagt og sveitarstjóra falið að vinna áfram og leggja fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir framlögð drög að húsnæðisáætlun Borgarbyggðar 2026, felur sveitarstjóra að fullvinna áætlunina og vísar til síðari umræðu í sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða



Til máls tók: DS

Fylgiskjöl


12. Vatnsrennibraut við sundlaug í Borgarnesi
2511072

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 731: "Framlögð útboðsgögn frá Eflu vegna endurnýjunar á rennibrautum við sundlaugina í Borgarnesi sbr. afgreiðslu 272. fundar byggðarráðs.



Byggðarráð samþykkir að vísa til sveitarstjórnar að óska eftir tilboðum í endurnýjun vatnsrennibrauta í sundlauginni Borgarnesi á grundvelli framlagðra gagna.







Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn ákveður að óska skuli eftir tilboðum í endurnýjun vatnsrennibrauta í sundlauginni í Borgarnesi á grundvelli framlagðra gagna frá Eflu.





Samþykkt samhhljóða

Fylgiskjöl


13. Rammasamningar Borgarbyggðar
2401006

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 731:"Umræða um rammasamninga Ríkiskaupa sem eru að renna út og aðild og ávinning sveitarfélagsins. Þórunn Unnur Birgisdóttir verkefnastjóri á fjármála- og stjórnsýslusviði kemur til fundarins undir þessum dagskrárlið.



Lagður fram listi yfir þá rammasamninga sem Borgarbyggð er aðili að. Farið yfir þá tvo rammasamninga sem runnu út nú í lok síðasta árs árs og rædd staða opinna rammasamninga. Samþykkt að hætta þátttöku í rammasamningum um Microsoft-leyfi og eldsneyti fyrir skip og flugvélar.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir að hætta skuli þátttöku í rammasamningum um Microsoft-leyfi og eldsneyti fyrir skip og flugvélar.





Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


14. Húsnæði fyrir slökkvilið á Hvanneyri
2502140

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 731:"Framlagður uppfærður leigusamningur milli Melabrautar Byggingarfélags ehf. og Borgarbyggðar vegna leigu á húsnæði fyrir Slökkvilið Borgarbyggðar á Hvanneyri sbr. afgreiðslu byggðarráðs nr. 713. Breyting á samningi snýr eingöngu að skráningu matshluta en ekki öðrum efnisatriðum.



Byggðarráð felur sveitarstjóra að fullvinna samning í takti við umræðu á fundi og leggja fyrir sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir uppfærðan samning milli Melabrautar Byggingarfélags ehf. og Borgarbyggðar dags. 20.12.2025 vegna leigu á húsnæði fyrir Slökkvilið Borgarbyggðar á Hvanneyri.



Samþykkt samhljóða



15. Undanþágur verkfallsheimilda 2026
2512221

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 731:"Lögð fram skrá yfir störf hjá Borgarbyggð sem sveitarfélagið telur að falli undir 5.-8. tl. 19. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna.



Framlögð skrá yfir störf hjá Borgarbyggð sem undanþegin eru verkfallsheimild. Sveitarstjóra falið að leggja fyrir sveitarstjórn uppfærðan lista í samræmi við umræðu á fundi.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir skrá fyrir störf hjá Borgarbyggð sem eru undanþegin verkfallsheimild 2026 og felur sveitarstjóra að birta skránna.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


16. Fundargerðir stjórnar um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
2512169

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 731:"



Framlögð fundargerð fyrsta fundar stjórnar til undirbúnings að stofnun sameinaðs sveitarfélags Skorradalshrepps og Borgarbyggðar sem fram fór 19. des. 2025.



Framlagt."

Fundargerð fyrsta fundar stjórnar til undirbúnings að stofnun sameinaðs sveitarfélags Skorradalshrepps og Borgarbyggðar framlögð



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


17. Mál í samráðsgátt - breyting á kosningalögum nr. 112-2021
2601039

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 731:"Til umsagnar er í samráðsgátt stjórnvalda áform um lagasetningu um jöfnun atkvæðavægis með breytingu á kosningalögum nr. 112/2021. Vísað er til liðar 22 í aðgerðalista ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að breyting á kosningalögum væri til að auka jafnræði í atkvæðavægi og þingsætadreifingu.



Byggðarráð Borgarbyggðar telur að áformuð lagasetning um jöfnun atkvæðavægis hafi þann tilgang að fjölga þingmönnum Höfuðborgarsvæðisins og Suðvesturhornsins og fækka þingmönnum landsbyggðarkjördæma. Frá upphafi hefur á Alþingi Íslendinga verið fylgt því sjónarmiði að fulltrúalýðræði byggi ekki aðeins á fjölda atkvæða að baki hverjum fulltrúa heldur einnig að íbúar um land allt eigi rödd á löggjafarsamkomunni. Á því sjónarmiði byggja einnig löggjafarsamkomur fjölda annarra lýðræðisríkja.



Á Íslandi býr fámenn þjóð í stóru landi. Landið hefur sérstöðu að því leyti hve þéttleiki byggðar á einu horni landsins er mikill m.v. aðra landshluta og þar hafa safnast saman stofnanir ríkisins.



Sitjandi ríkisstjórn kennir sig við verðmætasköpun. Ríkisstjórnin hefur í orði sýnt því skilning að verðmætasköpun þjóðarbúsins á að mestu leyti uppruna sinn utan þéttbýlasta svæðis landsins svo sem í ferðaþjónustu, matvæla- og orkuframleiðslu. Sú verðmætasköpun er forsenda lífskjara á Íslandi og skatttekna ríkissjóðs.



Framundan er mikið verk að tryggja áframhaldandi verðmætasköpun í sátt við nærsamfélög um land allt. Það skýtur því skökku við að sett sé í forgang að fækka röddum hinna dreifðu byggða á Alþingi Íslendinga.



Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að birta í Samráðsgátt."

Sveitarstjórn tekur undir bókun byggðarráðs og felur sveitarstjóra að birta í samráðsgátt í nafni sveitarstjórnar Borgabyggðar.



Samþykkt samhljóða



18. Gjaldskrá vatnsveitu Hraunhrepps 2026
2601065

Gjaldskrá Vatnsveitu Hraunhrepps 2026 lögð fram.

Sveitarstjórn samþykkir gjaldskrá Vatnsveitu Hraunhrepps 2026 og felur sveitarstjóra að birta hana.





Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


19. Uppgjör ársins 2025 hjá Fjallskilanefnd Þverárréttar
2512172

Afgreiðsla fundar nr. 76 í fjallskilnefnd Þverárréttar: "Ákveðið var að hækka girðingagjald sem leggst á jarð- og fjáreigendur sem nemur afborgunum af lánum. Fjárhagsáætlun samþykkt."



Afgreiðsla fundar nr. 77 í fjallskilnefnd Þverárréttar: Heildarkosnaður vegna girðinga (viðhald og kostnaður) er 4.948.788 kr."Ákveðið að ganga frá uppgjöri og standa við ákvörðuð fjallskil ásamt kostnaði vegna girðinga. Sent til staðfestingar í sveitarstjórn."



Sveitarstjórn staðfestir ákvörðun fjallskilanefndar Þverárréttar að staðið verði við ákvörðuð fjallskil 2025 ásamt kostnaði vegna girðinga samtals að fjárhæð 4.948.788 kr.



Samþykkt með 6 atkvæðum EÓT, DS, GLE, SÓ, SG og BLB

Sátu hjá: REJ, EMJ og TDH



20. Óhreinindi í vatni úr Grábrókarveitu
2601089

Iðulega myndast grugg í vatni úr Grábrókarveitu. Það ástand hefur varað í áraraðir sem kemur niður á íbúum, gestum og atvinnurekstri.

Frá því að Grábrókarveita var tekin í notkun fyrir 18 árum, hafa ítrekað komið upp vandamál vegna óhreininda í vatninu, sem hefur leitt til þess að dregið hefur verið úr notkun veitunnar m.a. með því að hefja aftur vatnstöku á Seleyri fyrir Borgarnes. Veitum hefur á þessum 18 árum ekki tekist að gera lagfæringar á vatnstöku veitunnar sem tryggja ásættanleg gæði vatns úr tengipunktum á leið veitunnar. Borgarbyggð sem einn notandi Grábrókarveitu hefur verið í reglulegu sambandi við Veitur um gæði vatns á Varmalandi án árangurs og hefur samþykkt að hefja skoðun á möguleikum á nýjum vatnstökustöðum í nágrenni Varmalands, vegna getuleysis Veitna við að útvega ásættanlegt vatn. Sveitarstjórn Borgarbyggðar skorar á Veitur að leysa úr vandamálum sem tengjast vatnssöfnun Grábrókarveitunnar þannig að Borgarbyggð og aðrir notendur geti nýtt vatn úr Grábrókarveitu til framtíðar í stað þess að hefja vatnstöku sjálf. Staðan í dag er því miður þannig að ekki verður lengur unað við hana.



Samþykkt samhljóða



Til máls tóku: DS, SG, SÓ, SBG



21. Byggðarráð Borgarbyggðar - 730
2512014F

Fundargerð framlögð



SG tók til máls undir lið 1

TDH tók til máls undir lið 6

SBG tók til máls undir lið 6

SÓ tók til máls undir lið 7

EÓT tók til máls undir lið 6

SBG tók til máls undir lið 7 og 6

21.1
2511064
Umræða um stöðu leiðar 81
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Bréf framlagt en það hefur verið sent til Vegagerðarinnar og þingmanna kjördæmisins. Byggðarráð Borgarbyggðar hvetur Vegagerðina, innviðaráðherra og Alþingi að taka til greina þau sjónarmið sem fram koma í bréfinu og fram hafa komið í mótmælum sveitarstjórnar Borgarbyggðar og falla frá þeim áformum að leggja niður leið 81.Samþykkt samhljóða.

21.2
2501058
Skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Byggðarráð tekur heils hugar undir með velferðarnefnd um þátttöku Borgarbyggðar í samstarfi sveitarfélaga á Vesturlandi og Þroskahjálpar um uppbyggingu skammtímadvalar fyrir fötluð börn og samþykkir fyrir sitt leyti undirritun viljayfirlýsingar þar að lútandi.Samþykkt samhljóða.

21.3
2512053
Samgönguáætlun 2026-2030
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Því miður fela drög að Samgönguáætlun 2026-2040 í sér litlar breytingar á áætlun um nýframkvæmdir á Vesturlandi og í Borgarbyggð. Hluturinn er áfram mjög rýr. Þá veldur vonbrigðum að svo virðist sem að vegakerfið í Borgarbyggð muni að mjög litlu leyti njóta góðs af hækkun framlaga til viðhalds og tengivega. Það er óásættanlegt. Byggðarráð styður að auknu fjármagni verði ráðstafað í vetrarþjónustu Vegagerðarinnar sem vonandi leiðir til þess að samgönguöryggi yfir vetrarmánuði eykst. Þau áform rýma vel við þann metnað sem lagður er í vetrarþjónustu af hálfu sveitarfélagsins í Borgarbyggð. Byggðarráð felur sveitarstjóra að óska eftir sundurliðun á úthlutun þess fjármagns sem áætlað er að setja í tengivegi skv. drögum að samgönguáætlun.Samþykkt samhljóð.

21.4
2401059
Mælaborð um rekstur Borgarbyggðar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Farið yfir rekstur Borgarbyggðar á fyrstu tíu mánuðum ársins.

21.5
2303023
Samræmd móttaka flóttafólks
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Byggðarráð felur sveitarstjóra að fullvinna framlögð drög og senda til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Byggðarráð harmar þau rýru viðbrögð sem borist hafa frá ráðuneyti félagsmála og þingmönnum við þeirri sérstöku stöðu að um 5% íbúa Borgarbyggðar séu flóttamenn sem mest megnis búa á einum og sama staðnum fjarri þjónustu og atvinnu og stór hluti þeirra reiði sig á fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins sér til framfærslu. Sú staða er verulega íþyngjandi fyrir fjárhag sveitarfélagsins. Byggðarráð þakkar framlagða fyrirspurn Ingibjargar Davíðsdóttur á Alþingi um áform og ábyrgð félagsmálaráðuneytisins er varðar þessa stöðu. Um leið lýsir byggðarráð yfir vonbrigðum með að ekkert sé í hendi um að komið verði til móts við kostnað sveitarfélagsins. Byggðarráð felur sveitarstjóra að óska eftir fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar með ráðherra málaflokksins og þingmönnum Norðvesturkjördæmis vegna þessarar stöðu. Samþykkt samhljóða.Bjarney L. Bjarnadóttir, Hlöðver Ingi Gunnarsson, Eiríkur Ólafsson og Kristín Lilja Lárusdóttir fóru af fundi.

21.6
2501012
Samband ísl. sveitarfélaga - fundargerðir 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

21.7
2503350
Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkir hér með lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð samtals kr. 600.000.000,- með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnar á endanlegum lánasamningi. Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standi tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.Er lánið tekið til að fjármagna endurbyggingu grunnskóla sveitarfélagsins á Kleppjárnsreykjum. Jafnframt er Stefáni Brodda Guðjónssyni, sveitarstjóra, kt. 230771-4649, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Borgarbyggðar að undirrita lánssamninga við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun lána. Afgreiðsla þessi verði lögð fram til staðfestingar á fundi sveitarstjórnar.Samþykkt samhljóða.

21.8
2512102
Eigendanefnd Orkuveitunnar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Byggðarráð tilnefnir Sigurð Guðmundsson og Davíð Sigurðsson sem fulltrúa Borgarbyggðar í eigendanefnd Orkuveitunnar.Samþykkt samhljóða.

21.9
2511065
Fjárhagsáætlun Skorradalshrepps 2026 - til kynningar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Byggðarráð staðfestir fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun Skorradalshrepps 2026 ásamt fjárheimildum áranna 2027-2029.Samþykkt samhljóða.

21.10
2512109
Viðauki við fjárhagsáætlun Skorradalshrepps 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Byggðarráð staðfestir fyrir sitt leyti framlagðan viðauka.Samþykkt samhljóða.

21.11
2510014
Stjórnsýslukæra_sameiningakosningar_2025- Mál IRN25090129
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Úrskurður framlagður en í úrskurðarorðum er hafnað kröfu kæranda, Péturs Davíðssonar, um að íbúakosningar um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar, sem fram fóru dagana 5.-20. september 2025, verði felldar úr gildi.

21.12
2510013
Stjórnsýslukæra_sameiningakosningar_2025- Mál nr. IRN25090119
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Úrskurður framlagður en í úrskurðarorðum er hafnað kröfu kærenda, Péturs Davíðssonar og Óla Rúnars Ástþórssonar, umað íbúakosningar um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar, sem fram fóru dagana 5.-20. september sl., verði felldar úr gildi.

21.13
2510327
Brattagata - Gatnaframkvæmdir
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Framlagt minnisblað starfsmanns. Byggðarráð tekur vel í þær hugmyndir að bæta við hönnun á snjóbræðslu í götuna og gangstétt og samþykkir að miðað verði við þá útfærslu við hönnun og gerð útboðsgagna.Samþykkt samhljóða.

21.14
2212062
Ugluklettur - Stækkun
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði Ferils í gerð séruppdrátta við eldri hluta Uglukletts samhliða vinnu við nýbyggingu. Í því felst verulegt hagræði í vinnu við nýbyggingu og endurbætur leikskólans.Samþykkt samhljóða.Ottó Ólafsson fór af fundi.

21.15
2512091
Siglingamerki í Borgarfirði og við innsiglingu að Borgarneshöfn
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Í minnisblaðinu kemur fram að vegna mikils sandburðar á hafnarsvæðinu, sem hófst eftir gerð Borgarfjarðarbrúar þá hefur dýpi minnkað mjög og einnig hefur dýpi á vissum stöðum Borgarfjarðar verið mjög breytilegt. Er svo komið að núverandi siglingamerki eru skv minnisblaðinu ekki áreiðanleg og gefa ekki rétta mynd af öruggri innsiglingu til hafnar í Borgarnesi. Fram kemur að notkun hafnarinnar í Borgarnesi er mjög lítil og einskorðast við nokkra frístundabáta í eigu staðkunnugra manna. Þá segir að ekki sé lengur hægt að mæla með siglingu um Borgarfjörð og til Borgarneshafnar nema fyrir þá sem kunnugir eru staðháttum. Í minnisblaðinu er lagt til að Faxaflóahafnir fái heimild til að leggja niður tvo hafnarvita og tvö leiðarmerki við bryggjuna í Borgarnesi. Byggðarráð felur sveitarstjóra að óska eftir frekari upplýsingum um þessar tillögur ekki síst í ljósi þess að í tengslum við uppbyggingu í Brákarey er til skoðunar að auka umsvif smábáta í Borgarneshöfn.Samþykkt samhljóða.

21.16
2412227
Erindi til fjarskiptafyrirtækja um bætt samband í vestanverðri Borgarbyggð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Í minnisblaðinu er lögð fram tillaga að fyrirkomulagi og staðsetningu á uppsetningu á grunninnviðum til að styrkja fjarskiptasamband á svæðinu ásamt grófu kostnaðarmati á uppsetningu og rekstri. Byggðarráð þakkar Neyðarlínunni fyrir góða vinnu og felur sveitarstjóra að kanna grundvöll þess að ráðast í verkefnið í samstarfi við innviðaráðuneytið, hlutaðeigandi stofnanir ríkisins, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og fjarskiptafyrirtæki.Samþykkt samhljóða.

21.17
2512079
Framkvæmdir RARIK 2026 í Borgarbyggð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Byggðarráð þakkar RARIK fyrir gagnlegt yfirlit. RARIK hyggst leggja í þrjú stór verkefni í Borgarbyggð á árinu 2026 en þau eru; sverun jarðstrengja frá Vatnshömrum og yfir Hvítá, lagning nýrra stofnstrengja yfir Borgarfjarðarbrú og í Borgarnes í samstarfi við önnur veitufyrirtæki og lagning þriggja jarðstrengja frá Vatnshömrum að Borgarfjarðarbrú. Fleiri verkefni eru á dagskrá í tengslum við gatnagerð í nýjum hverfum, endurnýjun gatna, stækkun heimtauga og uppsetning rofastöðva. Byggðarráð væntir góðrar samvinnu við RARIK í tengslum við verkefni ársins.

21.18
2512090
Gatnagerðargjöld í Borgarbyggð - samanburður
Byggðarráð Borgarbyggðar - 730

Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka saman samanburð á gatnagerðargjöldum í Borgarbyggð og öðrum sveitarfélögum.Samþykkt samhljóða.



22. Byggðarráð Borgarbyggðar - 731
2512026F

Fundargerð framlögð

22.1
2405162
Samskipti við Veitur vegna vatnsveitu á Varmalandi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 731

Í samræmi við afgreiðslu fundar Umhverfis- og landbúnaðarnefndar þá felur byggðarráð sveitarstjóra að leita eftir samningi eða samningum við ráðgjafa með það að markmiði, annars vegar að leggja mat á endurnýjunarþörf dreifikerfis og möguleika á frekari vatnsöflun og hins vegar velta upp valkostum um rekstur og efnahag veitunnar.Samþykkt samhljóða.

22.2
2401006
Rammasamningar Borgarbyggðar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 731

Lagður fram listi yfir þá rammasamninga sem Borgarbyggð er aðili að. Farið yfir þá tvo rammasamninga sem runnu út nú í lok síðasta árs árs og rædd staða opinna rammasamninga. Samþykkt að hætta þátttöku í rammasamningum um Microsoft-leyfi og eldsneyti fyrir skip og flugvélar.Samþykkt samhljóða.

22.3
2502140
Húsnæði fyrir slökkvilið á Hvanneyri
Byggðarráð Borgarbyggðar - 731

Byggðarráð felur sveitarstjóra að fullvinna samning í takti við umræðu á fundi og leggja fyrir sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.

22.4
2512221
Undanþágur verkfallsheimilda 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 731

Framlögð skrá yfir störf hjá Borgarbyggð sem undanþegin eru verkfallsheimild. Sveitarstjóra falið að leggja fyrir sveitarstjórn uppfærðan lista í samræmi við umræðu á fundi.Samþykkt samhljóða.

22.5
2512169
Fundargerðir stjórnar um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
Byggðarráð Borgarbyggðar - 731

Framlagt.

22.6
2501012
Samband ísl. sveitarfélaga - fundargerðir 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 731

Framlagt.

22.7
2601039
Mál í samráðsgátt - breyting á kosningalögum nr. 112-2021
Byggðarráð Borgarbyggðar - 731

Byggðarráð Borgarbyggðar telur að áformuð lagasetning um jöfnun atkvæðavægis hafi þann tilgang að fjölga þingmönnum Höfuðborgarsvæðisins og Suðvesturhornsins og fækka þingmönnum landsbyggðarkjördæma. Frá upphafi hefur á Alþingi Íslendinga verið fylgt því sjónarmiði að fulltrúalýðræði byggi ekki aðeins á fjölda atkvæða að baki hverjum fulltrúa heldur einnig að íbúar um land allt eigi rödd á löggjafarsamkomunni. Á því sjónarmiði byggja einnig löggjafarsamkomur fjölda annarra lýðræðisríkja. Á Íslandi býr fámenn þjóð í stóru landi. Landið hefur sérstöðu að því leyti hve þéttleiki byggðar á einu horni landsins er mikill m.v. aðra landshluta og þar hafa safnast saman stofnanir ríkisins. Sitjandi ríkisstjórn kennir sig við verðmætasköpun. Ríkisstjórnin hefur í orði sýnt því skilning að verðmætasköpun þjóðarbúsins á að mestu leyti uppruna sinn utan þéttbýlasta svæðis landsins svo sem í ferðaþjónustu, matvæla- og orkuframleiðslu. Sú verðmætasköpun er forsenda lífskjara á Íslandi og skatttekna ríkissjóðs. Framundan er mikið verk að tryggja áframhaldandi verðmætasköpun í sátt við nærsamfélög um land allt. Það skýtur því skökku við að sett sé í forgang að fækka röddum hinna dreifðu byggða á Alþingi Íslendinga.Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að birta í Samráðsgátt.

22.8
1401005
Reglur um fjárhagsaðstoð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 731

Fjárhagsaðstoð er orðin verulega íþyngjandi liður í rekstri Borgarbyggðar vegna fjölgunar einstaklinga sem þurfa að reiða sig á fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu.Byggðarráð leggur til stefnt verði að því að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar verði kr. 200.000,- og felur sveitarstjóra að leggja fram tillögu að útfærslu og breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð.Samþykkt samhljóða.

22.9
2503350
Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 731

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkir hér með framlagðan lánasamning vegna lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð samtals kr. 600.000.000,- með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnar. Í samræmi við afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 730 leggur byggðarráð til við sveitarstjórn að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standi tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.Er lánið tekið til að fjármagna endurbyggingu grunnskóla sveitarfélagsins á Kleppjárnsreykjum.Í samræmi við afgreiðslu 730 fundar byggðarráð þá hefur Stefáni Brodda Guðjónssyni, sveitarstjóra, kt. 230771-4649, verið veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Borgarbyggðar að undirrita lánssamninga við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun lána. Afgreiðsla þessi verði lögð fram til staðfestingar á fundi sveitarstjórnar.Samþykkt samhljóða.

22.10
2512184
Breyting á 4. gr. fylgisk I við reglug nr. 12122015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga
Byggðarráð Borgarbyggðar - 731

Lagt fram til kynningar.

22.11
2601016
Tekjumörk vegna afsláttar af fasteignaskatti
Byggðarráð Borgarbyggðar - 731

Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar sem eiga lögheimili í Borgarbyggð eiga rétt á afslætti af fasteignaskatti skv. reglum og ákvörðun sveitarstjórnar hvert ár, sbr. heimild í 5. gr. laga 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Hjá hjónum og sambýlisfólki ræður aldur þess er fyrr verður 67 ára. Afsláttur nær einungis til íbúðarhúsnæðis sem viðkomandi býr sjálfur í.Afsláttur ræðst af tekjum undanfarandi árs. Afslátturinn er reiknaður til bráðabirgða við álagningu út frá öllum skattskyldum tekjum einstaklings eða hjóna/sambúðarfólks, þ.m.t. eigna- og fjármagnstekjum samkvæmt síðasta skattframtali, en þegar staðfest skattframtal liggur fyrir vegna tekna síðasta árs er afsláttur endurskoðaður og leiðréttur. Tekjumörk eru ákveðin af byggðarráði Borgarbyggðar í desember á hverju ári og eru nú:Fyrir einstaklinga, (tekjur á árinu 2025):með tekjur allt að kr. 5.242.000 er veittur 100% afslátturmeð tekjur á bilinu kr. 5.242.001 - 6.069.000 er veittur 75% afslátturmeð tekjur á bilinu kr. 6.069.001 - 6.887.000 er veittur 50% afslátturFyrir hjón (tekjur á árinu 2025):með tekjur allt að kr. 8.668.000 er veittur 100% afslátturmeð tekjur á bilinu kr. 8.668.001 - 9.692.000 er veittur 75% afslátturmeð tekjur á bilinu kr. 9.692.001 - 10.830.000 er veittur 50% afslátturByggðarráð samþykkir að fyrirkomulag afsláttar á fasteignskatt elli- og örorkulífeyrisþega í Borgarbyggð verði með óbreyttum hætti en hækkun verði 3,5% frá fyrra ári.Samþykkt samhljóða.

22.12
2511022
Beiðni um undirskriftasöfnun v. aðalskipulags
Byggðarráð Borgarbyggðar - 731

Byggðarráð telur erindið vera efnislega samhljóða erindi sem sveitarstjórn hafnaði á fundi 11. desember 2025. Samtökunum Sól til framtíðar var í því svari leiðbeint um málskotsleið til innviðaráðuneytisins. Byggðarráð telur ekki vera til staðar skilyrði til endurupptöku fyrri ákvörðunar sveitarstjórnar. Þótt erindið sé sett fram með nokkuð öðrum hætti en fyrra erindi samtakanna er hvorki um það að ræða að fyrri ákvörðun hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik né hafi atvik breyst frá því að ákvörðun var tekin. Byggðarráð vill af þessu tilefni árétta að aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 var unnið í víðtæku samráði við íbúa sveitarfélagsins, aðra haghafa og stofnanir. Í ferlinu bárust fjölmargar umsagnir og ábendingar og var öllum umsögnum svarað í samræmi við þá málsmeðferð sem kveðið er á um í skipulagslögum. Jafnframt áréttar byggðarráð að við meðferð fyrra erindis Sólar til framtíðar var kappkostað að gæta leiðbeiningarskyldu af hálfu sveitarfélagsins. Byggðarráð vísar á bug aðdróttunum í erindinu um að sveitarfélagið hafi veitt rangar leiðbeiningar eða haft tilburði til að afvegaleiða umræðu um málið.Byggðarráð ítrekar það sem fram hefur komið í fyrri samskiptum aðila máls að íbúar geta farið fram á breytingar á samþykktu aðalskipulagi í samræmi við Skipulagslög nr. 123/2010. Á líftíma aðalskipulags eru iðulega teknar til afgreiðslu slíkar beiðnir. Með framangreindum rökum leggur byggðarráð til að sveitarstjórn hafni erindi Sólar til framtíðar um um að safna undirskriftum í því skyni að fá aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 fellt úr gildi.Samþykkt samhljóða.

22.13
2510053
Húsnæðisáætlun 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 731

Framlagt og sveitarstjóra falið að vinna áfram og leggja fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.

22.14
2212062
Ugluklettur - Stækkun
Byggðarráð Borgarbyggðar - 731

Byggðarráð felur sveitarstjóra að fullvinna útboðsgögnin og leggur til við sveitarstjórn að láta fara fram útboð á viðbyggingu leikskólans við Ugluklett á grundvelli þeirra.Samþykkt samhljóða.

22.15
2511072
Vatnsrennibraut við sundlaug í Borgarnesi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 731

Byggðarráð samþykkir að vísa til sveitarstjórnar að óska eftir tilboðum í endurnýjun vatnsrennibrauta í sundlauginni Borgarnesi á grundvelli framlagðra gagna.Samþykkt samhljóða.

22.16
2601008
Nýbygging GBF á Kleppjárnsreykjum - afhending og verklok
Byggðarráð Borgarbyggðar - 731

Byggðarráð óskar börnum og starfsfólki Grunnskóla Borgarfjarðar og öllum íbúum sveitarfélagsins til hamingju með nýtt skólahús og þakkar öllum þeim sem komið hafa að framkvæmdinni. Húsnæðið bætir verulega starfsumhverfi barna og starfsfólks. Byggðarráð bindur vonir við að húsnæðið styrki búsetuskilyrði í Borgarbyggð og sérstaklega í uppsveitum Borgarfjarðar fyrir fjölskyldur. Formleg afhending húsnæðisins er áætluð næst komandi miðvikudag 14. desember og opið hús er fyrirhugað í byrjun febrúar. Hlynur Ólafsson fór af fundi.



23. Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 166
2512010F

Fundargerð framlögð

23.1
2501057
Trúnaðarbók 2025
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 166

Óheimilt er að birta afgreiðslu nefndarinnar og starfsmanna opinberlega og því eru afgreiðslur skráðar með formlegum hætti í trúnaðarbók. Það er skýr reglurammi sem nefndin og starfsmenn félagsþjónustu starfa eftir. Reglurnar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins. Nefndin óskar jafnframt eftir því að félagsmálastjóri komi með tillögur að breyttri grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar á næsta fund.

23.2
2303023
Samræmd móttaka flóttafólks
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 166

Lagt til kynningar. Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að ofangreindar breytingar verði gerðar á viðauka við þjónustusamning um samræmda móttöku.

23.3
2501058
Skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 166

Velferðarnefnd fagnar því að Borgarbyggð sé búið að skrifa undir viljayfirlýsinguna.

23.4
1810002
Félagslegt leiguhúsnæði
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 166

Lagt til kynningar. Velferðarnefnd lýsir yfir ánægju með minnisblað sem liggur fyrir og leggur áherslu á að unnið verði áfram á þessum grunni.



24. Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 167
2601001F

Fundargerð framlögð

24.1
2501057
Trúnaðarbók 2025
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 167

Óheimilt er að birta afgreiðslu nefndarinnar og starfsmanna opinberlega og því eru afgreiðslur skráðar með formlegum hætti í trúnaðarbók. Það er skýr reglurammi sem nefndin og starfsmenn félagsþjónustu starfa eftir. Reglurnar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins.

24.2
1401005
Reglur um fjárhagsaðstoð
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 167

Ljóst er að Borgarbyggð greiðir töluvert hærri fjárhagsaðstoð miða við önnur sveitarfélög í landinu. Um er að ræða næsthæstu grunnfjárhæð miða við gögn sem liggja fyrir, árið 2025. Miða við þær breytngar sem hafa orðið á fjárhagsaðstoð og breyttar forsendur telur Velferðarnefnd að nauðsynlegt sé að bregðast við þeirri stöðu. Velferðarnefnd leggur því til að grunnfjárhæð lækki og taki mið af sveitarfélögum sem eru sambærileg Borgarbyggð líkt og kemur fram í tillögu 2. Nefndin vísar erindinu til frekari útfærslu og ákvörðunar hjá Byggðarráði. Samþykkt samhljóða.

24.3
2401084
Barnavernd - tölfræðilegar upplýsingar
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 167

Lagt fram til kynningar. Áhyggjuefni er að sjá hversu mikill munur er á milli kynjanna og eru vísbendingar þess efnis að oftar sé tilkynnt vegna drengja. Velferðarnefnd leggur áherslu á áframhaldandi fræðslu til barna og ungmenna, og þeirra sem starfa í þágu barna. Einnig telur nefndin mikilvægt að gott samstarf sé við stofnanir sem gegna mikilvægu hlutverki í lífi barna.



25. Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 82
2601002F

Fundargerð framlögð

25.1
2512076
Umsókn um deiliskipulag
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 82

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir lýsingu til auglýsingar fyrir Sveinukot skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010.Samþykkt samhljóða.

25.2
2511126
Mýrar 134435 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 82

Skipulags- og byggingarnefnd sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar bendir á að samkvæmt gildandi aðalskipulagi og endurskoðuðu aðalskipulagi sem nú er í ferli er skilyrt að ef reka á gistingu á landbúnaðarlandi þarf að vera föst búseta á jörðinni. Nefndin vísar í fyrri bókun nefndarinnar frá fundi nr. 80 þann 7. nóvember 2025 er varðar skipulag og landnotkun svæðisins. Nefndin felur skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa að svara erindinu.Samþykkt samhljóða.

25.3
2511269
Háhóll-Hafdísalundur 200282 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 82

Skipulags- og byggingarnefnd sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin og afla umsagna lögbundinna umsagnaraðila. Samþykkt samhljóða.

25.4
2511018
Hamar 135401 - umsókn um framkvæmdarleyfi - 135401
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 82

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkæmdaleyfi þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga 123/2010. Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnum athugasemdum. Samþykkt samhljóða.

25.5
2504020
Syðstu-Fossar - umsókn um framkvæmdarleyfi - 133909
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 82

Skipulags- og byggingarnefnd sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar samþykkir meðfylgjandi gögn til grenndarkynningar.Samþykkt samhljóða.

25.6
2512019F
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 67
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 82

25.7
2512021F
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 68
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 82

25.8
2512013F
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 254
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 82



26. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 84
2512022F

Fundargerð framlögð

26.1
2512013
Refa- og minkaveiði 2026
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 84

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd samþykkir drög að samningum við veiðimenn.Nefndinn leggur til að kvóti fyrir ref verði aukinn í 456 dýr og kvóti fyrir mink verði óbreyttur milli ára.

26.2
2511311
Umhverfismál - innkoma í Borgarnes
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 84

Lagt fram til kynningar.

26.3
2601004
Umhverfis- og landbúnaðarmál desember 2025
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 84



27. Fjallskilanefnd Þverárréttar - 77
2512024F

Fundargerð framlögð



27.1
2512172
Uppgjör ársins 2025 hjá Fjallskilanefnd Þverárréttar
Fjallskilanefnd Þverárréttar - 77

Ákveðið að ganga frá uppgjöri og standa við ákvörðuð fjallskil ásamt kostnaði vegna girðinga.Sent til staðfestingar í sveitarstjórn.

27.2
2512173
Fundur í fjallskiladeild Þverárréttar
Fjallskilanefnd Þverárréttar - 77

Stjórn fjallskilanefndar Þverárréttar stefnir að því að halda fund með þeim sem upprekstrarrétt eiga þann 11. Febrúar 2026.



Fundi slitið - kl. 17:53