Sveitarstjórn Borgarbyggðar

272. fundur

11. desember 2025 kl. 16:00 - 18:25

í Hjálmakletti


Nefndarmenn

Guðveig Eyglóardóttir - Forseti
Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Eva Margrét Jónudóttir - 1. varaforseti
Eðvar Ólafur Traustason - aðalmaður
Thelma Dögg Harðardóttir - aðalmaður
Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Sigrún Ólafsdóttir - aðalmaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir - aðalmaður

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Lilja Björg Ágústsdóttir - Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu


Dagskrá

1. Skýrsla sveitarstjóra
2102062

Sveitarstjóri flytur skýrslu sveitarstjóra.

Sveitarstjóri flytur skýrslu sveitarstjóra



2. Viðauki við fjárhagsáætlun 2025
2502016

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 729:"Lagður fram viðauki VI við fjárhagsáætlun 2025.

Framlagður viðauki VI við fjárhagsáætlun og framkvæmdaáætlun 2026. Í honum felst að áætlun um launakostnað grunnskóla er hækkuð um 30 m.kr. sem skiptist þannig að áætlun fyrir Grunnskólann í Borgarnesi hækkar um 17,4 m.kr. og um 12,6 m.kr. fyrir Grunnskóla Borgarfjarðar. Á móti eru óreglulegir liðir færðir niður um 30 m.kr.

Þá er áætlaður kostnaður vegna sameiningarmála að fjárhæð 35 m.kr. Á móti þeim kostnaði eru áætlað framlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um 35 m.kr. Að auki er áætlaður kostnaður vegna kærumála í kjölfar kosninga að fjárhæð 5,3 m.kr. Sveitarfélagið væntir þess að sú fjárhæð fáist endurgreidd frá Jöfnunarsjóði.

Í framkvæmda- og fjárfestingaráætlun er áætluð hækkun að fjárhæð 23,4 m.kr. vegna búnaðarkaupa annars vegar í leikskólann Klettaborg að fjárhæð 5,4 m.kr. og hins vegar GBF á Kleppjárnsreykjum að fjárhæð 18,0 m.kr.

Samanlögð áhrif viðaukans leiða til lækkunar á handbæru fé í sjóðstreymisáætlun að fjárhæð 28,7 m.kr.

Því miður sér ekki fyrir endann á ráðgjafarkostnaði vegna kærumála er varðar fyrirhugaða sameiningu við Skorradalshrepp en málið er enn í farvegi hjá Innviðaráðuneytinu og bíður Borgarbyggð niðurstöðu þess. Þessi kærumeðferð og töf á afgreiðslu ráðuneytisins hefur leitt til þess að vinna við að ljúka við sameiningu sveitarfélaganna hefur ekki náð að hefjast. Byggðarráð harmar að málið sé enn í þessum farvegi, það veldur kostnaði og gerir það að verkum að nýskipuð undirbúningsstjórn um sameiningu sveitarfélaganna getur ekki hafið störf.

Samþykkt samhljóða og vísað til staðfestingar í sveitarstjórn."

Sveitarstjórn staðfestir viðauka VI við fjárhagsáætlun og framkvæmdaáætlun 2025. Í honum felst að áætlun um launakostnað grunnskóla er hækkuð um 30 m.kr. sem skiptist þannig að áætlun fyrir Grunnskólann í Borgarnesi hækkar um 17,4 m.kr. og um 12,6 m.kr. fyrir Grunnskóla Borgarfjarðar. Á móti eru óreglulegir liðir færðir niður um 30 m.kr.

Þá er áætlaður kostnaður vegna sameiningarmála að fjárhæð 35 m.kr. Á móti þeim kostnaði eru áætlað framlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um 35 m.kr. Að auki er áætlaður kostnaður vegna kærumála í kjölfar kosninga að fjárhæð 5,3 m.kr. Sveitarfélagið væntir þess að sú fjárhæð fáist endurgreidd frá Jöfnunarsjóði.

Í framkvæmda- og fjárfestingaráætlun er áætluð hækkun að fjárhæð 23,4 m.kr. vegna búnaðarkaupa annars vegar í leikskólann Klettaborg að fjárhæð 5,4 m.kr. og hins vegar GBF á Kleppjárnsreykjum að fjárhæð 18,0 m.kr.

Samanlögð áhrif viðaukans leiða til lækkunar á handbæru fé í sjóðstreymisáætlun að fjárhæð 28,7 m.kr.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


3. Gjaldskrár 2026
2510200

Afgreiðsla á fundi byggðarráðs nr. 728: "Framlagðar gjaldskrár fjölskyldsviðs, Hjálmakletts, slökkviliðs, Ljósleiðara og safnahúss. Jafnframt lögð fram tillaga að óbreyttu álagningarhlutfalli fasteignaskatts og lóðarleigu á milli ára. Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn."

Afgreiðsla á fundi byggðarráðs nr. 729: "Framlagðar til umræðu í byggðarráði gjaldskrár skipulags- og umhverfissviðs. Byggðarráð samþykkir að vísa tillögum að gjaldskrám til samþykktar í sveitarstjórn að teknu tilliti til breytinga á tillögu að gjaldskrá skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa sem ákveðnar voru á fundinum. Samþykkt samhljóða."

Lagðar fram gjaldskrár fyrir Frístund, Listaskóla, mötuneyti fyrir starfsfólk grunnskóla, íþróttamiðstöðvar, leikskóla, fjölskyldusvið, Hjálmaklett, Safnahús, Slökkvilið Borgarbyggðar, slökkvitækjaþjónustu, söfnun og eyðingu dýraleifa, gámasvæði, tæmingu rotþróa, meðhöndlun úrgangs, hunda- og kattahald í þéttbýli, Vatnsveitu Hraunhrepps, Vatnsveitu Álftaneshrepps, skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa.

Lagðar fram tillögur að gjaldskrám í Borgarbyggð 2026 sem hafa fengið umfjöllun í viðkomandi nefndum.





Lögð fram tillaga um að álagning fasteignaskatts í Borgarbyggð á árinu 2026 verði:



0,35% af fasteignamati skv a-lið 3. gr laga um tekjustofna sveitarfélaga

Samþykkt samhljóða



1,32% af fasteignamati skv b-lið 3. gr laga um tekjustofna sveitarfélaga

Samþykkt samhljóða



1,39% af fasteignamati skv c-lið 3. gr laga um tekjustofna sveitarfélaga

Samþykkt samhljóða





Lögð fram tillaga um að lóðaleiga í Borgarbyggð árið 2025 verði 1,5% af fasteignamati íbúðarhúsalóða og 2,00% af fasteignamati annarra lóða.



Samþykkt samhljóða





Forseti bar upp beiðni þess að fá að bera upp allar gjaldskrá saman, það var samþykkt samhljóða



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá um tæmingu rotþróa



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá um söfnun og eyðingu dýraleifa



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá byggingarleyfis- og þjónustugjalda byggingarfulltrúa



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá Vatnsveitu Hraunhrepps



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá Vatnsveitu Álftaneshrepps



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá leikskóla



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá heimaþjónustu



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá frístundastarfs



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá Listaskóla



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá íþróttamiðstöðva



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá Safnahúss



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá ljósleiðara



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá Slökkviliðs



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá slökkvitækjaþjónustu



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í þéttbýli



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá og reglum fyrir gámasvæði



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá mötuneyta í grunnskólum



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá Hjálmakletts



Lögð var fram tillaga að gjaldskrá fyrir framkvæmdaleyfi og þjónustugjöld skipulagsfulltrúa



Samþykkt samhljóða





4. Fjárhagsáætlun 2026
2505064

Fjárhagsáætlun 2026 lögð fram til seinni umræðu.

Drög: Lögð fram til síðari umræðu tillaga að fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyrir árið 2026 ásamt tillögu að fjárheimildum fyrir árin 2027-2029.



Helstu niðurstöður tillögunnar fyrir árið 2026 eru:

Rekstrartekjur A-hluta 7.441 m.kr og rekstrartekjur samstæðu 8.486 m.kr.

Rekstrargjöld A-hluta 6.841 m.kr en rekstrargjöld samstæðu 7.686 m.kr

Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir A-hluta 600 m.kr. og fyrir samstæðu 800 m.kr.

Rekstrarniðurstaða A-hluta 198 m.kr en 148 m.kr fyrir samstæðu.

Veltufé frá rekstri A-hluta 692 m.kr. en 770 m.kr. fyrir samstæðu.

Hreinar fjárfestingar A-hluta eru 2.329 m.kr. og samstæðu 2.431 m.kr.

Heildareignir A-hluta í lok árs 2026 14.844 m.kr. og samstæðu 17.185 m.kr.

Eigið fé A- hluta í lok árs 2026 6.546 m.kr. og samstæðu 6.946 m.kr.



Helstu niðurstöður tilögunnar fyrir samstæðu árin 2027-2029 eru.



Rekstrartekjur eru áætlaðar 8.794 m.kr á árinu 2027, 9.140 m.kr á árinu 2028 og 9.450 m.kr á árinu 2029.

Rekstrarafgangur er áætlaður 139 m.kr á árinu 2027, 147 m.kr á árinu 2028 og 127 m.kr á árinu 2029.

Hreinar fjárfestingarhreyfingar eru áætlaðar 1.001 m.kr á árinu 2027, 1.003 m.kr á árinu 2028 og 183 m.kr á árinu 2029.

Í fjárhagsáætlun 2026 og og ramma fyrir fjárheimildir 2027-2029 er gengið út frá því að sveitarfélagið fái endurgreiddan kostnað vegna fjárhagsaðstoðar við útlendinga sem hafa verið á landinu lengur en tvö ár. Ef gerist ekki má áætla að rekstrarniðurstaða verði 110 - 140 m.kr. lakari, að öðru óbreyttu.





Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyrir árið 2026 ásamt tillögu að fjárheimildum fyrir árin 2027-2029 samþykkt.



Samþykkt samhljóða



Davíð Sigurðsson (B-listi) leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd sveitarstjórnar: Sveitarstjórn Borgarbyggðar leggur hér fram þróttmikla fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 og framkvæmdaáætlun og fjárhagsramma fyrir árin 2026-2029.

Áætlun sem endurspeglar eftir sem áður áframhaldandi vilja til uppbyggingar í sveitarfélaginu og eftirfylgni á þeim markmiðum sem lagt var upp með í upphafi kjörtímabilsins sem senn er á enda. En sú áætlun sem hér er lögð fram er jafnframt síðasta fjárhagsáætlun þessa kjörtímabils.

Áætlun fyrir 2026 gerir ráð fyrir 198 m.kr. afgangi af rekstri A-hluta. Áætlun um hagnað hefur lækkað um 36 m.kr. á milli umræðna sem skýrist að mestu af því að nú er gert ráð fyrir lægri arðgreiðslum frá Orkuveitu Reykjavíkur og hækkun á framlögum til íþrótta- og æskulýðsmála, en nýtt fjölnota íþróttahús ? knatthús verður tekið í notkun næsta sumar og þá er ætlunin að hækka framlag sveitarfélagsins til íþróttafélaga í samræmi við nýja íþróttastefnu og samning við UMSB. Áætlunin felur í sér að hagnaður eykst á milli ára fyrst og fremst vegna sterkari tekjugrunns og hagkvæmni í rekstri og því tekst að verja eða styrkja alla grunnþjónustu sveitarfélagsins á milli ára.

Áætlunin felur í sér að skatttekjur sveitarfélagsins aukast um 15% milli ára og verði um 6,5 ma.kr. en að rekstrarhagnaður án afskrifta hækki um 79%. Miðað er við óbreytt hlutfall útsvars og fasteignaskatta og að hækkun gjaldskráa verði í flestum tilfellum 3,9%. Mikil uppbygging stendur yfir á vegum Borgarbyggðar og af þeim sökum hafa skuldir aukist. Því er er nauðsynlegt að verja tekjustofna sveitarfélagsins.

Áætlað er að veltufé frá rekstri verði 692 m.kr. sem samsvarar 9,3% framlegð. Fjárfestingar ársins 2026 eru áætlaðar 2,3 ma.kr. og að heildareignir í A-hluta verði 14,8 ma.kr. í lok árs 2026. Eiginfjárhlutfall í lok árs 2026 er áætlað 44% og skuldahlutföll vel innan allra skynsamlegra og lögbundinna marka.



Uppbygging íþróttamannvirkja og aðstaða til heilsueflingar hefur verið í umræðunni í sveitarfélaginu í áraraðir, mjög lengi. Vilji bæjarbúa og íbúa sveitarfélagsins hefur staðið til þess að efla þá þætti er lúta að lýðheilsu, viðhaldi og uppbyggingu íþróttamannvirkja og við þvi kalli hefur verið brugðist á þessu kjörtímabili. Samhliða því er mikilvægt að sveitarfélagið styðji vel við íþrótta ? og æskylýðsmál og hafa því framlög til þessa málaflokks verið aukin svo um munar. Árið 2026 verður um 10,2% skatttekna varið til íþrótta- og æskulýðsmála samanborið við 8,4% árið 2022. Það samsvarar hækkun framlaga um samtals 280 m.kr. og þar af 100 m.kr. aukning framlaga bara á næsta ári.

Á árinu 2026 verður því eins og á yfirstandandi ári mikil áhersla lögð á uppbyggingu og viðhald mannvirkja til íþrótta, leikja og útivistar í sveitarfélaginu. Hápunkti verður náð þegar nýtt fjölnota íþróttahús verður tekið í notkun næsta sumar. Sú framkvæmd gengur samkvæmt áætlun og útlit er fyrir að starfsemi verði hafin þegar nýtt skólaár hefst haustið 2026.

Á sama tíma er unnið af kappi að hönnun og skipulagi á nýju parkethúsi og endurnýjun á íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi og ánægjulegt að heyra þann samhljóm sem hefur skapast um að framkvæmdir við húsið geti hafist árið 2027 og ljúki á árinu 2028.

Árið 2026 verður mikið framkvæmdaár. Í kringum áramót verður lokið við nýbyggingu Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Sú uppbygging hefur vakið mikla og jákvæða athygli langt út fyrir þetta sveitarfélag og endurspeglar sóknarhug og ríkan vilja Borgarbyggðar til að laða ungt fólk til uppbyggingar í dreifbýlinu.

Framundan er framhaldandi uppbygging stíga, gatnagerð við Kveldúlfshöfða og Bröttugötu og stækkun leikskólans Uglukletts. Forgangsröðun helstu framkvæmda hefur ekki tekið breytingum milli ára og hefur lítið breyst frá upphafi kjörtímabils.

Það er ánægjulegt að geta litið sátt um öxl á að hafa náð þeim meginmarkmiðum sem lagt var upp með á kjörtímabili um stórátak í framboð á íbúða- og atvinnulóðum. Snemma á árinu 2026 er ráðgert að auglýsa fjölda nýrra lóða fyrir íbúðabyggð til úthlutunar við Kveldúlfshöfða. Það bætist við gott framboð lóða á Hvanneyri og fjölda lóða fyrir atvinnustarfsemi á Vallarási þar sem gatnagerð er nú þegar hafin.

Rík áhersla verður lögð á eftirfylgni með kostnaðaráætlunum í tengslum við stórframkvæmdir. Þá er mikilvægt að sveitarfélagið bregðist við og sé reiðubúið að endurskoða áætlanir ef breytingar verða á fjárhagslegum forsendum, kostnaði, vaxtastigi eða öðrum utanaðkomandi þáttum.

Rekstur Borgarbyggðar á yfirstandandi ári og áætlun fyrir árið 2026 endurspeglar að lögð er rík áhersla á að þétta félagslegt net sveitarfélagsins. Þá hefur verulega verið bætt í viðhald húsnæðis og gatna. Fjárfestingaáætlun endurspeglar sterkan vilja til uppbyggingar íþróttamannvirkja og skóla ásamt tækifærum til fjölgunar íbúa með nýjum hverfum.

Þá verður áfram lögð rík áhersla á hagsmunagæslu, ekki síst gagnvart ríkisvaldinu. Mikilvægt er að ríkið sé samstíga sveitarfélaginu í að styrkja þjónustu við íbúa og auka búsetufrelsi.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar þakka starfsmönnum sveitarfélagsins fyrir þeirra vinnu og gott samstarf í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun.



Til máls tóku: DS, SG, SÓ og GLE

Fylgiskjöl


5. Þjónustustefna Borgarbyggðar 2026
2510139

Þjónustustefna Borgarbyggðar 2026 tekin til síðari umræðu.

Þjónustustefna Borgarbyggðar tekin til síðari umræðu



Sveitarstjórn samþykkir þjónustustefnu Borgarbyggðar fyrir árið 2026 og felur sveitarstjóra að birta stefnuna.





Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


6. Tilkynning um kæru nr. 122-2025, íbúðabyggð á Varmalandi
2507197

Afgreiðsla byggðarráðs frá fundi nr. 727:"Framlagður úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 122/2025 er varðar ákvörðun sveitarstjórnar Borgarbyggðar frá 8. maí 2025 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar að Varmalandi.



Framlagður úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 122/2025. Byggðarráð leggur til við skipulags- og byggingarnefnd að auglýsa deiliskipulag fyrir íbúðabyggð á Varmalandi að nýju."

Lagt fram til kynningar





Til máls tók: DS

Fylgiskjöl


7. Beiðni um undirskriftasöfnun v. aðalskipulags
2511022

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 729: "Byggðarráð hefur móttekið erindi frá Sól til framtíðar, sem sent er í framhaldi af umfjöllun á fundi samtakanna með byggðarráði þann 27. nóvember sl. Var meðal annars rætt á þeim fundi að mögulegt væri að taka út skýringakort sem ber heitið "Takmarkanir vegna vindorku 1 og 2" í því skyni að koma til móts við sjónarmið samtakanna þar sem þau töldu að kortið væri villandi þar sem ekki stæði til að nýta vindorku á skipulagstímanum. Byggðarráð bauðst til þess þar sem kortið er einungs til upplýsinga sbr. kafla 5.1 í forsenda og umhverfismatsskýrslu. Í erindinu sem barst 4. desember frá samtökunum hafna þau boði sveitarfélagsins og árétta þá afstöðu samtakanna að fram fari íbúakosning að undangenginni undirskriftasöfnunar vegna vindorkuumfjöllunar í aðalskipulagi fyrir Borgarbyggð 2025-2037. Byggðarráð telur erindi Sólar til framtíðar afmarka skýrt að gerð er krafa um að fram fari undirskrifasöfnun í þeim tilgangi að umfjöllun um vindorkunýtingu verði tekin út úr greinargerð með aðalskipulagi 2025-2037. Byggðarráð telur vera þann annmarka á erindi Sólar til framtíðar að sveitarfélaginu er skylt á grundvelli 10. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að fjalla í aðalskipulagi um áherslur þingsályktun um landsskipulagsstefnu 2024-2038. Í áherslum C.2 og C.3 í gildandi landsskipulagsstefnu er skýrt kveðið á um að skipulag skuli fela í sér stefnu um nýtingu vindorkuvera í sátt við umhverfi og samfélag. Byggðarráð telur einnig að sjónarmið samtakanna Sólar til framtíðar séu samhljóma þeirri stefnu sem fram kemur í aðalskipulaginu 2025-2037 þar sem engin vindorkuver eru heimiluð á skipulagstímanum. En m.a. kemur fram á bls 14 í forsenda og umhverfismatsskýrslu aðalskipulagsins "Unnin var stefnumótun fyrir vindorku í sveitarfélaginu og er megin niðurstaða hennar að í aðalskipulagi skuli engin svæði afmörkuð fyrir vindorkuver. Sveitarfélagið mun taka ákvarðanir um vindorkuver þegar þau hafa verið sett í nýtingarflokk rammaáætlunar.? Samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 155/2013 um undirskriftasafnanir vegna almennra atkvæðagreiðslna samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal sveitarstjórn meta hvort ákvæði 3. mgr. 108. gr. sveitarstjórnarlaga hamli því að unnt sé að krefjast almennrar atkvæðagreiðslu um málið og tilkynna ábyrgðaraðila um niðurstöðu sína. Í því tilviki sem hér er til umfjöllunar er það álit byggðarráðs að ekki séu forsendur til þess að hefja undirskriftasöfnun í þeim tilgangi að umfjöllun um vindorkunýtingu verði fjarlægð úr samþykktu aðalskipulagi fyrir Borgarbyggð 2025-2037. í ljósi þess leggur byggðarráð til við sveitarstjórn að hafna beiðni Sólar til framtíðar um að safna undirskriftum í því skyni að fá umfjöllun um vindorkunýtingu fellda út úr greinargerð með aðalskipulagi sveitarfélagsins 2025-2037 sbr. 3. mgr. 108 gr. sveitarstjórnarlaga. Unnt er að kæra þá ákvörðun sveitarstjórnar til innviðaráðuneytisins, sbr. 111. gr. sveitarstjórnarlaga. Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu byggðarráðs og hafnar því að fram fari söfnun undirskrifta í þeim tilgangi að fella út umfjöllun um vindorkunýtingu úr greinargerð með aðalskipulagi fyrir Borgarbyggð 2025-2037 enda samrýmist það ekki 10. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eða landsskipulagsstefnu. Unnt er að kæra ákvörðunina til innviðaráðuneytisins, sbr. 111. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



Samþykkt samhljóða





Til máls tók: SG, DS, SG, DS og SG

Fylgiskjöl


8. Vatnsrennibraut við sundlaug í Borgarnesi
2511072

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 729: "Þörf er á endurnýjun rennibrauta við sundlaugina í Borgarnesi. Lögð fram tillaga að tveimur valkostum. Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að láta fara fram útboð eða verðfyrirspurn á afhendingu og uppsetningu endurnýjaðrar rennibrautar í sambærilegri mynd og hún er í dag. Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir að fara í útboð sbr. 12. gr. innkaupareglna Borgarbyggðar og laga nr. 120/2016 um opinber innkaup þar sem endurnýjuð verður plastrennibrautin sjálf en núverandi stálvirki haldið en yfirfarið og endurnýjað að hluta. Endurnýjun fer fram í samræmi við minnisblað Eflu og rennibrautin verður í megindráttum sambærileg þeirri sem fyrir er.



Samþykkt samhljóða



9. Ósk um endurskoðun skólaaksturs í Lundarreykjadal og Bæjarsveit
2509057

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 729: "Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða tillögu að breytingu á skólaakstursleiðinni um Lundarreykjadal og Bæjarsveit í tvær leiðir. Breytingin mun stuðla að því að akstursleið barna sem um lengstan veg þurfa að fara mun styttast verulega. Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagða tillögu að breytingu á skólaakstursleiðinni um Lundarreykjadal og Bæjarsveit þannig að henni verði skipt upp í tvær leiðir.





Samþykkt samhljóða



10. Erindi frá ON til ÚUA um álit á leyfisskyldu v styrkingar jarðvegsstíflu við Andakílsárvirkjun
2510128

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 727: "Framlagður úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamál dags. 10. nóvember sem er beiðni Orku náttúrunnar ohf. og Orkuveitu Reykjavíkur um að úrskurðað verði um hvort tímabundin styrking jarðvegsstíflu við Andakílsárvirkjun sé háð framkvæmdaleyfi eða byggingarleyfi.



Lagt fram til kynningar."

Lagt fram til kynningar

Fylgiskjöl


11. UMSB - samstarfssamningur
2409322

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 728: " Drög að samstarfssamningi milli Borgarbyggðar og UMSB lögð fram. Sonja Lind Eyglóardóttir íþrótta- og tómstundafulltrúi kemur til fundarins undir þessum dagskrárlið.



Byggðarráð vísar drögum að samstarfssamningi við UMSB til umsagnar í fræðslunefnd og leggur fyrir sitt leyti til við sveitarstjórn að samþykkja framlögð drög að samningi og felur sveitarstjóra að gera ráð fyrir fjárhagslegum áhrifum samningsins í fjárhagsáætlun 2026-2029.







Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn leggur til að afgreiðslu málsins verði frestað þar til á næsta fundi sveitarstjórnar sem fram fer í janúar 2026.



Samþykkt samhljóða



12. Samræmd móttaka flóttafólks
2303023

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 728:"Framlögð drög að III. viðauka við þjónustusamning milli félags- og húsnæðismálaráðuneytis og sveitarfélags um samræmda móttöku flóttafólks. Hlöðver Ingi Gunnarsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs kemur til fundarins og Heiðrún Halldórsdóttir verkefnastjóri í málefnum flóttamanna og situr fundinn undir þessum dagskrárlið.



Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja III. viðauka við þjónustusamning um samræmda móttöku flóttafólks sem felur í sér lækkun á heildarfjölda samnings úr 180 einstaklingum í 140. Með þessari breytingu er dregið úr líkum á fjölgun flóttafólks umfram getu sveitarfélagsins og tryggt að eins miklu leyti og hægt er að fjármagn fylgi þeim sem kunna að flytjast á eigin vegum í sveitarfélagið.



Það er jafnframt nauðsynlegt að í öllum samskiptum vegna þessa máls sé vakin athygli og leitað lausna á þessari þungu stöðu sem Borgarbyggð er í vegna fjárhagsaðstoðar. Samhliða samþykkt verði óskað eftir frekari aðgerðum af hálfu ráðuneyta og stofnana ríkisins til að leysa málið og leiðrétta fjárhagsleg áhrif sem sveitarfélagið hefur orðið fyrir.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu byggðarráðs og samþykkir III. viðauka við þjónustusamning um samræmda móttöku flóttafólks sem felur í sér lækkun á heildarfjölda samnings úr 180 einstaklingum í 140.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


13. Krafa vegna verklauna
2512018

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 729: "Lögð fram stefna frá Primis ehf. vegna verklauna í tengslum við gjaldþrotaskipti Lands og verks ehf.



Framlagt og felur byggarráð LEX lögmannsstofu að gæta hagsmuna sveitarfélagsins í málinu.



Samþykkt samhljóða."

Stefna frá Primis ehf. lögð fram og Arnari Þór Stefánssyni og Fjölni Ólafssyni lögmönnum hjá Lex lögmannsstofu falið að gæta hagsmuna sveitarfélagsins í málinu.



Samþykkt samhljóða



14. Brákarey-Skipulagsmál
2412005

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 729: "Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga til samningaviðræðna við PWC í samræmi við verkefnatillögu og leggja fram samning til staðfestingar í sveitarstjórn enda rúmast verkefnið innan fjárheimilda. Fjárhæðir eru undir viðmiðum sbr. 12. gr. innkaupastefnu Borgarbyggðar. Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu byggðarráðs og fyrirliggjandi verksamning við PricewaterhouseCoopers ehf. um ráðgjöf vegna uppbyggingar í Brákarey og Sveitarstjóra falið að undirrita samning.



Samþykkt samhljóða



15. Tilnefning frá byggðarráði til heiðurslauna listamanna
2512012

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 729: " Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis hefur auglýst eftir tilnefningum til heiðurslauna listamanna. Byggðarráð Borgarbyggðar hefur sent tilnefningu í sínu nafni.



Byggðarráð Borgarbyggðar tilnefnir Pál Guðmundsson frá Húsafelli til heiðurslauna listamanna.Páll fæddist árið 1959 á Húsafelli. Hann lauk námi frá málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1981 og nam höggmyndalist við Listaháskólann í Köln 1985-86.



Páll ólst upp að Húsafelli, þar sem sem mætast skógur og hraun, lindár og jökulár, heimur trölla, huldufólks, dýra og manna. Páll flutti heim þegar námi lauk og hefur alla tíð síðan stundað list sína frá Húsafelli. Páll er fjölhæfur listamaður og hefur t.d. fengist við myndlist, höggmyndalist og hljóðfærasmíði.



Í samtals 45 ár hefur Páll hefur haldið fjölda einkasýninga og samsýninga með öðrum listamönnum og hann hefur verið viðfangsefni bóka og heimildarmynda. Liðlega 20 höggmyndir eftir Pál prýða garða og torg víða um heim og auk fjölda höggmynda í náttúrunni við Húsafell og nágrenni.



Páll er einn merkasti listamaður Íslands, einstakur og verk hans auðþekkjanleg. Þau eru órjúfanlega tengd íslenskri náttúru og sögulegri arfleifð. Þau endurspegla mikla virðingu fyrir landinu og djúpa næmni fyrir svipmyndum fólks og náttúru. Verk hans prýða almenningsrými, kirkjur, tónlistarhús og heimili. Verk hans eru hluti af sjálfsmynd þjóðarinnar og vefa saman sögu, nátttúru og mannlíf. Verk Páls eru heimur út af fyrir sig. Þannig er steinharpa Páls sjálfstæður hljóðheimur og dæmi um einstæða sköpunargáfu. Hún er listaverk og hljóðfæri sem getið hefur af sér samstarf við fremsta tónlistarfólk heims.



Þó verk Páls prýði söfn og torg víða um heim og hann sé öðrum íslenskum og alþjóðlegum listamönnum innblástur þá er Páll hógvær sveitamaður og náttúrubarn.



Páll er framúrskarandi frumkvöðull í listsköpun. Hann er fyrirmynd og innblástur sem á rætur sínar í landinu, sögunni og jörðinni.



Páll Guðmundsson á Húsafelli er verðugur heiðurslauna listamanna.

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu byggðarráðs og tilnefnir Pál Guðmundsson frá Húsafelli til heiðurslauna listamann. Sveitarstjórn tekur undir með byggðarráði að Páll sé sannaralega verðugur fulltrúi til að hljóta heiðurslaunin.





Samþykkt samhljóða



16. Vegir í náttúru Íslands
2512014

Afgreiðsla 81. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja tillögu sveitarfélagsins um kortlagningu vega í náttúru Íslands, með fyrirvara um samþykki Náttúruverndarstofnunar.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulag- og byggingarnefndar og samþykkir tillögu sveitarfélagsins um kortlagningu vega í náttúru Íslands.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


17. Galtarholt 3 L135043 - Deiliskipulag
2302212

Afgreiðsla 81. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að fallast að hluta á athugasemdir Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulag Galtarholts 3. Skipulags- og byggingarnefnd telur að breytingin sé í samræmi við gildandi aðalskipulag Borgarbyggðar en ferli nýs deiliskipulags Galtarholts 3 staðið yfir í langan tíma og hefur verið unnið í samræmi við gildandi aðalskipulag. Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn fellst að hluta til á athugasemdir Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulag Galtarholts 3 í Borgarbyggð. Sveitarstjórn fellst ekki á þá athugasemd að bíða skuli með gildistöku deiliskipulagstillögunnar þar til endurskoðað aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 hefur tekið gildi af þeirri ástæðu að vinnsla deiliskipulagsins hefur staðið yfir í langan tíma og unnið í samræmi við gildandi aðalskipulag.



Samþykkt samhljóða





Til máls tók: DS

Fylgiskjöl


18. Aðalskipulag - Endurskoðun - Vinnslutími
2301075

Afgreiðsla 81. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja endurskoðað Aðalskipulag 2025-2037 skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til staðfestingar.

Skipulagsfulltrúa er falið að láta uppfæra gögnin í samræmi við umræður á fundi að undangengnu samráði við Skipulagsstofnun og leggja fyrir sveitarstjórn. Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir endurskoðað aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 skv. 32. gr. skipulagslaga 123/2010 til staðfestingar með þeim breytingum sem samþykktar voru á fundi skipulags- og byggingarnefndar sem gerðar voru eftir yfirferð Skipulagsstofnunar. Skrá yfir vegi í náttúru Íslands hefur verið samþykkt af sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


19. Brákarey Deiliskipulag
2504061

Afgreiðsla 81. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, leggur til við sveitarstjórn að samþykkja lýsingu til auglýsingar fyrir Brákarey skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir lýsingu til auglýsingar fyrir Brákarey skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


20. Krumshólapartur 2_Umsókn um deiliskipulag
2502294

Afgreiðsla 81. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum. Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


21. Urriðaá - breyting á deiliskipulagi
2509102

Afgreiðsla 81. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða deiliskipulagsbreytingu skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til athugasemdar sem barst á kynningartíma en breyta

ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnum athugasemdum. Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagða deiliskipulagsbreytingu skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


22. Hraunsás - umsókn um deiliskipulag - 204514
2411033

Afgreiðsla 81. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Hraunsás III í Borgarbyggð. Lagður er fram uppdráttur dags. 06.11.2025. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagða tillögu að deiliskipulagi til auglýsingar. Lagður er fram uppdráttur dags. 06.11.2025. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga 123/2010.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


23. Tímasetning næsta sveitarstjórnarfundar
2305084

Lögð fram tillaga um að næsti sveitarstjórnarfundur fari fram 15. janúar 2026.

Sveitarstjórn samþykkir að næsti reglulegi fundur sveitarstjórnar í janúar fari fram 15. janúar nk.





Samþykkt samhljóða



24. Kvörtun vegna stjórnsýslu_ IRN25100088
2511043

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 729:"Framlögð umsögn Borgarbyggðar til innviðaráðuneytisins vegna erindis sem ráðuneytinu barst vegna meintrar ólögmætrar stjórnsýslu. Guðveig Lind Eyglóardóttir og Kristján Rafn Sigurðsson fóru af fundi.



Framlögð drög að umsögn og sveitarstjóra falið að fullvinna og senda til ráðuneytisins."

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu byggðarráðs og umsögn sem send var til Innviðaráðuneytisins.



Samþykkt með 7 atkvæðum



Til máls tók: SG



GLE og EÓT viku af fundi undir umræðum og afgreiðslu á þessum lið.



Fylgiskjöl


25. Byggðarráð Borgarbyggðar - 727
2511021F

Fundargerð framlögð

25.1
2505064
Fjárhagsáætlun 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

Byggðarráð felur sveitarstjóra að leggja til breytingu á fjárfestingaráætlun sem felur í sér að framkvæmdum við stækkun íþróttahúss verði flýtt þannig að þeim verði lokið á árinu 2028. Áhrif þeirrar breytingar verði kynnt á næsta fundi byggðarráðs.Samþykkt samhljóða.

25.2
2510128
Erindi frá ON til ÚUA um álit á leyfisskyldu v styrkingar jarðvegsstíflu við Andakílsárvirkjun
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

Lagt fram til kynningar.

25.3
2511105
Áskoranir og hvatningar frá Sambandsþingi UMFÍ
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

Byggðarráð tekur undir áskoranir og hvatningar Sambandsþings. Þær fela í sér að efla lýðheilsu þjóðarinnar með þjóðarátaki og forvörnum með áherslu á að styrkja þátttöku og aðstöðu og að eiga samtal við íþróttahreyfinguna um starfsumhverfi hennar.Sveitarstjórn hefur samþykkt nýja íþróttastefnu fyrir Borgarbyggð og í samræmi við hana verður starfsumhverfið leiðarstef í samstarfi sveitarfélagsins við íþróttahreyfinguna. Þá er fjárfesting í íþróttamannvirkjum í öndvegi í fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins og nýtt fjölnota íþróttahús - knatthús verður tekið í notkun síðsumars 2026. Ný íþróttastefna er liður í mótun á lýðheilsustefnu fyrir Borgarbyggð. Byggðarráð vísar til seinni umræðu um fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026 að tryggja fjármögnun til að ljúka við að móta lýðheilsustefnu í góðu samráði við íbúa. Samþykkt samhljóða.

25.4
2503085
Umsagnarmál frá Alþingi 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

Framlagt.

25.5
2503085
Umsagnarmál frá Alþingi 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

Framlagt.

25.6
2503085
Umsagnarmál frá Alþingi 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

Framlagt.

25.7
2503101
Ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands fyrir árið 2024.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

25.8
2501012
Samband ísl. sveitarfélaga - fundargerðir 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

Framlagt.

25.9
2501012
Samband ísl. sveitarfélaga - fundargerðir 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

Framlagt.

25.10
2511127
Gjaldskrá og rekstraráætlun Sorpurðunar Vesturlands 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

Sorpurðun Vesturlands er öflugt og arðbært hlutafélag í eigu sveitarfélaga á Vesturlandi og er eignarhlutur Borgarbyggðar 23,5%. Sjóðstreymi frá rekstri er sterkt, félagið skuldlaust og býr að stærri sjóðstöðu en útlit er fyrir að rekstur og fjárfestingar kalli á. Ef ekki liggur fyrir ákvörðun um fjárfestingar í rekstrinum í samræmi við stefnu þá beinir byggðarráð því til stjórnar Sorpurðunar Vesturlands að skoða að greiða umfram eigið fé til eigenda og/eða móta stefnu í þá veruna.Samþykkt samhljóða.

25.11
2511064
Umræða um stöðu leiðar 81
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

Byggðarráð ítrekar þau sjónarmið sem fram koma í afgreiðslu síðasta sveitarstjórnarfundar. Þessi skilaboð eru áfall. Borgarbyggð hefur unnið ötullega að því að efla almenningssamgöngur m.a. með stuðningi úr byggðaáætlun og sífellt fleiri treysta á leið 81. Nú er allri þeirri vinnu stefnt í uppnám.Borgarbyggð er mjög víðfemt sveitarfélag sem orðið hefur til úr sameiningu 13 sveitarfélaga og íbúar og gestir treysta á samgöngur til að sækja nám, vinnu og þjónustu. Að skerða þjónustu og síðar leggja niður leið 81 setur stórt strik í reikning skóla, vinnustaða, íþrótta- og tómstundastarfs. Byggðarráð Borgarbyggðar beinir því til Vegagerðarinnar og stjórnvalda að ákvörðun verði endurskoðuð og tryggt verði nægt fjármagn til að viðhalda þjónustu á leið 81.Samþykkt samhljóða.

25.12
2511022
Beiðni um undirskriftasöfnun v. aðalskipulags
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

Byggðarráð felur sveitarstjóra að hafa samband við málsbeiðendur og boða þau á næsta fund byggðarráðs til að fara yfir stöðu málsins. Samþykkt samhljóða.

25.13
2511043
Kvörtun vegna stjórnsýslu_ IRN25100088
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

Framlagt og sveitarstjóra falið að taka saman gögn og umsögn í samræmi við beiðni innviðaráðuneytisins.Samþykkt samhljóða.Kristján Rafn Sigurðsson vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

25.14
2507033
Beiðni um skipan raflínunefndar vegna Holtavörðuheiðarlínu 1 - Beiðni um umsögn
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

Í svari ráðuneytisins kemur fram sú niðurstaða að fallast beri á beiðni Landsnets um skipan raflínunefndar fyrir Holtavörðuheiðarlínu 1.Beiðni um stofnun raflínunefndar hefur ítrekað verið tekin fyrir á fundum byggðarráðs, t.d. nr. 714, og sveitarstjórnar Borgarbyggðar nr. 260 og er afstaðan óbreytt: Byggðarráð ítrekar bókun sveitarstjórnar frá sveitarstjórnarfundi nr. 260: "Fyrirhuguð Holtavörðuheiðarlína 1 mun liggja um fjögur sveitarfélög. Enginn ágreiningur er uppi um þjóðhagslegt mikilvægi línunnar og mikilvægi hennar til að auka raforkuöryggi í landinu. Fyrir samfélagið í heild er því til mikils að vinna ef hægt er að auka skilvirkni skipulagsferlisins án þess að það bitni á gæðum skipulagsvinnunnar. Innan sveitarfélaga eru skiptar skoðanir um æskilegt línustæði og ekki loku fyrir það skotið að ágreiningur muni vakna milli sveitarfélaga sömuleiðis. Því er æskilegt að skapaður sé farvegur til að ávarpa og greiða úr slíkum ágreiningi og tryggja sameiginlegan skilning. Fulltrúar sveitarfélaga í nefndinni fylgja enda stefnu sinna sveitarfélaga og gæti hagsmuna þeirra. Ekki er komin reynsla á skipan raflínunefnda. Það er von sveitarstjórnar að ef til þess kemur muni nefndin verða til þess að styrkja samtal Landsnets, ráðuneytis og sveitarfélaga sem vega muni fyllilega upp á móti þeim breytta farvegi skipulagsferlisins. Skipan raflínunefndar felur í sér eftirgjöf skipulagsvalds. Þær breytingar sem gerðar hafa verið á raforkulögum síðustu ár hafa rýrt skipulagsvald sveitarfélaga gagnvart kerfisáætlun Landsnets. Sveitarstjórn Borgarbyggðar vekur athygli á því að línustæði Holtavörðuheiðarlínu hefur ekki endanlega verið ákveðið né staðfest og ekki lokið við samninga við landeigendur, auk þess hefur ekki verið til staðar ágreiningur milli sveitarfélaga, sem fyrirhuguð lína kemur til með að fara í gegnum eða milli sveitarfélaga og Landsnets. Af þeim ástæðum telur Sveitarstjórn Borgarbyggðar ekki tímabært að skipa raflínunefnd að svo stöddu."Samþykkt samhljóða.

25.15
2511131
Viljayfirlýsing um stóraukna loftslagsvæna atvinnustarfsemi á Grundartanga
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

Byggðarráð fagnar áformum um stóraukna uppbyggingu loftslagsvænnar starfsemi á Grundartanga. Mikil tækifæri eru til uppbyggingar á Grundartanga. Það er ánægjulegt að sjá mikla undirbúningsvinnu Þróunarfélags Grundartanga og samstarfsaðila bera ávöxt. Þessi áform geta haft veruleg áhrif á samfélagið í Borgarbyggð. Uppbygging á Grundartanga hvetur til fjölgunar íbúa í Borgarbyggð, leiðir beint og óbeint af sér fjölgun starfa og eykur fjölbreytni í atvinnulífi. Uppbygging á Grundartanga undirstrikar mikilvægi uppbyggingar innviða og þjónustu í Borgarbyggð.

25.16
2511133
Bílastæði við Kaupfélag Borgfirðinga
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

Staða málsins kynnt fyrir byggðarráði. Í samræmi við efni viljayfirlýsingar þarf að ljúka við samningsgerð við kaupfélagið.

25.17
2507197
Tilkynning um kæru nr. 122-2025, íbúðabyggð á Varmalandi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 727

Framlagður úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 122/2025. Byggðarráð leggur til við skipulags- og byggingarnefnd að auglýsa deiliskipulag fyrir íbúðabyggð á Varmalandi að nýju. Samþykkt samhljóða.



26. Byggðarráð Borgarbyggðar - 728
2511027F

Fundargerð framlögð

26.1
2505064
Fjárhagsáætlun 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 728

Farið yfir vinnu við rekstraráætlun og fjárfestingaráætlun. Rædd fjárfestingaráætlun slökkviliðs og íþróttamannvirkja. Farið yfir liði í rekstraráætlun grunnskóla, íþróttamannvirkja og fjármagnskostnaði. Kynnt drög að mati á áhrifum þess að ljúka framkvæmd við nýtt íþróttahús árið 2028 í stað 2029.Heiðar Örn Jónsson sat fundinn meðan fjárfestingaráætlun slökkviliðs var til umræðu.Eiríkur Ólafsson fór af fundi.

26.2
2503097
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Vesturlands 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 728

Framlagt.

26.3
2504239
Fundargerðir Faxaflóahafna sf - 2025.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 728

Fundargerðir framlagðar.

26.4
2511043
Kvörtun vegna stjórnsýslu_ IRN25100088
Byggðarráð Borgarbyggðar - 728

Framlögð drög að umsögn og sveitarstjóra falið að fullvinna og senda til ráðuneytisins.

26.5
2511022
Beiðni um undirskriftasöfnun v. aðalskipulags
Byggðarráð Borgarbyggðar - 728

Byggðarráð þakkar gestunum fyrir þeirra innlegg á fundinum og gagnleg skoðanaskipti um málið. Byggðarráð áréttar að byggðarráð og gestir voru sammála um að í ljósi þeirra álitaefna sem rædd voru á fundinum muni ákvörðun um hvort undirskriftasöfnun hefjist þurfa lengri tíma en þá 28 daga sem mælt er fyrir um í reglugerð nr. 155/2013 um undirskriftasafnanir vegna almennra atkvæðagreiðslna samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Byggðarráð telur vera tilefni til að árétta að í samantekt athugasemda við auglýsta tillögu að aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 koma fram viðbrögð sveitarstjórnar við öllum umsögnum. Þar er m.a. ítrekað að engin vindorkuver eru heimiluð í aðalskipulagi Borgarbyggðar. Byggðarráð felur sveitarstjóra að senda nánari skýringar og leiðbeiningar til ábyrgðarmanna undirskriftasöfnunarinnar. Afgreiðslu málsins er frestað þar til frekari afstaða berst frá ábyrgðarmönnum undirskriftasöfnunar en lagt er upp með að afgreiða erindið á sveitarstjórnarfundi 11. desember nk. Samþykkt samhljóða.

26.6
2409322
UMSB - samstarfssamningur
Byggðarráð Borgarbyggðar - 728

Byggðarráð vísar drögum að samstarfssamningi við UMSB til umsagnar í fræðslunefnd og leggur fyrir sitt leyti til við sveitarstjórn að samþykkja framlögð drög að samningi og felur sveitarstjóra að gera ráð fyrir fjárhagslegum áhrifum samningsins í fjárhagsáætlun 2026-2029.Samþykkt samhljóða.

26.7
2409048
Vegurinn að Bjargi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 728

Framlagt og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræðu á fundi.Samþykkt samhljóða.

26.8
2303023
Samræmd móttaka flóttafólks
Byggðarráð Borgarbyggðar - 728

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja III. viðauka við þjónustusamning um samræmda móttöku flóttafólks sem felur í sér lækkun á heildarfjölda samnings úr 180 einstaklingum í 140. Með þessari breytingu er dregið úr líkum á fjölgun flóttafólks umfram getu sveitarfélagsins og tryggt að eins miklu leyti og hægt er að fjármagn fylgi þeim sem kunna að flytjast á eigin vegum í sveitarfélagið. Það er jafnframt nauðsynlegt að í öllum samskiptum vegna þessa máls sé vakin athygli og leitað lausna á þessari þungu stöðu sem Borgarbyggð er í vegna fjárhagsaðstoðar. Samhliða samþykkt verði óskað eftir frekari aðgerðum af hálfu ráðuneyta og stofnana ríkisins til að leysa málið og leiðrétta fjárhagsleg áhrif sem sveitarfélagið hefur orðið fyrir.Samþykkt samhljóða.

26.9
2510200
Gjaldskrár 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 728

Framlagðar gjaldskrár fjölskyldsviðs, Hjálmakletts, slökkviliðs, Ljósleiðara og safnahúss. Jafnframt lögð fram tillaga að óbreyttu álagningarhlutfalli fasteignaskatts og lóðarleigu á milli ára.Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.

26.10
2511296
Erindi frá Golfklúbbi Borgarness um uppbyggingu klúbbhúss
Byggðarráð Borgarbyggðar - 728

Í samræmi við fyrri ákvarðanir byggðarráðs þá er lagt til að lokið verði við sölu á Hamarsbænum og við þá sölu skapast svigrúm til að ráðstafa fjármagni til uppbyggingar aðstöðu fyrir kylfinga að Hamri. Byggðarráð leggur til að fjárfestingaráætlun 2026-2029 verði uppfærð með hliðsjón af því.Samþykkt samhljóða.

26.11
2511138
Leigusamningur um land fyrir golfvöll að Hamri
Byggðarráð Borgarbyggðar - 728

Framlagt og sveitarstjóra falið að óska eftir fundi forsvarsmanna Golfklúbbsins með byggðarráði.Samþykkt samhljóða.

26.12
2303105
Fjölnota íþróttahús - Knatthús
Byggðarráð Borgarbyggðar - 728

Byggðarráð leggur til við byggingarnefnd að gera ráð fyrir kaupum á lausum búnaði en að fallið verði frá tillögu að kaupum að tjöldum eða litabreytingum á hlaupabraut. Byggðarráð felur sveitarstjóra að gera ráð fyrir í fjárfestingaráætlun 2026.Samþykkt samhljóða.Thelma Harðardóttir fór af fundi.



27. Byggðarráð Borgarbyggðar - 729
2511037F

Fundargerð framlögð

27.1
2505064
Fjárhagsáætlun 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 729

Farið var yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið á fjárhagsáætlun og fjárfestingaáætlun í vinnu byggðarráðs og fastanefnda á milli umræðna. Byggðarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun vegna ársins 2026 og fjárfestingarramma 2026-2029 til seinni umræðu í sveitarstjórn. Samþykkt samhljóða.

27.2
1912083
Samstarf um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Bjargslandi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 729

Byggðarráð felur sveitarstjóra að rýna reglur um úthlutun lóða, gjaldskrá gatnagerðargjalda og lóðarleigusamninga í tengslum við fyrirkomulag á úthlutun lóða í Bjargslandi II og gera tillögu að breytingu til sveitarstjórnar ef tilefni er til.Samþykkt samhljóða.Brynja Þorsteinsdóttir fór af fundi að afloknum þessum dagskrárlið.

27.3
2512017
Beiðni um niðurfellingu byggingarleyfisgjalda
Byggðarráð Borgarbyggðar - 729

Byggðarráð telur sér ekki fært að fella niður byggingarleyfisgjald enda ekki heimilt samkvæmt gjaldskrá byggingarleyfisgjalda. Sveitarstjóra falið að hafa samband við málsaðila.Samþykkt samhljóða.Sæmundur Óskarsson fór af fundi.

27.4
2512016
Beiðni um rekstrarstyrk 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 729

Ekki er gert ráð fyrir sérstökum rekstrarstyrk til Golfklúbbs Borgarness í drögum að fjárhagsáætlun 2026 og er erindinu því hafnað. Byggðarráð er hins vegar reiðubúið til samstarfs við klúbbinn um umhirðu íþróttasvæða í tengslum við breytingu á samstarfssamningi við UMSB.Samþykkt samhljóða.

27.5
2512012
Tilnefning frá byggðarráði til heiðurslauna listamanna
Byggðarráð Borgarbyggðar - 729

Byggðarráð Borgarbyggðar tilnefnir Pál Guðmundsson frá Húsafelli til heiðurslauna listamanna.Páll fæddist árið 1959 á Húsafelli. Hann lauk námi frá málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1981 og nam höggmyndalist við Listaháskólann í Köln 1985-86.Páll ólst upp að Húsafelli, þar sem sem mætast skógur og hraun, lindár og jökulár, heimur trölla, huldufólks, dýra og manna. Páll flutti heim þegar námi lauk og hefur alla tíð síðan stundað list sína frá Húsafelli. Páll er fjölhæfur listamaður og hefur t.d. fengist við myndlist, höggmyndalist og hljóðfærasmíði.Í samtals 45 ár hefur Páll hefur haldið fjölda einkasýninga og samsýninga með öðrum listamönnum og hann hefur verið viðfangsefni bóka og heimildarmynda. Liðlega 20 höggmyndir eftir Pál prýða garða og torg víða um heim og auk fjölda höggmynda í náttúrunni við Húsafell og nágrenni. Páll er einn merkasti listamaður Íslands, einstakur og verk hans auðþekkjanleg. Þau eru órjúfanlega tengd íslenskri náttúru og sögulegri arfleifð. Þau endurspegla mikla virðingu fyrir landinu og djúpa næmni fyrir svipmyndum fólks og náttúru. Verk hans prýða almenningsrými, kirkjur, tónlistarhús og heimili. Verk hans eru hluti af sjálfsmynd þjóðarinnar og vefa saman sögu, nátttúru og mannlíf. Verk Páls eru heimur út af fyrir sig. Þannig er steinharpa Páls sjálfstæður hljóðheimur og dæmi um einstæða sköpunargáfu. Hún er listaverk og hljóðfæri sem getið hefur af sér samstarf við fremsta tónlistarfólk heims.Þó verk Páls prýði söfn og torg víða um heim og hann sé öðrum íslenskum og alþjóðlegum listamönnum innblástur þá er Páll hógvær sveitamaður og náttúrubarn. Páll er framúrskarandi frumkvöðull í listsköpun. Hann er fyrirmynd og innblástur sem á rætur sínar í landinu, sögunni og jörðinni.Páll Guðmundsson á Húsafelli er verðugur heiðurslauna listamanna.

27.6
2512018
Krafa vegna verklauna
Byggðarráð Borgarbyggðar - 729

Framlagt og felur byggarráð LEX lögmannsstofu að gæta hagsmuna sveitarfélagsins í málinu.Samþykkt samhljóða.

27.7
2511022
Beiðni um undirskriftasöfnun v. aðalskipulags
Byggðarráð Borgarbyggðar - 729

Byggðarráð hefur móttekið erindi frá Sól til framtíðar, sem sent er í framhaldi af umfjöllun á fundi samtakanna með byggðarráði þann 27. nóvember sl. Var meðal annars rætt á þeim fundi að mögulegt væri að taka út skýringakort sem ber heitið „Takmarkanir vegna vindorku 1 og 2 í því skyni að koma til móts við sjónarmið samtakanna þar sem þau töldu að kortið væri villandi þar sem ekki stæði til að nýta vindorku á skipulagstímanum. Byggðarráð bauðst til þess þar sem kortið er einungs til upplýsinga sbr. kafla 5.1 í forsenda og umhverfismatsskýrslu. Í erindinu sem barst 4. desember frá samtökunum hafna þau boði sveitarfélagsins og árétta þá afstöðu samtakanna að fram fari íbúakosning að undangenginni undirskriftasöfnunar vegna vindorkuumfjöllunar í aðalskipulagi fyrir Borgarbyggð 2025-2037. Byggðarráð telur erindi Sólar til framtíðar afmarka skýrt að gerð er krafa um að fram fari undirskrifasöfnun í þeim tilgangi að umfjöllun um vindorkunýtingu verði tekin út úr greinargerð með aðalskipulagi 2025-2037.Byggðarráð telur vera þann annmarka á erindi Sólar til framtíðar að sveitarfélaginu er skylt á grundvelli 10. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að fjalla í aðalskipulagi um áherslur þingsályktun um landsskipulagsstefnu 2024-2038. Í áherslum C.2 og C.3 í gildandi landsskipulagsstefnu er skýrt kveðið á um að skipulag skuli fela í sér stefnu um nýtingu vindorkuvera í sátt við umhverfi og samfélag.Byggðarráð telur einnig að sjónarmið samtakanna Sólar til framtíðar séu samhljóma þeirri stefnu sem fram kemur í aðalskipulaginu 2025-2037 þar sem engin vindorkuver eru heimiluð á skipulagstímanum. En m.a. kemur fram á bls 14 í forsenda og umhverfismatsskýrslu aðalskipulagsins “Unnin var stefnumótun fyrir vindorku í sveitarfélaginu og er megin niðurstaða hennar að í aðalskipulagi skuli engin svæði afmörkuð fyrir vindorkuver. Sveitarfélagið mun taka ákvarðanir um vindorkuver þegar þau hafa verið sett í nýtingarflokk rammaáætlunar.“Samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 155/2013 um undirskriftasafnanir vegna almennra atkvæðagreiðslna samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal sveitarstjórn meta hvort ákvæði 3. mgr. 108. gr. sveitarstjórnarlaga hamli því að unnt sé að krefjast almennrar atkvæðagreiðslu um málið og tilkynna ábyrgðaraðila um niðurstöðu sína. Í því tilviki sem hér er til umfjöllunar er það álit byggðarráðs að ekki séu forsendur til þess að hefja undirskriftasöfnun í þeim tilgangi að umfjöllun um vindorkunýtingu verði fjarlægð úr samþykktu aðalskipulagi fyrir Borgarbyggð 2025-2037.í ljósi þess leggur byggðarráð til við sveitarstjórn að hafna beiðni Sólar til framtíðar um að safna undirskriftum í því skyni að fá umfjöllun um vindorkunýtingu fellda út úr greinargerð með aðalskipulagi sveitarfélagsins 2025-2037 sbr. 3. mgr. 108 gr. sveitarstjórnarlaga. Unnt er að kæra þá ákvörðun sveitarstjórnar til innviðaráðuneytisins, sbr. 111. gr. sveitarstjórnarlaga.Samþykkt samhljóða.

27.8
2508106
Umsókn um stofnframlag frá Nemendagörðum búvísindadeildar LBHÍ
Byggðarráð Borgarbyggðar - 729

Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að svara erindi Nemendagarða Búvísindeildar LBHÍ með þeim hætti sem lagt er til.Samþykkt samhljóða.

27.9
2502016
Viðauki við fjárhagsáætlun 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 729

Framlagður viðauki VI við fjárhagsáætlun og framkvæmdaáætlun 2026. Í honum felst að áætlun um launakostnað grunnskóla er hækkuð um 30 m.kr. sem skiptist þannig að áætlun fyrir Grunnskólann í Borgarnesi hækkar um 17,4 m.kr. og um 12,6 m.kr. fyrir Grunnskóla Borgarfjarðar. Á móti eru óreglulegir liðir færðir niður um 30 m.kr. Þá er áætlaður kostnaður vegna sameiningarmála að fjárhæð 35 m.kr. Á móti þeim kostnaði eru áætlað framlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um 35 m.kr. Að auki er áætlaður kostnaður vegna kærumála í kjölfar kosninga að fjárhæð 5,3 m.kr. Sveitarfélagið væntir þess að sú fjárhæð fáist endurgreidd frá Jöfnunarsjóði. Í framkvæmda- og fjárfestingaráætlun er áætluð hækkun að fjárhæð 23,4 m.kr. vegna búnaðarkaupa annars vegar í leikskólann Klettaborg að fjárhæð 5,4 m.kr. og hins vegar GBF á Kleppjárnsreykjum að fjárhæð 18,0 m.kr.Samanlögð áhrif viðaukans leiða til lækkunar á handbæru fé í sjóðstreymisáætlun að fjárhæð 28,7 m.kr.Því miður sér ekki fyrir endann á ráðgjafarkostnaði vegna kærumála er varðar fyrirhugaða sameiningu við Skorradalshrepp en málið er enn í farvegi hjá Innviðaráðuneytinu og bíður Borgarbyggð niðurstöðu þess. Þessi kærumeðferð og töf á afgreiðslu ráðuneytisins hefur leitt til þess að vinna við að ljúka við sameiningu sveitarfélaganna hefur ekki náð að hefjast. Byggðarráð harmar að málið sé enn í þessum farvegi, það veldur kostnaði og gerir það að verkum að nýskipuð undirbúningsstjórn um sameiningu sveitarfélaganna getur ekki hafið störf.Samþykkt samhljóða og vísað til staðfestingar í sveitarstjórn.

27.10
2509057
Ósk um endurskoðun skólaaksturs í Lundarreykjadal og Bæjarsveit
Byggðarráð Borgarbyggðar - 729

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða tillögu að breytingu á skólaakstursleiðinni um Lundarreykjadal og Bæjarsveit í tvær leiðir. Breytingin mun stuðla að því að akstursleið barna sem um lengstan veg þurfa að fara mun styttast verulega.Samþykkt samhljóða.Hlöðver Ingi Gunnarsson fór af fundi.

27.11
2510200
Gjaldskrár 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 729

Framlagðar til umræðu í byggðarráði gjaldskrár skipulags- og umhverfissviðs. Byggðarráð samþykkir að vísa tillögum að gjaldskrám til samþykktar í sveitarstjórn að teknu tilliti til breytinga á tillögu að gjaldskrá skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa sem ákveðnar voru á fundinum.Samþykkt samhljóða.

27.12
2412005
Brákarey-Skipulagsmál
Byggðarráð Borgarbyggðar - 729

Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga til samningaviðræðna við PWC í samræmi við verkefnatillögu og leggja fram samning til staðfestingar í sveitarstjórn enda rúmast verkefnið innan fjárheimilda. Fjárhæðir eru undir viðmiðum sbr. 12. gr. innkaupastefnu Borgarbyggðar. Samþykkt samhljóða.

27.13
2511138
Leigusamningur um land fyrir golfvöll að Hamri
Byggðarráð Borgarbyggðar - 729

Til fundarins komu undir þessum dagskrárlið Bjarki Pétursson framkvæmdastjóri GB og Þorkell Einarsson formaður og ræddu drög að endurnýjuðum samningi. Byggðarráð tekur undir mikilvægi þess að endurnýja samning um leigu á landi við Hamar undir starfsemi Golfklúbbs Borgarness. Byggðarráð felur sveitarstjóra að láta hnitsetja landið sem heyrir undir núverandi samning og taka í framhaldinu upp samtalið á nýjan leik.Samþykkt samhljóða.

27.14
2104092
Grunnskóli Borgarfjarðar- Kleppjárnsreykjadeild - framkvæmdir á skólahúsnæði
Byggðarráð Borgarbyggðar - 729

Nú líður að lokum framkvæmda við endurbyggingu hluta húsnæðis GBF á Kleppjárnsreykjum og lokafrágangur stendur yfir. Farið yfir stöðuna. Ekkert virðist því til fyrirstöðu að skólahald geti hafist í nýbyggingunni strax á nýju ári.

27.15
2511072
Vatnsrennibraut við sundlaug í Borgarnesi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 729

Þörf er á endurnýjun rennibrauta við sundlaugina í Borgarnesi. Lögð fram tillaga að tveimur valkostum. Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að láta fara fram útboð eða verðfyrirspurn á afhendingu og uppsetningu endurnýjaðrar rennibrautar í sambærilegri mynd og hún er í dag. Samþykkt samhljóða.

27.16
1810002
Félagslegt leiguhúsnæði
Byggðarráð Borgarbyggðar - 729

Byggðarráð samþykkir þá tillögu sem lögð er fram í minnisblaði að stefna skuli að sölu á hluta þess félagslega leiguhúsnæðis sem er í eigu sveitarfélagsins. Samhliða sölunni tryggi sveitarfélagið leiguhúsnæði fyrir skjólstæðinga í samstarfi við húsnæðissjálfseignarstofnanir (óhagnaðardrifin leigufélög). Byggðarráð felur sveitarstjóra að halda áfram samtali við óhagnaðardrifin leigufélög með það að markmiði að tryggja leigutökum í félagslegu húsnæði hagstæðari búsetu í nýju og væntanlegu húsnæði í Borgarbyggð. Sveitarstjóra falið að vinna stefnu um félagslegt leiguhúsnæði og leggja fyrir sveitarstjórn í janúar.Markmiðið er að tryggja leigutökum hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar húsnæði sem fellur betur að þörfum þeirra. Drög að framkvæmdaramma 2026-2029 gerir ráð fyrir húsnæðisframlagi af hálfu sveitarfélagsins í verkefni að þessum toga.Samþykkt samhljóða.



28. Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 247
2511013F

Fundargerð framlögð



SÓ tók til máls um lið 7 og 5

EÓ tók til máls undir lið 7

28.1
2511137
Ársskýrslur fyrir leik- og grunnskóla 2025
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 247

Lagt fram til kynningar. Ársskýrslur fyrir leik- og grunnskóla má nálgast á heimasíðum skólanna.

28.2
2506057
Fundargerðir ungmennaráðs 2025
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 247

28.3
2506233
Steam Borgarbyggð
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 247

Farið yfir stöðuna varðandi STEAM Borgarbyggð. Signý Óskarsdóttir er verkefnastjóri STEAM Borgarbyggð. Búið er að funda með forstöðumönnum í Borgarbyggð og fara yfir verkáætlun. Unnið er að þarfagreiningu með forstöðumönnum. Fræðslunefnd fagnar því að STEAM Borgarbyggð er komið af stað.

28.4
2506320
Snemmtæk íhlutun með áherslu á málþroska og læsi- leikskólar
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 247

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnir verkefnið Snemmtæk íhlutun með áherslu á málþroska og læsi. Leikskólar Borgarbyggðar eru allir þátttakendur í verkefninu. Ítarlegri umfjöllun má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins.

28.5
2511139
Verklagsreglur leikskóla í Borgarbyggð 2025
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 247

Umræður um verklagsreglurnar. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs falið að fullvinna tillögu fyrir næsta fund fræðslunefndar.Samþykkt samhljóða.

28.6
2509087
Útboð á skóla- og tómstundaakstri fyrir skólaárið 2026-2027
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 247

Lagt fram til kynningar.

28.7
2511136
Húsnæði frístundar á Hvanneyri.
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 247

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir minnisblað. Sviðsstjóra falið að kostnaðarmeta hugmyndina og kynna á næsta fundi. Samþykkt samhljóða.

28.8
2510108
Samþætting frístundar og íþróttastarfs
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 247

Lagt fram til kynningar. Fræðslunefnd leggur til að vísa málinu inn í Byggðarráð.

28.9
2502286
Íþróttastefna Borgarbyggðar
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 247

Frestað til næsta fundar.

28.10
2510259
Úthlutun úr Námsgagnasjóði 2025
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 247



29. Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 248
2512003F

Fundargerð framlögð

29.1
2503277
Skólapúls
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 248

Lagt fram til kynningar.

29.2
2511139
Verklagsreglur leikskóla í Borgarbyggð 2025
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 248

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir minnisblað. Lagt til að breyta verklagsreglum varðandi vegalengd frá leikskóla og einnig gerðar smá breytingar á reglum til að bregðast við manneklu.Fræðslunefnd leggur til að liður í gjaldskrá um skráningardaga taki gildi frá og með 1.ágúst 2026.Samþykkt samhljóða.

29.3
2510108
Samþætting frístundar og íþróttastarfs
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 248

Lagt fram til kynningar.Nú er unnið að því að stofna stýrihóp fyrir verkefnið frá desember 2025 til loka júní 2026. Búið er að halda kynningu fyrir helstu hagaðilum um verkefnið. Fræðslunefnd leggur til að í stýrihópnum verði tveir fulltrúar frá grunnskólum, forstöðumaður frístundar, íþrótta- og tómstundafulltrúi og sviðsstjóri fjölskyldusviðs fyrir hönd Borgarbyggðar. Þá leggur fræðslunefnd til að UMSB og íþróttafélögin komi sér saman um tvo fulltrúa.Samþykkt samhljóða.

29.4
2409322
UMSB - samstarfssamningur
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 248

Íþrótta- og tómstundafulltrúi kemur til fundarins og fer yfir drög að samningi við UMSB.Fræðslunefnd leggur áherslu á að í samninginn komi fram ákvæði um:að Borgarbyggð sé þátttakandi í ráðningu á nýjum starfsmanni UMSB út frá fyrirliggjandi samningi og að það sé ávallt 100% starf.Samþykkt samhljóða.

29.5
2512024
Starfsáætlun íþróttamiðstöðvar
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 248

Lagt fram til kynningar.

29.6
2512026
Lýðheilsustefna Borgarbyggðar
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 248

Lagt er til að stofnaður verði sérstakur stýrihópur sem mótar stefnuna ásamt því að samræma fylgja eftir verkefnum sem snúa að lýðheilsu og umhverfi. Hópurinn verði skipaður sveitarstjóra, fulltrúa af skipulagssviði, íþrótta- og tómstundarfulltrúa. Hópurinn kallar aðra hagaðila eftir þörfum.Gert er ráðfyrir að hópurinn hefji störf í janúar 2026.Samþykkt samhljóða.

29.7
2512025
Vallarstjóri
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 248

Sviðsstjóra fjölskyldu sviðs falið að vinna málið áfram.Samþykkt samhljóða.



30. Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81
2511036F

Fundargerð framlögð

30.1
2512022
Breyting á deiliskipulagi - Íþróttasvæðið í Borgarnesi
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81

Skipulags- og byggingarnefnd heimilar skipulagsfulltrúa að láta vinna breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis í Borgarbyggð.Samþykkt samhljóða.

30.2
2301075
Aðalskipulag - Endurskoðun - Vinnslutími
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja endurskoðað Aðalskipulag 2025-2037 skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til staðfestingar.Skipulagsfulltrúa er falið að láta uppfæra gögnin í samræmi við umræður á fundi að undangengnu samráði við Skipulagsstofnun og leggja fyrir sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.

30.3
2512014
Vegir í náttúru Íslands
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja tillögu sveitarfélagsins um kortlagningu vega í náttúru Íslands, með fyrirvara um samþykki Náttúruverndarstofnunar.Samþykkt samhljóða.

30.4
2512015
Umsókn um styrk úr skipulagssjóði
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að sækja um styrk í skipulagssjóð og vísar til endanlegrar afgreiðslu hjá sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.

30.5
2512049
Breyttur fundartími Skipulags- og byggingarnefndar
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir breyttan fundartíma næsta fundar nefndarinnar.Samþykkt samhljóða.

30.6
2511017F
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 253
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81

30.7
2511015F
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 65
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81

30.8
2511031F
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 66
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81

30.9
2511085
Umsókn um deiliskipulag
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81

Skipulags- og byggingarnefnd ítrekar fyrri bókun nefndarinnar varðandi deiliskipulag Niðurskóga frá fundi nr. 56 þann 04.09.2023 þar sem kom fram: "Skipulags- og byggingarnefnd fer þess á leit við landeiganda að ekki verði gerðar frekari breytingar á deiliskipulagi fyrir Niðurskóga í landi Húsafells III, heldur verði deiliskipulagið endurskoðað í heild." Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn sveitarstjórnar, heimilar að gerð verði breyting á deiliskipulagi í samræmi við breytingar sem gerðar hafa verið fyrir lóðirnar Hraunbrekkur 33 og 34. Áfram verður ekki heimilað að byggja bílskúr á lóðunum.Samþykkt samhljóða.

30.10
2411033
Hraunsás - umsókn um deiliskipulag - 204514
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Hraunsás III í Borgarbyggð. Lagður er fram uppdráttur dags. 06.11.2025. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða.

30.11
2509102
Umsókn um deiliskipulag
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða deiliskipulagsbreytingu skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til athugasemdar sem barst á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnum athugasemdum.Samþykkt samhljóða.

30.12
2302212
Galtarholt 3 L135043 - Deiliskipulag
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að fallast að hluta á athugasemdir Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulag Galtarholts 3. Skipulags- og byggingarnefnd telur að breytingin sé í samræmi við gildandi aðalskipulag Borgarbyggðar en ferli nýs deiliskipulags Galtarholts 3 staðið yfir í langan tíma og hefur verið unnið í samræmi við gildandi aðalskipulag.Samþykkt samhljóða.

30.13
2502294
Krumshólapartur 2_Umsókn um deiliskipulag
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.Samþykkt samhljóða.

30.14
2504061
Brákarey Deiliskipulag
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, leggur til við sveitarstjórn að samþykkja lýsingu til auglýsingar fyrir Brákarey skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010.Samþykkt samhljóða.

30.15
2507197
Tilkynning um kæru nr. 122-2025, íbúðabyggð á Varmalandi
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að gera breytingar á tillögu deiliskipulags íbúðarbyggðar á Varmalandi í samræmi við niðurstöðu Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi til auglýsingar.Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða.

30.16
2504020
Syðstu-Fossar - umsókn um framkvæmdarleyfi - 133909
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 81

Skipulags- og byggingarnefnd telur að ekki sé hægt að draga aðra ályktun en að framkomin gögn hafi verið misvísandi eins og fram hefur komið í athugasemdum við grenndarkynningu og fer nefndin því fram á að framkvæmdaraðili sendi inn uppfærð gögn og málið grenndarkynnt að nýju. Samþykkt samhljóða.



31. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 83
2511033F

Fundargerð framlögð





SG tók til máls undir lið 5

DS tók til máls undir lið 4

SÓ tók til máls undir lið 5 og 4

EÓT tók til máls undir lið 5

SÓ tók til máls undir lið 5

TDH tók til máls undir lið 1

SÓ tók til máls undir lið 1



32. Fjallskilanefnd Oddsstaðaréttar - 55
2511004F

Fundargerð framlögð



33. Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 92
2511028F

Fundargerð framlögð



34. Fjallskilanefnd Þverárréttar - 76
2512006F

Fundargerð framlögð





DS tók til máls um lið 1

SÓ tók til máls um lið 1

TDH tók til máls um lið 1

DS tók til máls um lið 1



Fundi slitið - kl. 18:25