Fundargerð
Fræðslunefnd Borgarbyggðar
248. fundur
9. desember 2025 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Starfsmenn
Á fundinum voru áheyrnafulltrúar fyrir grunnskóla Helga Jensína Svavarsdóttir fyrir skólastjórnendur og Birna Hlín Guðjónsdóttir fyrir kennara. Áheyrnafulltrúrar fyrir leikskóla voru Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir fyrir skólastjórnendur á leikskólum og Dröfn Traustadóttir sem fulltrúi starfsfólks á leikskólum. Fulltrúar grunnskóla sátu undir dagskráliðum 1 og 2. Fulltrúar leikskóla sátu undir dagskráliðum 1 og 3.
Dagskrá
1. Skólapúls
2. Nemendagrunnur
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu vinnur nú að innleiðingu á Nemendagrunni. Nemendagrunnur er miðlægur gagnagrunnur sem heldur utan um samræmda skráningu barna á skólaskyldualdri í grunnskóla fyrir landið allt. Markmiðið er að tryggja að réttar upplýsingar fylgi hverju barni í gegnum alla skólagöngu þess frá leikskóla til framhaldsskóla og áfram í nám og þjálfun.
óskað eftir því að sveitarfélögin samþykki öll sem eitt sameiginlegt tímabil fyrir innritun og umsóknir í grunnskóla vorið 2026.
3. Verklagsreglur leikskóla í Borgarbyggð 2025
Fræðslunefnd leggur til að liður í gjaldskrá um skráningardaga taki gildi frá og með 1.ágúst 2026.
Samþykkt samhljóða.
4. Samþætting frístundar og íþróttastarfs
Nú er unnið að því að stofna stýrihóp fyrir verkefnið frá desember 2025 til loka júní 2026.
Búið er að halda kynningu fyrir helstu hagaðilum um verkefnið.
Fræðslunefnd leggur til að í stýrihópnum verði tveir fulltrúar frá grunnskólum, forstöðumaður frístundar, íþrótta- og tómstundafulltrúi og sviðsstjóri fjölskyldusviðs fyrir hönd Borgarbyggðar. Þá leggur fræðslunefnd til að UMSB og íþróttafélögin komi sér saman um tvo fulltrúa.
Samþykkt samhljóða.
5. UMSB - samstarfssamningur
Fræðslunefnd leggur áherslu á að í samninginn komi fram ákvæði um:
að Borgarbyggð sé þátttakandi í ráðningu á nýjum starfsmanni UMSB út frá fyrirliggjandi samningi og að það sé ávallt 100% starf.
Samþykkt samhljóða.
6. Starfsáætlun íþróttamiðstöðvar
7. Lýðheilsustefna Borgarbyggðar
Gert er ráðfyrir að hópurinn hefji störf í janúar 2026.
Samþykkt samhljóða.
8. Vallarstjóri
Samþykkt samhljóða.