Fundargerð
Byggðarráð Borgarbyggðar
729. fundur
4. desember 2025 kl. 08:15 - 14:05
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Starfsmenn
Dagskrá
1. Fjárhagsáætlun 2026
Samþykkt samhljóða.
2. Viðauki við fjárhagsáætlun 2025
Þá er áætlaður kostnaður vegna sameiningarmála að fjárhæð 35 m.kr. Á móti þeim kostnaði eru áætlað framlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um 35 m.kr. Að auki er áætlaður kostnaður vegna kærumála í kjölfar kosninga að fjárhæð 5,3 m.kr. Sveitarfélagið væntir þess að sú fjárhæð fáist endurgreidd frá Jöfnunarsjóði.
Í framkvæmda- og fjárfestingaráætlun er áætluð hækkun að fjárhæð 23,4 m.kr. vegna búnaðarkaupa annars vegar í leikskólann Klettaborg að fjárhæð 5,4 m.kr. og hins vegar GBF á Kleppjárnsreykjum að fjárhæð 18,0 m.kr.
Samanlögð áhrif viðaukans leiða til lækkunar á handbæru fé í sjóðstreymisáætlun að fjárhæð 28,7 m.kr.
Því miður sér ekki fyrir endann á ráðgjafarkostnaði vegna kærumála er varðar fyrirhugaða sameiningu við Skorradalshrepp en málið er enn í farvegi hjá Innviðaráðuneytinu og bíður Borgarbyggð niðurstöðu þess. Þessi kærumeðferð og töf á afgreiðslu ráðuneytisins hefur leitt til þess að vinna við að ljúka við sameiningu sveitarfélaganna hefur ekki náð að hefjast. Byggðarráð harmar að málið sé enn í þessum farvegi, það veldur kostnaði og gerir það að verkum að nýskipuð undirbúningsstjórn um sameiningu sveitarfélaganna getur ekki hafið störf.
Samþykkt samhljóða og vísað til staðfestingar í sveitarstjórn.
3. Ósk um endurskoðun skólaaksturs í Lundarreykjadal og Bæjarsveit
Lagt fram minnisblað.
Samþykkt samhljóða.
Hlöðver Ingi Gunnarsson fór af fundi.
4. Gjaldskrár 2026
Samþykkt samhljóða.
5. Brákarey-Skipulagsmál
Samþykkt samhljóða.
6. Leigusamningur um land fyrir golfvöll að Hamri
Samþykkt samhljóða.
7. Grunnskóli Borgarfjarðar- Kleppjárnsreykjadeild - framkvæmdir á skólahúsnæði
Ekkert virðist því til fyrirstöðu að skólahald geti hafist í nýbyggingunni strax á nýju ári.
8. Vatnsrennibraut við sundlaug í Borgarnesi
Samþykkt samhljóða.
9. Félagslegt leiguhúsnæði
Markmiðið er að tryggja leigutökum hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar húsnæði sem fellur betur að þörfum þeirra. Drög að framkvæmdaramma 2026-2029 gerir ráð fyrir húsnæðisframlagi af hálfu sveitarfélagsins í verkefni að þessum toga.
Samþykkt samhljóða.
10. Samstarf um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Bjargslandi
Samþykkt samhljóða.
Brynja Þorsteinsdóttir fór af fundi að afloknum þessum dagskrárlið.
11. Beiðni um niðurfellingu byggingarleyfisgjalda
Samþykkt samhljóða.
Sæmundur Óskarsson fór af fundi.
12. Beiðni um rekstrarstyrk 2026
Samþykkt samhljóða.
13. Tilnefning frá byggðarráði til heiðurslauna listamanna
Páll ólst upp að Húsafelli, þar sem sem mætast skógur og hraun, lindár og jökulár, heimur trölla, huldufólks, dýra og manna. Páll flutti heim þegar námi lauk og hefur alla tíð síðan stundað list sína frá Húsafelli. Páll er fjölhæfur listamaður og hefur t.d. fengist við myndlist, höggmyndalist og hljóðfærasmíði.
Í samtals 45 ár hefur Páll hefur haldið fjölda einkasýninga og samsýninga með öðrum listamönnum og hann hefur verið viðfangsefni bóka og heimildarmynda. Liðlega 20 höggmyndir eftir Pál prýða garða og torg víða um heim og auk fjölda höggmynda í náttúrunni við Húsafell og nágrenni.
Páll er einn merkasti listamaður Íslands, einstakur og verk hans auðþekkjanleg. Þau eru órjúfanlega tengd íslenskri náttúru og sögulegri arfleifð. Þau endurspegla mikla virðingu fyrir landinu og djúpa næmni fyrir svipmyndum fólks og náttúru. Verk hans prýða almenningsrými, kirkjur, tónlistarhús og heimili. Verk hans eru hluti af sjálfsmynd þjóðarinnar og vefa saman sögu, nátttúru og mannlíf. Verk Páls eru heimur út af fyrir sig. Þannig er steinharpa Páls sjálfstæður hljóðheimur og dæmi um einstæða sköpunargáfu. Hún er listaverk og hljóðfæri sem getið hefur af sér samstarf við fremsta tónlistarfólk heims.
Þó verk Páls prýði söfn og torg víða um heim og hann sé öðrum íslenskum og alþjóðlegum listamönnum innblástur þá er Páll hógvær sveitamaður og náttúrubarn.
Páll er framúrskarandi frumkvöðull í listsköpun. Hann er fyrirmynd og innblástur sem á rætur sínar í landinu, sögunni og jörðinni.
Páll Guðmundsson á Húsafelli er verðugur heiðurslauna listamanna.
14. Krafa vegna verklauna
Samþykkt samhljóða.
15. Beiðni um undirskriftasöfnun v. aðalskipulags
Í erindinu sem barst 4. desember frá samtökunum hafna þau boði sveitarfélagsins og árétta þá afstöðu samtakanna að fram fari íbúakosning að undangenginni undirskriftasöfnunar vegna vindorkuumfjöllunar í aðalskipulagi fyrir Borgarbyggð 2025-2037. Byggðarráð telur erindi Sólar til framtíðar afmarka skýrt að gerð er krafa um að fram fari undirskrifasöfnun í þeim tilgangi að umfjöllun um vindorkunýtingu verði tekin út úr greinargerð með aðalskipulagi 2025-2037.
Byggðarráð telur vera þann annmarka á erindi Sólar til framtíðar að sveitarfélaginu er skylt á grundvelli 10. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að fjalla í aðalskipulagi um áherslur þingsályktun um landsskipulagsstefnu 2024-2038. Í áherslum C.2 og C.3 í gildandi landsskipulagsstefnu er skýrt kveðið á um að skipulag skuli fela í sér stefnu um nýtingu vindorkuvera í sátt við umhverfi og samfélag.
Byggðarráð telur einnig að sjónarmið samtakanna Sólar til framtíðar séu samhljóma þeirri stefnu sem fram kemur í aðalskipulaginu 2025-2037 þar sem engin vindorkuver eru heimiluð á skipulagstímanum. En m.a. kemur fram á bls 14 í forsenda og umhverfismatsskýrslu aðalskipulagsins “Unnin var stefnumótun fyrir vindorku í sveitarfélaginu og er megin niðurstaða hennar að í aðalskipulagi skuli engin svæði afmörkuð fyrir vindorkuver. Sveitarfélagið mun taka ákvarðanir um vindorkuver þegar þau hafa verið sett í nýtingarflokk rammaáætlunar.“
Samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 155/2013 um undirskriftasafnanir vegna almennra atkvæðagreiðslna samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal sveitarstjórn meta hvort ákvæði 3. mgr. 108. gr. sveitarstjórnarlaga hamli því að unnt sé að krefjast almennrar atkvæðagreiðslu um málið og tilkynna ábyrgðaraðila um niðurstöðu sína. Í því tilviki sem hér er til umfjöllunar er það álit byggðarráðs að ekki séu forsendur til þess að hefja undirskriftasöfnun í þeim tilgangi að umfjöllun um vindorkunýtingu verði fjarlægð úr samþykktu aðalskipulagi fyrir Borgarbyggð 2025-2037.
í ljósi þess leggur byggðarráð til við sveitarstjórn að hafna beiðni Sólar til framtíðar um að safna undirskriftum í því skyni að fá umfjöllun um vindorkunýtingu fellda út úr greinargerð með aðalskipulagi sveitarfélagsins 2025-2037 sbr. 3. mgr. 108 gr. sveitarstjórnarlaga.
Unnt er að kæra þá ákvörðun sveitarstjórnar til innviðaráðuneytisins, sbr. 111. gr. sveitarstjórnarlaga.
Samþykkt samhljóða.
16. Umsókn um stofnframlag frá Nemendagörðum búvísindadeildar LBHÍ
Samþykkt samhljóða.