Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum
92. fundur
26. nóvember 2025 kl. 15:15 - 16:30
í stóra fundarsal í Ráðhúsi
Nefndarmenn
Ása Erlingsdóttir - aðalmaður
Dagný Pétursdóttir - aðalmaður
Sigurður Friðgeir Friðriksson - aðalmaður
Starfsmenn
Logi Sigurðsson - umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Logi Sigurðsson - Umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1. Rafmagn í salernisaðstöðu í Einkunnum.
2511273
Samhliða uppsetningu ljósastaura í Einkunnir er gert ráð fyrir rafmagni að salernisaðstöðu á svæðinu. Setja þarf upp töflu, ljós og ofna í húsinu til þess að hægt sé að nýta aðstöðuna yfir vetrartímann.
Nefndin felur starfsmanni að afla verðs í verkið og fá verktaka í það, rúmist það innan fjárheimilda þessa árs.
2. Skipulag og kortagerð í Einkunnum
2508228
Farið yfir stöðu mála í kortagerð. Undirbúningsvinna er hafin við kortagerð. Lögð verður áhersla á að kortið verði aðgengilegt og auðlesið.
Helstu þættir sem munu koma fram á korti:
1. Aðalvegur
2. Áningarstaðir
3. Bílastæði
4. Hestagerði
5. Fornminjar
6. Útivistarsvæði
7. Dvalar - og leiksvæði
Flokkun hjól-, reið- og göngustíga
1. Göngustígar
2. Gönguslóðar
3. Hjólastígar
4. Reiðstígar
Nefndin skilar vinnugögnum og drónamyndum til kortahöfundar á næstu dögum.
3. Umferðarmál og bílastæði
2509204
Farið yfir stöðu mála en búið er að hefla veginn upp að Einkunnum.
Nefndin felur starfsmanni að kanna kostnað við að bæta við bílastæðum og bera efni í veginn upp að Einkunnum. Nefndin telur mikilvægt að bæta við bílastæðum til að koma í veg fyrir að bílum sé lagt á veginum.
4. Skógræktarfélag Borgarfjarðar - Vinna í Einkunnum
2509203
Farið yfir skýrslu Skógræktarfélags Borgarfjarðar um þau verkefni sem félagið hefur unnið á árinu fyrir nefndina.
Fundi slitið - kl. 16:30