Dagskrá
1. Fyrirhuguð sala á fasteignum Háskólans á Bifröst
2506020
Farið yfir fyrirhugaða sölu á húsnæði í eigu skólans og áherslur Borgarbyggðar ræddar.
Framundan er sala á íbúðum og öðrum fasteignum Háskólans á Bifröst. Við þá sölu þarf fyrst og fremst að gæta að eftirfarandi: 1) Að á Bifröst verði uppbygging í starfsemi sem stendur á eigin fótum, er samfélaginu og staðnum til sóma 2) Að hugað verði að framtíð þess fjölda flóttamanna sem nú eru búsettir í leiguhúsnæði á Bifröst 3) Að undið verði ofan af þeirri þróun að á Bifröst myndist einsleit byggð langtímaflóttamanna sem reiða sig á fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu til framfærslu.
Sú þróun að á Bifröst hefur byggst upp samfélag langtímaflóttamanna er félagslega óásættanlegt og fjárhagsleg byrði sem sveitarfélagið ræður ekki við. Greining á búsetu gefur til kynna að meirihluti flóttamanna á fjárhagsaðstoð á Bifröst eru í íbúðum í eigu háskólans. Byggðarráð fer fram á að háskólinn breyti sem fyrst um stefnu í útleigu íbúða þannig að hún verði sjálfbær frá sjónarhóli sveitarfélagsins og að hagsmunir staðarins og sveitarfélagsins verði tryggðir í söluferlinu. Sveitarfélagið hefur ekki beina aðkomu að ákvörðunum er varða húsnæði á Bifröst. Byggðarráð ætlast hins vegar til þess að fulltrúar Borgarbyggðar í háskólastjórn og fulltrúaráði séu að fullu upplýstir, og beiti sér, þegar kemur að stefnumótun í búsetu eða fyrirkomulagi við sölu eigna.
Samþykkt samhljóða.
2. Upplýsingamiðlun og markaðssetning til ferðamanna
2505229
Í framhaldi af afgreiðslu 709. fundar byggðarráðs er farið yfir þróun málsins og næstu skref rædd. Logi Sigurðsson umhverfisfulltrúi kemur til fundarins.
Fulltrúar Borgarbyggðar hafa fundað með Vegagerðinni og Markaðsstofu Vesturlands og kom fram hjá sveitarstjóra og umhverfisfulltrúa að ríkur vilji er til samstarfs um að bæta merkingar og miðlun upplýsinga til ferðamanna við þjóðveginn. Þá sé tilefni til að fjölga áfangastöðum og útskotum. Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka saman yfirlit um þá staði innan sveitarfélagsins þar sem helst er tækifæri að koma upp skiltum og útskotum og óskar eftir góðu samstarfi við Markaðsstofu Vesturlands og Vegagerðina við verkið. Byggðarráð bindur vonir við að leggja megi afraksturinn fyrir fund Umhverfis- og landbúnaðarnefndar í ágúst.
Samþykkt samhljóða.
3. Fráveitumál í Borgarnesi
2506107
Farið yfir stöðu fráveitumála við íbúðarhús í Borgarnesi og lagt fram minnisblað frá umhverfisfulltrúa vegna málsins. Til fundarins kemur Guðný Elíasdóttir sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Fram kom að fráveitumálum er ábótavant í örfáum húsum í Borgarnesi. Byggðarráð leggur áherslu á að fráveitumálum þeirra húsa verði komið í ásættanlegt horf sem fyrst og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram og kynna framgang málsins fyrir byggðarráði fyrir lok sumars.
Samþykkt samhljóða.
Logi Sigurðsson fór af fundi.
4. Opin leiksvæði í Borgarnesi, ástand, eftirlit og aðgerðir
2505104
Yfirferð um stöðu viðhalds á opnum leiksvæðum í Borgarbyggð og farið yfir forgangsröðun sbr. afgreiðslu 708. fundar byggðarráðs. Framlagt minnisblað frá Sóleyju Baldursdóttur umsjónarmanni áhaldahúss.
Búið er að bregðast við ábendingum Heilbrigðiseftirlits sbr. 708. fund byggðarráðs, endurbótum víða lokið, en annars staðar er von á varahlutum eða nýjum leiktækjum. Vinna við uppsetningu fallvarna og málun fer fram í sumar. Umsjónarmaður áhaldahúss fór lauslega yfir önnur verkefni starfsfólks áhaldahúss í júní, svo sem slátt í sveitarfélaginu, undirbúning fyrir hátíðir í júní, hreinsun og endurbætur gatna og gangstíga en teymið hefur talið 2-4 starfsmenn. Byggðarráð þakkar góða vinnu og góðan framgang við að hreinsa, bæta og fegra sveitarfélagið.
Byggðarráð óskar eftir að fá sambærilega kynningu á vinnu áhaldahúss í ágúst.
Samþykkt samhljóða.
5. Krafa á Borgarbyggð í tengslum við gjaldþrotaskipti Lands og verks
2506276
Framlagt kröfubréf sem sent hefur verið fyrir hönd Primis ehf. á Borgarbyggð vegna vinnu við endurbætur á húsnæði Grunnskólans í Borgarnesi.
Framlagt og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
Guðný Elíasdóttir fór af fundi.
6. Öryggissvæði og deiliskipulag við Kárastaðaflugvöll
2506197
Framlagt erindi frá Flugklúbbnum Kára vegna vinnu við aðalskipulag og deiliskipulag við Kárastaðaflugvöll, um nýtingu efnis úr grjótnámu og lóðamál.
Framlagt og sveitarstjóra falið að leita frekari upplýsinga og kynna í næstu viku fyrir byggðarráði.
Samþykkt samhljóða.
7. Stuttárbotnar - Húsafell 3 L134495 - Deiliskipulag
2301040
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum nr. 266 þann 12. júní 2025 tillögu nýs deiliskipulags Stuttárbotna í Húsafelli til auglýsingar. Fyrir mistök fór rangur dagskrárliður inn á fund en á fundinum átti að samþykkja framlagt deiliskipulag að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
Er málið því lagt fyrir Byggðarráð til staðfestingar.
Afgreiðsla 77. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum. Samþykkt samhljóða."
Byggðaráð samþykkir framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar, með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Bjarney L. Bjarnadóttir fór af fundi.
8. Bakkamælingar fyrir Hítará
2506076
Framlögð drög að bakkamælingum fyrir Hítará en jarðir í eigu sveitarfélagsins liggja að ánni.
Byggðarráð Borgarbyggðar leggur áherslu á að Veiðifélag Hítarár taki formlega afstöðu um framtíðarlegu Hítarár. Þar til sú ákvörðun liggur fyrir þá sér sveitarfélagið sér ekki fært að taka afstöðu til nýrrar bakkamælingar á ánni og telur ekki tímabært að láta fara fram nýtt arðskrármat.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
9. Slýdalstjörn til leigu 2025
2506014
Þann 20. júní rann út frestur til að skila inn tilboðum í leigu á Slýdalstjörn sbr. auglýsingu dags. 4. júní sl.
Eitt tilboð barst í leigu á Slýdalstjörn, frá Borgari og Svani Þorsteinssyni að fjárhæð kr. 250.000,- á ári og felur byggðarráð sveitarstjóra að ganga til samninga við þá á grundvelli tilboðsins til þriggja ára.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
10. Fundagerðir stjórnar Orkuveitunnar 2025.
2506102
Framlögð fundargerð 363. fundar stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 31.mars 2025.
Framlagt.
Fylgiskjöl
11. Aðalfundur Þróunarfélags Grundartanga 2025
2506169
Framlagt boð á aðalfund Þróunarfélags Grundartanga sem fram fer 30. júní 2025.
Framlagt og er sveitarstjóra falið að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Fylgiskjöl
12. Samband ísl. sveitarfélaga - fundargerðir 2025
2501012
Framlögð fundargerð 981. fundar stjórnar Sambandsins frá 13.júní 2025.
Framlagt.
Fylgiskjöl
13. Samband ísl. sveitarfélaga - fundargerðir 2025
2501012
Framlögð fundargerð 982. fundar stjórnar Sambandsins frá 16. júní 2025.
Framlagt.
Fylgiskjöl
14. Hafnasamband Íslands - fundargerðir 2025
2502009
Framlögð fundargerð 473. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 22. maí 2025.
Framlagt.
Fylgiskjöl
15. Heimild til frestunar á greiðslu gatnagerðargjalda
2503021
Í samræmi við heimild í 7. gr. reglna Borgarbyggðar um gatnagerðargjöld er þess farið á leit við byggðarráð að veittur verði greiðslufrestur vegna lóðanna við Melabraut 4a og 4b á Hvanneyri en þar rís brátt atvinnuhúsnæði.
Gjaldskrá Borgarbyggðar um gatnagerðargjöld felur í sér að 50% gatnagerðargjalds sé greitt innan eins mánaðar frá lóðarveitingu og eftirstöðvar við veitingu byggingarleyfis (7. gr.).
Samkvæmt 7. gr. er byggðarráði heimilt að veita sérstakan greiðslufrest á gatnagerðargjaldi "þegar byggt er atvinnuhúsnæði eða húsnæði til endursölu, samkvæmt sérstökum greiðslusamningi sem kveður á um skilmála og greiðslukjör."
Með afgreiðslu 681. fundar byggðarráðs dags. 5. september 2024 var BV22 ehf. úthlutað lóðum við Melabraut á Hvanneyri. Byggðarráð samþykkir að veita greiðslufrest í samræmi við eftirfarandi skilmála og greiðslukjör.
Í samræmi við gjaldskrá gatnagerðargjalda skulu 50% greiðast innan mánaðar frá lóðarveitingu. Eftirstöðvar skulu greiðast í síðasta lagi við endursölu en þó eigi síðar en innan 24 mánaða frá úthlutun lóðar. Eftirstöðvar skulu bundnar byggingarvísitölu. Borgarbyggð er heimilt að skilyrða lokaúttekt þess húsnæðis sem reist verður við að fullnaðaruppgjör á gatnagerðargjöldum hafi farið fram.
Samþykkt samhljóða.
16. Eignasjóður Þorsteinsgata 5
2205061
Umræða um stöðu og framtíð húsnæðisins við Þorsteinsgötu 5 sem er í eigu Borgarbyggðar. Húsið hefur verið í útleigu en er á víkjandi skipulagi og framundan er niðurrif vegna fyrirhugaðrar stækkunar íþróttahúss. Þá kallar húsnæðið á verulegt viðhald.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að segja upp leigusamningum í húsinu og að notkun þess verði hætt eins fljótt og unnt er, enda stefnt að því að hefja niðurrif á húsinu á árinu 2026.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.