Dagskrá
1. Mælaborð um rekstur Borgarbyggðar
2401059
Farið yfir þróun rekstrar og fjárfestinga fyrstu fjóra mánuði ársins 2025. Eirikur Ólafsson fjármálastjóri mætir til fundarins og fer yfir stöðuna.
Farið yfir rekstur og fjárfestingar Borgarbyggðar fyrstu fjóra mánuði ársins 2025. Byggðarráð telur fulla ástæðu til að halda þeirri vinnu áfram að rýna neikvæða þróun í launakostnaði. Þá er brýnt að kostnaður vegna fjárhagsaðstoðar flóttafólks falli ekki á sveitarfélagið.
Samþykkt samhljóða.
2. Upplýsingatækniumhverfi Borgarbyggðar - úttekt
2406235
Farið yfir niðurstöður úttektar Deloitte á stöðu upplýsingatæknimála Borgarbyggðar.
Ráðgjafar Deloitte fóru yfir fyrstu niðurstöður úttektar á upplýsingatæknimálum hjá Borgarbyggð og drögum að úrbótaáætlun. Byggðarráð þakkar góða kynningu og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram en lokaskýrsla úttektarinnar verður lögð fyrir byggðarráð á næstunni.
Samþykkt samhljóða
3. Bjargsland og Kveldúlfshöfði - Gatnagerð og kostnaður
2203079
Lagt fram yfirlit yfir kostnaðarliði við gatnagerð vegna Kveldúlfshöfða-Bjargslandi og skiptingu þeirra. Til fundarins mætir undir þessum lið Guðný Elíasdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs.
Sundurliðuð kostnaðaráætlun framlögð og byggðarráð felur sveitarstjóra að láta fara fram útboð á grundvelli hennar.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða.
4. Samningar um afþreyingu á svæði Fólksvangsins í Einkunnum
2506078
Lagðir fram samningar um aðstöðu fyrir afþreyingu á svæði fólksvangsins Einkunna. Um er að ræða samning við Dagnýju Pétursdóttur, dags. 19. júní 2025, um kofa í fóstur og milli sömu aðila, fyrir hönd óstofnaðs félags, Völvugusu sf., dags. 19. júní 2025, um fargufu við Álatjórn. Logi Sigurðsson umhverfisfulltrúi mætir til fundarins undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir framlagða samninga og felur sveitarstjóra að undirrita fyrir hönd sveitarfélagsins. Samningarnir eru til komnir í framhaldi af auglýsingu Umsjónarnefndar fólkvangsins í Einkunnum eftir lýðheilsueflandi starfsemi í fólkvanginum Einkunnum.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
5. Galtarholt 3 L135043 - Deiliskipulag
2302212
Mál tekið upp þar sem það fór fyrir fund sveitarstjórnar undir röngu málsnúmeri (2412184). Rétt málsnúmer er 2302212 og er málið því tekið fyrir að nýju til afgreiðslu í byggðarráði sem fer með fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Afgreiðsla frá fundi sveitarstjórnar nr. 266:" Sveitarstjórn samþykkir framlagða tillögu að deiliskipulagi til auglýsingar. Lagður er fram uppdráttur dags. 20.12.2024. Deiliskipulagsbreyting er gerð samhliða. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga 123/2010.
Samþykkt samhljóða."
Afgreiðsla frá fundi skipulags- og byggingarnefndar nr. 77:" Lögð er fram að nýju tillaga að nýju deiliskipulagi hjólhýsabyggðar í Galtarholti 3 (l135043). Samhliða er gerð breyting á núgildandi deiliskipulagi frá 1990, m.s.br 1994 og 1995 þar sem skipulagsmörk hjólhýsasvæðis eru færð og þar með svæðið fellt út. Tillagan tekur til núverandi hjólhýsabyggðar í landi Galtarholts 3 sem hefur verið á svæðinu í áratugi. Svæðið er skilgreint sem opið svæði til sérstakra nota (O8) í gildandi Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Aðkoma að svæðinu er af Þjóðvegi 1. Í deiliskipulaginu verði markaður skýr rammi utan um starfsemina í samræmi við gildandi lög og reglugerðir er við koma starfseminni. Deiliskipulagið er unnið með hliðsjón af leiðbeiningum um Brunavarnir á tjald- og hjólhýsasvæðum frá HMS frá árinu 2020. Deiliskipulag þetta samræmist gildandi aðalskipulagi. Lýsing deiliskipulags var kynnt frá 11.05.2023-25.05.2023 og óskað eftir umsögnum lögbundinna umsagnaraðila. Meðfylgjandi eru þær umsagnir og ábendingar sem bárust á kynningartíma."
Byggðaráð samþykkir leiðréttingu á málsnúmeri og afgreiðslu frá fundi sveitarstjórnar nr. 266 þann 12. júní 2025.
Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga 123/2010 með málsnúmer 2302212 í stað 2412184 sem bókað var á fundi sveitarstjórnar.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
6. Deiliskipulag íbúðabyggðar að Varmalandi - Breyting á deiliskipulagi
2203146
Mál tekið upp þar sem það fór fyrir fund sveitarstjórnar nr. 264 og fékk ranga efnismeðferð. Sveitarstjórn samþykkti á þeim fundi óverulega breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar á Varmalandi en eftir að hafa farið yfir málið að nýju er talið ljóst að um verulega breytingu er að ræða og því er málið tekið upp til efnismeðferðar að nýju í byggðarráði sem fer með fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
"Sveitarstjórn samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi íbúðabyggðar á Varmalandi. Breytingin er sett fram í greinagerð og á uppdrætti dags. 06.02.2025.
Breytingin tekur til skipulags- og byggingarskilmála og skipulagsuppdráttar. Markmiðið er að skapa ramma utan um heildstæða fjölbreytta íbúðabyggð, að byggingar falli vel inn í umhverfið og að lóðir séu hagstæðar í uppbyggingu. Aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags haldast óbreyttir.
Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010."
"Afgreiðsla 76. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða deiliskipulagsbreytingu skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að svara framkominni athugasemd.
Samþykkt samhljóða."
Byggðarráð samþykkir breytingu deiliskipulagi íbúðabyggðar á Varmalandi. Málsmeðferð verður samkvæmt 42. gr. skipulagslaga 123/2010
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
7. Ugluklettur - Stækkun
2212062
Gögn vegna fergjunar á bílastæðum við leikskólann Ugluklett. Byggingarnefnd leggur til við byggðarráð að samþykkja framlögð gögn og fela verkefnastjóra framkvæmda að leita tilboða í verkið.
Byggðarráð samþykkir tillögu byggingarnefndar og felur sveitarstjóra að leita tilboða í verkið.
Samþykkt samhljóða.
8. Ugluklettur - Stækkun
2212062
Tilboð í verkfræðihönnun á stækkun á breytingar á leikskólanum Ugluklett í Borgarbyggð.
Tilboð bárust frá 5 verkfræðistofum og eru það Ferill, Lota, Norconsult Ísland, Verkís og Sigma.
Byggingarnefnd leggur til við byggðarráð að samþykkja tilboð frá Ferli.
Byggðarráð samþykkir tillögu byggingarnefndar og felur sveitarstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda að öllum skilyrðum uppfylltum.
Samþykkt samhljóða.
9. Tímalína fyrir íbúakosningu um sameiningu sveitarfélaga
2506108
Framlögð tímalína fyrir fyrirhugaða íbúakosningu um sameiningu sveitarfélaganna Borgarbyggðar og Skorradalshrepps í september 2025.
Framlagt.
Fylgiskjöl
10. Fornbílafjelag Borgarfjarðar - samskipti vegna húsnæðismála
2205035
Farið yfir stöðu vinnu að uppgjöri ágreinings milli Borgarbyggðar og Fornbílafjelags Borgarfjarðar vegna riftunar á leigusamningi félagsins í Brákarey árið 2021 sbr. afgreiðslu 707. fundar byggðarráðs á umsókn Fornbílafjelagsins um lóðir við Vallarás.
Kynnt staða viðræðna við Fornbílafjelag Borgarfjarðar og drög að samkomulagi um lúkningu máls. Byggðarráð felst á framlögð drög og felur sveitarstjóra að vinna að samkomulagi við félagið á grundvelli þeirra. Um er að ræða fullnaðaruppgjör á milli aðila.
Byggðarráð fer með fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt
11. Útboð vegna dælubifreiðar
2506119
Framlögð opnunarskýrsla vegna útboðs á dælubíl fyrir Slökkvilið Borgarbyggðar.
Eitt tilboð barst í útboði Slökkviliðs Borgarbyggðar vegna kaupa á nýjum dælubíl. Byggðarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Ólaf Gíslason og co ehf. að heildafjárhæð 21.235.048 kr. enda er það innan kostnaðaráætlunar.
Byggðarráð fer með fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða
Fylgiskjöl