Sveitarstjórn Borgarbyggðar

266. fundur

12. júní 2025 kl. 16:00 - 17:45

Hjálmaklettur


Nefndarmenn

Guðveig Eyglóardóttir - Forseti
Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Eva Margrét Jónudóttir - 1. varaforseti
Eðvar Ólafur Traustason - aðalmaður
Thelma Dögg Harðardóttir - aðalmaður
Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Sigrún Ólafsdóttir - aðalmaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir boðaði forföll og Kristján Rafn Sigurðsson - varamaður sat fundinn í hans stað

Starfsmenn

Hlöðver Ingi Gunnarsson - sviðsstjóri fræðslusviðs
Fundargerð ritaði: Eiríkur Ólafsson - fjármálastjóri

Dagskrá

1. Kosningar í ráð og nefndir 2022-2026
2205140

Kosningar skv. samþykktum Borgarbyggðar í júní ár hvert. Kosið er um eftirfarandi embætti:





1. Kosning forseta sveitarstjórnar og 1. og 2. varaforseta til eins árs.



2. Kosning aðalmanna í byggðarráð til eins árs.



3. kosning varamanna í byggðarráð til eins árs.



4. Kosning fimm fulltrúa á aðalfund Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi til eins árs og fimm til vara.

Framlögð tillaga að forseti sveitarstjórnar til eins árs verði Guðveig Lind Eyglóardóttir

Framlögð tillaga um að 1. varaforseti sveitarstjórnar verði Eva Margrét Jónudóttir

Framlögð tillaga um að 2. varaforseti sveitarstjórnar verði Sigurður Guðmundsson



Framlögð tillaga um að aðalmenn í byggðaráði til eins árs verði Davíð Sigurðsson, formaður, Guðveig Lind Eyglóardóttir, varaformaður, Sigurður Guðmundsson, aðalfulltrúi. Áheyrnarfulltrúar til eins árs Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir og Thelma Dögg Harðardóttir

Framlögð tillaga um að varamenn í byggðarráði til eins árs verði Eðvar Ólafur Traustason, Sigrún Ólafsdóttir og Ragnhildur Eva Jóndóttir. Varaáheyrnarfulltrúar verði Kristján Rafn Sigurðsson og Brynja Þorsteinsdóttir.



Framlögð tillaga um að aðalfulltrúar á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi verði: Sigrún Ólafsdóttir, Eva Margrét Jónudóttir, Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir, Brynja Þorsteinsdóttir og Eðvar Ólafur Traustason. Framlögð tillaga að varamenn á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi verði: Guðveig Eyglóardóttir, Þórður Brynjarsson, Kristján Rafn Sigurðsson, Friðrik Aspelund og Davíð Sigurðsson.



Samþykkt samhljóða



2. Viðauki við fjárhagsáætlun 2025
2502016

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs Borgarbyggðar nr. 710: "Kynnt tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2025 og fjárfestingarramma 2025-2028. Til fundarins kemur Eiríkur Ólafsson fjármálastjóri Borgarbyggðar.



Framlögð tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2025 sem felur í sér hækkun um 8,7 m.kr. sem skiptist svona; styrkir til íþróttafélaga 6,0 m.kr., viðhald Vatnsveitu Varmalands 1,5 m.kr. og hækkun afskrifta um 1,2 m.kr. Einnig er lögð fram hækkun á framkvæmda- og fjárfestingaráætlun um 194,3 m.kr. Það skýrist að hluta af hækkun á ramma vegna framkvæmda sem ekki var lokið við 2024 og færast á milli ára, svo sem við Grunnskólann í Borgarnesi, Safnahúsið, lýsingu á leið í Einkunnir og stofnframlags til Nemendagarða Menntaskóla Borgarfjarðar. Þá eru framkvæmdir við Vallarás færðar inn á framkvæmdaáætlun 2025, upphaf vinnu við sjóvarnir, endurbætur á Klettaborg og fjallgirðing með Múlum. Gatnagerð við Bröttugötu færist til ársins 2026.



Samþykkt samhljóða að vísa viðauka til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn."

Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2025.Þar er gert ráð fyrir auknum kostnaði um 6,0 m.kr. vegna styrks til íþróttafélaga, 1,5 m.kr. vegna viðhalds við Vatnsveitu Varmalands og hækkun vaxta, verðbóta og afskrifta um 7,4 m.kr. Lögð er fram tillaga um hækkun á framkvæmdaáætlun 2025 um 194,3 m.kr. vegna hækkunar á framkvæmdaramma vegna Grunnskólans í Borgarnesi, við Safnahúsið, lýsingar á leið í Einkunnir og stofnframlags við Nemendagarða Menntaskóla Borgarfjarðar en framkvæmdir hafa færst á milli áranna 2024 og 2025. Þá eru framkvæmdir við Vallarás færðar inn á áætlun 2025 sem og upphaf á vinnu við sjóvarnir, endurbætur á Klettaborg og fjallgirðing með Múlum. Gatnagerð við Bröttugötu færist til ársins 2026. Auknum framkvæmdakostnaði er mætt með aukinni lántöku og lækkun á handbæru fé.



Viðauki II við fjárhagsáætlun ársins 2025 samþykktur samhljóða.

Til máls tók SG, GLE

Fylgiskjöl


3. Sumarleyfi sveitarstjórnar
2206037

Lagt er til að við sveitarstjórn að fella niður fund sveitarstjórnar í júlí vegna sumarleyfa. Fyrsti fundur eftir sumarleyfi verði 14. ágúst nk. Lagt er til við sveitarstjórn að nefndir hafi heimild til þess að funda ekki í júlí nema nefndarritari og formaður telji ekki unnt að fella niður fund vegna afgreiðslu mála. Lagt er til að byggðarráði verði heimilað að fækkað fundum sínum í júlí, þó þannig að tveir fundir verði haldnir í mánuðinum.



Sveitarstjórn samþykkir að fella niður fund sveitarstjórnar í júlí vegna sumarleyfa. Fyrsti fundur eftir sumarleyfi verði 14. ágúst 2025. Sveitarstjórn samþykkir að nefndir hafi heimild til þess að fella niður fundi í júlí nema nefndarritari og formaður telji ekki unnt að fella niður fund vegna afgreiðslu brýnna mála. Sveitarstjórn samþykkir að byggðarráði verði heimilað að fækka fundum sínum í júlí niður í tvo.



Sveitarstjórn samþykkir að veita byggðarráði fullnaðarafreiðsluvald skv. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 til og með 14. ágúst 2025.



Samþykkt samhljóða.



4. Félagslegt leiguhúsnæði
1810002

Afgreiðsla frá 709. fundi byggðarráðs: "Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti afgreiðslu velferðarnefndar og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn."

Sveitarstjórn samþykkir afgreiðslu velferðarnefndar sem felur í sér hækkun á húsaleigu félagslegra íbúða um 7,8% í samræmi við breytingu á vísitölu neysluverðs en húsaleiga hefur ekki hækkað frá í maí 2023. Hækkunin taki gildi 1. júlí 2025. Húsaleiga taki hér eftir mið af vísitölu neysluverðs og taka breytingar gildi 1. október ár hvert.



Samþykkt samhljóða.



5. Skilabréf og álit samstarfsnefndar - sameining við Skorradalshrepp
2506063

Lagt fram skilabréf Samstarfsnefndar um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps dags. 10. júní ásamt fylgiskjölum. Skv. 2. mg. 119. gr. sveitarstjórnarlaga skal sveitarstjórn taka málið á dagskrá án atkvæðagreiðslu.

Í skilabréfinu kemur fram að samstarfsnefndin kom saman á 10 bókuðum fundum. Samstarfsnefnd skipaði starfshópa sem fjölluðu um málaflokka sveitarfélaganna og lögðu fram efni og upplýsingar í greiningu og tillögugerð. Verkefnið hefur einnig verið kynnt á íbúafundum með virku samtali við íbúa.

Álit samstarfsnefndar er svohljóðandi:

"Sveitarfélögin tvö hafa átt í farsælu samstarfi til áratuga og getur sameining þeirra skapað tækifæri til skilvirkari og markvissari stjórnsýslu og þjónustu, auk þess sem aðgengi íbúa að þjónustu verði jafnara. Þá eru jafnframt tækifæri til frekari atvinnuþróunar og nýsköpunar.

Vísbendingar eru um að fjárhagur sameinaðs sveitarfélags verði sterkur og fjárfestingargeta þess betri en hjá sveitarfélögunum hvoru um sig. Sérstök sameiningarframlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á næstu árum myndu auka svigrúm til fjárfestinga í sameinuðu sveitarfélagi en nokkur óvissa er um áhrif sameiningar á tekju- og útgjaldajöfnunarframlög vegna fyrirhugaðra breytinga á úthlutunarreglum. Ef sameining leiðir til lækkunar munu sveitarfélögin þó halda óskertum framlögum í fjögur ár.

Að mati samstarfsnefndar lúta áskoranir sameinaðs sveitarfélags fyrst og fremst að mismunandi skatthlutföllum sveitarfélaganna og áhyggjum hluta íbúa Skorradalshrepps af því að missa áhrif á ákvarðanir í nærumhverfi sínu. Tækifæri liggja helst í að bæta þjónustu við íbúa beggja sveitarfélaga, auka fjárfestingagetu og auka slagkraft í hagsmunagæslu fyrir svæðið, s.s. í samskiptum við ríkið um innviðauppbyggingu og þjónustu hins opinbera.

Það er samdóma álit samstarfsnefndar um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps að fram skuli fara atkvæðagreiðsla meðal íbúa sveitarfélaganna um sameiningu þeirra. Samstarfsnefnd telur að sameining muni hafa fleiri kosti í för með sér en ókosti fyrir íbúa og að henni fylgi tækifæri sem annars stæðu sveitarfélögunum ekki til boða".

Sveitarstjórn þakkar samstarfsnefnd fyrir vel unnin störf.



Til máls tók SG

Fylgiskjöl


6. Kynning á tillögu samstarfsnefndar - sameining við Skorradalshrepp
2506065

Í skilabréfi dagsettu 10. júní 2025 leggur samstarfsnefnd um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps til að henni verði falið að kynna tillögu um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps og helstu forsendur hennar fyrir íbúum sveitarfélaganna, sbr. 4. mgr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Sveitarstjórn samþykkir tillögu samstarfsnefndar fyrir sitt leyti og felur samstarfsnefnd að kynna tillöguna og helstu forsendur fyrir íbúum.



Samþykkt samhljóða.



7. Skipun kjörstjórnar - sameining við Skorradalshrepp
2506066

Í skilabréfi dagsettu 10. júní 2025 bendir samstarfsnefnd um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps á að sveitarstjórnir sveitarfélaganna skulu kjósa sameiginlega kjörstjórn fyrir væntanlegar íbúakosningar um sameiningu eftir nánara samkomulagi þeirra skv. 5. gr. reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga. Miða skal við að hvert sveitarfélag hafi a.m.k. einn fulltrúa í kjörstjórn og að fjöldi nefndarmanna sé oddatala.

Samstarfsnefnd leggur til að að kjörstjórn verði skipuð fimm fulltrúum, þremur frá Borgarbyggð og tveimur frá Skorradalshreppi og jafn mörgum til vara.

Sveitarstjórn samþykkir að Ólafur Pálsson, Sveinbjörn Eyjólfsson og Sóley Sigurþórsdóttir verði aðalmenn og að Skúli Ingvarsson, Ingibjörg Jónasdóttir og Elín Matthildur Kristinsdóttir varamenn í sameiginlegri kjörstjórn fyrir væntanlegar íbúakosningar um sameiningu sveitarfélaga sbr. 5. gr. reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga.



Samþykkt samhljóða.





8. Tímasetning íbúakosninga - sameining við Skorradalshrepp
2506064

Í skilabréfi dagsettu 10. júní 2025 leggur samstarfsnefnd um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps til að atkvæðagreiðsla um tillögu um sameiningu sveitarfélaganna hefjist þann 5. september 2025 og verði lokið þann 20. september 2025.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkir að atkvæðagreiðsla um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps hefjist þann 5. september 2025 og verði lokið 20. september 2025.



Samþykkt samhljóða.



9. Kosningaaldur - sameining við Skorradalshrepp
2506058

Í skilabréfi samstarfsnefndar er lagt til að heimild í 3. mgr. 133. gr. sveitarstjórnalaga til lækkunar kosningaaldurs í 16 ár verði nýtt.

Sveitarstjórn samþykkir tillögu samstarfsnefndar um að nýta heimild í 3. mgr. 133. gr. sveitarstjórnalaga til lækkunar kosningaaldurs í 16 ár í komandi atkvæðagreiðslu um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.



Samþykkt samhljóða.



10. Leitir og réttir 2025
2505266

Afgreiðsla frá fundi Fjallskilanefndar Oddstaðarétta nr. 53: "Fjallskilanefnd Oddsstaðaafréttar óskar eftir heimild til að flýta fyrri leit haustið 2025. Fyrri leit verði þriðjudaginn 2. september og fyrri Oddsstaðarétt miðvikudaginn 3. september. Óskað er eftir staðfestingu sveitarstjórnar og að sveitarstjórn leggi tillöguna fyrir stjórn fjallskilaumdæmis Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar, Hvalfjarðarsveitar og Skorradalshrepps til ákvörðunar.

Ástæður beiðninnar eru einkum þær að fjárhagslega getur verið mun hagstæðara fyrir bændur að fá fé sitt fyrr heim þar sem töluverður munur er á álagsgreiðslum milli vikna í september. Einnig telja bændur allar líkur á því að gróður verði farinn að falla á þeim tíma sem réttir eru samkvæmt skipulagi og þar af leiðandi hætta á stöðnun í vexti lamba. Allir bændur sem reka fé á afrétt eru einhuga um að færa smalamennskur auk þess sem enginn aðili sem þarf að leggja til mannskap í leitir setur sig á móti breytingunum. Seinni leitir og réttir haldist óbreyttar.

Ragnhildur Eva Jónsdóttir vék af fundi sveitarstjórnar meðan að þessi liður var afgreiddur.



Sveitarstjórn samþykkir að vísa beiðni Fjallskilanefndar Oddsstaðaréttar um að flýta fyrri leit haustið 2025 til stjórnar fjallskilaumdæmis Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar, Hvalfjarðarsveitar og Skorradalshrepps skv. 48. gr. laga nr. 6/1986, um afréttarmálefni, fjallskil og fl.



Samþykkt samhljóða.



11. Leyfi fyrir hátíðarhöldum við Hjálmaklett og götulokunum 28. júní 2025
2505071

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 707: "Framlögð beiðni frá Hinsegin Vesturland og Hollvinasamtökum Borgarness um að leyfi fyrir götulokunum, lokunum bílastæða og leyfi til að halda skemmtidagskrá við Hjálmaklett 28. júní næst komandi vegna hátíðarhalda Hinseginhátíðar Vesturlands og Brákarhátíðar.



Byggðarráð felur sveitarstjóra að samþykkja beiðni Hinsegin Vesturlands og Hollvinasamtaka Borgarness um tímabundna lokun fyrir almenna umferð um hluta Borgarbrautar og Brákarbraut, skemmtidagskrár við Hjálmaklett og timabundna lokun bílastæða meðan á hátíðarhöldum stendur. Aðstandendur hátíðanna vinna greinilega af miklum metnaði og eftirvænting er að byggjast upp fyrir fjölbreyttri dagskrá. Byggðarráð vonast eftir góðri þátttöku bæjarbúa og gesta."

Sveitarstjórn samþykkir afgreiðslu byggðarráðs á beiðni Hinsegin Vesturlands og Hollvinasamtaka Borgarness um tímabundna lokun fyrir almenna umferð um hluta Borgarbrautar og Brákarbraut, skemmtidagskrá við Hjálmaklett og timabundna lokun bílastæða meðan á hátíðarhöldum stendur.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


12. Beiðni frá Golfklúbbi Borgarness um stuðning
2309287

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 707: "Gerð tillaga um að fallið verði frá sérstakri samningsgerð við Golfklúbbinn. Lagt er til að veittur verði rekstrarstyrkur til klúbbsins líkt og á liðnu ári, sem renna mun t.d. til viðhalds mannvirkja.



Byggðarráð samþykkir að vísa til viðauka í fjárhagsáætlun 2025 að veittur verði rekstrarstyrkur að fjárhæð 6,0 m.kr. til Golfklúbbs Borgarness."

Sveitarstjórn samþykkir að veittur verði rekstrarstyrkur að fjárhæð 6,0 m.kr. til Golfklúbbs Borgarness.



Samþykkt með 8 atkv. 1 (KRS) sat hjá.



13. Samstarf um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Bjargslandi
1912083

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 707:"Vinna við gatnagerð í nýju hverfi í Bjargslandi stendur yfir og framundan fyrsta auglýsing og úthlutun lóða. Nafngift gatna í hverfinu tekin til umræðu í byggðarráði.



Byggðarráð samþykkir að götuheiti verði eftirfarandi; Fjóluklettur, Fífuklettur, Birkiklettur og Kveldúlfshöfði."

Sveitarstjórn samþykkir að götuheiti í nýju hverfi í Bjargslandi verði Fjóluklettur, Fífuklettur, Birkiklettur og Kveldúlfshöfði.



Samþykkt samhljóða.



14. Göngustígar - Verðfyrirspurn
2503353

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 709:"Farið yfir tillögur að stígum við Borgarnes og í átt að Hamri. Verðfyrirspurnargögn lögð fram.



Byggðarráð felur sveitarstjóra að ljúka hönnun á stíg milli þéttbýlisins í Borgarnesi og Hamars, leita tilboða í verkið í framhaldinu og kynna fyrir byggðarráði. Mikilvægt er að vinnan verði í góðu samstarfi við Vegagerðina."

Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóa að ljúka við hönnun á stíg milli þéttbýlisins í Borgarnesi og Hamars og í framhaldinu leita tilboða í vinnu við verkið í góðu samstarfi við Vegagerðina.



Samþykkt samhljóða.



15. Brákarbraut 25, gamla sláturhúsið - áætlun um niðurrif
2409047

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 710: "Í framhaldi af afgreiðslu á 709. fundi byggðarráðs er kynnt nýtt verkyfirlit vegna yfirstandandi niðurrifs á fyrsta áfanga. Jafnframt kynnt drög að fyrirkomulagi niðurrifs á öðrum áfanga, sem væru þá burstir gamla sláturhússins.



Framlögð kostnaðaráætlun um niðurrif á þremur burstum gamla sláturhússins í Brákarey þar sem verkinu hefur verið skipt í tvo áfanga. Einnig upplýst að við niðurrif á fyrsta áfanga hefur mun meira magn farið í urðun heldur en áætlað var í niðurrifsaáætlun vegna mikillar einangrunarblöndunar í steypu og mikillar magnaukningar í asbesti. Byggðarráð felur sveitarstjóra að láta fara fram verðfyrirspurn í báða áfanga við niðurrif á burstum gamla sláturhússins. Ekki er fyrirsjáanlegt að kostnaður við verkið verði umfram ramma í fjárfestingaráætlun.







Samþykkt með tveimur atkvæðum (GLE, DS) en einn fulltrúi greiddi atkvæði á móti (SG).







Framlögð bókun frá Sigurði Guðmundssyni: "Ég fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Byggðaráði Borgarbyggðar tel að það sé ekkert sem knýi á um að nauðsynlegt sé að ráðast í niðurrif, á þessum tímapunkti, á aðalbyggingu gamla sláturhússins í Brákarey oft kallað burstirnar þrjár. Í því samhengi vil ég benda á að staðan í rekstri Borgarbyggðar er með þeim hætti að allt útlit er til þess að reksturinn verði í járnum á árinu 2025. Það þýðir að allar framkvæmdir sem unnið er að á árinu 2025 verða fjármagnaðar með lántökum. Það er því mjög mikilvægt að forgangsraða framkvæmdum á þann hátt að ekki verði ráðist í framkvæmdir, nema brýn nauðsyn kallar á að ráðist verði í, eða nýtast að litlu eða engu leiti fyrir íbúa sveitarfélagsins. Það er á engan hátt hægt að halda því fram að niðurrif á burstunum þremur sé nauðsynleg framkvæmd, ástand hússins er með þeim hætti að það kallar ekki á tafarlaust niðurrif. Niðurrif á þessum tímapunkti hefur ekki nein áhrif á þau áform sem hafa verið uppi um uppbyggingu í eyjunni. Meirihluti "Framsóknarflokksins ætti frekar að beina sjónum sínum og krafti í að ljúka samningum um uppbyggingu í eyjunni og leysa úr þeirri óvissu sem meirihlutinn hefur skapað eigendum fasteigna og atvinnurekenda í eyjunni. Þessa óvissu hefur meirihluti Framsóknarflokksins skapað með ómarkvissum vinnubrögðum og óhóflegum drætti á niðurstöðu í málefnum sem tengjast Brákarey."

Sveitarstjórn samþykkir afgreiðslu byggðarráðs um að fela sveitarstjóra að láta fara fram verðfyrirspurn í báða áfanga við niðurrif á burstum gamla sláturhússins. Ekki er fyrirsjáanlegt að kostnaður við verkið verði umfram ramma í fjárfestingaráætlun.



Samþykkt með 5 atkv (GLE, EMJ, SÓ, DS, EÓT) gegn 4 atkv (TDH, KRS, REJ, SG).



Sigurður Guðmundsson lagði fram svohljóðandi bókun:

"Niðurrif á burstunum þremur er ekki á neinn hátt nauðsynleg framkvæmd á þessum tímapunkti og því liggur beinast við að fresta þeim áformum meirihlutans, sérstaklega í ljós versnandi rekstrarafkomu sveitarfélagsins. Ef meirihlutinn ákveður á þessum sveitarstjórnarfundi að ráðast í niðurrif á burstunum þremur, þá lýsir það ekki fjárhagslegri ábyrgð á rekstri sveitarfélagsins, heldur virðist það skipta Framsóknarflokkinn meira máli að jarða svikin kosningaloforð gagnvart Fornbílafélagi Borgarfjarðar en að viðhafa fjárhagslega ábyrg vinnubrögð í rekstri Borgarbyggðar"



Til máls tóku SG, DS, TDH, GLE, KRS



16. Samningsgerð um rekstur tjaldsvæðis í Borgarnesi
2505074

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 710: "Framlagður samningur við ÁS rekstur og þjónusta ehf. um rekstur tjaldsvæðisins í Borgarnesi.



Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan samning fyrir sitt leyti og felur sveitarstjóra að undirrita með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar."

Sveitarstjórn samþykkir framlagðan samning við ÁS rekstur og þjónusta ehf. um rekstur tjaldsvæðisins í Borgarnesi.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


17. Umgjörð leikskóla hjá Borgarbyggð
2501035

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 710:"Afgreiðsla frá 243. fundi fræðslunefndar Borgarbyggðar: "Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir minnisblað um tillögur að breytingum á umgjörð leikskóla í Borgarbyggð. Tillögurnar fela í sér að bæta umgjörðina þannig að veruleiki styttingar vinnuviku sé viðurkenndur inn í kerfið. Tillagan felur ekki í sér þjónustuskerðingu eða kostnaðarauka til foreldra. Væntingar eru um að tillögurnar muni bæta starfsaðstæður leikskóla í Borgarbyggð og þeir verði áfram eftirsóknarverðir vinnustaðir þar sem framúrskarandi og faglegt leikskólastarf fer fram. Fræðslunefnd samþykkir tillögurnar fyrir sitt leyti og einnig tillögur að uppfærðum verklagsreglum fyrir leikskóla. Málinu er vísað áfram til byggðarráðs til umræðu. Áður en málið fer til byggðarráðs er óskað eftir umsögnum frá skólastjórnendum og foreldraráðum leikskóla. Samþykkt samhljóða." Til fundarins kemur Hlöðver Ingi Gunnarsson, sviðsstjóri fræðslusviðs.



Byggðarráð styður heils hugar afgreiðslu fræðslunefndar og samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar tillögur að skipulagi og breytingu á gjaldskrá leikskóla. Samþykkt að fela sveitarstjóra að fullvinna tillögur að gjaldskrá. Samþykkt samhljóða að vísa til fullnaðarafreiðslu í sveitarstjórn.







Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagðar tillögur sviðstjóra fjölskyldusviðs að uppfærðum verklagsreglum í umgjörð leikskóla ásamt breytingum á gjaldskrá.



Samþykkt með 8 atkv. 1 (KRS) sat hjá.



Kristján Rafn Sigurðsson lagði fram svohljóðandi bókun:

"Gersamlega óskiljanlegt af hálfu Framsóknarmanna að ganga bara hálfan takt í einu og stuðla að hróplegu ójafnræði ungra íbúa sem eiga tök á að hafa börn sín í skemmri vistun gagnvart þeim sem þurfa á lengri vistun leikskólabarna að halda.

Það er áskorun til meirihluta sveitarstjórnar að ganga alla leið og gera leikskólastigið gjaldfrítt og taka til á öðrum stöðum í rekstri. Með þeirri aðgerð erum við að hlúa að unga fólkinu okkar og styðja við þau á tímum sem þau mest þurfa þess."



Til máls tók REJ, KRS, EÓT.



18. Staðan á leikskólum í Borgarnesi 2025 vor
2504088

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs Borgarbyggðar nr. 710:"Framlögð kostnaðaráætlun vegna endurbóta og stækkunar á húsnæði Klettaborgar sbr. afgreiðslu 707. fundar byggðarráðs. Til fundarins undir þessum lið kemur Guðni Rafn Ásgeirsson umsjónarmaður fasteigna.



Byggðarráð samþykkir að hefja vinnu við uppsetningu á færanlegum kennslustofum við húsnæði Klettaborgar í samræmi við umræður á fundi.







Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir að hefja vinnu við uppsetningu á færanlegum kennslustofum við húsnæði Klettaborgar.



Samþykkt samhljóða.



19. Val á listamanneskju Borgarbyggðar 2025
2506024

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 710: "Farið yfir tilnefningar um listamanneskju Borgarbyggðar 2025. Þórunn Kjartansdóttir forstöðumaður menningarmála situr fundinn undir þessum lið.



Byggðarráð samþykkir val á listamannekju Borgarbyggðar 2025 en valið verður gert opinbert 17. júní næstkomandi.







Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir tillögu valnefndar um listamanneskju Borgarbyggðar árið 2025. Samkvæmt venju verður tilkynnt um hver hlýtur titilinn við hátíðarhöld í Borgarnesi þann 17. júní nk.



Samþykkt samhljóða.



20. Gjaldskrá úrgangsþjónustu 2025
2504101

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 710: " Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til við sveitastjórn að tillaga að gjaldskrá frá Íslenska Gámafélaginu á móttökustöðinni í Borgarnesi verði innleidd. Samhliða því verði komið á klippikortum fyrir fasteignaeigendur í sveitafélaginu með tiltekinni inneign og verður kostnaður við rekstur móttökustöðvarinnar áfram innheimtur með fasteignagjöldum. Stefnt er að því að innleiða rafrænt klippikort sem mun taka gildi 1.september á þessu ári. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd vill árétta að þessar breytingar eru óhjákvæmilegar til að koma í veg fyrir að kostnaður vegna úrgangs annarra en fasteignaeigenda sveitarfélagsins falli á greiðendur fasteignagjalda í Borgarbyggð.



Málinu vísað til kynningar í byggðaráði og í kjölfarið til afgreiðslu í sveitarstjórn.



Byggðarráð samþykkir afgreiðslu umhverfis- og landbúnaðarnefndar og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.







Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu umhverfis- og landbúnaðarnefndar en í henni felst að innleidd verði gjaldskrá frá Íslenska gámafélaginu á móttökustöðinni í Borgarnesi, komið verði á klippikortum fyrir fasteignaeigendur í Borgarbyggð og kostnaður við rekstur móttökustöðvar verði áfram innheimtur með fasteignagjöldum. Stefnt er að því að rafrænt klippikort taki gildi 1. september á þessu ári.



Samþykkt samhljóða.



Til máls tóku KRS, SÓ,



21. Ársfundur Brákar íbúðafélags 2025
2506004

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 710: "Framlagt boð á ársfund Brákar íbúðafélags hses 11. júní 2025.



Framlagt og sveitarstjóra falið að mæta fyrir hönd sveitarfélagsins.







Samþykkt samhljóða."

Framlagt og sveitarstjóra falið að mæta fyrir hönd sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


22. Skóladagatöl fyrir leik-, grunn- og listaskóla Borgarbyggðar
2501033

Afgreiðsla frá fundi fræðslunefndar nr. 243: "Lögð er fram ósk leikskóla um viðbótar skipulagsdag vegna námsferðar.



Fræðslunefnd samþykkir að Andabær og Hnoðraból fái viðbótar skipulagsdag. Leikskólarnir munu birta uppfært skóladagatal.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir afgreiðslu fræðslunefndar um að Andabær og Hnoðraból fái viðbótar skipulagsdag vegna námsferðar.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


23. Hraunsás III - umsókn um aðalskipulagsbreytingu - 204514
2404320

Afgreiðsla 77. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar skv. 32. gr. skipulagslaga 123/2010 fyrir sitt leyti.

Breytingartillagan tekur til svæðis í landi Hraunsáss III (L204514).

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagða breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins skv. 32. gr. skipulagslaga. Breytingin tekur til svæðis í landi Hraunsáss III (L204524).



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


24. Hraunsás - umsókn um deiliskipulag - 204514
2411033

Afgreiðsla 77. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


25. Galtarholt 3_Umsókn um deiliskipulag
2412184

Afgreiðsla 77. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "kipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir hjólhýsabyggð í Galtarholti 3. Lagður er fram uppdráttur dags. 20.12.2024. Deiliskipulagsbreyting er gerð samhliða. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagða tillögu að deiliskipulagi til auglýsingar. Lagður er fram uppdráttur dags. 20.12.2024. Deiliskipulagsbreyting er gerð samhliða. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga 123/2010.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


26. Stuttárbotnar - Húsafell 3 L134495 - Deiliskipulag
2301040

Afgreiðsla skipulags- og byggingarnefndar nr. 74: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Stuttárbotna í Húsafelli. Lagður er fram uppdráttur dags. 18.02.2025. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagða tillögu að deiliskipulagi til auglýsingar fyrir Stuttárbotna í Húsafelli. Lagður er fram uppdráttur dags. 18.02.2025. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


27. Krumshólapartur 2_Umsókn um deiliskipulag
2502294

Afgreiðsla 77. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd bendir á að einungis er heimilt að vera með útleiguhús þar sem er föst búseta. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Krumshólapart 2 með þeim fyrirvara að fyrirliggjandi sé undirritað samþykki landeiganda aðliggjandi lands varðandi heimild til að aðkoma að svæðinu liggi að hluta til á hans landi. Lagður er fram uppdráttur dags. 30.05.2025. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóma."

Sveitarstjórn samþykkir framlagða tillögu að deiliskipulagi til auglýsingar. Lagður er fram uppdráttur dags. 30.05.2025. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga 123/2010.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


28. Jarðlangsstaðaland - Langárbyrgi L177317 - Nýtt deiliskipulag
2402234

Afgreiðsla 77. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru eftir kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


29. Vesturhluti Tvídægru og Hellistungur - stofnun fasteignar (þjóðlendu)
2505248

Afgreiðsla 77. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að stofnuð verði fasteign um þjóðlenduna á vesturhluta Tvídægru og Hellistungum.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir tillögu skipulags- og byggingarnefndar um að stofnuð verði fasteign um þjóðlenduna á vesturhluta Tvídægru og Hellistungum.



Samþykkt samhljóða.



30. Austurhluti Langavatnsdals - stofnun fasteignar (þjóðlendu)
2505117

Afgreiðsla 77. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að stofnuð verði fasteign um þjóðlenduna í austurhluta Langavatnsdals.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir tillögu skipulags- og byggingarnefndar um að stofnuð verði fasteign um þjóðlenduna í austurhluta Langavatnsdals.



Samþykkt samhljóða.



31. Aðalskipulag - Endurskoðun - Vinnslutími
2301075

Afgreiðsla 77. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja svör við athugasemdum og ábendingum Skipulagsstofnunar og þær lagfæringar sem gerðar eru á tillögu endurskoðunar aðalskipulags eftir kynningartíma.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir svör við athugasemdum og ábendingum Skipulagsstofnunar og þær lagfæringar sem gerðar eru á tillögu endurskoðunar aðalskipulags eftir kynningartíma.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


32. Aðalfundur Faxaflóahafna, mið. 4. júní kl. 15
2505108

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 708:"Framlagt boð á aðalfund Faxaflóahafna sem fram fer miðvikudaginn 4. júní 2025.



Framlagt og sveitarstjóra falið að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins. Sveitarstjóri upplýsti að í undanfara fundarins hefði hann ítrekað gagnvart formanni stjórnar og forstjóra Faxaflóahafnar sjónarmið um að fjármagnsskipan Faxaflóahafna yrði tekin til endurskoðunar með það fyrir augum að beinn ávinningur eigenda yrði meiri, sbr. afgreiðslu byggðarráðs Borgarbyggðar dags. 19. des 2024. Byggðarráð tekur undir ábendingar fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar í greinargerð B-hluta fyrirtækja í nýjum ársreikningi Reykjavikurborgar en þar segir: „Mikilvægt er að halda áfram rýningu á fjármagnsskipan félagsins með hliðsjón af kröfum eigenda um arðsemi og eiginfjárhlutfalls. Að sama skapi er mikilvægt að félagið hafi á hverjum tíma getu til að greiða eigendum sínum eðlilegan arð af því fé sem bundið er í félaginu.“"

Á aðalfundi Faxaflóahafna var tekið mikilvægt skref í þá átt að auka beinan ávinning eigenda Faxaflóahafna af góðri afkomu félagsins. Í samræmi við niðurstöðu fundarins mun Borgarbyggð fá greiddar um 48 m.kr. vegna liðins árs samanborið við 3,5 m.kr. arðgreiðslu árið áður. Sveitarstjórn Borgarbyggðar styður að á vettvangi eigenda verði haldið áfram vinnu við að rýna fjármagnsskipan félagsins til hagsbóta fyrir félagið sjálft og eigendur þess.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


33. Aðalfundur MHR 2025
2505154

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 709:"Framlagt fundarboð og fundargögn aðalfundar Miðstöðvar héraðsskjalasafna.



Framlagt og mætti Jóhanna Skúladóttir héraðsskjalavörður á aðalfundinn fyrir hönd Borgarbyggðar."

Framlagt og staðfest för Jóhönnu Skúladóttur héraðsskjalavarðar á fundinn fyrir hönd Borgarbyggðar.



Samþykkt samhljóða.



34. Leyfisumsókn rallaksturskeppni 2025
2506028

Framlögð beiðni frá Bifreiðaíþróttaklúbbi Reykjavíkur um leyfi fyrir rallaksturskeppni 20. júní 2025. Leiðir keppninnar eru t.d. um Kaldadal og Uxahryggi og loka þarf vegum á meðan á keppni stendur.

Sveitarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti beiðni Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavikur. Uxahryggir og Kaldidalur gegna mikilvægu hlutverki, ekki síst fyrir ferðaþjónustu í uppsveitum Borgarfjarðar. Sveitarstjórn leggur áherslu á að lokun verði í lágmarki og vegurinn verði ekki í lakara ástandi að aflokinni keppni.



Samþykkt samhljóða.



35. Byggðarráð Borgarbyggðar - 707
2505004F

Fundargerð framlögð

35.1
2504088
Staðan á leikskólum í Borgarnesi 2025 vor
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Byggðarráð tekur vel í að vinna að endurbótum og stækkun á Klettaborg í samræmi við framlagða tillögu og hefja vinnu við gerð viðauka við fjárhagsáætlun vegna þess. Tillagan felur í sér stækkun á Klettaborg um eina deild með færanlegum kennslustofum og endurbætur á hluta núverandi húsnæðis. Það er m.a. til að skapa rými vegna fyrirhugaðra framkvæmda við stækkun á Uglukletti. Minnisblaðið hefur einnig fengið umfjöllun í fræðslunefnd þar sem sviðsstjora var falið að vinna málið áfram. Byggðarráð tekur undir þá afgreiðslu og felur sveitarstjóra að fullvinna kostnaðaráætlun og leggja fyrir næsta fund byggðarráðs.Til fundarins komu undir þessum lið Hlöðver Ingi Gunnarsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, Dóróthea Elísdóttir, skólastjóri Klettaborgar, Kristín Gísladóttir, skólastjóri Uglukletts, og Guðni Rafn Ásgeirsson umsjónarmaður fasteigna.Samþykkt samhljóða.

35.2
2505064
Fjárhagsáætlun 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Framlagt.

35.3
2502016
Viðauki við fjárhagsáætlun 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Byggðarráð felur sveitarstjóra að fullvinna tillögu að viðauka og leggja fyrir næsta fund byggðarráðs.

35.4
2410048
Safnahús og menningarmál 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Byggðarráð þakkar Þórunni fyrir gott samtal. Þórunn kynnti fyrirhugaða Barnamenningarhátíð Vesturlands í október 2025 og aðkomu sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir fjölbreyttri dagskrá sem tekur mið af aðstæðum á hverju svæði innan Vesturlands með áherslu á menningu fyrir börn. Byggðarráð styður eindregið að Borgarbyggð verði virkur þátttakandi í verkefninu. Þórunn fór jafnframt yfir yfirstandandi endurbætur á safnahúsinu en vonir standa til að þeim ljúki fyrir haustið.Samþykkt samhljóða.

35.5
2504108
Mál til eigenda Orkuveitunnar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Afgreiðsla er færð í trúnaðarbók.

35.6
2505029
Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2024
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Framlagt.

35.7
2501012
Samband ísl. sveitarfélaga - fundargerðir 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Framlagt.

35.8
2503051
Fundargerðir stjórnar SSV 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

35.9
2504240
Skipurit Borgarbyggðar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að breyttu skipuriti Borgarbyggðar og vísar til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn. Byggðarráð felur sveitarstjóra að boða til aukafundar í sveitarstjórn mánudaginn 19. maí kl. 16. Samþykkt með tveimur atkvæðum (DS, GLE) en einn fulltrúi situr hjá (SG).

35.10
1912083
Samstarf um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Bjargslandi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Byggðarráð samþykkir að götuheiti verði eftirfarandi; Fjóluklettur, Fífuklettur, Birkiklettur og Kveldúlfshöfði.Samþykkt samhljóða.

35.11
2303023
Samræmd móttaka flóttafólks
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Minnisblaðið hefur verið sent á þingmenn Norðvesturkjördæmis, félags- og húsnæðismálaráðherra, dómsmálaráðuneyti, fjármálaráðuneyti, Vinnumálastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga. Byggðarráð þakkar þingmönnum kjördæmisins fyrir góð viðbrögð og hvetur þá til að fylgja málinu eftir. Þá er ljóst að málið verður tekið fyrir í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Í niðurlagi erindis Borgarbyggðar segir: „Þetta er ekki létt umtalsefni og vandmeðfarið. Staðreyndin er samt sú að Borgarbyggð stendur frammi fyrir því að fjárhagsaðstoð til flóttamanna er að breyta verulega til verri vegar forsendum í rekstri sveitarfélagsins. Við komumst ekki hjá því að ávarpa það. Borgarbyggð getur ekki setið undir því að flóttamönnum sé safnað saman á Bifröst á kostnað sveitarfélagsins. Borgarbyggð óskar eftir því að stjórnvöld mæti þeim áfallna kostnaði sem sveitarfélagið hefur orðið fyrir á yfirstandandi ári. Þá fer Borgarbyggð fram á að ríkið geri ráðstafanir til að stöðva frekari kostnaðarauka hjá sveitarfélaginu vegna fjárhagsaðstoðar við flóttamenn.“Frá upphafi hefur Borgarbyggð ætíð gengið út frá því að verða ekki fyrir beinum fjárhagslegum skaða af þátttöku í verkefnum er varða móttöku flóttamanna. Nú er annað að koma á daginn." Byggðarráð felur sveitarstjóra að fylgja eftir erindi minnisblaðsins og felur sveitarstjóra jafnframt að kanna heimildir sveitarfélagsins til að bregðast við þessari þróun.Samþykkt samhljóða.

35.12
2505071
Leyfi fyrir hátíðarhöldum við Hjálmaklett og götulokunum 28. júní 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Byggðarráð felur sveitarstjóra að samþykkja beiðni Hinsegin Vesturlands og Hollvinasamtaka Borgarness um tímabundna lokun fyrir almenna umferð um hluta Borgarbrautar og Brákarbraut, skemmtidagskrár við Hjálmaklett og timabundna lokun bílastæða meðan á hátíðarhöldum stendur. Aðstandendur hátíðanna vinna greinilega af miklum metnaði og eftirvænting er að byggjast upp fyrir fjölbreyttri dagskrá. Byggðarráð vonast eftir góðri þátttöku bæjarbúa og gesta.Samþykkt samhljóða.

35.13
2505037
Umsókn um lóð - Vallarás 10c og 12
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Byggðarráð samþykkir að úthluta Fornbílafjelagi Borgarfjarðar lóðunum við Vallarás 10c og 12 og að sú úthlutun verði hluti af uppgjöri sem unnið er að við félagið, með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnar. Á fundi byggðarráðs var jafnframt farið yfir stöðu viðræðna Borgarbyggðar við Fornbílafjelagið vegna riftunar á leigusamningi félagsins í Brákarey árið 2021 en þeim viðræðum hefur verið fram haldið eftir að hafa legið í láginni um nokkurt skeið. Byggðarráð felur sveitarstjóra að halda viðræðum áfram í samræmi við umræður á fundi og bindur vonir við að samkomulag náist von bráðar.Samþykkt samhljóða.

35.14
2505018
Hafnarfjall Ultra hlaupahátíðin
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Byggðarráð fagnar fyrirhugaðri hlaupahátið Hafnarfjall Ultra og tekur undir vonir aðstandenda að um árlegan viðburð verði að ræða. Byggðarráð felur sveitarstjóra að leita leiða til að verða við beiðni hlaupahópsins Flandra innan ramma fjárheimilda sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.

35.15
2503032
Norðtungukirkjugarður - vegur og girðing
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Byggðarráð samþykkir að ráðstafa til endurbóta á aðgengi að Norðtungukirkjugarði 1,0 m.kr. í samræmi við heimildir í fjárhagsáætlun ársins 2025. Samþykkt samhljóða.

35.16
2505032
Umsókn um nýtingarleyfi á grunnvatni í landi Steindórsstaða í Borgarfirði - beiðni um umsögn
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að fela skipulagsfulltrúa að vinna umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins í samræmi við framlagða beiðni Umhverfis- og orkustofnunar.Samþykkt samhljóða.

35.17
2504064
Kerfisáætlun Landsnets 2025-2034
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Sveitarstjóra falið að vinna umsögn og leggja fyrir byggðarráð.Samþykkt samhljóða.

35.18
2309287
Beiðni frá Golfklúbbi Borgarness um stuðning
Byggðarráð Borgarbyggðar - 707

Byggðarráð samþykkir að vísa til viðauka í fjárhagsáætlun 2025 að veittur verði rekstrarstyrkur að fjárhæð 6,0 m.kr. til Golfklúbbs Borgarness.Samþykkt samhljóða.



36. Byggðarráð Borgarbyggðar - 708
2505017F

Fundargerð framlögð

36.1
2505099
Umsókn um lóð - Þrastarflöt 6
Byggðarráð Borgarbyggðar - 708

Byggðarráð samþykkir að úthluta lóðinni Þrastarflöt 6 á Hvanneyri til Guðna Páls Sæmundssonar og Óm íbúða ehf.Samþykkt samhljóða.

36.2
2505074
Samningsgerð um rekstur tjaldsvæðis í Borgarnesi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 708

Framlagt og sveitarstjóra falið að fullvinna og leggja fyrir byggðarráð.Samþykkt samhljóða.

36.3
2505111
Endurnýjun vegna girðingar með Múlum
Byggðarráð Borgarbyggðar - 708

Byggðarráð samþykkir að vísa beiðni fjallskilanefndar Brekku- og Svignaskarðsréttar til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2025.Samþykkt samhljóða.

36.4
2502016
Viðauki við fjárhagsáætlun 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 708

Framlögð drög að viðauka við fjárhagsáætlun 2025.

36.5
2505117
Austurhluti Langavatnsdals - stofnun fasteignar (þjóðlendu)
Byggðarráð Borgarbyggðar - 708

Framlagt og vísað til skipulags- og byggingarnefndar.Samþykkt samhljóða.

36.6
2505104
Opin leiksvæði í Borgarnesi, ástand, eftirlit og aðgerðir
Byggðarráð Borgarbyggðar - 708

Framlagt erindi frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands og eftirlitsskýrslur í framhaldi af vettvangsskoðun á leikvöllum í Borgarbyggð. Þar er vakin athygli á bágbornu ástandi víða og undirstrikað mikilvægi þess að ráðast í úrbætur og viðhaldsvinnu sem fyrst. Sveitarstjóri upplýsti að úrbætur yrðu hafnar sem fyrst i samræmi við mikilvægi ábendinga eins og þær koma fram í erindi HEV. Fram kom að tíðafar hafi haft áhrif á viðhald á liðnu ári og viðhaldsþörf uppsöfnuð. Að svo komnu máli er þó ekki talin þörf að auka sérstaklega fjárheimildir til málaflokksins. Byggðarráð leggur áherslu á að þeir fjármunir sem áætlaðir hafa verið til málaflokksins verði vel nýttir í sumar. Byggðaráð óskar eftir yfirliti um stöðu verkefna og forgangsröðun innan fjögurra vikna.Samþykkt samhljóða.

36.7
2505108
Aðalfundur Faxaflóahafna, mið. 4. júní kl. 15
Byggðarráð Borgarbyggðar - 708

Framlagt og sveitarstjóra falið að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins. Sveitarstjóri upplýsti að í undanfara fundarins hefði hann ítrekað gagnvart formanni stjórnar og forstjóra Faxaflóahafnar sjónarmið um að fjármagnsskipan Faxaflóahafna yrði tekin til endurskoðunar með það fyrir augum að beinn ávinningur eigenda yrði meiri, sbr. afgreiðslu byggðarráðs Borgarbyggðar dags. 19. des 2024. Byggðarráð tekur undir ábendingar fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar í greinargerð B-hluta fyrirtækja í nýjum ársreikningi Reykjavikurborgar en þar segir: „Mikilvægt er að halda áfram rýningu á fjármagnsskipan félagsins með hliðsjón af kröfum eigenda um arðsemi og eiginfjárhlutfalls. Að sama skapi er mikilvægt að félagið hafi á hverjum tíma getu til að greiða eigendum sínum eðlilegan arð af því fé sem bundið er í félaginu.“ Samþykkt samhljóða.

36.8
2501012
Samband ísl. sveitarfélaga - fundargerðir 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 708

Framlagt. Á fundinum var m.a. lagt fram minnisblað frá Borgarbyggð, dags. 12. maí 2025, um alvarlega þróun í fjárhagsaðstoð. Í bókun stjórnar Sambandins kemur eftirfarandi fram: "Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga tekur undir áhyggjur Borgarbyggðar af vaxandi kostnaði vegna fjárhagsaðstoðar og leggur áherslu á mikilvægi þess að koma í veg fyrir frekari kostnaðaraukningu. Stjórnin felur framkvæmdastjóra að eiga samtal við fulltrúa Borgarbyggðar og annara sveitarfélaga í svipaðri stöðu um aðkomu Sambandsins að viðræðum við ríkið."Byggðarráð telur ómetanlegt að njóta liðsinnis Sambands íslenskra sveitarfélaga í málinu og bindur miklar vonir við samtalið framundan.

36.9
2504064
Kerfisáætlun Landsnets 2025-2034
Byggðarráð Borgarbyggðar - 708

Byggðarráð samþykkir framlögð drög að umsögn og felur sveitarstjóra að fullvinna og koma á framfæri.Samþykkt samhljóða.



37. Byggðarráð Borgarbyggðar - 709
2505025F

Fundargerð framlögð

37.1
2409047
Brákarbraut 25, gamla sláturhúsið - áætlun um niðurrif
Byggðarráð Borgarbyggðar - 709

Fyrsti áfangi niðurrifs á húsnæði í eigu sveitarfélagsins í Brákarey er hafinn en ráðgert er að honum verði lokið fyrir lok sumars. Byggðarráð felur sveitarstjóra að hefja undirbúning að öðrum áfanga niðurrifs og leggja áætlun fyrir í næsta mánuði.Samþykkt með tveimur atkvæðum (GLE og DS). Einn fulltrúi sat hjá (SG).

37.2
2505074
Samningsgerð um rekstur tjaldsvæðis í Borgarnesi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 709

Sveitarstjóra falið að vinna drögin áfram í samræmi við umræðu á fundi.Samþykkt samhljóða.

37.3
2503353
Göngustígar - Verðfyrirspurn
Byggðarráð Borgarbyggðar - 709

Byggðarráð felur sveitarstjóra að ljúka hönnun á stíg milli þéttbýlisins í Borgarnesi og Hamars, leita tilboða í verkið í framhaldinu og kynna fyrir byggðarráði. Mikilvægt er að vinnan verði í góðu samstarfi við Vegagerðina.Samþykkt samhljóða.

37.4
2505252
Samfélagsbrúin
Byggðarráð Borgarbyggðar - 709

Þátttaka í verkefninu hefur því miður verið undir væntingum. Nýting meðal íbúa á Bifröst á akstursþjónustunni hefur ekki staðist þær væntingar sem stóðu til verkefnisins og niðurgreiðsla sveitarfélagsins því talsvert meiri en áætlað var. Lagt er til að akstur verði lagður niður yfir sumartímann. Byggðarráð felur sveitarstjóra að leggja í sumar fram tillögu að nýju fyrirkomulagi á akstri í haust. Lögð verður áhersla á að útfærslan haldist innan þess fjárhagsramma sem er fyrir hendi.Samþykkt samhljóða.HH vék af fundi að afloknum þessum dagskrárlið.

37.5
1810002
Félagslegt leiguhúsnæði
Byggðarráð Borgarbyggðar - 709

Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti afgreiðslu velferðarnefndar og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.EBK fór af fundi að afloknum þessum dagskrárlið.

37.6
2505229
Upplýsingamiðlun og markaðssetning til ferðamanna
Byggðarráð Borgarbyggðar - 709

Sveitarfélaginu hafa borist erindi frá ferðaþjónustuaðilum þar sem óskað er eftir liðsinni við hönnun og uppsetningu upplýsingaskiltum. Byggðarráð tekur vel i erindið og felur sveitarstjóra að kanna jarðveg fyrir samstarfi sveitarfélagsins, ferðaþjónustuaðila, Vegagerðarinnar, Markaðsstofu Vesturlands og eftir atvikum fleiri aðila um að bæta miðlun upplýsinga við þjóðveginn. Byggðarráð óskar eftir minnisblaði um niðurstöðu þeirra samtala í næsta mánuði.Samþykkt samhljóða.

37.7
2505108
Aðalfundur Faxaflóahafna, mið. 4. júní kl. 15
Byggðarráð Borgarbyggðar - 709

Framlagt og í samræmi við afgreiðslu 708. fundar byggðarráðs mun sveitarstjóri mæta á fund Faxaflóahafna fyrir hönd sveitarfélagsins.

37.8
2505154
Aðalfundur MHR 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 709

Framlagt og mætti Jóhanna Skúladóttir héraðsskjalavörður á aðalfundinn fyrir hönd Borgarbyggðar.

37.9
2505041
Rennsli í Vatnsveitu Varmalands
Byggðarráð Borgarbyggðar - 709

Byggðarráð samþykkir að ramma fyrir viðhaldskostnað vegna Vatnsveitu Varmalands að fjárhæð 1,5 m.kr. verði vísað til viðauka við fjárhagsáætlun 2025.Samþykkt samhljóða.

37.10
2505248
Vesturhluti Tvídægru og Hellistungur - stofnun fasteignar (þjóðlendu)
Byggðarráð Borgarbyggðar - 709

Framlagt og vísað til skipulags- og byggingarnefndar.Samþykkt samhljóða.



38. Byggðarráð Borgarbyggðar - 710
2506001F

Fundargerð framlögð

38.1
2409047
Brákarbraut 25, gamla sláturhúsið - áætlun um niðurrif
Byggðarráð Borgarbyggðar - 710

Framlögð kostnaðaráætlun um niðurrif á þremur burstum gamla sláturhússins í Brákarey þar sem verkinu hefur verið skipt í tvo áfanga. Einnig upplýst að við niðurrif á fyrsta áfanga hefur mun meira magn farið í urðun heldur en áætlað var í niðurrifsaáætlun vegna mikillar einangrunarblöndunar í steypu og mikillar magnaukningar í asbesti. Byggðarráð felur sveitarstjóra að láta fara fram verðfyrirspurn í báða áfanga við niðurrif á burstum gamla sláturhússins. Ekki er fyrirsjáanlegt að kostnaður við verkið verði umfram ramma í fjárfestingaráætlun. Samþykkt með tveimur atkvæðum (GLE, DS) en einn fulltrúi greiddi atkvæði á móti (SG).Framlögð bókun frá Sigurði Guðmundssyni: "Ég fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Byggðaráði Borgarbyggðar tel að það sé ekkert sem knýi á um að nauðsynlegt sé að ráðast í niðurrif, á þessum tímapunkti, á aðalbyggingu gamla sláturhússins í Brákarey oft kallað burstirnar þrjár. Í því samhengi vil ég benda á að staðan í rekstri Borgarbyggðar er með þeim hætti að allt útlit er til þess að reksturinn verði í járnum á árinu 2025. Það þýðir að allar framkvæmdir sem unnið er að á árinu 2025 verða fjármagnaðar með lántökum. Það er því mjög mikilvægt að forgangsraða framkvæmdum á þann hátt að ekki verði ráðist í framkvæmdir, nema brýn nauðsyn kallar á að ráðist verði í, eða nýtast að litlu eða engu leiti fyrir íbúa sveitarfélagsins. Það er á engan hátt hægt að halda því fram að niðurrif á burstunum þremur sé nauðsynleg framkvæmd, ástand hússins er með þeim hætti að það kallar ekki á tafarlaust niðurrif. Niðurrif á þessum tímapunkti hefur ekki nein áhrif á þau áform sem hafa verið uppi um uppbyggingu í eyjunni. Meirihluti Framsóknarflokksins ætti frekar að beina sjónum sínum og krafti í að ljúka samningum um uppbyggingu í eyjunni og leysa úr þeirri óvissu sem meirihlutinn hefur skapað eigendum fasteigna og atvinnurekenda í eyjunni. Þessa óvissu hefur meirihluti Framsóknarflokksins skapað með ómarkvissum vinnubrögðum og óhóflegum drætti á niðurstöðu í málefnum sem tengjast Brákarey."

38.2
2504101
Gjaldskrá úrgangsþjónustu 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 710

Byggðarráð samþykkir afgreiðslu umhverfis- og landbúnaðarnefndar og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.

38.3
2506017
Samgönguáætlun 2026-2030 - Hafnir og sjóvarnir
Byggðarráð Borgarbyggðar - 710

Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna umsókn fyrir hönd sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.

38.4
2506004
Ársfundur Brákar íbúðafélags 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 710

Framlagt og sveitarstjóra falið að mæta fyrir hönd sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.

38.5
2503097
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Vesturlands 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 710

Framlagt.

38.6
2506009
Beiðni um leyfi til uppsetningar á minningar platta
Byggðarráð Borgarbyggðar - 710

Byggðarráð felur sveitarstjóra að ræða við bréfritara um útfærslu í samræmi við umræðu á fundi. Samþykkt samhljóða.

38.7
2505074
Samningsgerð um rekstur tjaldsvæðis í Borgarnesi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 710

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan samning fyrir sitt leyti og felur sveitarstjóra að undirrita með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar.

38.8
2502016
Viðauki við fjárhagsáætlun 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 710

Framlögð tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2025 sem felur í sér hækkun um 8,7 m.kr. sem skiptist svona; styrkir til íþróttafélaga 6,0 m.kr., viðhald Vatnsveitu Varmalands 1,5 m.kr. og hækkun afskrifta um 1,2 m.kr. Einnig er lögð fram hækkun á framkvæmda- og fjárfestingaráætlun um 194,3 m.kr. Það skýrist að hluta af hækkun á ramma vegna framkvæmda sem ekki var lokið við 2024 og færast á milli ára, svo sem við Grunnskólann í Borgarnesi, Safnahúsið, lýsingu á leið í Einkunnir og stofnframlags til Nemendagarða Menntaskóla Borgarfjarðar. Þá eru framkvæmdir við Vallarás færðar inn á framkvæmdaáætlun 2025, upphaf vinnu við sjóvarnir, endurbætur á Klettaborg og fjallgirðing með Múlum. Gatnagerð við Bröttugötu færist til ársins 2026.Samþykkt samhljóða að vísa viðauka til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.

38.9
2501035
Umgjörð leikskóla hjá Borgarbyggð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 710

Byggðarráð styður heils hugar afgreiðslu fræðslunefndar og samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar tillögur að skipulagi og breytingu á gjaldskrá leikskóla. Samþykkt að fela sveitarstjóra að fullvinna tillögur að gjaldskrá. Samþykkt samhljóða að vísa til fullnaðarafreiðslu í sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.

38.10
2502295
Kjarasamningar við Kennarasamband Íslands 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 710

Tillögur ræddar og leggur byggðarráð til að fram fari vinnufundur sveitarstjórnar fimmtudaginn 26. júní.Samþykkt samhljóða.HIG fór af fundi.

38.11
2506020
Fyrirhuguð sala á fasteignum Háskólans á Bifröst
Byggðarráð Borgarbyggðar - 710

Byggðarráð þakkar Margréti fyrir gott samtal um fyrirhugaða sölu aðalbyggingar og íbúða á Bifröst. Fram kom ríkur vilji milli aðila um gott samstarf við söluna og þróun skipulags þannig að uppbygging á Bifröst verði samfélaginu til heilla.Samþykkt samhljóða.

38.12
2504088
Staðan á leikskólum í Borgarnesi 2025 vor
Byggðarráð Borgarbyggðar - 710

Byggðarráð samþykkir að hefja vinnu við uppsetningu á færanlegum kennslustofum við húsnæði Klettaborgar í samræmi við umræður á fundi. Samþykkt samhljóða.

38.13
2506024
Val á listamanneskju Borgarbyggðar 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 710

Byggðarráð samþykkir val á listamannekju Borgarbyggðar 2025 en valið verður gert opinbert 17. júní næstkomandi. Samþykkt samhljóða.



39. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 78
2505006F

Sigrún Ólafsdóttir formaður nefndarinnar kynnti efni fundargerðarinnar.



Fundargerð framlögð

39.1
2504101
Gjaldskrá úrgangsþjónustu 2025
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 78

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til við sveitastjórn að tillaga að gjaldskrá frá Íslenska Gámafélaginu á móttökustöðinni í Borgarnesi verði innleidd. Samhliða því verði komið á klippikortum fyrir fasteignaeigendur í sveitafélaginu með tiltekinni inneign og verður kostnaður við rekstur móttökustöðvarinnar áfram innheimtur með fasteignagjöldum. Stefnt er að því að innleiða rafrænt klippikort sem mun taka gildi 1.september á þessu ári.Umhverfis- og landbúnaðarnefnd vill árétta að þessar breytingar eru óhjákvæmilegar til að koma í veg fyrir að kostnaður vegna úrgangs annarra en fasteignaeigenda sveitarfélagsins falli á greiðendur fasteignagjalda í Borgarbyggð.Málinu vísað til kynningar í byggðaráði og í kjölfarið til afgreiðslu í sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.

39.2
2505233
Söfnun rúlluplasts 2025
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 78

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur starfsmanni að afla frekari gagna fyrir næsta fund og er málinu frestað.Samþykkt samhljóða.

39.3
2409080
Umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 78

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að yfirfara umsóknir og synjanir, ásamt því að gera drög að nýjum umsóknum fyrir næsta umsóknarferli en umsóknarfresti lýkur í október.Samþykkt samhljóða.

39.4
1902120
Slýdalstjörn til leigu
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 78

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að auglýsa tjörnina til leigu á heimasíðu sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.

39.5
2505263
Úrgangsmál - undirbúningur fjárhagsáætlunar 2026
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 78

Nefndin þakkar Stefáni Gíslasyni fyrir gott innlegg inn í vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2026.

39.6
2505030
Gjaldskrár og samþykktir 2025 - Umhverfis- og landbúnaðarnefnd
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 78

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að yfirfari allar gjaldskrár og samþykktir sem falla undir umhverfis- og landbúnaðarnefnd, ásamt því að leggja fram tillögur að breytingum fyrir næsta fund nefndarinnar.



40. Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 243
2505015F

Eðvar Ó. Traustason formaður nefndarinnar kynnti efni fundargerðarinnar.



Fundargerð framlögð

40.1
2501035
Umgjörð leikskóla hjá Borgarbyggð
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 243

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir minnisblað um tillögur að breytingum á umgjörð leikskóla í Borgarbyggð. Tillögurnar fela í sér að bæta umgjörðina þannig að veruleiki styttingar vinnuviku sé viðurkenndur inn í kerfið. Tillagan felur ekki í sér þjónustuskerðingu eða kostnaðarauka til foreldra. Væntingar eru um að tillögurnar muni bæta starfsaðstæður leikskóla í Borgarbyggð og þeir verði áfram eftirsóknarverðir vinnustaðir þar sem framúrskarandi og faglegt leikskólastarf fer fram. Fræðslunefnd samþykkir tillögurnar fyrir sitt leyti og einnig tillögur að uppfærðum verklagsreglum fyrir leikskóla. Málinu er vísað áfram til byggðarráðs til umræðu. Áður en málið fer til byggðarráðs er óskað eftir umsögnum frá skólastjórnendum og foreldraráðum leikskóla.Samþykkt samhljóða.

40.2
2504088
Staðan á leikskólum í Borgarnesi 2025 vor
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 243

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnir stöðuna.

40.3
2503022
Sumarlokun Hnoðraból
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 243

Fræðslunefnd þakkar fyrir erindið. Fræðslunefnd bendir á að unnið er að heildarendurskoðun á umgjörð leikskóla og því verður ekki farið í sérstaka útfærslu fyrir Hnoðraból. Ekki er vilji hjá sveitarfélaginu að taka upp heimgreiðslur. Sviðsstjóra er falið að svara erindinu.Samþykkt samhljóða.

40.4
2502306
Vinnuskóli 2025
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 243

Fræðslunefnd þakkar fyrir kynninguna.

40.5
2501036
Starfsemi frístundar í Borgarbyggð
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 243

Fræðslunefnd þakkar fyrir kynninguna.

40.6
2411036
Gjaldskrár fjölskyldusviðs 2025
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 243

Lagt fram til kynningar.

40.7
2505020
Framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 243

40.8
2505022
Íslensku menntaverðlaunin 2025 - tilnefningar óskast
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 243

40.9
2501033
Skóladagatöl fyrir leik-, grunn- og listaskóla Borgarbyggðar
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 243

Fræðslunefnd samþykkir að Andabær og Hnoðraból fái viðbótar skipulagsdag. Leikskólarnir munu birta uppfært skóladagatal.Samþykkt samhljóða.



41. Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77
2505020F

Davíð Sigurðsson formaður nefndarinnar kynnti efni fundargerðarinnar.



Fundargerð framlögð.

41.1
2404320
Hraunsás III - umsókn um aðalskipulagsbreytingu - 204514
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar skv. 32. gr. skipulagslaga 123/2010 fyrir sitt leyti. Breytingartillagan tekur til svæðis í landi Hraunsáss III (L204514).Samþykkt samhljóða.

41.2
2402234
Jarðlangsstaðaland - Langárbyrgi L177317 - Nýtt deiliskipulag
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru eftir kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.Samþykkt samhljóða.

41.3
2504020
Syðstu-Fossar - umsókn um framkvæmdarleyfi - 133909
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að heimila skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðra framkvæmda í landi Syðstu-Fossa að undangenginni grenndarkynningu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt verði fyrir hagsmunaaðilum og jarðeigendum sem mögulega eiga hagsmuna að gæta í gegnum skipulagsgátt. Einnig verði óskað umsagna lögbundinna umsagnaraðila.Samþykkt samhljóða.

41.4
2504047
Gestsstaðir - umsókn um framkvæmdarleyfi - 198310
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd telur ljóst að horfa þurfi til samlegðaráhrifa þar sem nú þegar er heimild fyrir skógrækt á aðliggjandi landi, Sveinatungu (L134822) og Sveinatungu landi (L198308, L198309), á allt að 186 ha. Áformin þarf því að tilkynna til Skipulagsstofnunar til þess að fá úr því skorið hvort framkvæmdin sé háð mati á umhverfisáhrifum. Skipulags- og byggingarnefnd felur einnig skipulagsfulltrúa að upplýsa málsaðila um þau skilyrði sem framkvæmdaleyfi til skógræktar þarf að uppfylla til þess að málið fái framgang hjá sveitarfélaginu.Samþykkt samhljóða.

41.5
2505256
Kaldármelar - Breyting á landnotkun
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd er jákvæð gagnvart hugmyndum um uppbyggingu ferðaþjónustu með frístundabyggð, tjaldsvæði, hóteli og útleiguhúsum á Kaldármelum. Skipulagsnefnd samþykkir að afmörkun landnotkunar í samræmi við tillögu 2 í framlagðri greinargerð að undanskyldri frístundabyggð á landi L136061 verði sett inn í aðalskipulagstillögu sem nú er á leið í auglýsingu (sjá viðhengi)Á auglýsingatíma aðalskipulagslagstillögu verður óskað eftir því að landeigandi leggi fram frekari upplýsingar um umfang uppbyggingar, áfangaskiptingu og hvernig dregið verður úr áhrifum á umhverfið, þar með talið áhrif á votlendi, hraun og mjög gott ræktunarland. Þá er stærð nýrrar frístundabyggðar ekki í samræmi við stefnu aðalskipulagsins. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsfulltrúa og ráðgjafa.Samþykkt samhljóða.

41.6
2505255
Hítarneskot - Fyrirspurn um skipulagsmál
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar heimilar byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þar sem umrædd uppbygging er í samræmi við aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022.Samþykkt samhljóða.

41.7
2501052
Stækkun kirkjugarðs að Borg á Mýrum - Umsókn
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í stækkun á núverandi kirkjugarði Borgar á Mýrum. Í yfirstandandi endurskoðun aðalskipulags er gert ráð fyrir svæði samfélagsþjónustu (S405) fyrir kirkjustaðinn á Borg og stækkun kirkjugarðsins. Skipulags- og byggingarnefnd beinir því til sóknarnefndar Borgarkirkju að hefja vinnu við deiliskipulag svæðisins.Samþykkt með 3 atkvæðum (DS, EÓT, FA), 1 fulltrúi sat hjá (EMJ).

41.8
2505028
Fyrirspurn um skipulagsmál - Krauma
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd lítur jákvætt á áætlaða uppbyggingu eins og hún er sett fram og telur að svæðið hafi alla burði til þess að þjóna þeim fjölda gesta sem áætlunin gerir ráð fyrir. Skipulags- og byggingarnefnd bendir á stækkun á verslunar- og þjónustusvæði (VÞ1) heyrir undir endurskoðun aðalskipulagsins og breyting á deiliskipulagi Deildartungu 2 verslunar- og þjónustusvæði frá árinu 2014, því tekin í kjölfar endurskoðunarinnar.Samþykkt samhljóða.

41.9
2504168
Mávaklettur 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar heimilar byggingarfulltrúa að grenndarkynna áformin í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynnt verði í gegnum skipulagsgátt fyrir eigendum Mávakletts 1,3 og 4 og Fálkakletts 16.Samþykkt samhljóða.

41.10
2503170
Sæunnargata 11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar heimilar byggingarfulltrúa að grenndarkynna áformin í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynnt verði í gegnum skipulagsgátt fyrir eigendum Sæunnargötu 9, 10 og 12 og Þórunnargötu 21 og 21a.Samþykkt samhljóða.

41.11
2505248
Vesturhluti Tvídægru og Hellistungur - stofnun fasteignar (þjóðlendu)
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að stofnuð verði fasteign um þjóðlenduna á vesturhluta Tvídægru og Hellistungum.Samþykkt samhljóða.

41.12
2411033
Hraunsás - umsókn um deiliskipulag - 204514
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.Samþykkt samhljóða.

41.13
2505117
Austurhluti Langavatnsdals - stofnun fasteignar (þjóðlendu)
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að stofnuð verði fasteign um þjóðlenduna í austurhluta Langavatnsdals.Samþykkt samhljóða.

41.14
2506027
Gjaldskrár og samþykktir 2025 - Skipulags- og byggingarnefnd
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd felur sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að yfirfara gjaldskrár sem falla undir skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa, ásamt því að leggja til breytingar fyrir næsta fund nefndarinnar.Samþykkt samhljóða.

41.15
2301075
Aðalskipulag - Endurskoðun - Vinnslutími
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja svör við athugasemdum og ábendingum Skipulagsstofnunar og þær lagfæringar sem gerðar eru á tillögu endurskoðunar aðalskipulags eftir kynningartíma.Samþykkt samhljóða.

41.16
2505012F
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 55
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Lagt fram

41.17
2505028F
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 56
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Lagt fram

41.18
2505029F
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 243
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Lagt fram

41.19
2505030F
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 244
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Lagt fram

41.20
2412184
Galtarholt 3_Umsókn um deiliskipulag
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir breytingu á deiliskipulags Galtarholts 3 sem snýr að færslu skipulagsmarka þar sem hjólhýsa- og tjaldsvæði er fellt út.Samþykkt samhljóða.

41.21
2302212
Galtarholt 3 L135043 - Deiliskipulag
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir hjólhýsabyggð í Galtarholti 3. Lagður er fram uppdráttur dags. 20.12.2024. Deiliskipulagsbreyting er gerð samhliða. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða.

41.22
2301040
Stuttárbotnar - Húsafell 3 L134495 - Deiliskipulag
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.Samþykkt samhljóða.

41.23
2502294
Krumshólapartur 2_Umsókn um deiliskipulag
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd bendir á að einungis er heimilt að vera með útleiguhús þar sem er föst búseta. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Krumshólapart 2 með þeim fyrirvara að fyrirliggjandi sé undirritað samþykki landeiganda aðliggjandi lands varðandi heimild til að aðkoma að svæðinu liggi að hluta til á hans landi. Lagður er fram uppdráttur dags. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóma.

41.24
2503334
Umsókn um deiliskipulag
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd frestar málinu og felur skipulagsfulltrúa að óska eftir samstarfi við vegagerðina og framkvæmdaraðila varðandi skipulag innan lóðarinnar.Samþykkt samhljóða.

41.25
2505005
Umsókn um deiliskipulag
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd telur að lóðin sé nokkuð þétt skipuð þar sem innan lóðar er nú þegar veitingastaður, bensíndælur og bílaþvottastöð auk annarra þátta s.s. geymslu fyrir gaskúta o.fl.Með tilliti til ofangreinds óskar nefndin eftir að unnin verði lóðahönnun með umferðargreiningu á svæðinu.Nefndin felur skipulagsfulltrúa að koma framkomnum athugasemdum til málsaðila.Samþykkt samhljóða.

41.26
2506031
Deiliskipulag Flatahverfis á Hvanneyri - Hrafnaflöt
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 77

Skipulags- og byggingarnefnd sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðarfelur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna óverulegra breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga 123/2010 fyrir eigendum Arnarflatar 6 og Lóuflatar 2 þegar tekið hefur verið tillit til þeirra atriða sem voru til umræðu á fundinum.Samþykkt samhljóða.



42. Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 160
2505024F

Guðveig Lind Eyglóardóttir formaður nefndarinnar kynnti efni fundargerðarinnar.



Fundargerðin framlögð.

42.1
2501057
Trúnaðarbók 2025
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 160

Óheimilt er að birta afgreiðslu nefndarinnar og starfsmanna opinberlega og því eru afgreiðslur skráðar með formlegum hætti í trúnaðarbók. Það er skýr reglurammi sem nefndin og starfsmenn félagsþjónustu starfa eftir. Reglurnar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins.

42.2
1810002
Félagslegt leiguhúsnæði
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 160

Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti hækkun á húsaleigu er nemur vísitölu neysluverðs. Einnig samþykkir nefndin að árleg hækkun sé 1. október ár hvert. Erindi vísað til byggðarráðs til staðfestingar.

42.3
1401005
Reglur um fjárhagsaðstoð
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 160

Lagt er til að haldið verði vel utan um þær tölfræðilegu upplýsingar sem búið er að kynna fyrir nefndinni og þær kynntar með reglubundnum hætti. Með því móti næst að fylgjast ágætlega með þróun og hvaða áhrif ofangreindar breytingar hafa haft.

42.4
2311278
Gott að eldast
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 160

Velferðarnefnd telur mikilvægt að sameiginlegt móttöku- og matsteymi verði sett á laggirnar. Það er stefnt að því að teymið taki til starfa með haustinu.

42.5
2201148
Breytingar á barnaverndarlögum og uppbyggingu barnaverndarþjónustu sveitafélaga
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 160

Velferðarnefnd lýstir ánægju sinni með nýtt fyrirkomulag á bakvaktarþjónustu barnaverndar.



43. Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 161
2506005F

Guðveig Lind Eyglóardóttir formaður nefndarinnar kynnti efni fundargerðarinnar.



Fundargerðin framlögð.

43.1
2501057
Trúnaðarbók 2025
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 161

Óheimilt er að birta afgreiðslu nefndarinnar og starfsmanna opinberlega og því eru afgreiðslur skráðar með formlegum hætti í trúnaðarbók. Það er skýr reglurammi sem nefndin og starfsmenn félagsþjónustu starfa eftir. Reglurnar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins.

43.2
1810002
Félagslegt leiguhúsnæði
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 161

Lagt fram til kynningar. Velferðarnefnd telur mikilvægt að leitað verði hagkvæmra leiða þegar kemur að félagslegu leiguhúsnæði. Ljóst er að fara þarf í töluverðar endurbætur á hluta íbúðanna með tilheyrandi kostnaði. Því leggur velferðarnefnd til að frekari framleiga á húsnæði verði skoðuð til lengri tíma litið og hluti íbúða í mikilli viðhaldsþörf verði seldar þegar þær losna eða leigutaka bíðst annað húsnæði.

43.3
2411036
Gjaldskrár fjölskyldusviðs 2025
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 161

Velferðarnefnd leggur til að gjaldskrá er snýr að akstursþjónustu aldraðra hækki um 15% um næstu áramót. Jafnframt er áhugi fyrir því að skoða samræmda gjaldskrá á vesturlandi er snýr að félagslegri heimaþjónustu. Velferðarnefnd gerir ráð fyrir áframhaldandi skoðun á gjaldskrá i tengslum við fjárhagsáætlanavinnu fyrir árið 2026.



Fundi slitið - kl. 17:45