Byggingarnefnd vegna stækkunar Uglukletts

12. fundur

18. júní 2025 kl. 14:00 - 15:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Erla Rún Rúnarsdóttir - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir - aðalmaður
Sólveig Hallsteinsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

Guðný Elíasdóttir - Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Hlynur Ólafsson - Verkefnastjóri byggingarmála

Dagskrá

1. Ugluklettur - Stækkun
2212062

Tilboð í verkfræðihönnun á stækkun og breytingar á leikskólanum Uglukletti.

Tilboð bárust frá Ferli, Lotu, Norconsult Ísland hf., Verkís og Sigma.

Byggingarnefnd leggur til við byggðarráð að samþykkja tilboð frá Ferli.



Samþykkt samhljóða.


Orri Jónsson starfsmaður Eflu mætti til fundar undir báðum dagskráliðum.

2. Ugluklettur - Stækkun
2212062

Hönnunargögn vegna bílastæða við leikskóla Ugluklett kynnt fyrir byggingarnefnd.

Byggingarnefnd leggur til við byggðarráð að samþykkja framlögð gögn og felur verkefnastjóra framkvæmda að leita tilboða í verkið.



Samþykkt samhljóða.



Fundi slitið - kl. 15:00