Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa

57. fundur

12. júní 2025 kl. 13:00 - 14:15

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Drífa Gústafsdóttir - skipulagsfulltrúi
Pétur Már Sigurðsson - starfsmaður
Ásgerður H Hafsteinsdóttir - verkefnisstjóri
Elín Davíðsdóttir - verkefnisstjóri

Starfsmenn

Fundargerð ritaði: Drífa Gústafsdóttir - Skipulagsfulltrúi

Dagskrá

1. Umsókn um framkvæmdarleyfi. Endurheimt votlendis á Mýrum
2506062

Sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir endurheimt votlendis í landi Fíflholta, Álftár og Saura í Borgarbyggð.

Fyrirhugað endurheimtarsvæði er 216 ha að stærð. Eingöngu er framkvæmt utan fuglavarptíma, síðsumars og að hausti.

Fyrirhugað er að fylla upp í/stífla skurði alls 2463 m og endurheimta mýrar eða lækjarfarvegi við hlið skurðanna.

Eins á að taka til hliðar gróður úr skurðum og ofan af ruðningum til að þekja yfirborð rasksvæða og flýta þannig fyrir uppgræðslu þeirra. Verkið verður unnið með beltagröfu og unnið út frá útgefnum leiðbeiningum Lands og skógar fyrir framkvæmdaraðila um endurheimt votlendis. Undirritað samþykki landeigenda liggur fyrir. Engar minjar eru á svæðinu skv. vefsjá Minjastofnnar.

Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.



Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna endurheimtar votlendis í landi Fíflholts, Álftár og Saura með vísan til framlagðra gagna. Framkvæmdin er í samræmi við Landsskipulagsstefnu 2024-2038 og stefnu stjórnvalda um bindingu kolefnis. Eins er hún í samræmi við gildandi aðalskipulag Borgarbyggðar og fellur ekki undir mat á umhverfisáhrifum skv. lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.

Sýnt er að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins, umsækjanda og landeigendur ofangreindra jarða.

Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010

Fylgiskjöl


2. Umsókn um framkvæmdarleyfi. Fjarlægja stíflu í Ytri Hraundal
2506079

Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir fyrirhugaðri endurheimt votlendis á jörðinni Ytri-Hraundalur (L136013) í Borgarbyggð. Jörðin er í eigu ríkisins sem hefur samþykkt framkvæmdina.

Fyrirhugað er að fjarlægja aflagaða rafstöðvarstíflu til að endurheimta gönguleið fyrir fiska og aðrar ferskvatnslífverur á efri svæði Melsár. Melsá er ein af hliðarám Hítarár á Mýrum.

Með því að fjarlægja stífluna er því hægt að bæta fiskgengni upp ána og stækka og endurheimta búsvæði ferskvatnsfiska í Melsá.

Stíflan er um 3m á hæð og 11,3m á breidd. Hún var byggð árið 1958. Talið er að það opnist 2,55km af árfarvegi fyrir fiska ef stíflan er fjarlægð.

Umsagnir Fiskistofu, Minjastofnunar, Hafrannsóknarstofnunar og veiðifélags Hítarár fylgja umsókn ásamt samþykki landeiganda.

Lóðin er skilgreind sem jörð og í aðalskipulagi er landnotkun landbúnaðarland. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna endurheimtar votlendis með vísan til framlagðra gagna. Sýnt er að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.





Fylgiskjöl


3. Strýtusel 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2503095

Á 76. fundi skipulags- og byggingarnefndar þann 2. maí 2025 var samþykkt að grenndarkynna fyrirhugað byggingarleyfi á 140m2 frístundhúsi og 61m2 gestahúsi að Strýtuseli 9 (L172682). Grenndarkynnt var fyrir nágrönnum sem hagsmuna eiga að gæta og óskað eftir umsögnum í gegnum skipulagsgátt. Kynningartíminn var frá 8. maí til og með 8. júní 2025. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma en ein ábending barst.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar byggingarfulltrúa að taka til afgreiðslu byggingaráform þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsfulltrúi bendir á að vegagerð innan svæðis er framkvæmdaleyfisskyld.



Fylgiskjöl


4. Tómasarhagi 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2504266

Lögð er inn umsókn um byggingarleyfi fyrir 200m² vélageymslu að Tómasarhaga 2 í Borgarbyggð (L220201). Á lóðinni eru fyrir 114,4m² einbýlishús og 45m² bílskúr. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Skráð stærð lóðar er 5000m². Landnotkun er skilgreind landbúnaðarland í flokki 1 í aðalskipulagi.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfið fyrir hagsmunaaðilum í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynnt verði í gegnum skipulagsgátt fyrir landeigendum Hofstaða og Tómasarhaga.

Fylgiskjöl


5. Borgarbraut 47 mhl. 01 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2505237

Lögð er fram umsókn um leyfi til að færa núverandi hús að Borgarbraut 47 og endurbyggja það örlítið vestar á lóðinni. Er það gert í samstarfi við Minjastofnun Íslands.

Auk þess er sótt um leyfi til byggingar tveggja einbýlishúsa á tveimur hæðum hvort um sig 106,6m² og sameiginlegt geymsluhús 31,2m² á lóðinni.

Ekki liggur fyrir deiliskipulag á svæðinu.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfið fyrir hagsmunaaðilum í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynnt verði í gegnum skipulagsgátt fyrir eigendum Borgarbrautar 45, 46, 48, 49 og 50 og Kjartansgötu 19. Samhliða verður áætluð uppbygging í heild sinni grenndarkynnt fyrir ofangreindum hagsmunaaðilum.

Fylgiskjöl


6. Varmalækur L133917 - ums?kn um framkv?mdarleyfi -
2505261

Lögð er fram umsókn Heartwood Afforested Land ehf. 28.05.2025 um framkvæmdaleyfi vegna skógræktar í landi Varmalækjar í Borgarbyggð (L133917). Um er að ræða 105 ha svæði undir fjölnytjaskógrækt. Umsóknin varðar annan áfanga skógræktar á jörðinni, í kjölfar áður samþykkts 90 ha leyfis. Áætlað er að gróðursetja vor og haust 2026. Hluti svæðisins sem sótt er um í núverandi aðalskipulagi er skilgreint sem frístundabyggð en ekki er áætlun um að selja lóðir þar fyrir sumarhús. Aðrir hlutar eru skilgreindir landbúnaðarland í aðalskipulagi. Engin skipulögð landnýting fer nú fram á svæðinu. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.

Skipulagsfulltrúi bendir á að á jörðinni Varmalæk (L133917) og á aðliggjandi svæðum eru nú þegar skilgreind skógræktarsvæði sem í heild taka til 529 ha lands og því óhjákvæmilegt að horfa til samlegðaráhrifa.

Framkvæmdaraðili þarf því að senda tilkynningu um framkvæmdina til Skipulagsstofnunar sem tekur ákvörðun hvort framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.

Skipulagsfulltrúi bendir einnig á að í verklagi Borgarbyggðar er varðar framkvæmdaleyfi til skógræktar er yfirlit yfir þau gögn sem framkvæmdaaðili þarf að skila inn til sveitarfélagsins í ferli um framkvæmdaleyfi til skógræktar. Yfirlitið verður sent málsaðila.

Fylgiskjöl


7. Laugaland 2 - umskn um stofnun la - L231283
2505272

Lögð er fram umsókn um breyting á afmörkun lóðar, Laugalands 2 (L231283) á Varmalandi í Borgarbyggð. Lóðin stækkar úr 1269 m² í 1518 m² og stækkar því um 249 m². Aðliggjandi land, Laugaland (L134894) minnkar sem því nemur en stærð þess er óskráð samkvæmt HMS. Aðkoma að lóðinni er um Varmalandsveg (527). Neysluvatn kemur úr vatnsbóli Laugalands. Mannvirki er á lóðinni. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Landnotkun er skilgreind athafnasvæði í aðalskipulagi.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að afmörkun lóðar Laugalands 2 verði breytt þannig að hún stækki úr 1269m2 í 1518m2 og að lóð Laugalands minnki í samræmi.

Merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Lóðin er í notkunarflokki íbúðarhúsalóð.



8. Skiphylsland umsókn um stofnun lóða
2505271

Lögð er fram umsókn um stækkun lóðarinnar Skiphylsland, L173837, í Borgarbyggð úr 2510 m² í 5586,9 m², ný afmörkun er sýnd á uppdrætti, áður hafði lóðin enga afmörkun. Skiphylsland er stofnað úr landi Skiphyls, L136028 og er það eina landið sem á mörk að Skiphylslandi, land Skiphyls minkar um 3076.9 m² við þetta, stærð þess er óskráð samkvæmt HMS. Aðkoma að Skiphylslandi er af Snæfellsnesvegi (54) og um Skiphylsveg (5398), kvöð er sett um aðkomu í landi Skiphyls. Neysluvatn kemur úr vatnsveitu Hraunhrepps.

Mannvirki eru á lóðinni. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu og er landnotkun skilgreins sem landbúnaðarland í aðalskipulagi.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að lóðin Skiphylsland verði stækkað úr 2510m2 í 5586,9m2.

Merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Lóðin er í notkunarflokki íbúðarhúsalóð.



9. Margrétartún L134457 - Umsókn um stofnun lóða
2404295

Lögð er fram ósk um stofnun nýrrar lóðar Margrétartún úr landi Samtúns lnr.134457 í Borgarbyggð. Engin mannvirki eru á lóðinni. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Lóðin er 14.355 fm að stærð.

Skipulagsfulltrúi vísar málinu til skipulags- og byggingarnefndar.



10. 9 brautir fyrir Frisbee golf í Borgarnesi
2308040

Á 75. fundi skipulags- og byggingarnefndar þann 4. apríl 2025 var tekið jákvætt í fyrirspurn um fjölgun frisbee golfbrauta í Borgarnesi. Nefndin tók jákvætt i erindið og óskaði eftir að nánari útfærsla yrði unnin í samráði við skipulagsfulltrúa.

Lögð er fram umsókn um fjölgun um 5 brautir og er nánari útfærsla þeirra lögð fram.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar uppsetningu á körfum á auka brautum fyrir frisbee golf í samræmi við fyrirliggjandi gögn.

Fylgiskjöl


Fundi slitið - kl. 14:15