Velferðarnefnd Borgarbyggðar
161. fundur
10. júní 2025 kl. 09:00 - 10:20
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Guðveig Eyglóardóttir - formaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir - aðalmaður
Kristján Ágúst Magnússon - aðalmaður
Finnbogi Leifsson - varamaður
Eva Margrét Jónudóttir - aðalmaður
Starfsmenn
Erla Björg Kristjánsdóttir - félagsmálastjóri
Guðbjörg Guðmundsdóttir - verkefnisstjóri
Fundargerð ritaði: Erla Björg Kristjánsdóttir - félagsmálastjóri
Dagskrá
1. Trúnaðarbók 2025
2501057
Lagðar fram afgreiðslur starfsmanna frá síðasta fundi og afgreiddar umsóknir um fjárhagsstyrk.
Óheimilt er að birta afgreiðslu nefndarinnar og starfsmanna opinberlega og því eru afgreiðslur skráðar með formlegum hætti í trúnaðarbók. Það er skýr reglurammi sem nefndin og starfsmenn félagsþjónustu starfa eftir. Reglurnar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins.
2. Félagslegt leiguhúsnæði
1810002
Til kynningar staða félagslegs húsnæðis í Borgarbyggð. Samtals eru 20 íbúðir í eigu sveitarfélagsins en jafnframt framleigir sveitarfélagið þrjár íbúðir. Flestar íbúðirnar eru 2-3 herbergja að stærð en þrjár íbúðir eru fjögurra herbergja. 18 íbúðir eru í Borgarnesi og er ástand á íbúðum misjafn. 8 íbúðir eru ætlaðir fyrir öryrkja eða 60 ára og eldri.
Lagt fram til kynningar. Velferðarnefnd telur mikilvægt að leitað verði hagkvæmra leiða þegar kemur að félagslegu leiguhúsnæði. Ljóst er að fara þarf í töluverðar endurbætur á hluta íbúðanna með tilheyrandi kostnaði. Því leggur velferðarnefnd til að frekari framleiga á húsnæði verði skoðuð til lengri tíma litið og hluti íbúða í mikilli viðhaldsþörf verði seldar þegar þær losna eða leigutaka bíðst annað húsnæði.
3. Gjaldskrár fjölskyldusviðs 2025
2411036
Farið er yfir gjaldskrá er tilheyrir Fjölskyldusviði. Lagt er til að flestar hækkanir taki tillit til vísitölu neysluverð en skoðað verði sérstaklega gjaldskrá er snýr að akstursþjónustu fyrir aldraða og fyrir félagslega heimaþjónustu.
Velferðarnefnd leggur til að gjaldskrá er snýr að akstursþjónustu aldraðra hækki um 15% um næstu áramót. Jafnframt er áhugi fyrir því að skoða samræmda gjaldskrá á vesturlandi er snýr að félagslegri heimaþjónustu. Velferðarnefnd gerir ráð fyrir áframhaldandi skoðun á gjaldskrá i tengslum við fjárhagsáætlanavinnu fyrir árið 2026.
Fundi slitið - kl. 10:20