Dagskrá
1. Brákarbraut 25, gamla sláturhúsið - áætlun um niðurrif
2409047
Í framhaldi af afgreiðslu á 709. fundi byggðarráðs er kynnt nýtt verkyfirlit vegna yfirstandandi niðurrifs á fyrsta áfanga. Jafnframt kynnt drög að fyrirkomulagi niðurrifs á öðrum áfanga, sem væru þá burstir gamla sláturhússins.
Framlögð kostnaðaráætlun um niðurrif á þremur burstum gamla sláturhússins í Brákarey þar sem verkinu hefur verið skipt í tvo áfanga. Einnig upplýst að við niðurrif á fyrsta áfanga hefur mun meira magn farið í urðun heldur en áætlað var í niðurrifsaáætlun vegna mikillar einangrunarblöndunar í steypu og mikillar magnaukningar í asbesti. Byggðarráð felur sveitarstjóra að láta fara fram verðfyrirspurn í báða áfanga við niðurrif á burstum gamla sláturhússins. Ekki er fyrirsjáanlegt að kostnaður við verkið verði umfram ramma í fjárfestingaráætlun.
Samþykkt með tveimur atkvæðum (GLE, DS) en einn fulltrúi greiddi atkvæði á móti (SG).
Framlögð bókun frá Sigurði Guðmundssyni: "Ég fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Byggðaráði Borgarbyggðar tel að það sé ekkert sem knýi á um að nauðsynlegt sé að ráðast í niðurrif, á þessum tímapunkti, á aðalbyggingu gamla sláturhússins í Brákarey oft kallað burstirnar þrjár. Í því samhengi vil ég benda á að staðan í rekstri Borgarbyggðar er með þeim hætti að allt útlit er til þess að reksturinn verði í járnum á árinu 2025. Það þýðir að allar framkvæmdir sem unnið er að á árinu 2025 verða fjármagnaðar með lántökum. Það er því mjög mikilvægt að forgangsraða framkvæmdum á þann hátt að ekki verði ráðist í framkvæmdir, nema brýn nauðsyn kallar á að ráðist verði í, eða nýtast að litlu eða engu leiti fyrir íbúa sveitarfélagsins. Það er á engan hátt hægt að halda því fram að niðurrif á burstunum þremur sé nauðsynleg framkvæmd, ástand hússins er með þeim hætti að það kallar ekki á tafarlaust niðurrif. Niðurrif á þessum tímapunkti hefur ekki nein áhrif á þau áform sem hafa verið uppi um uppbyggingu í eyjunni. Meirihluti Framsóknarflokksins ætti frekar að beina sjónum sínum og krafti í að ljúka samningum um uppbyggingu í eyjunni og leysa úr þeirri óvissu sem meirihlutinn hefur skapað eigendum fasteigna og atvinnurekenda í eyjunni. Þessa óvissu hefur meirihluti Framsóknarflokksins skapað með ómarkvissum vinnubrögðum og óhóflegum drætti á niðurstöðu í málefnum sem tengjast Brákarey."
2. Beiðni um leyfi til uppsetningar á minningar platta
2506009
Beiðni frá Sif Ásmundsdóttur um að fá að setja upp minningar platta við Borgarbraut þar sem áður stóð hús sem hét Klettur. Er þetta gert til minningar um Ragnheiði Ásmundsdóttur og Jóhann Kristinn Jóhannesson sem þar bjuggu.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að ræða við bréfritara um útfærslu í samræmi við umræðu á fundi.
Samþykkt samhljóða.
3. Samningsgerð um rekstur tjaldsvæðis í Borgarnesi
2505074
Framlagður samningur við ÁS rekstur og þjónusta ehf. um rekstur tjaldsvæðisins í Borgarnesi.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan samning fyrir sitt leyti og felur sveitarstjóra að undirrita með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar.
4. Viðauki við fjárhagsáætlun 2025
2502016
Kynnt tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2025 og fjárfestingarramma 2025-2028. Til fundarins kemur Eiríkur Ólafsson fjármálastjóri Borgarbyggðar.
Framlögð tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2025 sem felur í sér hækkun um 8,7 m.kr. sem skiptist svona; styrkir til íþróttafélaga 6,0 m.kr., viðhald Vatnsveitu Varmalands 1,5 m.kr. og hækkun afskrifta um 1,2 m.kr. Einnig er lögð fram hækkun á framkvæmda- og fjárfestingaráætlun um 194,3 m.kr. Það skýrist að hluta af hækkun á ramma vegna framkvæmda sem ekki var lokið við 2024 og færast á milli ára, svo sem við Grunnskólann í Borgarnesi, Safnahúsið, lýsingu á leið í Einkunnir og stofnframlags til Nemendagarða Menntaskóla Borgarfjarðar. Þá eru framkvæmdir við Vallarás færðar inn á framkvæmdaáætlun 2025, upphaf vinnu við sjóvarnir, endurbætur á Klettaborg og fjallgirðing með Múlum. Gatnagerð við Bröttugötu færist til ársins 2026.
Samþykkt samhljóða að vísa viðauka til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.
5. Umgjörð leikskóla hjá Borgarbyggð
2501035
Afgreiðsla frá 243. fundi fræðslunefndar Borgarbyggðar: "Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir minnisblað um tillögur að breytingum á umgjörð leikskóla í Borgarbyggð. Tillögurnar fela í sér að bæta umgjörðina þannig að veruleiki styttingar vinnuviku sé viðurkenndur inn í kerfið. Tillagan felur ekki í sér þjónustuskerðingu eða kostnaðarauka til foreldra. Væntingar eru um að tillögurnar muni bæta starfsaðstæður leikskóla í Borgarbyggð og þeir verði áfram eftirsóknarverðir vinnustaðir þar sem framúrskarandi og faglegt leikskólastarf fer fram. Fræðslunefnd samþykkir tillögurnar fyrir sitt leyti og einnig tillögur að uppfærðum verklagsreglum fyrir leikskóla. Málinu er vísað áfram til byggðarráðs til umræðu. Áður en málið fer til byggðarráðs er óskað eftir umsögnum frá skólastjórnendum og foreldraráðum leikskóla. Samþykkt samhljóða." Til fundarins kemur Hlöðver Ingi Gunnarsson, sviðsstjóri fræðslusviðs.
Byggðarráð styður heils hugar afgreiðslu fræðslunefndar og samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar tillögur að skipulagi og breytingu á gjaldskrá leikskóla. Samþykkt að fela sveitarstjóra að fullvinna tillögur að gjaldskrá. Samþykkt samhljóða að vísa til fullnaðarafreiðslu í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
6. Kjarasamningar við Kennarasamband Íslands 2025
2502295
Í samræmi við afgreiðslu frá 701. fundi byggðarráðs eru kynntar tillögur sem eru til þess fallnar að efla undirliggjandi rekstrarafkomu Borgarbyggðar til lengri tíma m.a. til að mæta kostnaðarhækkun vegna kjarasamninga.
Tillögur ræddar og leggur byggðarráð til að fram fari vinnufundur sveitarstjórnar fimmtudaginn 26. júní.
Samþykkt samhljóða.
HIG fór af fundi.
7. Fyrirhuguð sala á fasteignum Háskólans á Bifröst
2506020
Háskólinn á Bifröst hefur ákveðið að setja á sölu aðalbyggingar og íbúðir í eigu skólans á Bifröst. Til fundarins kemur undir þessum lið Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor skólans.
Byggðarráð þakkar Margréti fyrir gott samtal um fyrirhugaða sölu aðalbyggingar og íbúða á Bifröst. Fram kom ríkur vilji milli aðila um gott samstarf við söluna og þróun skipulags þannig að uppbygging á Bifröst verði samfélaginu til heilla.
Samþykkt samhljóða.
8. Staðan á leikskólum í Borgarnesi 2025 vor
2504088
Framlögð kostnaðaráætlun vegna endurbóta og stækkunar á húsnæði Klettaborgar sbr. afgreiðslu 707. fundar byggðarráðs. Til fundarins undir þessum lið kemur Guðni Rafn Ásgeirsson umsjónarmaður fasteigna.
Byggðarráð samþykkir að hefja vinnu við uppsetningu á færanlegum kennslustofum við húsnæði Klettaborgar í samræmi við umræður á fundi.
Samþykkt samhljóða.
9. Val á listamanneskju Borgarbyggðar 2025
2506024
Farið yfir tilnefningar um listamanneskju Borgarbyggðar 2025. Þórunn Kjartansdóttir forstöðumaður menningarmála situr fundinn undir þessum lið.
Byggðarráð samþykkir val á listamannekju Borgarbyggðar 2025 en valið verður gert opinbert 17. júní næstkomandi.
Samþykkt samhljóða.
10. Gjaldskrá úrgangsþjónustu 2025
2504101
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til við sveitastjórn að tillaga að gjaldskrá frá Íslenska Gámafélaginu á móttökustöðinni í Borgarnesi verði innleidd. Samhliða því verði komið á klippikortum fyrir fasteignaeigendur í sveitafélaginu með tiltekinni inneign og verður kostnaður við rekstur móttökustöðvarinnar áfram innheimtur með fasteignagjöldum. Stefnt er að því að innleiða rafrænt klippikort sem mun taka gildi 1.september á þessu ári. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd vill árétta að þessar breytingar eru óhjákvæmilegar til að koma í veg fyrir að kostnaður vegna úrgangs annarra en fasteignaeigenda sveitarfélagsins falli á greiðendur fasteignagjalda í Borgarbyggð.
Málinu vísað til kynningar í byggðaráði og í kjölfarið til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Byggðarráð samþykkir afgreiðslu umhverfis- og landbúnaðarnefndar og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
11. Samgönguáætlun 2026-2030 - Hafnir og sjóvarnir
2506017
Framlagt bréf frá Vegagerðinni um endurskoðun á samgönguáætlun fyrir árin 2026-2030 fyrir hafnaframkvæmdir og sjóvarnarframkvæmdir.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna umsókn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
12. Ársfundur Brákar íbúðafélags 2025
2506004
Framlagt boð á ársfund Brákar íbúðafélags hses 11. júní 2025.
Framlagt og sveitarstjóra falið að mæta fyrir hönd sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
13. Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Vesturlands 2025
2503097
Framlögð fundargerð Heilbrigðisnefndar Vesturlands 28. maí 2025.
Framlagt.
Fylgiskjöl