Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

244. fundur

28. maí 2025 kl. 13:00 - 14:00

á skrifstofu byggingarfulltrúa


Nefndarmenn

Sæmundur Óskarsson - byggingarfulltrúi
Kara Lau Eyjólfsdóttir - verkefnisstjóri

Starfsmenn

Fundargerð ritaði: Sæmundur Óskarsson - Byggingarfulltrúi

Dagskrá

1. Tómasarhagi 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2504266

Umsækjandi: Ingi Björgvin Reynisson

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir vélageymslu. Stærð:200m2. Mhl-02.

Húsið er stálgrindahús á steyptum undirstöðum.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Jón Þór Jónsson

Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu. Erindið þarf að grenndarkynna.

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.

Byggingaráform eru samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:

- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.

- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.

- Leyfisgjöld hafa verið greidd.



2. Hraunskógur 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2505242

Umsækjandi: Akurey byggingafélag ehf.

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir fyrir frístundahúsi og gestahúsi.

Frístundahús, mhl-01 stærð 105.9m2.

Gestahús,mhl-02 stærð 20m2.

Byggt er úr timbri á steyptar undirstöður.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Nýhönnun ehf

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:

- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.

- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.

- Leyfisgjöld hafa verið greidd.



3. Borgarbraut 47 mhl. 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2505241

Umsækjandi: Eiríkur Ingólfsson ehf

Erindi: Sótt um leyfi til að byggja sameiginlegt geymsluhús (mhl-04) á lóðinni Borgarbraut 47 fyrir mhl. 01,02 og 03.

Byggt er úr timbri á steyptar undirstöður. Stærð:31.2m2.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Sigurður Halldórsson.

Á 73. fundi skipulags og bygginganefndar var gerð eftirfarandi bókun: Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að grenndarkynnt verði áætluð uppbygging og breytt nýting lóðar. Skipulagsfulltrúa er jafnframt falið að hefja vinnu við deiliskipulag á svæðinu.

Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af lóðinni og erindið þarf að grenndarkynna.

Málinu er vísað til umnsagnar skipulagsfulltrúa.



4. Borgarbraut 47 mhl 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2505240

Umsækjandi: Eiríkur Ingólfsson ehf

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir einbýlishúsi á tveimur hæðum. Mhl-03. Stærð 106.6m2. Byggt er úr timbri á steyptar undirstöður.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir.

Hönnuður: Sigurður Halldórsson

Á 73. fundi skipulags og bygginganefndar var gerð eftirfarandi bókun: Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að grenndarkynnt verði áætluð uppbygging og breytt nýting lóðar. Skipulagsfulltrúa er jafnframt falið að hefja vinnu við deiliskipulag á svæðinu.

Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af lóðinni og erindið þarf að grenndarkynna.

Málinu er vísað til umnsagnar skipulagsfulltrúa.



5. Borgarbraut 47 mhl. 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2505239

Umsækjandi: Eiríkur Ingólfsson ehf

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir einbýlishúsi mhl-02. Stærð 106.6m2. Byggt er úr timbri á steyptar undirstöður.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir.

Hönnuður: Sigurður Halldórsson.

Á 73. fundi skipulags og bygginganefndar var gerð eftirfarandi bókun: Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að grenndarkynnt verði áætluð uppbygging og breytt nýting lóðar. Skipulagsfulltrúa er jafnframt falið að hefja vinnu við deiliskipulag á svæðinu.

Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af lóðinni og erindið þarf að grenndarkynna.

Málinu er vísað til umnsagnar skipulagsfulltrúa.



6. Borgarbraut 47 mhl. 01 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2505237

Umsækjandi: Eiríkur Ingólfsson ehf

Erindi: Sótt er um leyfi til að færa núverandi hús og endurbyggja það örlítið vestar á lóðinni. Um er að ræða endurbyggingu á húsinu Grísatungu (mhl-01) sem stendur á lóðinni í dag og er sá hluti í samstarfi við Minjastofnun Íslands.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir og umsögn Minjastofnunar dagsett 7.maí 2025 fylgir umsókn.

Hönnuður: Sigurður Halldórsson

Á 73. fundi skipulags og bygginganefndar var gerð eftirfarandi bókun: Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að grenndarkynnt verði áætluð uppbygging og breytt nýting lóðar. Skipulagsfulltrúa er jafnframt falið að hefja vinnu við deiliskipulag á svæðinu.

Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af lóðinni og erindið þarf að grenndarkynna.

Málinu er vísað til umnsagnar skipulagsfulltrúa.



Fundi slitið - kl. 14:00