Umhverfis- og landbúnaðarnefnd
74. fundur
10. febrúar 2025 kl. 08:30 - 11:00
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Sigrún Ólafsdóttir - formaður
Þórður Brynjarsson - varaformaður
Þorsteinn Eyþórsson - aðalmaður
Kristján Ágúst Magnússon - aðalmaður
Thelma Dögg Harðardóttir - aðalmaður
Logi Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Sóley Birna Baldursdóttir - deildarstjóri
Guðný Elíasdóttir - Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Sóley Birna Baldursdóttir - deildarstjóri umhverfis- og landbúnaðarmála
Dagskrá
1. Snjómokstur í dreifbýli- Útboð 2025
2401233
Yfirferð á útboðsgögnum og valforsendum.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd fór yfir útboðsgögn varðandi snjómokstur í dreifbýli. Nefndin felur starfsmanni að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Samþykkt samhljóða.
2. Snjómokstursreglur í dreifbýli
2412077
Lögð fram drög að snjómokstursreglum í dreifbýli.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur starfsmanni nefndar að fullvinna reglur um snjómokstur í dreifbýli í samræmi við umræður á fundinum og verða staðfestar á næsta fundi nefndarinnar.
Samþykkt samhljóða.
3. Samingar við refa- og minkaveiðimenn 2025
2412078
Samningar við refa- og minkaveiðimenn lagðir fram.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur starfsmanni nefndar að fullvinna samninga við refa- og minkaveiðimenn í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir næsta fund.
Samþykkt samhljóða.
Sóley Birna deildarstjóri umhverfis- og landbúnaðardeildar vék af fundi undir þessum lið.
Fundi slitið - kl. 11:00