Byggðarráð Borgarbyggðar

696. fundur

30. janúar 2025 kl. 08:15 - 11:30

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - formaður
Guðveig Eyglóardóttir - varaformaður
Thelma Dögg Harðardóttir - áheyrnarfulltrúi
Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Lilja Björg Ágústsdóttir - Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri

Dagskrá

1. Húsnæðisáætlun Borgarbyggðar 2025
2411044

Framlögð drög að húsnæðisáætlun Borgarbyggðar 2025 sbr. afgreiðslu 260. fundar sveitarstjórnar þar sem sveitarstjóra var falið að fullvinna drög að áætlun.

Húsnæðisáætlun Borgarbyggðar 2025 framlögð. Byggðarráð felur sveitarstjóra að uppfæra í samræmi við umræðu á fundi og leggja fyrir næsta fund byggðarráðs.



Samþykkt samhljóða.



2. Staða á framkvæmdum í Borgarbyggð
2408149

Farið yfir stöðu á framkvæmdum við endurbyggingu á húsnæði Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Til fundarins undir þessum dagskrárlið kemur Orri Jónsson verkefnastjóri hjá Eflu. Til fudnarins koma einnig Hlöðver Ingi Gunnarsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Hlynur Ólafsson verkefnastjóri hjá Borgarbyggð.

Verktaki hefur farið þess á leit við Borgarbyggð að frestun verði á áætluðum verklokum við endurbyggingu hluta húsnæðis GBF á Kleppjárnsreykjum. Unnið er í samstarfi við verktaka og skólastjórnendur að því að hluti byggingarinnar verði þó tekinn í notkun á tilsettum tíma fyrir skólasetningu haustið 2025. Ástæða seinkunar er að hluta til rakin til tafa á hönnun. Í lok febrúar er áætlað að uppfærð verkáætlun verði lögð fram.

Það eru vonbrigði að áætlanir um verklok muni ekki standast. Nokkuð góður tími er til stefnu að útfæra breyttar forsendur m.t.t. skólastarfs. Byggðarráð bindur vonir við farsæla útfærslu í góðu samstarfi verktaka, umsjónaraðila og stjórnenda skólans.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að upplýsa nemendur, foreldra og starfsfólk. Þá felur byggðarráð sveitarstjóra að láta vinna mat á fjárhagslegum áhrifum ofangreindra breytinga.



Samþykkt samhljóða.



3. Lýsing á leið milli hesthúsahverfis og Einkunna
2311308

Farið yfir stöðu vinnu við lýsingu á stíg sem liggur milli Einkunna og hesthúsahverfisins við Vindás. Hlynur Ólafsson verkefnastjóri hjá Borgarbyggð kemur til fundarins undir þessum dagskrárlið.

Lagður fram tölvupóstur frá verktakafyrirtækinu VBT þar sem fyrirtækið segir sig frá verkinu. Byggðarráð leggur áherslu á að verkinu verði fundinn nýr farvegur og felur sveitarstjóra að vinna áfram.



Samþykkt samhljóða.



Hlynur Ólafsson fór af fundi.



4. Útboð á skólaakstri 2022
2201118

Fræðslunefnd gerir það að tillögu sinni að framlengja samningana um eitt ár og vísar málinu til Byggðarráðs. Samþykkt samhljóða.

Byggðarráð samþykkir tillögu fræðslunefndar um að framlengja samninga um skólaakstur í Borgarbyggð um eitt ár og vísar til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórnar. Byggðarráð leggur til að hafinn verði undirbúningur útboðs á skólaakstri sem fer fram vorið 2026.



Samþykkt samhljóða.



5. Búnaðarkaup fyrir Grunnskólann í Borgarnesi vegna framkvæmda á húsnæði
2501222

Framlagt minnisblað um kaup á innanstokksbúnaði vegna endurbyggingar miðrýmis húsnæðis Grunnskólans í Borgarnesi. Þar er óskað eftir fjárheimild samtals að fjárhæð 16,2 m.kr.

Byggðarráð samþykkir að vísa til viðauka í fjárfestingaráætlun 2025 að hækka ramma vegna endurnýjunar á miðrými Grunnskólans í Borgarnesi um 16,2 m.kr. vegna kaupa á innanstokksbúnaði.



Samþykkt samhljóða.



Hlöðver Ingi Gunnarsson fór af fundi.



6. Umsókn um lóð - Vallarás 16e
2501271

Framlögð umsókn um lóðina Vallarás 16E í Borgarnesi.

Byggðarráð samþykkir að úthluta lóðinni Vallarás 16E til Kristins Óskars Sigmundssonar og M172 ehf. í samræmi við framlagða umsókn.



Samþykkt samhljóða.





7. Brákarbraut 25, gamla sláturhúsið - áætlun um niðurrif
2409047

Lögð fram drög að útboðsgögnum unnin af Verkís vegna fyrirhugaðs niðurrifs hluta af húsnæði gamla sláturhússins og gamla gúanósins í Brákarey.

Sveitarstjóra falið að fullvinna í samræmi við umræðu á fundi og leggja fyrir næsta fund byggðarráðs.



Samþykkt samhljóða.



8. Skipan fulltrúa í stjórn Handverkssjóðs Félags iðnaðarmanna
1702129

Framlagt erindi til sveitarstjórnar um skipan fulltrúa í stjórn sjóðsins.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til stjórnarsetu fyrir hönd sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða.



9. Haukagilsgirðing 2024
2401060

Framlögð beiðni frá Fjallskilanefnd Þverárréttar um endurnýjun á fjárheimild til endurbóta á hluta Haukagilsgilsgirðingar en ekki tókst að vinna verkið á árinu 2024.

Byggðarráð samþykkir að gerður verði viðauki við framkvæmdaáætlun 2025 að fjárhæð 5,0 m.kr. en í honum felst að endurnýja fjárheimild til Fjallskilanefndar Þverárréttar sem veitt var árið 2024, en ekki var notuð, til endurnýjunar á Haukagilsgirðingu á um 1,6 km. kafla.



Samþykkt samhljóða.



10. Fjármögnun framkvæmdaáætlunar
2404136

Farið yfir stöðu vinnu við fjármögnun framkvæmdaáætlunar sveitarfélagsins.

Eiríkur Ólafsson fjármálastjóri og Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri kynntu hugmyndir að fyrirkomulagi fjármögnunar vegna fjárfestingaráætlunar sveitarfélagsins. Farið var yfir ýmsa valkosti og tímasetningar ræddar.



11. Mælaborð um rekstur Borgarbyggðar
2401059

Yfirferð um rekstur og fjárfestingar Borgarbyggðar í desember 2024. Eiríkur Ólafsson fjármálstjóri og Kristín Lilja Lárusdóttir aðalbókari mæta til fundarins.

Farið yfir rekstur og sjóðstreymi Borgarbyggðar í desember 2024.



12. Leikskólinn Hraunborg - Varmaland - Flutningur
2312078

Farið yfir uppgjör á framkvæmdum við Varmaland og samanburð við útboðsgögn, magnskrá og tilboð og sundurliðun á aukaverkum. Lagt fram að beiðni Sigurðar Guðmundssonar byggðarráðsfulltrúa.

Sigurður Guðmundsson fulltrúi Sjálfstæðisflokks lagði fram eftirfarandi spurningar:



"Hvernig er staðið að afstemmingu á verklegum framkvæmdum hjá sveitarfélaginu?

Hvaða þjálfun fá starfsmenn og hvaða verkfæri fá starfsmenn til afstemmingu verkefna sem þeir sjá um?

Hvaða kröfur eru af hálfu sveitarfélagsins um utanumhald verklegraframkvæmda þegar utanumhaldið með verkefnum er aðkeypt?

Hvaða verkferlar eru til staðar hjá sveitarfélaginu í tengslum við verklegar framkvæmdir, yfirferð og samþykkt reikninga, afgreiðsla og samþykkt aukaverka, verkfundargerðir og samþykkt þeirra?"



Framlagt og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræðu á fundinum.



Samþykkt samhljóða.



Fundi slitið - kl. 11:30