Fundargerð
Afgreiðslur byggingarfulltrúa
238. fundur
30. janúar 2025 kl. 10:00 - 11:00
á skrifstofu byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
Starfsmenn
Dagskrá
1. Kotstekksás 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir sumarhúsi á einni hæð.Byggt er úr timbri á steyptar undirstöður. Stærð 81.1m2. Mhl-01
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Hjörleifur Sigurþórsson
Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum
2. Brákarsund 1-3 - Umsókn um stöðuleyfi_gámur
Erindi: Sótt er um stöðuleyfi fyrir 20 ft. gámi.
Gámurinn er staðsettur innan byggingasvæðis við Brákarsund 1-3
Fyrirhuguð notkun: Geymsla fyrir byggingarefni
3. Hátún - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir stækkun á núverandi íbúðarhúsi.
Byggt er úr timbri á steyptar undirstöður Stækkun alls 37m2. Mhl-01
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Ómar Pétursson
Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum
4. Melabyggð 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir sumarhúsi á einni hæð. Húsið er byggt úr timbri á steyptar undirstöður. Mhl-01. stærð 33.3m2
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Ómar Péturson
Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
5. Borgarbraut 65 - Umsókn um stöðuleyfi_gámar
Erindi: Sótt er um stöðuleyfi fyrir 4 20 ft gámum.
Fyrirhuguð notkun: Vinnubúðir fyrir framkvæmd við Borgarbraut 63, áætlað er að gámar verði á 2 hæðum (2x2)
Gámarnir verða staðsettir á bílastæði fyrir framan Heilbrigðisstofnun Vesturlands á lóð Borgarbrautar 65
Fyrir liggur samþykki lóðarhafa.
6. Hamarsland-reiðhöll 203131 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi reiðhöll.Byggt er til Suðurs. Stækkun er 25.2m2. Byggingin er úr timbri á steyptar undirstöður,
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Ómar Pétursson
Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum
7. Borgarbraut 55 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir fjölbýlishúsi með 16 íbúðum á lóðinni Borgarbraut 55. Húsið er á tveimur hæðum byggt úr forsteyptum einingum sem hvíla á forsteyptum sökklum .
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Bent Larsen Fróðason
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að fyrir liggi staðfesting í B- deild stjórnartíðinda og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.
Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum