Umhverfis- og landbúnaðarnefnd
68. fundur
8. október 2024 kl. 08:00 - 10:30
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Sigrún Ólafsdóttir - formaður
Þórður Brynjarsson - varaformaður
Þorsteinn Eyþórsson - aðalmaður
Kristján Ágúst Magnússon - aðalmaður
Thelma Dögg Harðardóttir - aðalmaður
Logi Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Sóley Birna Baldursdóttir - deildarstjóri
Fundargerð ritaði: Sóley Birna Baldursdóttir - deildarstjóri umhverfis- og landbúnaðarmála
Dagskrá
1. Sorpútboð 2024
2406059
Farið yfir stöðu vinnu við sorpútboðsgögn sem er á lokametrunum.
Gögn vegna útboðs sorphreinsunar lögð fram. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd samþykkir framlögð drög og felur starfsmanni nefndarinnar að uppfæra í samræmi við umræðu á fundi.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til við byggðarráð að söfnun lífræns úrgangs verði undanskilin í útboði vegna sorphreinsunar. Nefndin hefur verið með til skoðunar ýmsar lausnir við söfnun lífræns úrgangs með það að markmiði að lækka hrein útgjöld íbúa og draga úr urðun. Nefndin mun í framhaldinu taka afstöðu til mismunandi lausna og gera tillögu að útfærslu fyrir byggðarráð. Áður en til innleiðingar kæmi yrði ráðist í ítarlega kynningu fyrir íbúum sveitarfélagsins. Starfsmanni nefndarinnar falið að vinna málið áfram.
Birgir Örn Birgisson framkvæmdastjóri Consensa sat fundinn undir þessum lið í gegnum fjarfundarbúnað.
Samþykkt samhljóða.
2. Umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða
2409003
Umræða um umsóknarferli í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.
Kynnt staða þeirra umsókna sem eru í vinnslu af hálfu sveitarfélagsins en umsóknarfrestur rennur út 15. október.
Á desemberfundi nefndarinnar verður tekinn fyrir sérstakur dagskráliður um uppbyggingu áfangastaða í Borgarbyggð.
Samþykkt samhljóða.
3. Hreinsunarátak_brotajárn 2024
2408201
Farið yfir innsend tilboð undir brotajárn á lögbýlum.
Í samræmi við afgreiðslu á 66. fundi umhverfis- og landbúnaðarnefndar fór fram verðfyrirspurn um söfnun brotajárns. Eitt tilboð barst, barst frá Hringrás, umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til við byggðarráð að fela starfsmanni að ganga til samninga við Hringrás, að uppfylltum skilmálum, á grundvelli þess.
Áætlað er að söfnunin fari fram undir lok október og nóvember.
Samþykkt samhljóða.
4. Snjómokstur í dreifbýli - verðfyrirspurn
2209240
Umræða um snjómokstur í dreifbýli 2024-2025.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til að framlengdir verði samningar á grundvelli verðfyrirspurnar við verktaka vegna snjómoksturs í dreifbýli um eitt ár.
Verktakarnir á hverju svæði fyrir sig:
Andakíll, Bæjarsveit og Lundarreykjadalur:
Verktaki: Tryggvi Valur Sæmundsson s.869-2900 netfang: halstak@halstak.is
Hálsasveit, Reykholtsdalur og Flókadalur:
Verktaki: Einar S. Traustason s. 892-3606, netf. sigrun@heilsuhof.is
Hvítársíða, Þverárhlíð, Stafholtstungur, Norðurárdalur, Borgarhreppur með þjóðvegi 1 að Borgarnesi:
Verktaki: Sleggjulækur ehf. s. 894-9549, netf. kaldolfur@vesturland.is
Fyrrum Borgarhreppur vestan Borgarness og fyrrum Álftaneshreppur:
Verktaki: Hálfdán Helgason s. 894-1187
Fyrrum Hraunhreppur:
Verktaki: Gísli Guðjónsson s. 894-0440 netf. gisligudjons68@gmail.com
Fyrrum Kolbeinsstaðahreppur:
Verktaki: Gestur Úlfarsson s. 893-6735 netf. kaldarb@simnet.is
Málinu er vísað til byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða.
5. Fjárhagsáætlunarumræða
2409299
Almenn umræða varðandi fjárhagsáætlunargerð sem er framundan í haust.
Farið yfir vinnu við fjárhagsáætlun hjá þeim málaflokkum og stofnunum sem heyra undir Umhverfis- og landbúnaðarnefnd. Fjárhagsáætlun verður lögð fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn 14. nóvember næst komandi.
6. Stofnun lögbýlis á jörðinni Vindás L233-5672
2409292
Framlögð beiðni Þverholtabúsins ehf. dags. 25.9.2024 um umsögn vegna fyrirhugaðrar umsóknar um stofnun lögbýlis á jörðinni Vindási með vísan til 17. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Umsóknin er í samræmi við staðfest aðalskipulag og uppfyllir skilyrði 18. gr. Jarðalaga nr. 81/2004. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun lögbýlis en telur æskilegt að föst búseta fylgi stofnun lögbýlis. Nefndin veitir jákvæða umsögn um umsóknina og leggur þá ákvörðun fyrir sveitarstjórn til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða.
Fundi slitið - kl. 10:30