Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar

68. fundur

6. september 2024 kl. 12:30 - 15:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - formaður
Logi Sigurðsson - aðalmaður
Orri Jónsson - aðalmaður
Friðrik Aspelund - aðalmaður
Eva Margrét Jónudóttir - aðalmaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir boðaði forföll og Sigurður Guðmundsson - varamaður sat fundinn í hans stað

Starfsmenn

Þóra Júlíusdóttir - verkefnisstjóri
Elín Davíðsdóttir - verkefnisstjóri
Ásgerður H Hafsteinsdóttir - verkefnisstjóri
Fundargerð ritaði: Þóra Margrét Júlíusdóttir - Verkefnastjóri


Dagskrá

1. Aðalskipulag - Endurskoðun - Vinnslutími
2301075

Lögð er fram vinnslutillaga að Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga 123/2010. Endurskoðun aðalskipulags er til 12 ára og nær yfir allt land innan Borgarbyggðar. Þar er mörkuð stefna sveitarfélagsins um landnotkun, náttúruvernd og þróun byggðar.

Skipulags- og matslýsing var auglýst skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga frá 15. júní til og með 18. september 2023. Meðfylgjandi skipulagsgögn eru greinagerð, forsendur og umhverfismatsskýrsla, skipulagsuppdráttur fyrir dreifbýli, skipulagsuppdráttur fyrir þéttbýlið í Borgarnesi, skipulagsuppdráttur fyrir þéttbýlin í Bifröst, Hvanneyri og Reykholti, flokkun vega í náttúru Íslands, flokkun landbúnaðarlands og takmarkanir vegna vindorku.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða vinnslutillögu að Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 til auglýsingar skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga 123/2010. Endurskoðun aðalskipulags er til 12 ára og nær yfir allt land innan Borgarbyggðar. Þar er mörkuð stefna sveitarfélagsins um landnotkun, náttúruvernd og þróun byggðar.

Skipulags- og matslýsing var auglýst skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga frá 15. júní til og með 18. september 2023.

Meðfylgjandi skipulagsgögn eru greinagerð, forsendur og umhverfismatsskýrsla, skipulagsuppdráttur fyrir dreifbýli, skipulagsuppdráttur fyrir þéttbýlið í Borgarnesi, skipulagsuppdráttur fyrir þéttbýlin í Bifröst, Hvanneyri og Reykholti, flokkun vega í náttúru Íslands, flokkun landbúnaðarlands og takmarkanir vegna vindorku.

Samþykkt samhljóða.

Eva Margrét Jónudóttir leggur fram:" Það eru tveir þættir sem ég vil vekja athygli á varðandi takmarkanir vegna vindorku. Það er annars vegar viðmið um 300 metra hæð yfir sjávarmáli og hins vegar viðmið um 1 km fjarlægð frá byggð. Með þessu hæðarlínuviðmiði er verið að útiloka óþarflega stórt svæði sem gæti mögulega hentað vel til vindorkuframleiðslu í framtíðinni. Varðandi fjarlægðina frá byggð þá hefði ég vilja sjá rökstuðning fyrir viðmiðinu. Það væri nær að hafa reiknireglu eins og t.d. fjórfjöld hæð vindmyllu frá byggð eða eitthvað í þeim dúr. Ég tel fulla ástæðu til að kalla eftir ábendingum varðandi þetta á kynningartíma og endurskoða tillöguna í kjölfarið."

Fylgiskjöl


2. Sigmundarstaðir - Mælimastur á Grjóthálsi - umsókn um deiliskipulag - L134748
2402195

Nýtt deiliskipulag, Mælimastur á Grjóthálsi, tímabundið mælimastur í landi Sigmundarstaða í Borgarbyggð, hefur verið auglýst samkvæmt 41. gr. skiplagslaga nr. 123/2010. Kynningartími var frá 20.06.2024-18.08.2024 og óskað eftir umsögnum lögbundinna umsagnaraðila. Umsagnir bárust frá 34 aðilum.

Lagður er fram uppdráttur, skýringaruppdráttur og greinargerð dags. í september 2024 þar sem brugðist hefur verið við þeim umsögnum og athugasemdum sem bárust á kynningartíma. Lagðar eru fram allar umsagnir og athugasemdir sem bárust á kynningartíma og svör skipulagshönnuðar við þeim.

Fram kemur tillaga frá Sjálstæðisflokknum og Vinstri grænum: "Við fulltúar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna benda á að stefnumótun sveitarfélagsins og stjórnvalda vegna nýtingu vindorku liggur ekki fyrir. Breytingar á aðalskipulagi Borgarbyggðar er í gangi en þar er í vinnslu stefnumótun vegna nýtingu á vindorku. Tillaga til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu vindorku eru í vinnslu á Alþingi Íslendinga og þar er svohljóðandi grein „Við ákvörðun og val á svæðum fyrir hagnýtingu vindorku skal þess ávallt gætt að neikvæðum áhrifum af starfseminni á viðkvæm svæði í náttúrunni og menningarminjar sé haldið í lágmarki og að tekið sé tillit til sjónrænna og hljóðrænna áhrifa. Gæta skal sérstaklega að áhrifum á þjóðgarða og önnur friðlýst svæði, óbyggð víðerni og ferðamannastaði sem eru einstakir á landsvísu vegna náttúrufars“. Ef þessi tillaga um stefnu stjórnvalda verður samþykkt þá á Borgarbyggð eftir að taka afstöðu til þess hvort Grjótháls sé sá staður í Borgarbyggð sem falli undir þessa skilgreiningu sem kemur fram í stefnu stjórnavalda um svæði þar sem ekki á að nýta vindorku. Ég tel að það séu veigamikil rök fyrir því að í kringum Grjótháls séu staðir sem eru einstakir á landsvísu og mikilvægir ferðamannastaðir sem Vindmyllur á Grjóthálsi munu hafa mjög neikvæð áhrif á. Ég legg því til að afgreiðslu deiliskipulagsins verði frestað þar til lokið verði vinnu við stefnu Borgarbyggðar og stjórnvalda um uppbyggingu vindorku Íslandi og þær samþykktar af sveitarstjórn og Alþingi Íslendinga."

Hafnað með 3 (DS, EMJ, OJ) atkvæðum gegn 1 (FA), 1 (LS) sat hjá.

Fulltrúi A lista leggur fram eftirfarandi bókun: "Í þessu tilfelli erum við að taka fyrir mælimastur til rannsókna alveg burt séð frá afstöðu okkar til vindorkugarðs. Í mínum huga verður að vera alveg skýrt í framkvæmdarleyfi að mæli mastrið verði tekið niður að tveimur árum liðnum og að gengið verði frá umhverfinu í kring svo ekki hljótist náttúruspjöll. Þar sem í þessu tilfelli er eingöngu verið að afgreiða deiliskipulag fyrir mælimastur til rannsókna mun fulltrúi A lista ekki setja sig upp á móti."

Davíð Sigurðsson bókar eftirfarandi: "Í ljósi þess hve víðtæk mótmæli íbúa á svæðinu og annarra umsagnaraðila eru legg ég til að endanleg afgreiðsla á deiliskipulagi fari fram í sveitarstjórn Borgarbyggðar."

Samþykkt samhljóða.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fyrir sitt leyti framlagt deiliskipulag samkvæmt 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.

Samþykkt með 4 (DS, LS, OJ, EMJ) atkvæðum gegn 1 (FA).

Fylgiskjöl


3. Aðalskipulag - Endurskoðun - Vinnslutími
2301075

Lögð er fram fyrirspurn doktorsnema við Landbúnaðarháskóla Íslands.

Skipulags- og bygginganefnd vísar erindinu til umræðu hjá starfshóp endurskoðunar aðalskipulags Borgarbyggðar.

Samþykkt samhljóða.



4. Hótel Varmaland - Breyting á deiliskipulagi
2302047

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar að Varmalandi frá árinu 2005 m.s.br. sem á við um stækkun á hótelinu, hefur verið auglýst samkvæmt 41. gr. skiplagslaga 123/2010. Kynningartími var frá 19.04.2024-03.06.2024 og óskað eftir umsögnum lögbundinna umsagnaraðila. Umsagnir bárust umsagnaraðilum á kynningartíma.

Lagður er fram uppdráttur og greinargerð dags. 22.02.2024 br 03.09.2024.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi samkvæmt 42. gr. skipulagslaga 123/2010. Deiliskipulagsbreyting samræmist aðalskipulagi.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


5. Ugluklettur - Stækkun
2212062

Sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir að leggja farg á lóðir við Ugluklett. Áætlað er að leggja farg á lóð þar sem verðandi bílaplan við leikskólann Ugluklett verður.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar skiplagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi vegna fergjunar á lóð við Ugluklett með vísan til framlagðra gagna.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl

Sigurður Guðmundsson víkur af fundi undir þessum lið.

6. Básar 27 Svartagil _ Umsókn um deiliskipulag
2407075

Þann 16. ágúst 2024 var lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulaginu Svartagil í Norðurárdalshreppi frá árinu 1995 sem á við um lóðina Básar 27 (lnr. 187587) á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa. Í greingerð deiliskipulags er leyfileg stærð sumarbústaða 300rm en í breytingu er heildarbyggingarmagn aukið upp í 250fm (900rm). Hönnuður taldi breytingu óverulega og aðrir skilmálar haldast óbreyttir. Hönnuður er á lista Skipulagsstofnunar um samþykkta ráðgjafa.

Skipulags- og byggingarnefnd , sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að grenndarkynnt verði óveruleg breyting á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga 123/2010 fyrir eigendum sumarbústaða Bása 28, 29, 31 og 32.

Skipulags- og byggingarnefnd fer þess á leit við landeiganda að ekki verði gerðar frekari breytingar á deiliskipulaginu Svartagil í Norðurárdalshreppi, heldur verði deiliskipulagið endurskoðað í heild.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


7. Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Svöluklettur 3
2407069

Lögð er aftur inn umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun á núverandi íbúðarhúsi á Svölukletti 3 (lnr. 189385). Byggt er við húsið til suðurs alls 32,6m2. Heildar byggingarmagn verður eftir stækkun 197,8m2 og nýtingarhlutfall 0,24. Lóðin er skilgreind sem íbúðarhúsalóð, skráð 841fm að stærð. Í aðalskipulagi er landnotkunin Íbúðarbyggð (Í9). Ekkert deiliskipulag er af svæðinu.

Erindi var áður synjað á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa nr. 39 þar sem nýtingarhlutfall svæðis Í9 er á bilinu 0,15-0,20.

Lóðarhafi skilaði inn frekari gögnum og óskaði eftir afstöðu nefndarinnar.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfið fyrir hagsmunaaðilum í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynnt verði í gegnum skipulagsgátt fyrir fasteignaeigendum í Svölukletti.

Skipulags- og byggingarnefnd bendir á að nýtingarhlutfall svæðis Í9 verður endurskoðað í nýju aðalskipulagi þar sem nýtingarhlutfall mun endurspegla betur þær byggingarheimildir sem þegar hafa verið gefnar á svæðinu.

Samþykkt samhljóða.


Sigurður Guðmundsson og Orri Jónsson véku af fundi undir þessum lið.

8. Snorrastaðir (L136085) - umsókn um framkvæmdarleyfi vegna túns
2403239

Lagðar eru fram umsagnir Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar sem kallað var eftir af skipulags- og byggingarnend þann 5. apríl sl. svo hægt væri að taka til afgreiðslu ósk um framkvæmdaleyfi vegna framræsingar á um 17ha landi á Snorrastöðum (lnr. 136085).

Skipulags- og byggingarnefnd,sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar skiplagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi vegna framræsingar á um 17ha landi á Snorrastöðum með vísan til framlagðra gagna. Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara umsagnaraðilum.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


9. Snorrastaðir (L136084-136085) - umsókn um framkvæmdarleyfi vegna bílastæðis
2403079

Lagðar eru fram umsagnir Hafrannsóknarstofnunar og Vegagerðarinnar sem kallað var eftir á afgreiðslufundi þann 2. apríl sl. svo hægt væri að taka til afgreiðslu ósk um framkvæmdaleyfi vegna bílastæðis við upphaf gönguleiðar að Eldborg í Hnappadal og efnistöku úr námu við Kaldá (E1).

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar skiplagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi vegna bílastæðis við upphaf gönguleiðar að Eldborg í Hnappadal og efnistöku úr námu við Kaldá (E1) með vísan til framlagðra gagna.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


10. Draumaland L231301 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2201140

Þann 13. apríl 2022 var samþykkt að grenndarkynna fyrirhugað byggingarleyfi fyrir nýtt atvinnuhúsnæði á landareigninni Draumaland (lnr. 231301) sem liggur að Bæjarsveitarvegi í Borgarfirði. Húsnæðið sem um ræðir er landbúnaðarbygging eins og skilgreint er í byggingarreglugerð. Þar mun fara fram ræktun sveppa til notkunar í matvælaframleiðslu. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.

Grenndarkynnt var fyrir nágrönnum sem hagsmuna eiga að gæta og óskað eftir umsögnum Vegagerðarinnar. Kynningartíminn var frá 20. maí 2022 til og með 23. júní 2022. Umsögn Vegagerðarinnar var á þá leið að færa þyrfti aðkomu að lóðinni sunnar en fyrirhugað var á uppdrætti.

Þar sem meira en ár er liðið frá því að grenndarkynningu lauk og byggingarleyfi hefur ekki verið gefið út þarf að grenndarkynna á ný.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfið fyrir hagsmunaaðilum í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynnt verði í gegnum skipulagsgátt fyrir Bær 1, Nýi-Bær 2, Litli Bær, Laugateigur, Laugateigur 1 og 2 og Laugabær.

Samþykkt samhljóða.



11. Fannholt L229353 - Umsókn um framkvæmdaleyfi_skógrækt
2405032

Á 39. afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 19. ágúst sl. var grenndarkynning framkvæmdaleyfis fyrir skógrækt í landi Fannholts (lnr. 235601) vísað til ákvörðunar í skipulags- og byggingarnefnd.

Grenndarkynnt var fyrirhuguð framkvæmd fyrir nágrönnum sem hagsmuna eiga að gæta og óskað umsagnar frá Minjastofnun, Umhverfisstofnun og Land og Skógi í gegnum skipulagsgátt (mál nr. 664/2024). Kynningartíminn var frá 30. maí til og með 27. júní 2024. Athugasemdir bárust frá einum hagsmunaaðila á kynningartíma. Minjastofnun fór fram á fornleifaskráningu sem er einnig framlögð og uppfærð umsögn minjavarðar dags. 2. júlí 2024.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga 123/2010. Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnum athugasemdum.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


12. Frístundasvæði Ytri-Skeljabrekku_Fyrirspurn um skipulagsmál
2408223

Lögð er fram fyrirspurn frá lóðareiganda Álfabrekku 11 (lnr. 179217) um breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Ytri-Skeljabrekku sem staðfest var 2. júlí 2021 í B-deild Stjórnartíðinda. Breytingin sem óskað er eftir tekur til uppskiptingar á lóð 11 upp í lóðir 5, 6, 7, 9 og 11 eins og var á fyrra deiliskipulagi frá árinu 1991 sem féll úr gildi með gildistöku nýs deiliskipulags.

Skipulags- og byggingarnefnd vísar málinu til sveitarstjóra til frekari vinnslu.

Samþykkt samhljóða.



13. Brákarey - framtíðarskipulag
2111213

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 676: "Byggðarráð samþykkir að vísa tillögu Festis að nýju rammaskipulagi fyrir Brákarey til umfjöllunar í skipulags- og byggingarnefnd. Framundan er áframhaldandi greining á þeim tækifærum sem hún felur í sér til eflingar mannlífs og lífsgæða í Borgarbyggð ásamt því sem meta þarf tillöguna út frá innviðum og öryggismálum ofl. Þá heldur áfram vinna við fjárhagsleg áhrif tillögunnar á sveitarfélagið en öll fjárhagsleg aðkoma sveitarfélagsins þarf að vera með þeim hætti að hún skili sér til baka. Samþykkt samhljóða."

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að ráða hönnuð til að vinna deiliskipulag byggt á því rammaskipulagi sem lagt hefur verið fram. Samhliða verði unnin aðalskipulagsbreyting fyrir Brákarey. Nefndin leggur áherslu á að sá hönnuður sem fenginn verður til verksins komi á fund nefndarinnar við upphaf vinnunnar.

Samþykkt samhljóða.



14. Aðgengismál fatlaðra barna að skólalóðum og leiksvæðum
2407120

Afgreiðsla frá 677. fundi byggðarráðs Borgarbyggðar fór fyrir fund Velferðarnefndar þann 06.08.24. Afgreiðsla byggðarráðs var svohljóðandi: "Umræða um stöðu lóða við grunnskóla í Borgarbyggð m.t.t. aðgengis fatlaðra barna. Byggðarráð er sammála um mikilvægi þess að lóðahönnun sem framundan er t.d. á Kleppjárnsreykjum taki mið af þörfum barna með fötlun. Ennfremur er mikilvægt að rýna aðrar lóðir m.t.t. aðgengis fyrir alla. Vísað til umræðu í fræðslunefnd og velferðarnefnd. Samþykkt samhljóða." Bókun Velferðarnefnd er á þá leið að nefndin tekur undir með Byggðarráði og telur mikilvægt að leik- og útisvæði í sveitarfélaginu taki mið af þörfum fatlaðra barna og ungmenna. Nefndin óskar eftir að Skipulags- og byggingarnefnd taki málið einnig til umræðu.

Skipulags- og bygginganefnd tekur undir með byggðarráði og velferðarnefnd um mikilvægi þess að hugað sé að aðgengismálum í allri hönnun við nýjar framkvæmdir og betrumbætur á húsnæðum og lóðum á vegum sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.



15. Uppfærðar samþykktir um stjórn Borgarbyggðar
2406037

Afgreiðsla frá 680. fundi byggðarráðs Borgarbyggðar: "Í samræmi við afgreiðslu 676. fundar byggðarráðs Borgarbyggðar stendur yfir vinna við uppfærslu á samþykktum um stjórn Borgarbyggðar. Byggðarráð vísar málinu til fastanefnda sveitarfélagsins þannig að núgildandi samþykktir verði rýndar og komið með tillögur að breytingum/uppfærslu. Sérstaklega óskar byggðaráð eftir að skoðaður verði ávinningurinn af því að sameina velferðarnefnd og fræðslunefnd og að fjallað verði um málið í viðkomandi nefndum. Tillögur að breytingum verða lagðar aftur fyrir byggðarráð í kjölfarið.

Samþykkt samhljóða."

Skipulags- og byggingarnefnd telur ekki þörf á breytingum eða uppfærslum á samþykktum um stjórn Borgarbyggðar er lítur að hlutverki eða gildissviði nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


16. Kjarasamningar 2024
2406245

Afgreiðsla frá 680. fundi byggðarráðs Borgarbyggðar: "Byggðarráð þakkar fyrir góða kynningu og óskar eftir því að kynningin verði jafnframt lögð fram í öðrum fastanefndum sveitarfélagsins. Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræðu á fundinum. Samþykkt samhljóða."

Lagt fram.



17. Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 38
2408007F

Lögð er fram fundagerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa nr. 38.

17.1
2403257
Vegaframkvæmdir - umsókn um framkvæmdarleyfi
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 38

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykktir að gefa út framkvæmdaleyfi vegna efnistöku úr námunum í Haffjarðardalsgili og í Hrafnagili með vísan til framlagðra gagna. Báðar námur eru tilteknar í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.

17.2
2405269
Snældubeinsstaðir - Umsókn um stofnun lóða
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 38

Skipulagsfulltrúi óskar eftir frekari upplýsingum um mörk við aðliggjandi jarðir áður en hægt er að taka afstöðu til málsins.

17.3
2405032
Fannholt L229353 - Umsókn um framkvæmdaleyfi_skógrækt
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 38

Skipulagsfulltrúi kallar eftir fornleifaskráningu áður en ósk um framkvænmdaleyfi verður tekin fyrir.

17.4
2407253
Stapagil - Fyrirspurn um skipulagsmál
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 38

Skipulagsfulltrúi kallar eftir uppfærðum gögnum.

17.5
2308004
Ásbrún - Breyting á deiliskipulagi
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 38

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi samkvæmt 42.gr. skipulagslaga 123/2010. Breytingar voru gerðar með tilliti til umsagna sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.

17.6
2407075
Básar 27 Svartagil _ Umsókn um deiliskipulag
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 38

Skipulagsfulltrúi kallar eftir gögnum í samræmi við breytingu á deiliskipulagi skv. 41. gr. skipulagslaga 123/2010.

17.7
2408037
Skógarkot - umsókn um stofnun lóða - 219170
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 38

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að stofnuð verði 8900 fm lóð, Skógarkot tankur, úr upprunalandinu Skógarkot lnr. 219170 þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Lóðin fer í notkunarflokkinn lóð.



18. Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 39
2408011F

Lögð er fram fundagerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa nr. 39.

18.1
2406206
Hrossastapar 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 39

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar byggingarfulltrúa að taka til afgreiðslu byggingaráform þar sem fyrirhugaður byggingarreitur er á óræktuðu svæði í jaðri túns, sá hluti sem hafi verið heyjaður verði það áfram og ekki er gefin heimild til uppbyggingar á þeim. Skipulagsfulltrúi bendir á að skilgreina þurfi lóð til þeirra nota sem áætlað er þar sem ekki eru byggingarheimildir á lóðum sem hafa notkunina Annað land.

18.2
2406207
Hrossastapar 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 39

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, hafnar framlagðri ósk um byggingarleyfi bogaskemmu að Hrossastöpum 2 þar sem landið flokkast undir gott ræktunarland. Á slíku landi er m.a. ekki heimilt að rjúfa samfellu með mannvirkjagerð, sjá töflu 2. Skilmálar fyrir landbúnaðarland í nýjum landbúnaðarkafla Aðalskipulags Borgarbyggðar 2010-2022. Fyrirhugaður byggingarreitur er staðsettur á túni austan við það sem núverandi hús stendur á og hefur þegar verið raskað. Hugað verði að annarri staðsetningu á lakari landi í samræmi við landbúnaðarkafla aðalskipulags.Ef landeigandi telur að ekki sé um rétta flokkun landbúnaðarlands að ræða getur hann óskað eftir eða lagt fram endurmat á sínu landi eða hluta þess.

18.3
2407069
Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Svöluklettur 3
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 39

Skipulagsfulltrúi bendir á að nýtingarhlutfall svæðis Í9 er á bilinu 0,15-0,20 og því samræmast byggingaráform ekki aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.

18.4
2408044
Laugabær - umsókn um stofnun lóða - 133897
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 39

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að stofnuð verði 6633 fm lóð, Grandaflöt, úr upprunalandinu Laugabær lnr. 133897 þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Lóðin fer í notkunarflokkinn lóð en engar byggingarheimildir fylgja ef af stofnun lóðarinnar verður.

18.5
2405032
Fannholt L229353 - Umsókn um framkvæmdaleyfi_skógrækt
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 39

Skipulagsfulltrúi vísar málinu áfram til skipulags- og byggingarnefndar.

18.6
2208142
Ásvegur 12 - Lagfæring á lóðarstærð
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 39

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að breyta stærð lóðar Ásvegar 12 lnr. 174790 úr 2000 fm í 766fm þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Í kjölfarið þurfi að lagfæra lóð nr. 10 og uppfæra lóðaleigusamninga beggja lóðarhafa við sveitarfélagið.

18.7
2408142
Yfirbygging sviðs í Skalló
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 39

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi vegna yfirbyggingar á sviði í Skallagrímsgarði með vísan til framlagðra gagna. Ekki þarf að grenndarkynna erindið þar sem málið varðar einungis sveitarfélagið og hefur ekki áhrif á aðliggjandi byggð eða hagsmunaaðila.



19. Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 231
2408012F

Lögð er fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 231.

19.1
2408017
Fauskás 3 - Umsókn um stöðuleyfi
Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 231

Samþykkt

19.2
2408007
Hraunkimi 33 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 231

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.

19.3
2407262
Ásvegur 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 231

Lagfæra þarf lítillega innsenda aðaluppdrætti.Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu . Erindið þarf að grenndarkynna.Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.

19.4
2407255
Hæll 134412 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 231

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum

19.5
2407099
Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Mávaklettur 10
Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 231

Stækkunin fer útfyrir byggingarreit að hluta.Erindinu er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa

19.6
1905207
Múlabyggð 19 lnr. 135969 - Umsókn um byggingarleyfi, viðbygging og gestahús
Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 231

Um er að ræða endurnýjun á umsókn dags. 31.05.2019.Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.



Fundi slitið - kl. 15:00