Byggðarráð Borgarbyggðar

678. fundur

9. ágúst 2024 kl. 08:15 - 10:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - formaður
Guðveig Eyglóardóttir - varaformaður
Thelma Dögg Harðardóttir - áheyrnarfulltrúi
Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Bjarney Bjarnadóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Lilja Björg Ágústsdóttir - Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu

Dagskrá

1. Brákarey - framtíðarskipulag
2111213

Lögð fram drög að minnisblaði frá Lagahvoli um þau lagalegu efnisatriði sem sveitarfélagið þarf að gæta að í tengslum við mögulega samningsgerð vegna skipulags og uppbyggingar í Brákarey.

Framlagt



2. Tilboð til sveitarfélaga um styrk til að ljúka lagningu ljósleiðara til allra lögheimila utan markaðssvæða í þéttbýli
2407066

Rædd áform Borgarbyggðar vegna tilboðs frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu um styrk til lagningar ljósleiðara í þéttbýli utan markaðssvæða. Til fundarins kemur Guðmundur Daníelsson verkefnisstjóri Ljósleiðara Borgarbyggðar.

Byggðarráð þakkar Guðmundi fyrir góða yfirferð. Byggðarráð hyggst auglýsa eftir áformum markaðaðila á svæðinu og áhuga þeirra á að taka verkefnið að sér á forsendum styrksins. Endanlegt svar um styrkinn verður sent ráðuneytinu þegar niðurstaða auglýsingarinnar liggur fyrir og er sveitarstjóra falið að óska eftir fresti til að svara ráðuneytinu.





Samþykkt samhljóða



3. Arðsmat á Álftá 2024
2407260

Framlagt fundarboð með matsnefnd vegna arðsmats á Álftá.

Framlagt og byggðarráð felur sveitarstjóra að framsenda boð á formann aðliggjandi fjallskila.



Samþykkt samhljóða.



4. Unglingalandsmót 2024
2310254

Farið yfir stöðuna eftir nýyfirstaðið unglingalandsmót sem haldið var í Borgarnesi.

Byggðarráð óskar UMFÍ og UMSB til hamingju með vel heppnað Unglingalandsmót sem fram fór í Borgarnesi 1. - 4. ágúst sl. og þakkar afar gott samstarf. Byggðarráð þakkar sömuleiðis fjölda einstaklinga, fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka fyrir þeirra mikla framlag. Sérstakar þakkir fá þeir fjölmörgu sjálfboðaliðar sem stóðu að undirbúningi mótsins og stóðu vaktir á meðan á mótinu stóð.



Borgarnes býður upp á fjölbreytta og góða aðstöðu til íþrótta. Megnið af keppnisgreinum fór fram á íþróttasvæðinu í Borgarnesi, íþróttavöllum, sundlaug og íþróttahúsi, en einnig fór keppni fram í Einkunnum, golfvellinum að Hamri, hestaíþróttasvæði Borgfirðings við Vallarás, í pílusalnum í Grillhúsinu, í Hjálmakletti og víðar. Það eru forréttindi að geta boðið upp á svo fjölbreytta aðstöðu og að bakland íþrótta- og ungmennahreyfingarinnar í héraðinu sé svo sterkt að hægt er að halda mót sem þetta.



Sérstaklega ánægjulegt er að forsetahjónin skuli hafa heimsótt Borgarnes í tilefni af setningu mótsins og að Halla Tómasdóttir nýr forseti Íslands skuli hafa ávarpað ungmennin og aðra gesti mótsins.Móti sem þessu fylgja ýmsar áskoranir. Vegna mótins heimsóttu þúsundir Borgarnes og dvöldu í bænum. Mótið gekk áfallalaust fyrir sig og af viðbrögðum að dæma áttu ungmennin, íbúar og gestir góða daga saman í Borgarnesi um verslunarmannahelgina.



Samþykkt samhljóða



5. Staða byggingarmála í Borgarbyggð
2408020

Byggingarfulltrúi Borgarbyggðar mætir til fundar og fer yfir stöðu á byggingarmálum í sveitarfélaginu.

Byggðarráð þakkar byggingarfulltrúa fyrir áhugaverða og upplýsandi yfirferð. Ánægjulegt að sjá hversu mikill kraftur er í uppbyggingu víða í sveitarfélaginu.



Samþykkt samhljóða.



6. Aðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur 2024
2404015

Framlögð fundargerð aðalfundar OR 28.06.2024 ásamt fundargerðum framhaldseigendafunda OR frá 14.6.2014 og 11.07.2024

Framlagt



7. Fundargerðir Orkuveitu Reykjavíkur 2024
2402069

Framlagðar fundargerðir stjórnar Orkuveitunnar dags. 25.03.2024 og 22.04.2024.

Framlagt



Fundi slitið - kl. 10:00