Sveitarstjórn Borgarbyggðar

217. fundur

9. september 2021 kl. 16:00 - 00:00

í Hjálmakletti


Nefndarmenn

Finnbogi Leifsson - aðalmaður
Guðveig Eyglóardóttir - aðalmaður
Magnús Smári Snorrason - 1. varaforseti
Lilja Björg Ágústsdóttir - Forseti
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir - aðalmaður
Silja Eyrún Steingrímsdóttir - aðalmaður
Kristín Erla Guðmundsdóttir - varamaður
Guðmundur Freyr Kristbergsson - aðalmaður
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir - aðalmaður

Starfsmenn

Þórdís Sif Sigurðardóttir - sveitarstjóri
Flosi Hrafn Sigurðsson - Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Flosi H. Sigurðsson - sviðsstjóri


Dagskrá

1. Skýrsla sveitarstjóra
2102062

Þórdís Sif Sigurðardóttir flytur skýrslu sveitarstjóra.



2. Alþingiskosningar 25. sept. 2021
2108048

Framlögð kjörskrá fyrir alþingiskosningar þann 25. sept. ásamt yfirliti um fjölda eftir kjördeildum.

Sveitarstjórn samþykkir framlagða kjörskrá og felur sveitarstjóra að undirrita hana skv. 2. mgr. 24. gr. laga um kosningar til Alþingis.

Samþykkt samhljóða.



3. Kosningar í nefndir og ráð 2021
2102067

Kosning varamanns í kjörstjórn Borgarbyggðar í stað Sveins Hálfdánarsonar sem beðist hefur lausnar.

Sveitarstjórn samþykkir að skipa Ingibjörgu Jónasdóttur sem varamann í kjörstjórn Borgarbyggðar í stað Sveins Hálfdánarsonar.

Samþykkt samhljóða.



4. Sáttaumleitan í deiliskipulagsgerð Húsafellssvæðisins
2008016

Afgreiðsla 569. fundar byggðarráðs: "Fimmtudaginn 12. ágúst sl. undirrituðu Páll Guðmundsson, Sæmundur Ásgeirsson og Borgarbyggð undir þríhliðasamkomulag um lúkningu mála varðandi skipulags- og byggingarmál er varða Húsafell 1 og Bæjargil. Megin inntak samkomulagsins er að breytingar á aðalskipulagi á svæðinu skuli einungis taka til Bæjargils og Húsafells 1 og að unnið verði nýtt deiliskipulag fyrir sama svæði. Aðilar máls voru sammála um að deiliskipulag yrði unnið í samræmi við teikningu sem er fylgiskjal með samkomulaginu. Borgarbyggð greiddi hvorum aðila fyrir sig 5 milljónir króna við undirritun samkomulagsins vegna kostnaðar tengdum skipulags- og byggingarmálum á svæðinu. Aðilar voru sammála því að þeir geri ekki aðrar kröfur hvor á hendur hinum vegna skipulags- og byggingarmála umfram það sem fram kemur í samningnum. Byggðarráð Borgarbyggðar fagnar þeirri niðurstöðu sem náðist með samkomulaginu og vinnur nú að þeim ákvörðunum sem teknar voru í samstarfi við aðila samkomulagsins. Það var ekki einsýnt að samkomulag næðist milli aðila en allir lögðu sitt að mörkum til þess að sátt myndi nást. Málið hefur verið í vinnslu í mörg ár og ljóst er að sveitarfélagið gerði mistök sem höfðu áhrif á framgang málsins og biðst byggðarráð fyrir hönd sveitarfélagsins alla málsaðila innilegrar afsökunar á þeim mistökum."

Forseti sveitarstjórnar ber upp þá tillögu að fresta afgreiðslu þessa liðar fram til næsta sveitarstjórnarfundar þar sem samningurinn yrði staðfestur samhliða viðauka við fjárhagsáætlun sem nauðsynlegt er að gera vegna samkomulagsins.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


5. Hringrásarhagkerfið- styrkur gámaplön
2107093

Afgreiðsla 570. fundar byggðarráðs: "Byggðarráð samþykkir framlagðan samning og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Borgarbyggðar með fyrirvara um samþykkt sveitarstjórnar."

Sveitarstjórn samþykkir framlagðan samning um bætta úrgangsþjónustu.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tók HLÞ.

Fylgiskjöl


6. Hringrásarhagkerfið - styrkur brotajárn
2107094

Afgreiðsla 570. fundar byggðarráðs: "Byggðarráð samþykkir framlagðan samning og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Borgarbyggðar með fyrirvara um samþykkt sveitarstjórnar."

Sveitarstjórn samþykkir framlagðan samning um söfnun brotajárns.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


7. Borgarbraut 55 - samningur
1904098

Afgreiðsla 571. fundar byggðarráðs: "Byggðarráð vísar kaupsamningnum til samþykktar í sveitarstjórn. Byggðarráð felur sveitarstjóra að semja við fasteignasölu um sölu fasteignarinnar að Borgarbraut 55, ásamt lóðarleigusamnings, til niðurrifs og uppbyggingar í samræmi við gildandi deiliskipulag."

Sveitarstjórn samþykkir framlagðan kaupsamning um Borgarbraut 55.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tók ÞSS.

Fylgiskjöl


8. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - aðalfundur 2021
2103074

Afgreiðsla 571. fundar byggðarráðs: "Byggðarráð samþykkir þær breytingar sem lagt er til að gerðar verði á samþykktum Heilbrigðiseftirlits Vesturlands sem fela í sér að Kjósahreppur verði hluti af starfssvæði HEV."

Sveitarstjórn samþykkir framlagðar samþykktir um Heilbrigðiseftirlit Vesturlands.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tók SES.

Fylgiskjöl


9. Samþykkt um búfjárhald
1210076

Afgreiðsla 25. fundar umhverfis - og landbúnaðarnefndar: "Umhverfis-og landbúnaðarnefnd leggur til að breytingar verði gerðar á drögum um samþykkt um búfjárhald í samræmi við umsögn Bændasamtaka Íslands. Nefndin hvetur sveitarstjórn til að standa fyrir ítarlegri kynningu á samþykktinni að lokinni gildistöku. Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar."

Fyrri umræða um búfjársamþykkt Borgarbyggðar.

Forseti bar upp þá tillögu að umræðu um samþykkt um búfjárhald verði vísað til seinni umræðu.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


10. L230943 Mið-Garðar umsögn um lögbýli
2107042

Afgreiðsla 25. fundar umhverfis - og landbúnaðarnefndar: "Umsóknin er í samræmi við staðfest skipulag og uppfyllir skilyrði 18. gr. Jarðalaga nr. 81/2004. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun lögbýlis en telur æskilegt að föst búseta fylgi stofnun lögbýlis. Nefndin veitir jákvæða umsögn um umsóknina og leggur þá ákvörðun fyrir sveitarstjórn til staðfestingar."

Sveitarstjórn staðfestir ákvörðun umhverfis- og landbúnaðarnefndar um veitingu jákvæðrar umsagnar vegna umsóknar um stofnun lögbýlis að Mið-görðum, L230943.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


11. Söfnun dýraleifa - gjaldskrá
2106073

Afgreiðsla 25. fundar umhverfis - og landbúnaðarnefndar: "Umhverfis- og landbúnaðarnefnd telur að í 8. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 m. s.br. komi fram skýr heimild sveitarfélagsins til að mæla fyrir um fyrirkomulag söfnunar á heimilis- og rekstrarúrgangi. Nefndin leggur til að gerðar verði breytingar á samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Borgarbyggð þar sem skýrt er kveðið á um fyrirkomulag og gjaldskrá vegna söfnunar og förgunar dýraleifa frá lögbýlum. Að öðru leyti telur nefndin ekki ástæðu til að breyta fyrirkomulagi þjónustunnar. Endanlegri afgreiðslu er vísað til sveitarstjórnar."

Fyrri umræða um samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Borgarbyggð.

Forseti bar upp þá tillögu að umræðu um samþykkt um meðhöndlun úrgangs verði vísað til síðari umræðu.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


12. Álagning fjallskila
2108088

Afgreiðsla 34. fundar Fjallskilanefndar Grímsstaðaréttar: "Kindur alls 1500, fækkun um 45 kindur. Hver kind er metin á 830 krónur. Dagsverkið metið á 10 þúsund krónur."

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu fjallskilanefndar Grímsstaðaréttar.

Samþykkt samhljóða.



13. Álagning fjallskila Hítardalsréttar 2021
2108107

Afgreiðsla 30. fundar Fjallskilanefndar Hítardalsréttar: "lagning fjallskila á fjáreigendur sem eru 13. Tala sauðfjár til fjallskila er 2.602 samkvæmt uppgefnum tölum frá fjáreigendum. Fjallskilagjald á kind ákveðið kr. 650. Heildarálagning 1.691.300. Dagsverkið metið á kr. 10.000 Dagsetningar leita og rétta hafa verið færðar fram um viku frá ákvæðum fjallskilareglugerðar. Leitarstjóri í öllum afréttarleitum verður Gísli Guðjónsson. Jón Guðlaugur Guðbrandsson stjórnar leitum á Svarfhólsmúla. Sigurður Jóhannsson getur ekki tekið að sér réttarstjórn í Hítardalsrétt og eru honum þökkuð störf liðinna ára. Réttarstjóri í fyrstu rétt verður Sigfús Helgi Guðjónsson, í annarri og þriðju rétt Finnbogi Leifsson."

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu fjallskilanefndar Hítardalsréttar.

Samþykkt samhljóða.



14. Gjöld 2021
2108090

Afgreiðsla 24. fundar Fjallskilanefndar Rauðsgilsréttar: "Haldið verður áfram að hækka dagverk um 1000kr. eins og hefur verið gert síðustu ár. - Jarðargjöld hækka um 3.2% - Fæði: 4.500kr. - Fjárgjöld: 500kr. - Dagsverk: 13.000kr."

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu fjallskilanefndar Rauðsgilsréttar.

Samþykkt samhljóða.



15. Álagning fjallskila Oddsstaðaréttar 2021
2109038

Afgreiðsla 46. fundar fjallskilanefndar Oddstaðaréttar: "Upplýsingar um jarðamat fengnar úr Þjóðskrá. Álagning á kind hækkar úr 450 krónum í 600 krónur. Álagningarhlutfall á fasteignamat hækkar úr 1,25% í 1,30% Álögð fjallskil samtals: 3.242.436 kr. Innheimt í peningum: 1.368.436 kr. Dagsverkamat í leitum hækkar - Norðurfjall er metið á 39.000 kr., Tunguleit metin á 31.000 og Suðurfjall metið á 29.500 kr. Gengið frá fjallskilaseðli".

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu fjallskilanefndar Oddstaðaréttar.

Samþykkt samhljóða.



16. Bjarnastaðir L134637 - DSK
2105002

Afgreiðsla 27. fundar skipulags - og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn Borgarbyggðar að samþykkja tillögu að deiliskipulagi fyrir Bjarnastaðir til auglýsingar. Lagður var fram uppdráttur dags. 02.09.2021. Deiliskipulag þetta tekur til 5,5ha svæðis til uppbyggingar á bæjarstæði jarðarinnar. Á skipulagssvæði eru fyrir tvö íbúðarhús ásamt landbúnaðarbyggingum. Fyrirhugað er að bæta þar við íbúðarhúsi á nýrri lóð er nefnist Bjarnastaðir 2. Deiliskipulag þetta samræmist gildandi aðalskipulagi. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. grein Skipulagslaga nr. 123/2010. Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar"

Lagt er fram deiliskipulag Bjarnastaða í Borgarbyggð sem auglýst hefur verið samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma.

Sveitarstjórn samþykkir að deiliskipulagið taki gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða

Til máls tók GFK.



17. Skógarbrekkur 4 L188642 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2106066

Afgreiðsla 27. fundar skipulags - og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að sveitarstjórn heimili byggingarfulltrúa að samþykkja byggingaráform, þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."

Sveitarstjórn felur byggingarfulltrúa að samþykkja byggingaráform við Skógarbrekkur 4, L188642, þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.



18. Háskjólabyggð 7 L135104 - Viðbygging
2105028

Afgreiðsla 27. fundar skipulags - og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að sveitarstjórn heimili byggingarfulltrúa að samþykkja byggingaráform, þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."

Sveitarstjórn felur byggingarfulltrúa að samþykkja byggingaráform við Háskjólabyggð 7, L135104, þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.



19. Stóri-Ás L134513 - Stofnun lóðar - Litli-Ás
2108110

Afgreiðsla 27. fundar skipulags - og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að sveitarstjórn heimili stofnun lóðarinnar Litli-Ás, stærð 3ha úr landinu Stóri-Ás L134513. Er þetta á grundvelli nýs deiliskipulags, Byggingarlóð í landi Stóra-Áss dags. 27.04.2021."

Sveitarstjórn staðfestir að heimiluð sé stofnun lóðarinnar Litli-Ás, úr landinu Stóri-Ás, L134513.

Samþykkt samhljóða.



20. Sóltún 13 L194189 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2106118

Afgreiðsla 27. fundar skipulags - og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að sveitarstjórn heimili byggingarfulltrúa að samþykkja byggingaráform, þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."

Sveitarstjórn felur byggingarfulltrúa að samþykkja byggingaráform við Sóltún 13, L194189, þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.



21. Mælimastur - framkvæmdaleyfi_umsókn
2001067

Afgreiðsla 27. fundar skipulags - og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að sveitarstjórn heimili skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi tímabundið fyrir mælimastur, til 12 mánaða, á Grjóthálsi í landi Sigmundastaða."

Sveitarstjórn felur skipulagsfulltrúa að gefa út tímabundið framkvæmdaleyfi fyrir mælimastur, til 12 mánaða, á Grjóthálsi í landi Sigmundarstaða.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tók GFK.



22. Langás í landi Munaðarness L134915 - stofnun lóðar
2108020

Afgreiðsla 27. fundar skipulags - og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að sveitarstjórn heimili stofnun lóðarinnar Langás, stærð 26ha úr landi Munaðarnes L134915. Lóðin verður sett í landnotkunarflokkinn sumarbústaðarlóð."

Sveitarstjórn staðfestir heimild til stofnunar lóðarinnar Langás úr landi Munaðarness, L134915.

Samþykkt samhljóða.



23. Seláshverfi í landi Ánabrekku, deiliskipulagsbreyting
1409019

Afgreiðsla 27. fundar skipulags - og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn Borgarbyggðar að samþykkja tillögu að deiliskipulagi Seláshverfi í landi Ánabrekku til auglýsingar. Lagður var fram uppdráttur dags. 28.11.2018. Breytingin tekur til 12 frístundalóða innan frístundasvæðis F20. Svæðið er stækkað úr 7,88 ha í 8,95 ha, nýr aðkomuvegur er að lóðum 8-12 og aflagður aðkomuvegur að lóðum nr. 2, 4, 6 og 8. Sameiginlegur vegur verður að lóðum 1-5 og 8. Tillagan samræmist aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. grein Skipulagslaga nr. 123/2010. Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar."

Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Seláshverfis í landi Ánabrekku til auglýsingar, skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.



24. Sturlureykir 1 lóð 11 lnr.186143 - Umsókn um byggingarleyfi, frístundahús
2007033

Afgreiðsla 27. fundar skipulags - og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að sveitarstjórn heimili byggingarfulltrúa að samþykkja byggingaráform, þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."

Sveitarstjórn felur byggingarfulltrúa að samþykkja byggingaráform við Sturlureyki 1, lóð 11, L186143, þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.



25. Heiðarbýli í landi Hraunsmúla L136060 - stofnun lóðar
2108021

Afgreiðsla 27. fundar skipulags - og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að sveitarstjórn heimili stofnun lóðarinnar Heiðarbýli, stærð 122 ha úr landinu Hraunsmúli L136060. Landnotkunarflokkurinn verður Annað land."

Sveitarstjórn staðfestir heimild til stofnunar lóðarinnar Heiðarbýli úr landinu Hraunsmúli L136060.

Samþykkt samhljóða.



26. Húsnæðismál Ráðhússins
1909156

Framlagt gagntilboð Steðja fjárfestinga ehf. í fasteignina að Borgarbraut 14, dags. 3. september 2021 sem undirritað var með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn staðfestir framlagt gagntilboð og felur sveitarstjóra að ganga til kaupsamnings við tilboðsgjafa á grundvelli tilboðsins.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tóku HLÞ, ÞSS, MSS.



27. Álagning fjallskila 2021
2108055

Afgreiðsla 48. fundar fjallskilanefndar Brekku- og Svignaskarðsréttar: Farið yfir drög að fjallskilaseðli og hann samþykktur með áorðnum breytingum.
Rætt um smölun í skógræktargirðingu.
Rætt um smölun á Bjarnardal.
Rætt um aukningu á vargfugli við Langavatn.
Rætt um viðhald húsa við Langavatn, m.a. fyrirhugaðar lagfæringar nú í haust.

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu fjallskilanefndar Brekku- og Svignaskarðsréttar, skv. framlögðum fjallskilaseðli, þar sem fram kemur að dagsverkið er metið á kr. 15.000
lagt er á 1434 kindur og álagning á hverja kind er kr. 850.



28. Byggðarráð Borgarbyggðar - 569
2108010F

Fundargerðin framlögð.

28.1
2105172
Fagráð slökkviliðsins - fundargerðir 2021
Byggðarráð Borgarbyggðar - 569

Í niðurstöðum fagráðs eftir yfirferð á framkominni skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er lögð áhersla á að loftfylling lofthylkja verði endurnýjuð í samræmi við niðurstöðu skýrslu HMS til að bæta loftgæði lofthylkjanna og keypt ný loftpressa. Óskar fagráð eftir að ný loftpressa og aðstaða fyrir hana verði keypt á árinu 2021 og gerður viðauki við fjárhagsáætlun.

Byggðarráð bendir á að endurnýjun loftpressu og aðstöðu til loftfyllinga var ekki á forgangslista slökkviliðs Borgarbyggðar sem byggðarráð óskaði eftir fyrir gerð fjárhagsáætlunar 2021. Fyrst í forgangsröðun var að fá fleiri bil í húsi slökkviliðsins að Sólbakka og er verið að vinna að því að finna nýtt húsnæði fyrir safngeymslu Safnahúss Borgarbyggðar til þess að slökkvilið fái það aukna rými sem þörf er á. Númer tvö í forgangsröðun var að fá herbergi til kennslu og funda, þ.e. herbergið sem Sögufélag Borgarfjarðar hafði til umráða. Slökkviliðið hefur fengið herbergið til umráða og verður herbergið nýtt á sem bestan hátt til að leysa aðstöðuleysi slökkviliðsins tímabundið. Í nýrri samantekt forgangsröðunar í 10 ára uppbyggingaráætlun slökkviliðsins er í fyrsta forgangi að fá allt húsnæðið að Sólbakka 13-15, sem er í vinnslu. Stærra húsnæði er ætlað að leysa nokkur þeirra atriða sem gerðar eru athugsemdir við í úttekt slökkviliðs Borgarbyggðar, svo sem búningaraðstöðu og þvotta- og hreinlætisaðstöðu. Ný loftpressa í öðrum forgangi.

Allar fjárfestingar og rekstur sveitarfélaga þurfa að vera ákvarðaðar í fjárhagsáætlun ársins. Sveitarstjórn getur þó ákveðið að gera viðauka við fjárhagsáætlun þegar upp koma óviðráðanlegar aðstæður eða með samþykki sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur unnið að því undanfarin ár að bæta þau atriði sem gerð er athugasemd við í úttektum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Sem dæmi má nefna var ráðinn aðstoðar slökkviliðstjóri og eldvarnarfulltrúi m.a. til að bæta eldvarnareftirlit sveitarfélagsins, vinna með slökkviliðsstjóra að ýmsum lögskyldum áætlunum og auka þjálfun og menntun slökkviliðsmanna. Búnaður slökkviliðsmanna hefur verið bættur og keyptur körfubíll og byrjað á endurnýjun bifreiða. Eins og að framan segir hefur slökkviliðið á árinu 2021 fengið herbergi til afnota sem áður var notað af Sögufélagi Borgfirðinga, áætlað er að allt húsnæðið að Sólbakka 13-15 verði nýtt af slökkviliðinu þegar önnur húsnæðismál leysast og verið er að skoða nýtt húsnæði fyrir slökkviliðið og bifreið þess á Bifröst.

Byggðarráð bendir sérstaklega á að rekstrarkostnaður slökkviliðsins hefur á þremur árum meira en tvöfaldast. Á árinu 2018 var kostnaður við slökkviliði tæpar 35 milljónir króna en á árinu 2021 er áætlað að kostnaðurinn verði tæpar 77 milljónir króna. Það gefur því auga leið að miklar breytingar hafa átt sér stað í rekstri slökkviliðsins og eru í farvatninu og unnið sé að því að koma til móts við athugasemdir úttektar Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á slökkviliðinu.

Byggðarráð vísar kaupum á loftpressu til fjárhagsáætlun 2022, kostnaðaráætlun verði gerð fyrir kaupin á loftpressu og þeim breytingum sem þarf að gera á húsnæðinu. Byggðarráð leggur til að undirbúningur verði með þeim hætti að hægt sé að ganga frá kaupum í janúar n.k. Önnur þau atriði sem lagt er til að fari á fjárhagsáætlun ársins 2022 skal slökkviliðsstjóri gera ráð fyrir í tillögu sinni að fjárhagsáætlun og í samræmi við framangreinda forgangsröðun í 10 ára uppbyggingaráætlun.

28.2
2106068
Nýsköpunar - og þróunarsetur á landsbyggðinni - viljayfirlýsing
Byggðarráð Borgarbyggðar - 569

Byggðarráð fagnar þeim áfanga sem náðist með undirritun viljayfirlýsingar um að hjá Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskólanum á Bifröst byggist upp nýsköpunar- og þróunarsetur þar sem lögð verður áhersla á að efla nýsköpun, rannsóknir, fræðslu og frumkvöðlastarf á sviði landbúnaðar, matvælaframleiðslu, sjálfbærni og loftlagsmála.
Borgarbyggð fagnar enn fremur samstarfi háskólanna tveggja í sveitarfélaginu en verðmætasköpun þeirra fyrir sveitarfélagið og landsbyggðanna í heild mun aukast með þeim áherslum sem settar eru fram í nýsköpunar- og þróunarsetrinu.

28.3
2107102
Fundargerð 11. fundar ABHS
Byggðarráð Borgarbyggðar - 569

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

28.4
2001118
Ljósleiðari í Borgarbyggð - framkvæmdir
Byggðarráð Borgarbyggðar - 569

Byggðarráð þakkar Guðmundi fyrir yfirferðina.

28.5
2104165
Endurnýjun rammasamninga
Byggðarráð Borgarbyggðar - 569

Byggðarráð fellur frá þátttöku í rammasamningi um Microsoft hugbúnaðarleyfin. En ákveður að taka þátt í rammasamningi um ljósritunarpappír og nýjum rammasamningi um rafrænar undirskriftir.

28.6
2008016
Sáttaumleitan í deiliskipulagsgerð Húsafellssvæðisins
Byggðarráð Borgarbyggðar - 569

Fimmtudaginn 12. ágúst sl. undirrituðu Páll Guðmundsson, Sæmundur Ásgeirsson og Borgarbyggð undir þríhliðasamkomulag um lúkningu mála varðandi skipulags- og byggingarmál er varða Húsafell 1 og Bæjargil. Megin inntak samkomulagsins er að breytingar á aðalskipulagi á svæðinu skuli einungis taka til Bæjargils og Húsafells 1 og að unnið verði nýtt deiliskipulag fyrir sama svæði. Aðilar máls voru sammála um að deiliskipulag yrði unnið í samræmi við teikningu sem er fylgiskjal með samkomulaginu. Borgarbyggð greiddi hvorum aðila fyrir sig 5 milljónir króna við undirritun samkomulagsins vegna kostnaðar tengdum skipulags- og byggingarmálum á svæðinu. Aðilar voru sammála því að þeir geri ekki aðrar kröfur hvor á hendur hinum vegna skipulags- og byggingarmála umfram það sem fram kemur í samningnum.

Byggðarráð Borgarbyggðar fagnar þeirri niðurstöðu sem náðist með samkomulaginu og vinnur nú að þeim ákvörðunum sem teknar voru í samstarfi við aðila samkomulagsins. Það var ekki einsýnt að samkomulag næðist milli aðila en allir lögðu sitt að mörkum til þess að sátt myndi nást.

Málið hefur verið í vinnslu í mörg ár og ljóst er að sveitarfélagið gerði mistök sem höfðu áhrif á framgang málsins og biðst byggðarráð fyrir hönd sveitarfélagsins alla málsaðila innilegrar afsökunar á þeim mistökum.

28.7
2105139
Kastali á skólalóð GBF Hvanneyri
Byggðarráð Borgarbyggðar - 569

Byggðarráð vísar því til fjárhagsáætlunar 2022 að skólalóðin við Grunnskóla Borgarfarðar á Hvanneyri verði teiknuð upp og kaup á nýju leiktæki á lóðina, þar sem sem Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefur óskað eftir kastali verði fjarlægður vegna öryggis.

28.8
2108059
Rauðsgilsrétt - girðing
Byggðarráð Borgarbyggðar - 569

Byggðarráð vísar erindinu til umsagnar í fjallskilanefnd Rauðsgilsréttar og afgreiðslu í umhverfis- og landbúnaðarnefnd.

28.9
2108064
Aukning við kennslukvóta við Grunnskólann í Borgarnesi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 569

Nemendum í einum bekk við Grunnskólann í Borgarnesi fjölgaði úr 22 í 26 milli ára. Áætlað var að bekkurinn hefði einn umsjónarkennara, en vegna framangreindrar fjölgunar sjá skólastjórnendur ekki annan kost en að ráða inn annan umsjónarkennara í a.m.k. 80% stöðu. Um er að ræða aukningu stöðugilda, en þó stöðugildi sem samsvara minna en 80% stöðu vegna annarra breytinga við stofnunina. Byggðarráð samþykkir beiðnina, en mikilvægt er að starfsmaðurinn hefji störf sem fyrst. Byggðarráð felur sveitarstjóra að leita leiða til að færa milli fjárhagsliða í fjárhagsáætlun til að ekki þurfi að gera viðauka vegna viðbótarinnar. Reynist það ógerlegt felur byggðarráð sveitarstjóra að gera drög að viðauka vegna málsins og leggja fyrir byggðarráð.

28.10
2009127
Drög að sjálfbærnistefnu fyrir Borgarbyggð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 569

Byggðarráð þakkar Guðnýju Jórunni fyrir kynninguna og hennar störf fyrir Borgarbyggð í sumar. Byggðarráð óskar jafnframt eftir því að skýrslan verði kynnt öðrum nefndum og starfsfólki Borgarbyggðar.
Byggðarráð vísar skýrslunni til áframhaldandi vinnu og forgangsröðun í umhverfis- og landbúnaðarnefnd.

28.11
2106002
Fjárhagsáætlun 2022
Byggðarráð Borgarbyggðar - 569

Lagt fram til kynningar.



29. Byggðarráð Borgarbyggðar - 570
2108013F

Fundargerðin framlögð.

Guðveig Lind Eyglóardóttir leggur fram eftirfarandi bókun undir fundarlið nr. 3 í fundargerð byggðarráðs Borgarbyggðar: "Ljóst er á umsögn ráðuneytisins að alvarlegir og kerfisbundnir annmarkar hafa verið í stjórnsýslu sveitarfélagsins og að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu hafa borist margar ábendingar og kvartanir um brotalamir í stjórnsýslu skipulags- og mannvirkjasviðs Borgarbyggðar. Undirrituð vill benda á að eitt af því mikilvægasta sem stjórnsýslan getur gert til að auka ánægju og traust íbúa og fyrirtæki sveitarfélagsins er að temja sér góð yfirlætislaus samskipti, sýna ávallt vilja til að leita lausna ,sinna upplýsingaskildu og gæta að sanngirni og jafnræði í meðferð mála. Síðast en ekki síst er mikilvægt að geta bæði viðurkennt mistök sem hafa átt sér stað og sýnt vilja til þess að leiðrétta þau“

Magnús Smári Snorrason leggur fram eftirfarandi bókun undir fundarlið nr. 3 í fundargerð byggðarráðs Borgarbyggðar: "Skipulagsmál í Borgarbyggð eru flókið og umfangsmikið verkefni. Sveitarfélagið er landfræðilega stórt og mismunandi þarfir eftir búsetuvali íbúa. Farið hefur verið í umfangsmikla stjórnsýsluúttekt og gerðar miklar úrbætur á þeim atriðum sem talið var brotalöm á. Bætt hefur verið úr þeim atriðum sem komu fram í úttektinni, stokkað upp nefndum, ferlar yfirfarnir og aukin fagleg þekking sviðsins.

Meirihlutinn mun að sjálfsögðu halda áfram að styrkja sviðið og vinna úr öllum ábendingum sem koma, bæði frá íbúum og öðrum aðilum með það að markmiði að gera stjórnsýsluna enn sterkari. Eins er sérstaklega tekið fram að í álitinu segir að ekki var talin ástæða til að fara í frekari aðgerðir vegna málsins af hálfu ráðuneytisins þar sem búið var að gera ákveðnar úrbætur og mun sveitarstjórn svara til ráðuneytisins eftir áramótin varðandi það hvernig gengur að klára verkefnið. Það að bæta stjórnsýsluna er langhlaup og verður ekki framkvæmt á einni nóttu en meirhlutinn hefur staðið fyrir umfangsmiklum úrbótum á kjörtímabilinu í því skyni að styrkja stjórnsýsluna og bæta samskipti íbúa við sveitarfélagið t.d. með stofnun þjónustuvers og ráðið inn sviðsstjóra sem leiðir nýtt svið sem ber heitið stjórnsýslu- og þjónustusvið."

Til máls tóku GLE, HLÞ, GFK, MSS, LBÁ, MSS, GLE, LBÁ, ÞSS, MSS.

29.1
2105122
Aðgengisfulltrúar í sveitarfélögum - sumarstörf
Byggðarráð Borgarbyggðar - 570

Byggðarráð þakkar Jónu Guðrúnu fyrir kynninguna og hennar störf fyrir Borgarbyggð í sumar. Byggðarráð óskar jafnframt eftir því að skýrslan fari til vinnslu í umhverfis- og framkvæmdadeild og úrbótum forgangsraðað í fjárhagsáætlun.

29.2
2108095
Starfsleyfi stofnana Borgarbyggðar - 2021
Byggðarráð Borgarbyggðar - 570

Lagt fram til kynningar.

29.3
2102067
Kosningar í nefndir og ráð 2021
Byggðarráð Borgarbyggðar - 570

Málinu er frestað til afgreiðslu næsta fundar byggðarráðs.

29.4
2108042
Umsókn um lóð - Lóuflöt 4
Byggðarráð Borgarbyggðar - 570

Byggðarráð samþykkir framlagða umsókn Jónasar Guðjónssonar um lóðina að Lóuflöt 4, Hvanneyri.

29.5
2102100
Húsnæðismál Borgarbyggðar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 570

Sveitarstjóri kynnti stöðu í húsnæðismálum og fyrirliggjandi möguleikum til úrlausna. Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum, varðandi húsnæði fyrir Ölduna, áhaldahús og safngeymslu fyrir Safnahús.

29.6
2103044
Stjórnsýsla í Borgarbyggð - niðurstaða samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins
Byggðarráð Borgarbyggðar - 570

Í áliti samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins sem var gefið út 18. ágúst sl. kemur fram að í ljósi þeirra aðgerða sem sveitarfélagið hefur gripið til að tryggja að stjórnsýsla sveitarfélagsins sé í samræmi við lög, þá telji ráðuneytið ekki tilefni til að ljúka álitinu með fyrirmælum til sveitarfélagsins. Sveitarfélagið mun gefa ráðuneytinu upplýsingar í upphafi árs 2022 um stöðu þeirra úrbóta sem sveitarfélagið hefur gripið til og mat sveitarstjórnar á því hvort að til hafi tekist að koma í veg fyrir þá kerfisbundnu annamarka sem voru í skipulags- og byggingarmálum sveitarfélagsins. Mikil umbótavinna hjá sveitarfélaginu, með áherslu á skipulags- og byggingarmál og góða þjónustu, gerð verkferla og breytt vinnubrögð til þess að koma í veg fyrir að þá kerfisbundnu annmarka sem hafa verið á þessum málaflokk haldi áfram.

29.7
2103094
Starfsmannamál 2021
Byggðarráð Borgarbyggðar - 570

Byggðarráð felur forseta sveitarstjórnar að vinna áfram að málinu.

29.8
2001118
Ljósleiðari í Borgarbyggð - framkvæmdir
Byggðarráð Borgarbyggðar - 570

Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna að samkomulagi um nýja verkáætlun og þeirra krafna og athugasemda sem verktakar hafa komið á framfæri.

29.9
1911092
Dómsmál vegna uppsagnar fyrrverandi sveitarstjóra
Byggðarráð Borgarbyggðar - 570

Lagt fram til kynningar.

29.10
2106043
Eignasjóður - íþróttamiðstöðin Varmalandi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 570

Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna að lausn málsins til þess að fjármagna úrbætur skv. gildandi fjárfestingar- og fjárhagsáætlun.

29.11
2107093
Hringrásarhagkerfið- styrkur gámaplön
Byggðarráð Borgarbyggðar - 570

Byggðarráð samþykkir framlagðan samning og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Borgarbyggðar með fyrirvara um samþykkt sveitarstjórnar.

29.12
2107094
Hringrásarhagkerfið - styrkur brotajárn
Byggðarráð Borgarbyggðar - 570

Byggðarráð samþykkir framlagðan samning og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Borgarbyggðar með fyrirvara um samþykkt sveitarstjórnar.



30. Byggðarráð Borgarbyggðar - 571
2108018F

Fundargerðin framlögð.

30.1
2106002
Fjárhagsáætlun 2022
Byggðarráð Borgarbyggðar - 571

Byggðarráð felur fjármálastjóra að halda áfram með vinnu við fjárhagsáætlun og fjárfestingaráætlun ársins 2022, skipuleggja vinnufundi með forstöðumönnum og sveitarstjóra falið að skipuleggja vinnufund sveitarstjórnar um fjárhagsáætlun.

30.2
2108142
Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi 2021
Byggðarráð Borgarbyggðar - 571

Fulltrúar Borgarbyggðar sem eiga sæti á haustþingi SSV eru sem aðalmenn Lilja Björg Ágústsdóttir, Magnús Smári Snorrason, Davíð Sigurðsson, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og Þórdís Sif Sigurðardóttir, en til vara eru Silja Eyrún Steingrímsdóttir, Logi Sigurðsson, Finnbogi Leifsson, Orri Jónsson og Eiríkur Ólafsson.

30.3
2102086
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - fundargerðir 2021
Byggðarráð Borgarbyggðar - 571

Lögð fram til kynningar.

30.4
2010144
Faxaflóahafnir sf._fundargerðir
Byggðarráð Borgarbyggðar - 571

Lagt fram til kynningar.

30.5
2103094
Starfsmannamál 2021
Byggðarráð Borgarbyggðar - 571

Lagt fram til kynningar.

30.6
1909156
Húsnæðismál Ráðhússins
Byggðarráð Borgarbyggðar - 571

Byggðarráð felur sveitarstjóri að gera gagntilboð í samræmi við umræður á fundinum, m.a. með skilyrði um framkvæmdum verði lokið fyrir innan 18 mánaða frá afhendingu og afsal fari fram við lokaúttekt.

30.7
2105123
Samþætting aksturs í Borgarbyggð 2021
Byggðarráð Borgarbyggðar - 571

Lagt fram til kynningar.

30.8
2108068
Eignasjóður - Framkvæmdaáætlun
Byggðarráð Borgarbyggðar - 571

Byggðarráð þakkar Kristjáni Finn Kristjánssyni, fráfarandi umsjónarmanni eigna fyrir yfirferðina. Fjármagn til viðhalds á árinu var skorið niður, en viðhaldsféð var nýtt eins og best verður á kosið til verndar á eignum sveitarfélagsins.

30.9
2105066
Umsókn um styrk til endurnýjunar rotþróar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 571

Byggðarráð samþykkir að veita umsækjanda styrk að fjárhæð 25 þúsund krónur í samræmi við reglur um styrk til endurnýjunar rotþróa. Byggðarráð felur umhverfis- og landbúnaðarnefnd að endurskoða framangreindar reglur.

30.10
1904098
Borgarbraut 55 - samningur
Byggðarráð Borgarbyggðar - 571

Byggðarráð vísar kaupsamningnum til samþykktar í sveitarstjórn.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að semja við fasteignasölu um sölu fasteignarinnar að Borgarbraut 55, ásamt lóðarleigusamnings, til niðurrifs og uppbyggingar í samræmi við gildandi deiliskipulag.

30.11
2103074
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - aðalfundur 2021
Byggðarráð Borgarbyggðar - 571

Byggðarráð samþykkir þær breytingar sem lagt er til að gerðar verði á samþykktum Heilbrigðiseftirlits Vesturlands sem fela í sér að Kjósahreppur verði hluti af starfssvæði HEV.

30.12
2102086
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - fundargerðir 2021
Byggðarráð Borgarbyggðar - 571

Lögð fram til kynningar.



31. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 25
2107011F

Fundargerðin framlögð.

Til máls tók HLÞ.

31.1
1210076
Samþykkt um búfjárhald
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 25

Umhverfis-og landbúnaðarnefnd leggur til að breytingar verði gerðar á drögum um samþykkt um búfjárhald í samræmi við umsögn Bændasamtaka Íslands. Nefndin hvetur sveitarstjórn til að standa fyrir ítarlegri kynningu á samþykktinni að lokinni gildistöku. Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.

31.2
2108058
Umhverfisverkefni, staða mála í ágúst
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 25

Lagt fram til kynningar.

31.3
2107042
Mið-Garðar umsögn um lögbýli
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 25

Umsóknin er í samræmi við staðfest skipulag og uppfyllir skilyrði 18. gr. Jarðalaga nr. 81/2004. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun lögbýlis en telur æskilegt að föst búseta fylgi stofnun lögbýlis. Nefndin veitir jákvæða umsögn um umsóknina og leggur þá ákvörðun fyrir sveitarstjórn til staðfestingar.

31.4
2106073
Söfnun dýraleifa - gjaldskrá
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 25

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd telur að í 8. gr. Laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 m. s.br. komi fram skýr heimild sveitarfélagsins til að mæla fyrir um fyrirkomulag söfnunar á heimilis- og rekstrarúrgangi. Nefndin leggur til að gerðar verði breytingar á samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Borgarbyggð þar sem skýrt er kveðið á um fyrirkomulag og gjaldskrá vegna söfnunar og förgunar dýraleifa frá lögbýlum. Að öðru leyti telur nefndin ekki ástæðu til að breyta fyrirkomulagi þjónustunnar. Endanlegri afgreiðslu er vísað til sveitarstjórnar.

31.5
2009086
Friðlýsingar Borgarvogs
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 25

Umhverfis og landbúnaðarnefnd telur mikilvægt að vernda leirur í Borgarvogi með friðlýsingu. Of mörgum spurningum sé hins vegar ósvarað varðandi möguleika á framtíðarnýtingu svæðisins fyrir vestan Borgarvog og tengingu þess við núverandi íbúabyggð. Nefndin leggur til að sveitarstjórn fái skýr svör varðandi heimildir til innviðauppbyggingar innan svæðisins áður en tillaga að auglýsingu um friðlýsingu er samþykkt í sveitarstjórn.

31.6
2104057
Umsóknir um styrki til að efla hringrásarhagkerfið
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 25

Verkefni sem hlutu styrk úr sjóði til að efla hringrásarhagkerfið kynnt. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd fagnar stuðningi ráðuneytisins og felur deild umhverfis-og framkvæmdamála að vinna áfram að framgangi þessara verkefna. Nefndin leggur áherslu á að söfnun brotajárns verði kynnt ítarlega fyrir jarðareigendum í sveitarfélaginu.

31.7
2108054
Umhverfisviðurkenningar 2021
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 25

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd hvetur íbúa til að senda inn tilnefningar til umhverfisviðurkenninga. Frestur til að senda inn tilnefningar er til 31. ágúst. Viðurkenningarnar verða veittar á fundi Umhverfis- og landbúnaðarnefndar þann 21. október.

31.8
2009127
Drög að sjálfbærnistefnu fyrir Borgarbyggð
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 25

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd þakkar góða kynningu. Nefndin mun halda áfram að vinna með skýrsluna og móta tillögur til framtíðar.

31.9
2105198
Breytingar á jarðalögum 2021 - bréf
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 25

Lagt fram til kynningar.

31.10
2108060
Gönguleiðir í Borgarbyggð
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 25

Lagt fram til kynningar.



32. Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 27
2108020F

Fundargerðin framlögð.

Til máls tók GFK.

32.1
2002119
Endurskoðun ASK 2010-2022
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 27

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að skipuleggja kynningar þeirra sex ráðgjafastofa sem haft hefur verið samband við vegna vinnu á endurskoðun aðalskipulags. Nefndin óskar eftir því að Umhverfis- og skipulagsnefnd og fulltrúar sveitarstjórnar verði viðstaddir kynningarnar.

32.2
2108021
Heiðarbýli í landi Hraunsmúla L136060 - stofnun lóðar
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 27

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að sveitarstjórn heimili stofnun lóðarinnar Heiðarbýli, stærð 122 ha úr landinu Hraunsmúli L136060. Landnotkunarflokkurinn verður Annað land.

32.3
2108110
Stóri-Ás L134513 - Stofnun lóðar - Litli-Ás
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 27

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að sveitarstjórn heimili stofnun lóðarinnar Litli-Ás, stærð 3ha úr landinu Stóri-Ás L134513. Er þetta á grundvelli nýs deiliskipulags, Byggingarlóð í landi Stóra-Áss dgs. 27.04.2021.

32.4
2009086
Friðlýsingar Borgarvogs
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 27

Fulltrúar Umhverfisstofnunar kynntu tillögu að skilmálum friðlýsingar Borgarvogs.

32.5
2108136
Kaldármelar L207278 - Fyrirspurn - Byggingarleyfi íbúðarhús
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 27

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulags- og byggingardeild að vinna málið áfram með landeigendum og óskað er eftir frekari gögnum.

32.6
2108049
Hundasnyrtistofa í Borgarnesi - Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 27

Skipulags- og byggingarnefnd telur að umræddur rekstur sé í samræmi við þá starfsemi sem nú þegar er á svæðinu. Jafnframt telur nefndin að starfsemin auki á fjölbreytni starfa í sveitarfélaginu og gerir því ekki athugasemdir.

32.7
2105002
Bjarnastaðir L134637 - DSK
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 27

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn Borgarbyggðar að samþykkja tillögu að deiliskipulagi fyrir Bjarnastaðir til auglýsingar. Lagður var fram uppdráttur dags. 02.09.2021. Deiliskipulag þetta tekur til 5,5ha svæðis til uppbyggingar á bæjarstæði jarðarinnar. Á skipulagssvæði eru fyrir tvö íbúðarhús ásamt landbúnaðarbyggingum. Fyrirhugað er að bæta þar við íbúðarhúsi á nýrri lóð er nefnist Bjarnastaðir 2. Deiliskipulag þetta samræmist gildandi aðalskipulagi. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. grein Skipulagslaga nr. 123/2010. Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.

32.8
1409019
Seláshverfi í landi Ánabrekku, deiliskipulagsbreyting
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 27

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn Borgarbyggðar að samþykkja tillögu að deiliskipulagi Seláshverfi í landi Ánabrekku til auglýsingar. Lagður var fram uppdráttur dags. 28.11.2018. Breytingin tekur til 12 frístundalóða innan frístundasvæðis F20. Svæðið er stækkað úr 7,88 ha í 8,95 ha, nýr aðkomuvegur er að lóðum 8-12 og aflagður aðkomuvegur að lóðum nr. 2, 4, 6 og 8.
Sameiginlegur vegur verður að lóðum 1-5 og 8. Tillagan samræmist aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. grein Skipulagslaga nr. 123/2010. Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.

32.9
2105028
Háskjólabyggð 7 L135104 - Viðbygging
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 27

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að sveitarstjórn heimili byggingarfulltrúa að samþykkja byggingaráform, þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

32.10
2007033
Sturlureykir 1 lóð 11 lnr.186143 - Umsókn um byggingarleyfi, frístundahús
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 27

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að sveitarstjórn heimili byggingarfulltrúa að samþykkja byggingaráform, þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

32.11
2106066
Skógarbrekkur 4 L188642 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 27

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að sveitarstjórn heimili byggingarfulltrúa að samþykkja byggingaráform, þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

32.12
2106118
Sóltún 13 L194189 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 27

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að sveitarstjórn heimili byggingarfulltrúa að samþykkja byggingaráform, þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

32.13
2001067
Mælimastur - framkvæmdaleyfi_umsókn
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 27

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að sveitarstjórn heimili skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi tímabundið fyrir mælimastur, til 12 mánaða, á Grjóthálsi í landi Sigmundastaða.

32.14
2108020
Langás í landi Munaðarness L134915 - stofnun lóðar
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 27

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að sveitarstjórn heimili stofnun lóðarinnar Langás, stærð 26ha úr landi Munaðarnes L134915. Lóðin verður sett í landnotkunarflokkinn sumarbústaðarlóð.



33. Atvinnu - markaðs - og menningarmálanefnd - 27
2108017F

Fundargerðin framlögð.

Til máls tók MSS, GLE, MSS, ÞSS, LBÁ.

33.1
2001089
Upplýsingamiðstöð Borgarbyggðar
Atvinnu - markaðs - og menningarmálanefnd - 27

Nefndin þakkar forsvarsmönnum Ljómalindar fyrir komuna á fundinn og fyrir greinagóðar upplýsingar um starfsemi upplýsingamiðstöðvarinnar.
Nefndin leggur til að sveitarstjórn endurnýi samninginn við Ljómalind fyrir árið 2022. Áfram verður skoðað með hvaða hætti upplýsingagjöf til gesta sveitarfélagsins verði háttað til framtíðar.

33.2
2107033
Starfs- og fjárhagsáætlun - Atvinnu-, markaðs- og menningarmálanefnd
Atvinnu - markaðs - og menningarmálanefnd - 27

Nefndin fjallaði um starfs- og fjárhagsáætlun fyrir 2022. Samskiptastjóra falið að vinna áfram með áætlunina og leggja fram á næsta fund.



34. Fjallskilanefnd Hítardalsréttar - 30
2108016F

Fundargerðin framlögð.

34.1
2108107
Álagning fjallskila Hítardalsréttar 2021
Fjallskilanefnd Hítardalsréttar - 30

Álagning fjallskila á fjáreigendur sem eru 13. Tala sauðfjár til fjallskila er 2.602 samkvæmt uppgefnum tölum frá fjáreigendum. Fjallskilagjald á kind ákveðið kr. 650. Heildarálagning 1.691.300.
Dagsverkið metið á kr. 10.000
Dagsetningar leita og rétta hafa verið færðar fram um viku frá ákvæðum fjallskilareglugerðar.
Leitarstjóri í öllum afréttarleitum verður Gísli Guðjónsson. Jón Guðlaugur Guðbrandsson stjórnar leitum á Svarfhólsmúla.
Sigurður Jóhannsson getur ekki tekið að sér réttarstjórn í Hítardalsrétt og eru honum þökkuð störf liðinna ára.
Réttarstjóri í fyrstu rétt verður Sigfús Helgi Guðjónsson, í annarri og þriðju rétt Finnbogi Leifsson.



35. Fjallskilanefnd Rauðsgilsréttar - 24
2108012F

Fundargerðin framlögð.

35.1
2108089
Fjallskil 2021
Fjallskilanefnd Rauðsgilsréttar - 24

- Heiðaleit færð frá Reykholti á Giljahlíð
- Heiðaleit færð frá Kópareykjum á Hurðarbak
- Fyrirstaða færð frá Hurðarbaki á Grímsstaði
Geitlandsleit verður miðvikudaginn 29. september.
Húsafellsleit verður fimmtudaginn 16. september.
Lagt er til að bæta við tveimur mönnum sem skilamenn í Þverárrétt og tveimur leitarmönnum í Geitlandsleit.
Það er samþykkt og er lagt á:
- Skilamenn Þverárrétt ? Grímsstaðir og Kópareykir
- Geitlandsleit ? Hægindi og Skáney.

35.2
2108090
Gjöld 2021
Fjallskilanefnd Rauðsgilsréttar - 24

Haldið verður áfram að hækka dagverk um 1000kr. eins og hefur verið gert síðustu ár.
- Jarðargjöld hækka um 3.2%
- Fæði: 4.500kr.
- Fjárgjöld: 500kr.
- Dagsverk: 13.000kr.

35.3
2108091
Önnur mál
Fjallskilanefnd Rauðsgilsréttar - 24

Ráða þarf nýjan matráð og trúss fyrir Heiðarleit, og matráð í seinni leit, og eru samningarviðræður við Guðmund og Steinunni á Grímsstöðum fyrir Heiðarleit og Guðrúnu Þórðardóttir fyrir seinni leit.
Rauðsgilsrétt þarfnast viðhalds í ár og verður farið í það þegar nær dregur. Eitthvað af efni er til frá því í fyrra.



36. Fjallskilanefnd Grímsstaðaréttar - 34
2108011F

Fundargerðin framlögð.

36.1
2108088
Álagning fjallskila
Fjallskilanefnd Grímsstaðaréttar - 34

Kindur alls 1500, fækkun um 45 kindur. Hver kind er metin á 830 krónur. Dagsverkið metið á 10 þúsund krónur.



37. Fjallskilanefnd Brekku - og Svignaskarðsréttar - 48
2108009F

Fundargerðin framlögð.

37.1
2108055
Álagning fjallskila 2021
Fjallskilanefnd Brekku - og Svignaskarðsréttar - 48

Farið yfir drög að fjallskilaseðli og hann samþykktur með áorðnum breytingum.
Ákveðið að ekki verði kaffisala þetta árið í fyrstu Skarðsrétt.
Rætt um smölun í skógræktargirðingu.
Rætt um smölun á Bjarnardal.
Rætt um aukningu á vargfugli við Langavatn.
Rætt um viðhald húsa við Langavatn, m.a. fyrirhugaðar lagfæringar nú í haust.



38. Fjallskilanefnd Oddsstaðaréttar - 46
2109004F

Fundargerðin framlögð.

38.1
2109038
Álagning fjallskila Oddsstaðaréttar 2021
Fjallskilanefnd Oddsstaðaréttar - 46

Upplýsingar um jarðamat fengnar úr Þjóðskrá.
Álagning á kind hækkar úr 450 krónum í 600 krónur.
Álagningarhlutfall á fasteingamat hækkar úr 1,25% í 1,30%
Álögð fjallskil samtals: 3.242.436 kr.
Innheimt í peningum: 1.368.436 kr.
Dagsverkamat í leitum hækkar - Norðurfjall er metið á 39.000 kr., Tunguleit metin á 31.000 og Suðurfjall metið á 29.500 kr.
Gengið frá fjallskilaseðli

38.2
2109039
Önnur mál fjallskilanefndar Oddsstaðaréttar
Fjallskilanefnd Oddsstaðaréttar - 46

Engin önnur mál.



Fundi slitið - kl. 00:00