Fundargerð
Umhverfis- og skipulagsnefnd Borgarbyggðar
28. fundur
11. febrúar 2013 kl. 08:30 - 00:00
í stóra fundarsal í Ráðhúsi
Nefndarmenn
Starfsmenn
Dagskrá
1. Ályktun frá aðalfundi Skógræktarfél.Íslands
Lagt fram bréf, dagsett 30. nóvember 2012, frá Brynjólfi Jónssyni framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Íslands.
Málið framlagt.
2. Ályktun frá Hestamannafélaginu Skugga
Lögð fram ályktun frá Hestamannafélaginu Skugga þar sem skorað er á Borgarbyggð að skipuleggja svæði fyrir fjárhúsabyggð við Borgarnes. Erindinu var vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar frá 257. fundi byggðarráðs þann 22. janúar 2013.
Nefndin leggur til að hafin verði vinna við skipulag fjáhúsahverfis við Borgarnes. Nefndin setur sig ekki upp á móti frestun gildistöku annarar greinar samþykktar um hesthús og umgengni í hesthúsahverfi í Borgarbyggð.
3. Ársskýrsla náttúruverndanefnda 2012
Björg Gunnarsdóttir, umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi, leggur fram ársskýrslu 2012 um störf náttúrverndarnefndar Borgarbyggðar.
Málið kynnt.
4. Efnistaka og framkvæmdaleyfi
Lögð fram auglýsing sem birt var á heimasíðunni og í blöðunum í lok árs 2012 varðandi skyldu þeirra landeigenda sem taka eða selja efni að sækja um framkvæmdaleyfi.
Málið kynnt.
5. Frumvarp til laga um náttúruvernd
Lagt fram frumvarp til laga um náttúrvernd og tölvupóstur, dagsettur 17. janúar 2013, frá nefndarsviði Alþingis með ósk um umsögn um frumvarpið.
Eftirfarandi bókun var samþykkt.
Fyrirliggjandi frumvarp um náttúruvernd er að ýmsu leiti til bóta. Umhverfis- og skipulagsnefnd Borgarbyggðar hefur þó áhyggjur af því hversu mikið vald yfir öllu því er sýslað er í dreifbýli er sett í hendur stofnanna í Reykjavík. Nefndin hvetur löggjafann til að auka og skýra hlutverk umdæmislandvarða, náttúrustofa og náttúruverndanefnda sveitarfélaga í stjórnsýslu umhverfismála. Jafnframt hvetur nefndin til þess að tryggt sé að gætt sé meðalhófs og ákvæði laganna leggi ekki óþarfa kostnað á atvinnuvegi deifbýlisins og hamli ekki framförum í landbúnaði nema ljóst sé að brýn nauðsyn krefjist þess.
6. Loftslagsmál í sveitarfélögum
Lögð fram niðurstöðuskýrsla NordLead verkefnisins um loftslagsmál í sveitarfélögum.
Málið kynnt.
7. Skógrækt Grunnskóla Borgarness í landi Borgar á Mýrum.
Lögð fram fundargerð frá 3. febrúar 2013, undirrituð af Þorbirni Hlyni Árnasyni og Hilmari Má Arasyni varðandi skógrækt Grunnskóla Borgarness í landi Borgar á Mýrum.
Nefndin hvetur til að samningi milli Grunnskóla Borgarness og prestsetursins á Borg á Mýrum um skógrækt verði þinglýst, jafnframt verði unnið skipulag af svæðinu.
8. Verkefnalisti Staðardagskrár 2013
Lögð fram samþykkt staðardagskrá, Ólafsvíkuryfirlýsingin sem Borgarbyggð er aðili að, uppfært 1. fylgiskjal með Sd21 ,,Gildandi lög og reglugerðir" og drög að verkefnalista fyrir 2013.
Málið kynnt og nefndarmönnum falið að koma með verkefnalista.
9. Umhverfisstefna Borgarbyggðar
Lögð fram gildandi Umhverfisstefna Borgarbyggðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir gildandi umhverfisstefnu.
10. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs hjá Borgarbyggð
Lögð fram drög að samþykkt um meðhöndlun úrgangs hjá Borgarbyggð.
Drögin samþykkt með áorðnum breytingum á 6. grein.
11. Fíflholt - umsögn um breytingu á sorpurðunarstað
Kynnt staða mála varðandi umsögn um breytingu á sorpurðunarstaðnum í Fíflholtum.
Málið kynnt.
12. Ísgöng í Langjökli
Kynnt staða mála varðandi umsögn um gerð ísganga í Langjökli.
Málið kynnt.
13. Borgarneskirkjugarður deiliskipulag lýsigögn
Hönnuður f.h. lóðarhafa leggur fram lýsigögn fyrir deiliskipulag nánasta umhverfis Borgarneskirkjugarðs dags. 24. janúar 2013.
Samþykkt að setja lýsinguna í auglýsingu, auglýsingartími verði 2 vikur.
14. Borgarnes deiliskipulag miðsvæðis
Umræða um deiliskipulag miðsvæðis í Borgarnesi.
Samþykkt að beina því til byggðarráðs að skipaður verði vinnuhópur um skipulag svæðisins. Fram kom athugasemd við afmörkun skipulagssvæðisins og var starfsmönnum falið að breyta því.
15. Brákarey skipulagsmál
Umræða um skipulagsmál í Brákarey.
Kynnt var hugmynd að umferðarskipulagi sem umhverfis- og skipulagssvið vinnur að.
16. Dalsmynni, Fagrabrekka lýsigögn
Hönnuður f.h. landeiganda leggur fram lýsigögn fyrir deiliskipulag frístundabyggðarinnar Fögrubrekku í landi Dalsmynni, dags. 1. febrúar 2010.
Samþykkt að setja lýsinguna í auglýsingu, auglýsingartími verði 2 vikur.
17. Einkunnir deiliskipulag
Lagðar fram athugasemdir við lýsigögn fyrir deilskipulag fólkvangsins í Einkunnum.
Fram kom að tvær athugasemdir hafa borist við lýsinguna á auglýsingatíma hennar, frá Umhverfisstofnun og Minjastofnun.
18. Gamli miðbærinn í Borgarnesi deiliskipulagsbreyting
Umræða um breytingar á deiliskipulagi "Gamla miðbæjarinns" í Borgarnesi, þ.e. við Brákarbraut, Brákarsund og Skúlagötu.
Kynntar voru breytingar sem þörf er á að gera á svæðinu.
19. Heimatún í landi Húsafells
Hönnuður f.h. landeiganda leggur fram lýsigögn fyrir deiliskipulag spildunnar Heimatún úr landi Húsafells 3, dags. 18. október 2012.
Samþykkt að setja lýsinguna í auglýsingu, auglýsingartími verði 2 vikur.
20. Helgavatn, Vatnshlíð deiliskipulagsbreyting
Hönnuður f.h. landeiganda leggur fram breytt deiliskipulag fyrir frístundasvæðið Vatnshlíð í landi Helgavatns, dags. 5. 10 2011
Samþykkt að setja deiliskipulagstillöguna í auglýsingu.
21. Krumshólapartur 2, úr landi Krumshóla
Hönnuður f.h. landeigenda leggur fram lýsigögn fyrir deiliskipulag á spildunni Krumshólaparti 2 úr landi Krumshóla, dags. 20. desember 2012.
Samþykkt að setja lýsinguna í auglýsingu, auglýsingartími verði 2 vikur.
22. Laufásland, Klettaháls lýsigögn
Hönnuður f.h. landeiganda leggur fram lýsigögn fyrir deiliskipulag hverfisins Klettaháls úr Laufáslandi dags. 12. desember 2012.
Samþykkt að setja lýsinguna í auglýsingu, auglýsingartími verði 2 vikur.
23. Laufásland, Seláshverfi deiliskipulagsbreyting
Hönnuður f.h. landeiganda leggur fram tillögu að breyttu deiliskipulagi Seláshverfis úr Laufáslandi, dags. 24. janúar 2013.
Samþykkt að setja deiliskipulagstillöguna í auglýsingu.
24. Ölvaldsstaðir 2, aðalskipulagsbreyting lýsigögn
Hönnuður f.h. landeigenda leggur fram lýsigögn vegna aðalskipulagsbreytingar á spildunum Norðurland 2, 3 og 4 úr landi Ölvaldsstaða 2, dags. 6. febrúar 2013.
Í ljósi þess að skipulagið er ekki í samræmi við ákvæði aðalskipulags Borgarbyggðar er afgreiðslu málsins frestað.
25. Skipulagsreglugerð nr. 90/2013
Lögð fram til kynningar ný skipulagsreglugerð nr. 90/2013 og leiðbeiningar frá Skipulagsstofnun um reglugerðarskil.
Málið kynnt.
26. Þjónustukönnun Capacent 2012
Lögð fram til kynningar þjónustukönnun Capacent 2012. Byggðarráð vísaði erindinu til umfjöllunar í nefndum sveitarfélagsins á 256. fundi sínum þann 3. janúar 2013.
Málið kynnt.
27. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa
Lagðar fram til kynningar fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa nr. 51, 52, 53, 54 og 55.
Málið kynnt.
28. Skotveiðisvæði
Kynnt stað mála varðandi staðsetningu skotæfingasvæðis.
Málið kynnt.