Byggðarráð Borgarbyggðar

228. fundur

12. apríl 2012 kl. 08:00 - 08:00

í stóra fundarsal í Ráðhúsi


Nefndarmenn

Björn Bjarki Þorsteinsson - formaður
Ingibjörg Daníelsdóttir - varaformaður
Geirlaug Jóhannsdóttir - aðalmaður
Sigríður Guðbjörg Bjarnadóttir - áheyrnarfulltrúi
Eiríkur Ólafsson - skrifstofustjóri

Starfsmenn

Fundargerð ritaði: Eiríkur Ólafsson - skrifstofustjóri

Dagskrá

1. Ráðning leikskólastjóra í Ugluklett
1204022

Framlagðar umsóknir um stöðu leikskólastjóra á Uglukletti.
Tvær umsóknir bárust frá Söru Margréti Helgadóttur og Kristínu Gísladóttur.
Steinunn Baldursdóttir fræðslustjóri kom á fundinn og kynnti umsögn fræðslustjóra og sveitarstjóra um ráðninguna.
Samþykkt að vísa umsóknunum til afgreiðslu sveitarstjórnar.



2. Raflýsing í þéttbýli
1204023

Á fundinn kom Jökull Helgason forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs til viðræðna um götulýsingu í þéttbýli.
Samþykkt að slökkva götuljós í þéttbýli Borgarbyggðar um næstu mánaðarmót og kveikja aftur í byrjun ágúst líkt og undanfarin ár.



3. Geymslusvæði fyrir gáma við Sólbakka
1204024

Forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs kynnti lóðaskipulag fyrir gámasvæði á Sólbakka 29 sem umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt.
Samþykkt að fela umhverfis- og skipulagssviði að kynna málið fyrir öðrum lóðarhöfum á Sólbakka og gera verðkönnun varðandi fyllingu í lóðina.



4. Útboð á skólaakstri 2012
1203058

Rætt um fyrirhugað útboð á skólaakstri í Borgarbyggð.



5. Háskólinn á Bifröst
1204025

Á fundinn mætti Guðsteinn Einarsson stjórnarformaður í Háskólanum á Bifröst til viðræðna um rekstur og skipulag háskólans.



6. Búfjáreftirlitsnefnd á svæði 5
1204001

Á fundinn mætti Guðmundur Sigurðsson formaður búfjáreftirlitsnefndar á starfssvæði 5 til viðræðna um búfjáreftirlit í Borgarbyggð.  Jafnframt var framlögð tillaga að gjaldskrá fyrir búfjáreftirlit sem og fundargerð frá síðasta fundi búfjáreftirlitsnefndar.
Samþykkt að vísa tillögu að gjaldskrá til afgreiðslu sveitarstjórnar.
 
 



7. Ársreikningur 2011
1204021

Á fundinn mætti Haraldur Reynisson frá KPMG og kynnti ársreikning Borgarbyggðar fyrir árið 2011.
Anna Ólafsdóttir aðalbókari og Einar G. Pálsson fjármálafulltrúi sátu fundinn á meðan þessi liður var ræddur.  
Byggðarráð samþykkti ársreikninginn og vísaði honum til endurskoðunar og fyrri umræðu í sveitarstjórn.



8. Ályktun búnaðarþings2012 um tvöfalda búsetu
1204010

Framlögð ályktun Búnaðarþings 2012 um tvöfalda búsetu.
Byggðarráð tekur undir ályktunina og skorar á innanríkisráðherra að vinna að framgangi málsins.



9. Orlof húsmæðra 2012
1204003

Framlagt bréf frá Orlofsnefnd húsmæðra í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu dags. 29.03."12 þar sem þakkað er fyrir stuðning á síðasta ári og minnt á framlag þessa árs.



Fundi slitið - kl. 08:00