Borgarbyggð vill vekja athygli íbúa og samstarfsaðila á svikapósti sem nú er í umferð og virðist vera sendur í nafni starfsmanns sveitarfélagsins.
Pósturinn ber heitið “Invoice” eða „Reikningur“ og inniheldur hlekk sem viðtakendur eru hvattir til að opna. Um er að ræða svikatilraun (phishing), þar sem markmiðið er að blekkja fólk til að veita aðgang að viðkvæmum upplýsingum eða setja upp skaðlegan hugbúnað.
Mikilvægt er að hafa eftirfarandi í huga:
- Ekki smella á hlekkinn í póstinum
- Ekki opna viðhengi sem fylgja
- Eyða póstinum tafarlaust
- Tilkynna grunsamlegan póst til viðeigandi aðila eða tæknideildar
Borgarbyggð tekur málið alvarlega og vinnur að því að koma í veg fyrir frekari dreifingu svikapóstsins. Íbúar eru hvattir til að sýna aðgát og vera á varðbergi gagnvart óvæntum tölvupóstum.
Innihald tölvupóstsins lítur svona út:

Tengdar fréttir

Borgarbyggð er meðal vinnustaða í fremstu röð árið 2025
Síðastliðin tvö ár hefur Borgarbyggð nýtt sér púlsmælingar Moodup, sem veita forstöðumönnum stofnana heildstæða innsýn í líðan starfsfólks. Þetta gerir þeim kleift að hlusta á starfsfólk og bregðast við á árangursríkan hátt. Þættir sem mældir eru fjórum sinnum á ári snúa að líðan og upplifun starfsfólks, tækifærum til vaxtar, aðbúnaði, starfsánægju, heilsu og vellíðan, auk þess hversu vel starfsfólk samsamar …