Síðastliðin tvö ár hefur Borgarbyggð nýtt sér púlsmælingar Moodup, sem veita forstöðumönnum stofnana heildstæða innsýn í líðan starfsfólks. Þetta gerir þeim kleift að hlusta á starfsfólk og bregðast við á árangursríkan hátt. Þættir sem mældir eru fjórum sinnum á ári snúa að líðan og upplifun starfsfólks, tækifærum til vaxtar, aðbúnaði, starfsánægju, heilsu og vellíðan, auk þess hversu vel starfsfólk samsamar sig vinnustaðnum.
Borgarbyggð er meðal þeirra fyrirtækja og stofnana sem hlýtur viðurkenningu Moodup, „Vinnustaður í fremstu röð” fyrir árið 2025.
Þau skilyrði sem fyrirtæki/sveitarfélög þurfa að uppfylla til að hljóta viðurkenningu Moodup eru eftirfarandi:
- Hlusta – Framkvæma starfsánægjukannanir að minnsta kosti einu sinni á hverjum ársfjórðung.
- Bregðast við – Að vinnustaðurinn bregðist við endurgjöf frá starfsfólki og sýni að álit þess skipti máli.
- Ná árangri – Nái viðmiðum um árangur samanborið við aðra vinnustaði í lokamælingu tímabilsins.
Með því að uppfylla ofangreind skilyrði hefur Borgarbyggð sýnt í verki að stjórnendur hlusta á starfsfólk, sýna í verki að álit þess skiptir máli, og ná árangri þegar kemur að því að auka og viðhalda hárri starfsánægju.
Við erum afar stolt af þessari viðurkenningu, sem er til marks um áherslu sveitarfélagsins að skapa gott vinnuumhverfi og tryggja vellíðan starfsfólks.
Tengdar fréttir

Um skipan í kjördeildir í Borgarbyggð og Skorradalshrepp
Við Sveitarstjórnarkosningar laugardaginn 16. maí 2026 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð og Skorradalshrepp sem hér segir: Borgarneskjördeild í Hjálmakletti í Borgarnesi Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Gljúfurár, á Hvanneyri og Andakíl. Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00. Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. Kjörfundur hefst kl. …

Laus störf til umsóknar hjá Borgarbyggð
Á ráðningarvef Borgarbyggðar er að finna yfirlit yfir öll þau fjölbreyttu störf sem í boði eru hjá sveitarfélaginu. Ýmist er um að ræða framtíðarstarf, fullt starf eða hlutastarf sem tilvalið er með skóla. Markmið Borgarbyggðar er að hafa ávallt á að skipa hæfum, áhugasömum og traustum starfsmönnum sem sýna frumkvæði í starfi, veita íbúum þess góða þjónustu og geta brugðist …