4. mars, 2026
Fréttir

Í síðustu viku sendi byggingafulltrúi bréf til fasteignaeigenda í Borgarbyggð þar sem þeim var bent á að yfirfara skráningu á fasteign sinni en um 360 bréf voru send.

Þau atriði sem nefnd eru í bréfinu og fasteignaeigendur eru beðnir að skoða eru:

• Ekki er rétt skráð byggingarstig.
• Ekki er skráð lokaúttekt.
• Byggt er án heimilda.
• Stærð mannvirkis er ekki í samræmi við skráningu.

Fletta má upp skráningu fasteigna á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Komi í ljós að skráning sé ekki rétt má senda leiðréttingu á netfangið skraning@borgarbyggd.is.
Fasteignaeigendum er jafnframt bent á að fara yfir og uppfæra brunabótamat. Röng eða ófullnægjandi skráning getur haft áhrif á brunabótamat, tryggingamál, fasteignagjöld og viðskipti með fasteignir.

Það er ávallt á ábyrgð fasteignaeigenda að viðkomandi fasteign sé rétt skráð.

 

 

Tengdar fréttir

15. apríl, 2026
Fréttir

Íbúakönnun um nafn á sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps

Ráðgefandi Íbúakönnun um nafn á sameinuðu sveitarfélagi hófst í dag, 15. apríl, og stendur til og með 27. apríl. Allir íbúar með lögheimili í sveitarfélögunum Borgarbyggð og Skorradalshreppi, 16 ára og eldri geta tekið þátt í gegnum þjónustugátt Borgarbyggðar. Til að komast þar inn þarftu rafræn skilríki. Smelltu hér til að fara í þjónustugáttina. Þrír möguleikar Valið er á milli …