17. apríl, 2026
Fréttir

Ragnar Heiðar Sigtryggsson hefur verið ráðinn sem umsjónarmaður Hjálmakletts.
Ragnar er með B.cs í viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði og hefur tekið að sér að útbúa kynningarefni fyrir hin ýmsu fyrirtæki. Þá starfaði hann á fjármála- og stjórnýslusviði hjá Ísafjarðarbæ á árunum 2016 – 2019 og hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga á árunum 2019-2022.
Ragnar hefur töluverða reynslu af viðburðastjórnun og rekstri en hann hefur rekið Viðburðarstofu Vestfjarða frá árinu 2019 og hefur ferið framkvæmdarsstjóri Hopp á Ísafirði, Borgarnesi og Akranesi.

Við bjóðum Ragnar innilega velkominn til starfa.